Morgunblaðið - 12.05.2007, Page 41
lægðum við vegg í anddyri til að fólk
fengi útsýnið yfir Elliðavatnið beint í
æð þegar það kæmi inn. Þá flutti
hann baðherbergið þannig að það
yrði stærra og setti þakglugga þar
yfir til að fá dagsbirtu að ofan og
inn.“
Aldrei í vandræðum með dótið
Eitt af því sem vekur athygli í hús-
inu eru sérsmíðaðar innréttingar úr
birki í svefnherbergjum en auk hefð-
bundinna fataskápa eru skúffuhirslur
sem nýtast vel til geymslu og sem
snyrtiborð í hjónaherbergi. Þótt inn-
réttingin í eldhúsinu sé að uppistöðu
til frá HTH innréttingum eru sér-
smíðaðar viðbætur sem auka enn á
geymslupláss. Eins eru skúffur víða í
sökklinum. „Við lendum aldrei í
vandræðum með að koma dóti fyrir,“
segir heimilisfaðirinn og bendir á efri
skápana í eldhúsinu sem ná alveg upp
í loft. Það gerir það líka að verkum að
ekki þarf að þrífa ryk og fitu ofan af
þeim eins og algengt er í eldhúsum.
Eldunareyja skilur að stofu og eld-
hús en borðplatan á henni er úr dökk-
um steini. „Þetta er grásteinn sem
við völdum af því að hann er svo
náttúrulegur,“ segja hjónin. „Það
sem er óvenjulegt við grásteininn er
að erfitt er að fá heila, ósprungna
grásteinsplötu upp á 2,20 metra. Það
kemur kannski einn slíkur steinn á
tveggja ára fresti. Við vorum hins
vegar svo heppin að það gerðist akk-
úrat þegar við vorum að velja borð-
plötu. Síðan töfðust aðeins fram-
kvæmdirnar hjá okkur og á meðan
föluðust þrír eða fjórir eftir plötunni,
þar sem hún stóð tilbúin fyrir okkur í
búðinni.“
Náttúrusteinn prýðir einnig gólf
að hluta, í anddyri, á svefnherbergis-
gangi, baðherbergi og þvottaher-
bergi inn af eldhúsinu. Að öðru leyti
er parket á gólfum en óvenjulegir
gólflistar vekja athygli enda úr áli og
því með léttara yfirbragð en hefð-
bundnir viðarlistar.
Munu sakna staðsetningarinnar
Öll lýsing í húsinu er hönnuð af
Helga Eiríkssyni sem oft er kenndur
við Lúmex og á baðherberginu hefur
sérlega verið lagt upp úr að lýsing fái
notið sín. Auk ofanbirtunnar sem
kemur inn um þakgluggann var lýs-
ing felld inn í loft og undir innrétt-
inguna við handlaugina. Lýsing frá
hlið inn í sturtuklefa við gólf myndar
einnig sérstaka stemningu.
Húsið er hitað upp á heldur óhefð-
bundinn hátt, með gólfhita sem stýrt
er með fjarstýringu í gegnum tölvu
sem staðsett er í bílskúrnum.
„Eins er forhitari á öllu neyslu-
vatni í húsinu sem er mikil bylting,“
segja hjónin. „Í staðinn fyrir hita-
veituvatn er kalt vatn hitað sem gerir
það að verkum að það er enginn kísill
í vatninu. Það er ekki bara betra fyrir
húð og hár heldur endast blöndun-
artækin margfalt lengur en ella.“
Aðalkosturinn við húsið er þó óum-
deilanlega staðsetningin. „Við kom-
um örugglega til með að sakna henn-
ar,“ segja hjónin sem eru farin að
hugsa sér til hreyfings. „Það er svo
fjölbreytt líf á vatninu og við það,“
heldur húsmóðirin áfram. „Til að
mynda er fuglalífið stórkostlegt –
maður heyrir það svo vel á vorin þeg-
ar farfuglarnir eru að koma. Svo eru
kindur á bænum hér beint fyrir neð-
an og hestar allt í kring. Við heyrum
stundum í þeim er þeir fara um reið-
stíginn sem er hér neðar í brekk-
unni.“
Húsbóndinn tekur undir þetta.
„Maður þarf ekkert málverk þegar
maður er með svona útsýni – það
virkar í raun eins og lifandi listaverk,
allt árið um kring.“
ben@mbl.is
Borðstofa Búið er að leggja gólfplötu undir veröndina í horninu svo hægt sé að byggja þar garðhýsi yfir.
Engin ljósmengun Lítil sem engin byggð er fyrir neðan húsið og því er
niðamyrkur úti á veturna. „Barnabarnið spurði einu sinni þegar það gisti
hjá okkur og sat við gluggann: Amma, eru allir farnir að sofa?“
„Síðan töfðust aðeins
framkvæmdirnar hjá okkur
og á meðan föluðust þrír
eða fjórir eftir plötunni þar
sem hún stóð tilbúin fyrir
okkur í búðinni.“
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 41
Vandað 4 stjörnu hótel í nágrenni við Vatikanið. Hótelið er nýuppgert og
vel búið með góðu sundlaugasvæði, fallegum herbergjum og skemmtilegri
sameiginlegri aðstöðu.
Hotel Ergife Palace
Sól og borg í frábærum pakka!
1 vika: 26. júní –3. júlí
Frá 69.577,-
Verð á mann m.v. 2 fullorðna
Duke er sérstaklega fallegt og vandað hótel á frábærum stað í miðborg Rómar.
Herbergin eru stór og það er framúrskarandi þjónusta á þessu gæðahóteli.
Duke Hotel Roma
Glæsihótel í hjarta Rómar
1 vika: 7.–14. ágúst
Frá 77.900,-
Verð á mann m.v. 2 fullorðna
VIKA Í MIÐBORG RÓMAR
Á ÓTRÚLEGU VERÐI
Ótal veitingastaðir, fjörugt næturlíf og ein skemmtilegasta verslunarborg heims!
Innifalið: Flug, gisting, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. Verð miðast við að bókað sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er bókunargjald 2.500,- fyrir hvern farþega.
Sumarferðir Laugavegi 26 (gengið inn Grettisgötumegin)
Farðu inná www.sumarferdir.is
eða hringdu í síma 575 1515.
Innifalið: Flug, gisting, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. Verð miðast við að bókað sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er bókunargjald 2.500,- fyrir hvern farþega.
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
Falleg og vel skipulögð 4ra herb. á efstu
hæð (3.hæð) í góðu rólegu 6 íbúða fjöl-
býli, frábært útsýni úr herbergjum og
stofu. Íbúð skráð 112,2 fm en geymsla í
sameign er 6,5 fm og virðist ekki vera í
fm tölu íbúðar. VERÐ 21,4 millj.
Guðrún Jóna og Rúnar taka vel á móti
þér og þínum: Sími 6921679
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 13.00–15.00
SUÐURVANGUR 10 HFJ.