Morgunblaðið - 12.05.2007, Síða 39
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 39
Í dag gengur íslenska þjóðin að kjör-
borði og kýs sér fulltrúa á þjóðþing
landsins. Bolvíkingar munu vafalaust
nýta vel sinn atkvæðisrétt nú sem
endranær en menn hér í bæ eru sann-
arlega hugsi og uggandi um framtíð
sína þegar sú staðreynd blasir við að
stærsti vinnustaður bæjarins verður
að segja upp flestöllu starfsfólki sínu.
Fimmtíu manns hafa fengið upp-
sagnarbréf af þessum sökum en for-
maður Verkalýðsfélags Bolungar-
víkur hefur vakið athygli á því að
þessar uppsagnir koma í kjölfar þess
að 30 til 40 manns hefur verið sagt
upp störfum undanfarna mánuði, þar
má m.a. nefna uppsagnir starfs-
manna Ratsjárstöðvarinnar á Bola-
fjalli.
Bolvíkingar eiga erfitt með að
skilja það að búseta hér við ein gjöf-
ulustu fiskimið landsins skuli ekki
geta þróast.
Guðmundur Halldórsson fyrrver-
andi formaður smábátafélagsins Eld-
ingar hafði forgöngu um að blása til
borgarafundar í Bolungarvík um sl.
helgi. Fundinn sóttu hátt í tvö hundr-
uð manns sem segir nokkuð um
áhyggjur fólks.
Á fundinum fór Guðmundur yfir
ástæður þess að endurnýjun í sjávar-
útvegi og fiskvinnslu eru settar mikl-
ar skorður með framsalskerfi afla-
heimildanna sem nú eru seldar á
verði sem enginn venjulegur maður
ræður við. Fram kom á fundinum að
Bolvíkingar voru heppnir í þetta sinn
að síðustu kvótaviðskipti fóru fram
innan bæjarmarkanna. Bæjarbúar
óttast það sem gerst getur í þeim efn-
um enda nú svo komið að nánast allur
sá aðgangur að fiskimiðunum sem
vistaður er innan bæjarmarka Bol-
ungarvíkur er kominn á eina hendi.
Þeir aðilar sem yfir aflaheimild-
unum ráða eru hinir vænstu menn
hörkuduglegir og útsjónarsamir og
njóta virðingar bæjarbúa en óöryggi
íbúanna er til staðar þar sem með
einni aðgerð gæti þetta vígi líka flust
til og þá ekki endilega til hagsbóta
fyrir samfélagið í Bolungarvík.
Þrátt fyrir allt er ekki svartnætti í
Bolungarvík því það er lán í óláninu
að framundan eru miklar fram-
kvæmdir á vegum ríkis og bæjar.
Má þar nefna gerð snjóflóðavarn-
argarðs, viðhaldsframkvæmdir við
brimbrjótinn og svo með haustinu
verða boðnar út framkvæmdir við
jarðgöng milli Bolungarvíkur og
Hnífsdals.
Þessi verkefni munu slá á það áfall
sem nú blasir við í fiskvinnslunni.
Það er einnig skylda sveitarfé-
lagsins að leita allra ráð til að koma á
atvinnuskapandi verkefnum og þessa
dagana er unnið að því að endur-
skipuleggja verkefni sumarsins með
það fyrir augum að skapa tímabundin
verkefni meðan freistað er þess að ná
fram hjá ríkisvaldinu þeim breyting-
um sem að mati bæjaryfirvalda eru
nauðsynlegar til að bæta samkeppn-
ishæfni fyrirtækja á landsbyggðinni
og þá sér í lagi á Vestfjörðum.
Bolvíkingar eru í óða önn að búa
sig undir sumarið og víða í bænum
má sjá fólk við vorvinnu í görðum sín-
um. Hreinsunarátak er eins og að
jafnaði á þessum tíma ársins í fullum
gangi þar sem skorað er á fólk að
leggja sitt af mörkum til að bærinn
verði sem snyrtilegastur þegar
sumargestirnir fara að streyma til
okkar.
Undanfarin ár hefur straumur
ferðamanna til Bolungarvíkur aukist
enda margt að sjá og upplifa hér við
ysta djúp. Verið er að leggja loka-
hönd á allan undirbúning til þess að
geta tekið sem best á móti gestum
okkar. Þar má m.a. nefna að innan
tíðar verður opnuð upplýsingaskrif-
stofa fyrir ferðamenn. Þá er verið að
ljúka við miklar endurbætur á
Náttúrugripasafni Bolungarvíkur
sem er sennilega eitt besta náttúru-
gripasafn á landinu, búið fjölda mark-
verðra gripa, m.a. er þar að finna ís-
björninn fræga sem fangaður var af
áhöfninni á Guðnýju ÍS úti á rúmsjó
fyrir nokkrum árum.
BOLUNGARVÍK
Gunnar Hallsson fréttaritari
Morgunblaðið/ Gunnar Hallsson
Sumarbið Bolvísk börn gera hlé á
leik sínum fyrir ljósmyndarann.
alls. Það skiptir máli að
geta tekið ósigri í kosn-
ingum.
Kosningabaráttan
hefur stundum ótrúleg
áhrif á þá, sem starfa á
vettvangi stjórn-
málaflokkanna. Það er
stundum eins og öll
dómgreind fjúki út í
veður og vind og fólk
haldi að allt sé leyfilegt
í kosningabaráttu.
Þegar dómgreindin
brestur gerist það
gjarnan að það sem átti
að hafa tiltekin áhrif
hefur þveröfug áhrif.
Um það eru mörg
dæmi í kosningum. Í Bandaríkj-
unum hafa menn gengið mjög langt í
svokallaðri neikvæðri kosningabar-
áttu og talið að allt mætti gera gagn-
vart andstæðingnum. Hér á Íslandi
hafa menn prófað ýmislegt í þeim
efnum en yfirleitt hefur niðurstaðan
orðið sú, að áhrifin hafa orðið þver-
öfug.
Skamma stund verður hönd höggi
fegin, segir í Njálu. Annars staðar er
sagt að vant sé að sjá hverjir verða
höggum fegnir og enn annars staðar
að oft verði lítið af því höggi, sem
hátt er reitt.
Það er hyggilegt að hafa þetta í
huga, ekki sízt í kosningabaráttu.
Margir upplifakjördag, sem há-
tíðlegan dag og það er
full ástæða til. Þetta er
dagurinn þegar fólkið
hefur völdin. Þetta er
dagurinn, þegar mað-
urinn á götunni kveður
upp sinn dóm yfir
störfum þingmanna og
annarra kjörinna full-
trúa og tekur ákvörðun
um, hvernig og hverjir
skuli halda á land-
stjórninni næstu fjög-
ur ár. Þessum dómi er
ekki hægt að áfrýja.
Hann er endanlegur.
Sumum finnst hann
ósanngjarn. Aðrir skilja ekkert í því
hvað kjósendur geti verið vitlausir.
Ungur sjálfstæðismaður hafði
ekki lifað ömurlegri nótt en kosn-
inganóttina sumarið 1978, þegar
Sjálfstæðisflokkurinn missti meiri-
hlutann í Reykjavík.
Hann læknaðist hins vegar þegar
móðir hans sagði: mega hinir ekki
reyna?
Auðvitað mega hinir reyna. Á
vissu aldursskeiði upplifa menn póli-
tíkina sterkt og lifa í sæluvímu eða
leggjast í þunglyndi. En smátt og
smátt rjátlast sú tilfinning af fólki og
það áttar sig á að pólitískir sigrar
eða ósigrar eru ekki upphaf og endir
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
mbl.isókeypissmáauglýsingar
Kosningakaffi
!"!!
#
$
%&
'
(
)"
(
$
*"
$
#
+
(
,
*)*- '
,
$
6. sæti
Ragnheiður
Ríkharðsdóttir
1. sæti
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
2. sæti
Bjarni
Benediktsson
7. sæti
Rósa
Guðbjartsdóttir
5. sæti
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
3. sæti
Ármann Kr.
Ólafsson
4. sæti
Jón Gunnarsson