Morgunblaðið - 12.05.2007, Side 58

Morgunblaðið - 12.05.2007, Side 58
58 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN NÚ ER einstakt tækifæri fyrir Ís- lendinga að brjóta í blað og fá konu sem forsætisráðherra. Hingað til hafa karlar einokað þessa æðstu valda- stöðu í lýðræðissam- félagi okkar. Þessi kona er Ingi- björg Sólrún Gísla- dóttir, formaður Samfylkingarinnar. Til þess að stuðla að þeim sögu- legu tíðindum verður Samfylkingin að koma sterk út í kosningunum í dag. Hugsið ykkur hversu mikilvægt það er fyrir jafnréttis- og kvenna- baráttuna að ungt fólk fái slíka fyrirmynd, – frekar en að í forsætis- ráðuneytið setjist enn einn karlinn að loknum kosningum. Kona í forsætisráðuneytinu hefði sambærileg áhrif og þegar Vigdís Finnbogadóttir var forseti. Það hafði ótrúlega mikil áhrif á stöðu kvenna og viðhorf landsmanna til þess að konur standi jafnfætis körl- um í forystuhlutverkum. Þegar Vigdís var forseti Eftir Ástu R. Jóhannesdóttur Höfundur er alþingismaður. SIGURÐUR Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vekur enn athygli á vanrækslu- syndum ríkisstjórnarinnar í mennta- málum í Morgunblaðinu í gær. Nú með því að endur- taka talnabrellur sínar til að fegra arf- leifð Sjálfstæðis- flokksins í mennta- málum, en þeim hefur hann stýrt sl. 16 ár. Tilefnið núna er grein Ingibjargar Sólrúnar sl. miðvikudag þar sem hún kynnir áherslur Samfylkingarinnar í menntamálum um leið og hún bendir á eftirfarandi staðreyndir um menntunarstig á íslenskum vinnu- markaði og brottfall úr framhalds- skólum. Tölur um menntun fólks á vinnumarkaði Samfylkingin og Ingibjörg Sólrún hafa ítrekað bent á að rúm 40.000 manns á íslenskum vinnumarkaði, á aldrinum 25-64 ára hafa ekki lokið formlegu prófi eftir grunnskóla þ.e. hafa enga formlega framhalds- menntun. Þessi tala er ekki uppfinn- ing Samfylkingarinnar heldur er þetta sú tala sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, sem hefur það hlut- verk að sinna menntun þessa hóps, og sérfræðingar menntamálaráðu- neytisins hafa komið sér saman um, á grundvelli vinnumarkaðskannanna Hagstofunnar. Sem sagt sá fjöldi sem þessir aðilar skilgreina, sem þá er ekki hafi lokið viðurkenndu námi á framhaldsskólastigi. Hlutfallslega er þessi hópur allt að helmingi stærri en hann er á hinum Norður- löndunum. Tölur um brottfall úr íslenskum framhaldsskólum Samfylkingin og Ingibjörg Sólrún hafa bent á hátt hlutfall þeirra í yngri kynslóðunum sem ljúka ekki framhaldskóla, eða um 30% ár- ganga. Hér byggir Samfylkingin á tölum OECD sem fá sínar tölur frá Hagstofunni og beita alþjóðlegum viðmiðunum við sína útreikninga. Hér er um að ræða alþjóðlega sam- ræmt verklag sem engin ástæða er til að vantreysta. Í riti OECD 2006, Education at a Glance, OECD Inica- tors, kemur eftirfarandi fram: Hlut- fall Íslendinga á aldursbilinu 25-34 ára sem hafa lokið framhaldsskóla- námi er 68% en á hinum Norður- löndunum er þetta 86-96%. Meðal- talið í OECD er 77% og í ESB 78%. Ísland er hér í 23. sæti af 30 þjóðum. Og þegar kemur að opinberum út- gjöldum til framhaldsskólanna er Ís- land í 16. sæti af 30 OECD-þjóðum. Sigurður Kári snúi sér til réttra aðila Ofangreindum staðreyndum breytir Sigurður Kári ekki, hversu oft sem hann endurtekur rang- færslur sínar. Við bendum honum góðfúslega á að snúa sér til OECD, Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, sem aðilar vinnumarkaðarins standa að og sérfræðinga menntamála- ráðuneytisins. Þar getur hann sann- reynt okkar tölur. Kjósendum bend- um við á að kynna sér framsæknar tillögur Samfylkingarinnar í menntamálum inni á www.xs.is. Þær beinast m.a. að því að hækka mennt- unarstig íslensku þjóðarinnar til jafns við það sem best gerist. Það verður arðbær fjárfesting, sem eyk- ur jöfnuð og hagsæld allra. Svar til Sigurðar Kára Eftir Björgvin G. Sigurðsson Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. „Við viljum búa í þjóðfélagi, þar sem hver einstaklingur fær notið sín og hefur fullt athafnafrelsi, laus við þrúgandi hömlur miðstýringar.“ Geir Hallgrímsson, 1977. EINU sinni hélt ég að vextir af skuldum í útlöndum mundu hirða þriðjung af tekjum okkar um aldur og ævi. Geir borgaði skuldirnar. Hann sýndi ungur leiðtogahæfileika – var kosinn inspector scole í menntaskóla og hafði jafnan for- ystu í hópnum. Geir er vinsælli en aðrir stjórn- málamenn lengi, lengi. 55% vilja hann sem forsætisráðherra og 65% vilja að Sjálfstæðisflokkurinn sitji í næstu ríkisstjórn. Farsæld Geirs ræður þar för. Og hann á sætustu stelpuna. Sjálfstæðis- flokkurinn – Geir Eftir Jón Gunnar Hannesson Höfundur er læknir og er í fjölskyldunefnd Sjálfstæðisflokksins. SJÁLFSTÆÐISFLOKK- URINN auglýsir að ungt fólk hafi aldrei haft það betra og að flokkurinn muni tryggja áfram- haldandi stöðugleika með traustri efnahagsstjórn. Ég er hræddur um að sú kynslóð sem nú er að afla sér húsnæðis kann- ist ekki við þennan stöðugleika Sjálfstæðisflokksins. Eftir að húsnæðislöggjöfinni var breytt árið 1999 er nær útilokað fyrir lágtekju- og millitekjuhópa að eignast húsnæði og leigumark- aður er nú með afarkjörum. Það lágtekju- og millitekjufólk sem hefur látið slag standa á mögur ár í vændum ef ekki tekst að koma böndum á vexti og verð- bólgu. Stjórnmálaflokkur sem með aðgerðum sínum í efnahags- málum hefur dæmt heila kynslóð í hálfgildings skuldafangelsi ætti að tala varlega um stöðugleika og trausta efnahagsstjórn. Í morgun var tilkynnt að vísitala neyslu- verðs hefði hækkað um 0,86% frá fyrra mánuði. Þetta er mun meira en hafði verið spáð. Þannig hækkaði verð á mat- og drykkjarvöru um 1,3% milli mán- aða. Þetta vegur að sjálfsögðu inn í vísitölubundin lán fjöl- skyldna og fyrirtækja. Er þetta til marks um að „efnahagslegur stöðugleiki hafi skotið rótum“ eins og segir í myndbandi Sjálf- stæðisflokksins? Auglýsingar Sjálfstæðisflokksins eru blekkj- andi því þær eru ekki í samræmi við veruleikann. Ögmundur Jónasson Auglýsingar Sjálfstæð- isflokks ekki í sam- ræmi við veruleikann Höfundur er þingflokks- formaður VG. ÞAÐ undrar eflaust fáa hve vin- sælt yrkisefni náttúran er mörgum mönnum. Þessi stórbrotna smíði reynist flestum bæði augnayndi og órjúfanlegur hluti uppruna þeirra og daglegs lífs. Maðurinn má ekki álíta hana sjálfsagða eign sína. Mistök í umgengni við hana geta reynst hon- um dýrkeypt og oft er betra að huga að framtíðinni við ákvarðanatökur en að gleyma sér í stundargræðg- inni. Það sem virðist gott getur snú- ist upp í andhverfu sína þegar til lengri tíma er litið. Hið svokallaða lífsgæðakapphlaup mun varla færa okkur þau lífsgæði sem við í raun viljum og þurfum til að njóta lífsins. Ef við göngum of langt munum við á endanum sjá að okkur, og á þeirri stundu mun það sem okkur áður þótti sjálfsagt ekki vera lengur til staðar. Þá fyrst mun- um við átta okkur og reyna að ganga „gamla veginn“ veginn til baka. Hvort við komum að tómu „húsi“ þegar á enda er komið getur enginn svarað, en viljum við hætta á það? Eftir miklar umræður höfum við, hópur ungra menntaskólanema, ákveðið að láta í okkur heyra. Þær ákvarðanir sem teknar verða á kom- andi kjörtímabili munu hafa af- drifarík áhrif á framtíð okkar. Vafa- laust er ágætt að fljóta í gegn um lífið áhyggjulaus og leiða hugann aldrei að þeim möguleika hvort svo verði, en á endanum mun einhver þurfa að taka ábyrgð á gjörðum okk- ar. Ef ekki við, hver þá? Staða okkar er enn ekki svo von- laus því margir eru meðvitaðir um aðsteðjandi ógnir og reyna að gera sitt til að hindra þessa þróun, vernda náttúruna og umhverfi okkar. Við þurfum þó öll að taka höndum sam- an og varðveita þessa dýrmætu eign. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur og því mikilvægt að horfa fram í tímann áður en of seint er að líta um öxl. Sitjum ekki heima og fríum okkur allri ábyrgð. Kjósum menntað fólk með hugsjónir inn á þing en ekki atvinnupólitíkusa. Kjós- um fólk sem treystandi er fyrir heimkynnum okkar. Kjósum fólk sem af atorku og einhug berst fyrir framtíð okkar og verndar um leið landslag komandi kynslóða. Þurfum við ekki nýja stjórn? Okkur er ekki sama. Suss! Mamma er að tala um fullorðinsmál Eftir Heru Hilmarsdóttir, Ásdísi Ólafs- dóttur, Birnu Dís Eiðsdóttur, Gunni Mart- insdóttur Schluter, Sigrúnu Eyfjörð og Dóru Björt Guðjónsdóttur Höfundar eru menntaskóla- nemar. MINNINGAR Þær voru ófáar stundirnar sem ég eyddi í tannlækna- stólnum hans Gylfa á árum áður enda tann- heilsa mín afar bágborin þá sem nú. Ég man að til hans kom ég í fyrsta sinn árið 1988, mjög þjáð af tann- læknafælni og auðvitað tannpínu líka. Hann tók mér vel, leyfði mér að venjast stólnum, kynnast tækjunum að svo miklu leyti sem hægt var og venjast þeirri tilhugsun að hann myndi, innan skamms, hefjast handa við að reyna að bjarga því sem bjarg- að yrði. Gylfi var afar hlýr maður, sagði ekki margt, en hafði skilning á því að til væri fólk sem óttaðist tannlækna og verkfærin þeirra. Og honum tókst, með sinni lagni og þolinmæði, að gera við skemmdu tennurnar, og það sem meira er, fjarlægja þær sem ekki varð bjargað. Tannúrdráttur er, fyrir marga tannlæknafælna, það versta sem hægt er að hugsa sér. En Gylfa lá ekkert á, hann hafði alltaf tíma fyrir aðlögun og var tilbúinn að útskýra sem er afar mikilvægt þegar tannlæknafælni er annars vegar. Mér fannst hann sannur krafta- verkamaður og kraftaverkin fólust í því að fá mig yfirleitt til að opna munninn. Vorið 1991 útskrifaðist ég sem stúdent og það þótti „merkilegt“ og talsvert afrek sökum augljósrar fötl- unar minnar. Fréttir og frásagnir birtust í blöðum og viðtöl í ljósvaka- miðlum. Sjálfri var mér ekkert gefið um allt þetta umstang, ég vildi bara falla í fjöldann og útskrifast í friði líkt og aðrir. Mér fannst Gylfi hafa skilning á þessari afstöðu minni án þess að ég tjáði mig sérstaklega um það við hann. Á útskriftardaginn fékk ég fjöl- mörg skeyti og heillaóskir alls staðar að, sem mér þótti vissulega vænt um, en skeytið frá Gylfa gladdi mig Gylfi Felixson ✝ Gylfi Felixsonfæddist í Reykjavík 22. sept- ember 1939. Hann lést á líknardeild LSH í Kópavogi 2. maí síðastliðinn og var jarðsunginn frá Árbæjarkirkju 9. maí. meira en allt annað þennan dag. Í því stóð aðeins ein setning, setning sem sagði allt sem segja þurfti: „Húrra fyrir þér!“ Þessi setning hitti beint í mark, ekkert óþarfa mal um dugn- að, afrek eða „krafta- verk“, en því skýrt komið á framfæri að hann samgleddist mér með áfangann. Gylfi hafði afar hlýja og traustvekj- andi nærveru. Það sem mér þótti einna best var augljós skilningur hans á „sérþörfum“ mínum, skiln- ingur sem þurfti ekkert að ræða, einskis að spyrja, þetta lá einhvern veginn allt ljóst fyrir. Tannlæknastofan hans var stað- sett við mikla umferðargötu. Stund- um henti það að aðstoðarkona hans var ekki á staðnum og þá kom það í hans hlut að fylgja mér niður að loknum tannviðgerðum og út í leigu- bíl. Hann hafði skilning á því að ég gat ekki, sökum sjónleysis, þekkt leigubílinn úr öllum öðrum bílum sem fóru um götuna. Þó ég hafi ekki hitt Gylfa síðast- liðin ár og lítið frétt af honum, þá geymi ég dýrmætar og sérstakar minningar um góðan dreng. Ég votta fjölskyldu hans og vinum mína dýpstu samúð. Guð blessi minningu Gylfa Felix- sonar. Ágústa Gunnarsdóttir. Ég vil með nokkrum línum minn- ast Gylfa Felixsonar, vinar míns og félaga. Okkar kynni byrjuðu á old boys æfingum hjá Fylki upp úr 1970 og stóðu yfir 20 ár. Gylfi var útsjónar- samur og yfirvegaður í boltanum, lagði sig allan í leikinn og braut nán- ast aldrei á andstæðingum. Gylfi var ritari knattspyrnudeild- ar Fylkis á árunum 1972 til 1978. Hann hafði góða reglu á sínu starfi, auðvelt var að flett upp í fundargerð- um varðandi fyrri ákvarðanir stjórn- ar sem alltaf voru bókaðar. Gylfi var kosinn í aðalstjórn Fylk- is 1977 og varð formaður ’78–’79. Honum fórst stjórnun félagsins vel úr hendi og hafði gott yfirsýn á starfi Einstaklingurinn gerir sér ekki alltaf grein fyrir hvaða áhrif hann hefur á samferð- armenn sína. Og Lalli vinur minn, Lárus Hjálmarsson, vissi aldrei um þá dýrmætu gjöf sem hann gaf mér sem barni. Það var rík reynsla út í líf- ið, að alast upp í næsta húsi við fatl- aðan vin og að læra að fegurð manns- ins felst í fjölbreytni hans. Upphaflega var Lalli á sama aldri og eldri systir mín, síðan varð hann leikfélagi minn og hægt breikkaði bilið líka á milli okkar. Ég flutti út í heim og kom sífellt sjaldnar til Ís- lands. Samskiptin komust á jóla- kortastigið. En alltaf sat hann í huga mér og hjarta þessi drengur, sem ég ólst upp með í Drápuhlíðinni. Þessi vinur, sem ég var varaður við að ég gæti átt eftir að missa ungan. En Lalli virti slík náttúrulögmál að vett- ugi og komst sem betur fer til virðu- legrar elli. Hvort sem það var að þakka litn- ingnum, sem Lalli hafði umfram mig eða einfaldlega uppeldinu sem hann Lárus Hjálmarsson ✝ Lárus Hjálm-arsson fæddist á Seyðisfirði 15. nóv- ember 1946. Hann lést á Landspítal- anum við Hring- braut föstudaginn 30. mars síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Ás- kirkju 12. apríl. hlaut þá lýsti syngj- andi gleði hans og manngæska upp æsku mína. Hann mætti illu með góðu og stundum táruðumst við saman þegar krakkakjánar voru að stríða honum. Í þeim samskiptum velti ég fyrir mér hvor aðilinn væri í raun sá fatlaði. Það snart alla, sem kynntust, hversu mik- illar ástar Lalli naut á heimili sínu. Það lækn- aði á augabragði öll sár þegar Sigrún tók Lalla sinn í faðminn, þerraði tár- in og gaf okkur mjólk og köku. Nú tárumst við öll þegar Lalli, minn fyrsti vinur, segir skilið við okk- ur. Hann lætur eftir sig stóra fjöl- skyldu og fjölda vina, sem ég votta öllum samúð mína, Jón Björgvinsson. Nú er lífshlaup þitt á enda Lárus minn og varð það lengra en margur hélt. Þegar við kynntumst þér varstu orðinn mjög veikur en þrátt fyrir það fengum við að njóta samveru þinnar í sex ár, enda ávallt sterkur lífsvilji hjá þér, og erum við margfalt þakklát fyrir það. Þegar við fréttum að þú hefðir kvatt þá var eins og eitthvað gott og bjart hefði slokknað í hjarta okkar og eftir sat kuldi og söknuður sem allir þekkja sem misst hafa ást- vin. Þú kveiktir hjá okkur falslausa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.