Morgunblaðið - 12.05.2007, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 12.05.2007, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is HANN ER aðeins toppurinn á ísjak- anum fangelsisdómurinn yfir tveim- ur víetnömskum lögfræðingum í höf- uðborginni Hanoi í gær og var áhugi erlendra fjölmiðla og diplómata til marks um vaxandi ólgu í Víetnam. Stjórn kommúnista þótti slaka á klónni á meðan hún beið inngöngu í Heimsviðskiptastofnunina, WTO, en svo hafa tekið upp fyrri háttu eftir að umsóknin var samþykkt 11. jan. sl. Þrír aðgerðasinnar mættu í rétt- arsal á fimmtudag vegna gruns um að hafa átt í samstarfi við Cong Thanh Do á Netinu, en þar ræðir um víetnamskan innflytjanda sem er bú- settur í San Jose, Kaliforníu, og vís- að var úr landi í september fyrir til- raunir til að grafa undan stjórninni. Lögfræðingarnir, Nguyen Van Dai, 38 ára, og Le Thi Cong Nhan, 27 ára, voru dæmdir í fimm og fjögurra ára fangelsi og gefið að sök að hafa tekið þátt í undirróðri gegn stjórn kommúnista. Tóku þau bæði fullan þátt í starfi neðanjarðarhreyfingar- innar Víetnamski framfaraflokkur- inn og samtökin 8406, sem berst fyr- ir lýðræðislegum umbótum. Einn stofnenda hreyfingarinnar, kaþólski presturinn Thadeus Nguy- en Van Ly, eitt þekktasta andlit and- ófsins, var í mars dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir andóf og voru áðurnefndir lögfræðingar sakaðir um að hafa átt í samstarfi við hann. Hreyfingin dregur nafn sitt af stofndeginum, 8. apríl 2006, og hafa aðgerðir yfirvalda til að brjóta hana á bak aftur sætt mikilli gagnrýni al- þjóðasamfélagsins. Þær hafa einnig aukið spennuna í samskiptunum við Bandaríkjastjórn og þær kröfur heyrst úr röðum þingmanna vestan- hafs að beita beri refsiaðgerðum gegn stjórninni í Hanoi. Ekki er langt síðan bandarísk stjórnvöld tóku Víetnam af svörtum lista yfir ríki þar sem mannréttinda- brot eru framin og sagðist repúblik- aninn Edward Randall Royce hneykslaður yfir því hversu hægt gengi að auka frelsi almennra borg- ara í landinu. Nú væri ljóst að kommúnistar hefðu sagt ósatt þegar þeir lofuðu bót og betrun í mannrétt- indamálum, sjónarmið sem alþjóð- legu mannréttindasamtökin Am- nesty International taka undir. ESB þrýstir á stjórnina Jafnframt hvetja fulltrúar Evr- ópusambandsins, ESB, stjórnina til að láta lögfræðingana og aðra stjórnarandstæðinga lausa, mál- frelsi sé tryggt í víetnömsku stjórn- arskránni og kærurnar því ólögmæt- ar. Kommúnistar segjast hins vegar ekki refsa neinum fyrir stjórnmála- skoðanir, málið snúist um dreifingu undirróðurs gegn stjórnvöldum. Gaf dómsforsetinn, Nguyen Huu Chinh, þeim Dai og Nhan þannig að sök að hafa „afskræmt lýðræðið og mannréttindi í Víetnam, og mælt gegn sósíalisma“. Saksóknarar tóku í sama streng, lögfræðingarnir hefðu brotið 88. grein víetnamskra refsi- laga með því að hvetja landa sína til að sniðganga næstu kosningar til þjóðþingsins. Tilraunir til að hvetja starfsfólk lögfræðingastofu til að styðja málstað hreyfingarinnar væru einnig sakarverðar, í samfélagi þar sem viðleitni til að koma á fjöl- flokkakerfi jafnast á við landráð. Dai og Nhan hefðu að auki verið í sambandi við lýðræðissinna utan landsins, uppfrætt samborgara sína um mannréttindi og notað Netið til að koma boðskap sínum á framfæri. Vart þarf að taka fram að slíkt er lit- ið afar alvarlegum augum, enda gegn flokkslínunni í ríkismiðlunum. Ritskoðunin nær víðar, erlendum fjölmiðlum var meinaður aðgangur að réttarhöldunum en þeir fylgdust með þeim í gegnum lokaða sjón- varpsrás, hljóðgæðin voru svo léleg að lítill hluti þeirra heyrðist. Rúm tvö ár eru síðan presturinn Van Ly, þrír félagar hans og um 8.000 fangar fengu sakaruppgjöf. Nú er annað uppi á teningnum og meðal þeirra sem hafa sætt ákærum er saksóknarinn Le Quoc Quan, sem var tekinn höndum í mars eftir að hafa lagt stund á nám í uppbyggingu lýðræðissamfélaga í Bandaríkjun- um. Sakir saksóknarans kunna að verða gerðar upp í gálganum. Dæmd fyrir andóf gegn stjórnvöldum Í HNOTSKURN »Víetnam varð 150. aðildar-ríki Heimsviðskiptastofn- unarinnar 11. janúar sl. »Mikill efnahagsuppgangurhefur verið í landinu og rætt um nýjan Asíu „tígur“. »Stjórnin lítur Netið afartortryggnum augum, rétt eins og kommúnistar í Kína. »Aðgerðirnar eru taldar ámeðal þeirra hörðustu í um tvo áratugi.  Kommúnistar í Víetnam taka hart á lýðræðishreyfingu  Kröfur vakna um refsiaðgerðir á Bandaríkjaþingi Reuters Í réttinum Dai og Nhan (fyrir aftan) með hermönnum. Erlendum fjöl- miðlum var ekki hleypt í dómsalinn og er myndin úr sjónvarpsupptöku. ÞÚSUNDIR sænskra ungmenna eiga nú í vandræðum vegna svo- kallaðra SMS-skyndilána, sem eru í raun ekkert annað en okurlán, að minnsta kosti á sænska vísu. Hefur málum af þessu tagi fjölgað mikið það sem af er ári en lánin eru yfir- leitt tekin til að fjármagna einka- neyslu og ósjaldan vegna spilafíkn- ar. Lánin, sem eru veitt á korteri í gegnum símann eða netið, eru oft- ast á bilinu 10.000 til 40.000 ísl. kr. og algengast er, að þau séu notuð til að greiða fyrir vín og mat og aðra einkaneyslu. Kemur það fram í finnskri skýrslu en þessi lána- starfsemi hófst fyrst í Finnlandi. Kom þetta fram á fréttavef Dagens Nyheter í gær. „Fók, sem annars ætti að láta það ógert að taka lán, gerir það samt og notar það í einkaneyslu. Það lætur sig ekki muna um að kaupa 30.000 kr. fyrir 36.000 kr.,“ segir Janne Åkerlund, sem starfar í for- varnadeild sýslu- mannsembætt- anna. Tvöfaldast á skömmum tíma Bendir hann á, að standi fólk ekki í skilum, geti skuldin næstum tvöfaldast á tveimur mán- uðum. Ef mál er höfðað til að inn- heimta skuldina, vex kostnaðurinn enn og þá er fólk komið á svartan lista. Það veldur því síðan erfið- leikum á húsnæðis- og vinnumark- aði. Nú hillir undir, að 10.000 ungir Svíar verði búnir að koma fyrir hjá sýslumanni bara á þessu ári en þeir voru aðeins 1.407 um síðustu ára- mót. Annað, sem vekur athygli, er, að svo ósvífin eru lánafyrirtækin, að þau halda áfram að lána fólki, sem þegar er í verulegri skuld. Eitt af þessum fyrirtækjum heit- ir Pokerfinans, sem segir sína sögu, og það hefur nú verið kært. Stærsta fyrirtækið er Mobillån Sverige og hefur það að sögn lánað 120.000 manns. Á það nú í tvennum málaferlum, annars vegar vegna markaðssetningar og vaxta og hins vegar vegna okurlánastarfsemi. Önnur tvö fyrirtæki, Recator og SMS Finans, hafa ekki verið skráð hjá sænska fjármálaeftirlitinu, sem er ólöglegt. Er það mál nú í athug- un hjá eftirlitinu. Þessi starfsemi vekur æ meiri áhyggjur og hefur hún mikið verið rædd innan samtaka fyrrverandi spilafíkla. Skora þau á ríkisvaldið að skerast í leikinn og ungir jafn- aðarmenn krefjast þess, að starf- semi af þessu tagi verði bönnuð. Komið í skuldakreppu vegna SMS-okurlána Okurlán Nú er auð- velt að steypa sér í skuldir á korteri með því að taka SMS-lán. BÁLREIÐIR eigendur forláta Trabant-bifreiða munu þeyta bílflautur í miðborg Berlínar á morgun í mótmælaskyni við ný lög um útblástur gróðurhúsaloftteg- unda, sem óttast er að séu dauða- dómur yfir einu helsta framlagi austur-þýsks iðnaðar til sósíalism- ans á tuttugustu öld, á sjálfu hálfr- ar aldar afmælisári bifreiðarinnar. Lögin, sem koma frá Evrópusam- bandinu, ESB, ganga í gildi á ný- ársdag 2008 og telja unnendur fornbíla þau munu koma harðast niður á eldri sjálfrennireiðum. Loftgæði í koladrifnum iðnaðar- borgum Austur-Evrópu voru gjarn- an afar slæm. Engu að síður segja kunnugir að alltaf hafi mátt greina útblásturinn frá Trabant-bílunum, kokkteil efnasambanda frá bifreið sem sögð er menga nífalt á við Volkswagen Golf. Af rúmum þrem- ur milljónum Trabant-bíla sem smíðaðir voru eru enn um 52.432 skráðir, en plastfákarnir urðu að einu helsta tákni sósíalismans eftir að Berlínarmúrinn féll í nóvember 1989 og forvitnir A-Þjóðverjar streymdu til vestursins. Ekki kunnu þó allir Austur- Þjóðverjar að meta bílinn og upp- nefndu illmælgir hann „kappakst- urs pappakassa“ (þ. Rennpappe), sem ól af sér þá goðsögn að plastyf- irbyggingin væri úr léttum pappa. Niðurlæging Trabantsins varð svo tímabundið algjör er fyrrum eigendur losuðu sig við hann fyrir fáein þýsk mörk – eða jafnvel gáfu hann – í sameinuðu Þýskalandi. Undrasmíðin fékk síðan uppreisn æru eftir að hún stóðst hið fræga elgspróf, getu bifreiðar til að halda jafnvægi í krappri beygju, sem hin rándýra frumgerð A-Class, smábíls Mercedes Benz, kolféll á. Fyrirtækið Sachsenring hóf smíði Trabant í borginni Zwickau árið 1957 á sömu slóðum og Audi var framleiddur fyrir síðari heims- styrjöldina, 1939 til 1945. Frægasta útgáfan var Trabant 601, sem var frá 1967 vinsælust allt þar til framleiðslunni var hætt árið sem Sovétríkin liðu undir lok. Yfirbyggingin var sem áður segir úr plasti til að spara dýra málma til þarfari nota. Kom plastið sér vel, beyglurnar réttu sjálfar úr sér eins og fyrir töfra. Vélin var tveggja strokka, samsett úr aðeins fimm hlutum og svo létt að meðalmaður gat borið hana. Hámarkshraðinn 100 km á klukkustund og vélinni síðar skipt út fyrir aðra úr Volkswagen Polo árið 1990. Áætla yfirvöld í Berlínarborg að allt að 80.000 bílar kunni að verða gerðir útlægir af götunum eftir að lögin umdeildu ganga í gildi. Trabantinum úthýst í Berlín Lúxux Þýsk Trabant-limmúsína. Margur hefur eflaust öfundað eigandann. Vinsæl Hin sígilda 601-útfærsla var framleidd allt fram til ársins 1991. Strætisvagn Sérsmíðuð Trabant- hópferðabifreið til ýmissa nota. Allt í drasli Til eigenda og ábyrgðarmanna lausamuna á hafnarsvæðum Hafnarfjarðarhafnar. Hafnarfjörð til fyrirmyndar Til athugunar með hækkandi sól. Vinsamlega fjarlægið lausamuni af hafnarsvæðum Hafnarfjarðarhafnar sem eru á víð og dreif um hafnarsvæðin, sem fyrst og ekki síðar en 21. maí nk. Sé þessum tilmælum ekki sinnt, verða viðkomandi munir fjarlægðir og fargað á ábyrgð og kostnað eigenda og/eða umráðamanna. Látum hendur standa fram úr ermum og höfum Hafnarfjörð til fyrirmyndar. Hafnarstjóri
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.