Morgunblaðið - 12.05.2007, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 12.05.2007, Qupperneq 60
60 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Bjössi frændi er fallinn frá og þrátt fyrir að árin væru orðin sjötíu og átta þá kom það okkur í opna skjöldu. Það er svo stutt síðan við hittum Bjössa hressan og kátan og allir biðu spenntir eftir áttræðisaf- mæli í sveitinni hans Bjössa, Mykjunesi. Við frændsystkinin er- um þó sammála um að svona viljum við fá að fara. Bjössi og Gógó voru einstaklega barngóð hjón, það var alltaf gott og gaman fyrir okkur krakkana í stór- fjölskyldunni að koma til þeirra. Barnaafmælin á Laugalæknum eru skemmtileg í minningunni, gott veður, fallegt heimili og fullt af glöðum krökkum. Þegar við uxum úr grasi breyttust barnaafmælin í fín matarboð og síðan skemmtilegar stórveislur með ívafi fjölbreytilegra berjakrása. Heimili Bjössa og Gógóar var alltaf hlýlegt, hvort heldur á Lauga- læk, Búrfelli, Garðabæ eða Hafn- arfirði. Hvar sem þau bjuggu var garðurinn þeirra yndislegur. Bjössi og Gógó voru einstaklega samhent og í mörg ár eftir að Gógó lést hugs- aði maður áfram „Bjössi og Gógó“ þegar Bjössi átti í hlut. Bjössi var einstakur áhugamaður um berjasprettu og berjatínslu. Að hitta Bjössa í berjatúr á haustin með margar fötur af berjum kallaði fram ósvikna lotningu hjá öllum. Jafnvel óstýrilátustu börn þögnuðu og dáðust að enda fengu þau vel að njóta því Gógó reiddi fram hina dýrlegustu berjadeserta og höfug heimilisframleiðsla Bjössa fyrir þá sem eilítið eldri voru var rómuð. Afi og amma keyptu sumarbú- stað við Þingvallavatn og þar áttu amma og allir hennar afkomendur góðar stundir. En bústaður þessi var í upphafi „rangstæður“ og lenti að mestu á jörð nágrannans. Samn- ingar tókust við gamla bóndann, sem óvænt sat uppi með sumarhús á sinni jörð og honum var greidd leigan. Þegar hann féll frá varð ekki undan því vikist að færa bústaðinn inn á „rétta“ jörð. Þessi flutningur sameinaði þau systkinin Hadda, Kristínu, Einar og Bjössa, þau unnu öll þrekvirki í þessu verkefni. Fjölskyldan hittist enn á hverju vori við gamla bústaðinn á nýjum stað. Þar höldum við hópinn og kynnumst nýjum fjölskyldumeðlim- um. Stórfjölskyldan ræktaði skóg á bernskuslóðum ömmu í Reykholti og var Bjössi ein aðaldriffjöðrin við ræktunina. Þegar reiturinn í Reyk- holti var að verða fullplantaður, fóru Bjössi og Haddi að líta eftir jörð. Þeir keyptu Mykjunes, sem nú er skógræktarjörð, og er plöntun þar langt komin. Bjössi undi sér vel í sveitinni við ræktun í tengslum við landið og þar dó hann. Hann skilur eftir sig fallegan og stóran skóg, hann Bjössi frændi. Við sendum börnum Bjössa og fjölskyldum innilegustu samúðar- kveðjur. Megi allt gott styrkja þau. Börn Haraldar og Einars. Kveðja frá Skógræktarfélagi Íslands Okkur skógræktarfólki var mjög brugðið þegar við fréttum af skyndilegu og óvæntu fráfalli góðs félaga okkar Björns Árnasonar hinn 30. apríl sl. Björn hafði boðað komu sína á fund með systursyni sínum á skrifstofur Skógræktar- félags Íslands fimmtudaginn 3. maí til að ræða m.a. um framtíð afar merkilegrar skógræktar fjölskyldu þeirra frænda við Reykholt í Borg- Björn Árnason ✝ Björn Árnasonfæddist í Reykjavík 12. ágúst 1928. Hann lést á heimili sínu í Mykju- nesi í Holtum 30. apríl síðastliðinn og var útför hans gerð frá Neskirkju 11. maí. arfirði, sem staðið hefur yfir í rúm fimm- tíu ár, en enginn má sköpum renna. Við söknum nú vinar í stað. Björn Árnason verkfræðingur var virkur félagi í skóg- ræktarhreyfingunni, hvort sem var á vett- vangi félagsmálanna eða í skógræktar- framkvæmdum. Hann starfaði alla tíð sem félagi í Skógræktar- félagi Hafnarfjarðar og sat þar í stjórn um árabil. Björn tók sæti í stjórn Skógræktarfélags Íslands árið 1988 á aðalfundi félagsins í Reykholti í Borgarfirði og sat í stjórn félagsins allt til ársins 2000. Birni voru falin fjölmörg trúnaðar- störf fyrir Skógræktarfélag Íslands og var m.a. gjaldkeri félagsins um langt árabil. Hann var töluglöggur maður og fljótur að átta sig á aðal- atriðum í rekstri félagsins enda vænkaðist hagur þess vel í hans tíð. Meðal annarra starfa sem Björn tók að sér fyrir félagið má nefna fundarstjórn við ýmis tækifæri og formennsku í ýmsum starfsnefnd- um félagsins. Öll þessi störf vann Björn af mikilli elju og alúð. Naut félagið í ríkum mæli mannkosta og þekkingar Björns við þau fjölmörgu störf sem hann vann fyrir það. Þá sat Björn í stjórn Landgræðslu- sjóðs um árabil og var formaður sjóðsins frá árinu 1995 til 2000. Á þessum tíma var lagður grunnur að verulegum breytingum í rekstri Landgræðslusjóðs sem hafa að und- anförnu reynst starfsemi skógrækt- arfélaganna afar vel. Björn var sannur áhugamaður um skógrækt og sem slíkur vann hann ötullega að því að auka skilning í samfélaginu á mikilvægi skógræktar. Eitt af helstu baráttumálum Björns seinni árin var að koma á beitarstjórnun á Reykjanesi sem nú hefur loksins náðst fram og er ekki á nokkurn hallað þótt sagt sé að framganga Björns í því máli hafa átt sinn þátt í því að samkomulag náðist nýlega um bann við lausagöngu búfjár á Reykjanesi. En áhugastarfið og sá tími sem það kallaði á nægði Birni engan veginn. Að loknu löngu og farsælu starfi sem verkfræðingur hóf hann mikla skógrækt á einkajörð sinni í Mykjunesi á Rangárvöllum. Þar undi hann hag sínum vel við rækt- unarstörf og vann þau með skipu- lögðum og markvissum hætti. Björn var ákaflega skemmtilegur félagi, kunni ótal gamansögur sem hann deildi gjarnan með okkur fé- lögunum. Hann var húmoristi og glettinn og hrókur alls fagnaðar. Hann var traustur samstarfsmaður og framkvæmdamaður sem vílaði ekki hlutina fyrir sér. Stjórn Skógræktarfélags Íslands sendir ástvinum Björns innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minn- ingu Björns Árnasonar. Magnús Jóhannesson formaður. Kveðja frá Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar Björn Árnason fyrrverandi bæj- arverkfræðingur í Hafnarfirði er látinn. Ég kynntist Birni mjög náið þegar ég var bæjarstjóri og Björn var einn af mínum nánustu sam- starfsmönnum. Það var gott að vinna með Birni, hann vann starf sitt af einlægni og alúð og lagði all- an sinn metnað í að skila því með hagsmuni allra í huga. Hann gat verið mjög harður á sinni skoðun, en var alltaf samkvæmur sjálfum sér og þannig starfsmenn reynast alltaf bestir. En þessi orð skrifa ég sem stjórnarmaður í Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar, en helsta áhugamál Björns var skógrækt og má segja að skógræktin hafi verið hugsjón hjá honum frekar en áhugamál. Björn sat lengi í stjórn Skógrækt- arfélags Hafnarfjarðar og var að verðleikum heiðraður á 60 ára af- mæli félagsins í október síðast liðn- um og útnefndur heiðursfélagi. Við það tækifæri flutti Björn þakkar- ræðu, sem hlaðin var hvatningu til viðstaddra varðandi skóg og skóg- rækt. Sem bæjarverkfræðingur stóð Björn vel við bakið á Skógræktar- félaginu og það var fyrir tilstilli hans að lagðir voru vegir um upp- lönd Hafnarfjarðar, hinir svoköll- uðu landnemavegir. Þegar lítið var að gera hjá stóru tækjunum hjá Áhaldahúsi Hafnarfjarðar var unn- ið við þessa vegi, sem gert hafa það að verkum að nú ferðast fólk um upplandið akandi og gangandi og njóta hins fagra umhverfis í hví- vetna. Við sem sátum í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar á þessum árum virt- um og kunnum að meta þennan mikla áhuga Björns og sögðum gjarnan að kostnaðurinn við vega- lagninguna væri í bókhaldi bæjar- ins færður á ytri höfnina. Hin síðari ár bjó Björn að Mykju- nesi í Holtum, hann hafði sem sagt gerst skógarbóndi, hugsjónin var orðin að veruleika og Björn undi hag sínum hið besta. Við í stjórn Skógræktarfélagsins og starfsmenn félagsins heimsóttum hann þangað og fórum hringferð um land hans og þar var Björn svo sannarlega í ess- inu sínu, ljómandi stoltur af því að geta unnið að framgangi skógrækt- ar. Síðan var lagið tekið að hætti skógræktarfólks og bragðað á berjavíni, því við vorum í heimsókn hjá höfðingja. Fyrir hönd Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, framkvæmdastjóra og allra starfsmanna félagsins þakka ég Birni langt og farsælt samstarf og börnum hans og öllum ættingjum sendum við okkar inni- legustu samúðaróskir. Ingvar Viktorsson. Mér brá mjög, þegar síminn hringdi og mér var tjáð, að Björn Árnason væri látinn. Ég hafði hitt Björn fyrir skömmu. Þá var hann hinn hressasti og tilbúinn að hefja af fullum krafti vorstörfin í sinni skógrækt. Það má með sanni segja, að feigðin gerir ekki alltaf boð á undan sér. Við Björn vorum bekkjarbræður í Menntaskólanum í Reykjavík. Við vorum skíðafélagar og reistum ásamt fleirum skíðaskála, sem reyndar var ekki lokið við, þegar við dreifðumst til framhaldsnáms, svo fátt eitt sé nefnt af góðum eldri kynnum. Björn Árnason var ágætur félagi. Á hann mátti ávallt treysta til samstarfs og góðra verka. Hann var úrræðagóður á sinn rólega máta. Öllum var hlýtt til Björns. Hann tók góðan þátt í samkomum okkar stúdentanna frá 1948. Við bekkjarsystkinin munum sakna Björns. Björn var mikill áhugamaður um skógrækt og stundaði hana af kappi á jörð sinni á Suðurlandi. Eftir að Björn hætti föstu starfi má segja að hann hafi gerst skógarbóndi. Hann var skógræktarhugsjóninni trúr eins og öðru, sem hann tók sér fyrir hendur. Mér þótti fróðlegt að ræða við Björn um skógrækt. Síðustu árin höfum við Björn ver- ið spilafélagar. Hin vikulegu bridgekvöld í skammdeginu hafa verið tilhlökkunarefni. Björn var af- ar þægilegur spilafélagi. Þar er nú skarð fyrir skildi. Um leið og ég þakka Birni gömul og góð kynni votta ég afkomendum hans mína dýpstu samúð. Steingrímur Hermannsson. Vertu til er vorið kallar á þig vertu til að leggja hönd á plóg. Komdu út því sólskinið vill sjá þig sveifla haka og rækta nýjan skóg. (Tr. Þorst.) Björn Árnason, fyrrverandi bæjarverkfræðingur í Hafnarfirði og skógarbóndi í Mykjunesi í Holt- um, er fallinn frá 78 ára að aldri. Hann var að gróðursetja er kallið kom. Kjarkmaður var hann og áræðinn. Lítið fyrir vol og víl. Í móðurætt er Björn kominn af Melaætt. Móðir hans Svanbjörg var dóttir sr. Einars Pálssonar í Reyk- holti og konu hans Jóhönnu Briem, dóttur Eggerts Briem, sýslumanns í Skagafirði. Sr. Einar var Austfirð- ingur, sonur Páls er bjó í Jökuldal, Jónssonar, Þorsteinssonar á Melum í Fljótsdal, ættföður Melaættar. Kona Páls var Hróðný Einarsdóttir frá Brú í Jökuldal. Hróðný var því langamma Björns. Af henni er sú sögn að eitt sinn þurfti hún að fara yfir Jökulsá á Brú. Kláfferja var yf- ir ána en þegar Hróðný kemur að ferjunni er vagninn ekki tiltækur og ekki nema berir vírarnir. Tekur hún það til bragðs að hún vegur sig á vírunum yfir ána með höndunum en foraðsfljótið Jökla beljandi undir. Í ýmsu sýndist Björn og hans fólk líkjast langömmu sinni. Þá gæti verið að kjarkur og áræði Hróðnýj- ar komi fram í systursyni Björns er kleif Everest við þriðja mann fyrir nokkrum árum. Björn var fríður sýnum og sam- svaraði sér vel. Jafnan var hann glaður og reifur í vinahópi. Við vor- um spilafélagar í fjölda ára. Hann var djarfur í sögnum og slyngur í að spila úr slæmum spilum. Rökhugs- un hans var traust. Hann leit á vandamál sem úrlausnarefni en ekki sem vandræði. Björn Árnason hafði aflað sér ágætrar reynslu hjá Vélamiðstöð Reykjavíkur og að framkvæmdum við Búrfellsvirkjun þegar hann gerðist bæjarverkfræðingur í Hafn- arfirði árið 1968. Einhverjum varð á að kalla Hafnarfjörð „Guðs yfirgef- inn stað“ þar sem fjárhagsstaða bæjarins var þá afleit og lítið hægt að framkvæma. En Björn var bjart- sýnn og óragur, bygging álverk- smiðjunnar var hafin og taldi hann að héreftir gæti stefnan aðeins legið uppávið. Það reyndust orð að sönnu. Miklar framkvæmdir á veg- um bæjarins fóru í hönd á komandi árum. Á þeim 27 árum, sem Björn var þar bæjarverkfræðingur, voru stöðugt vaxandi framkvæmdir. Bærinn gjörbreytti um svip, varð vistvænn og hreinlegur. Björn átti stóran hlut þar að með sínum mikla áhuga á allri ræktun. Hann var stefnufastur en jafnframt laginn í samstarfi við fjölmarga framámenn Hafnarfjarðar, sem hinn langi starfsdagur í Hafnarfirði sýnir. Hann féll á þeim akri og við það starf, sem honum var kærast: Að rækta skóg. Ekki verður skilist svo við Björn að ekki sé minnst hans gáfuðu mannkostakonu, Ingunnar Ágústs- dóttur, sem lést ótímabært frá manni og börnum og var okkur kær. Við sendum börnum hans og venslafólki hlýjar samúðarkveðjur. Þóra Jónsdóttir og Páll Flygenring. Fallinn er frá Björn Árnason vélaverkfræðingur, fyrrverandi bæjarverkfræðingur í Hafnarfirði og skógarbóndi, í góðri elli. Björn var ráðinn til bæjarins í ✝ Þorbjörn Jóns-son fæddist í Bollakoti í Fljótshlíð 22. ágúst 1914. Hann andaðist á Kirkjuhvoli á Hvols- velli 2. maí síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin í Bolla- koti, Jón Björnsson frá Stöðlakoti í Fljótshlíð, f. 28.2. 1871, d. 1938, og Arndís Hreiðars- dóttir frá Stóru- Hildisey í Austur- Landeyjum, f. 19.6. 1876, d. 1929. Þorbjörn átti sjö systkini og var fimmti í röðinni. Elst var Halla verkakona í Reykjavík, f. 1898, d. 1993, dóttir Jóns og Svanhildar Jónsdóttur. Næstir voru Júlíus tré- smíðameistari í Reykjavík, f. 1902, d. 1992, sonur Jóns og fyrri konu hans, Þórunnar Teitsdóttur, f. 1876, d. 1911, kvæntur Rannveigu Guðjónsdóttur, þau eignuðust fjög- ur börn, tvö létust í æsku, og Helgi Þórlaug Sveinsdóttir, f. á Grjótá í Fljótshlíð 8. október 1925, d. 30. október 1992, dóttir Sveins Teits- sonar og Vilborgar Jónsdóttur, sem bjuggu á Grjótá 1910 til 1956. Börn Þorbjörns og Helgu eru: 1) Ágúst verkamaður, f. 1949. 2) Arn- ar verkamaður, f. 1952, kvæntur Margréti Jónsdóttur, f. 1961, dæt- ur þeirra eru: a) Helga Björg, f. 1980, b) Kristjana, f. 1982, sam- býlismaður Magnús Þór Gunnars- son, sonur þeirra Jakob Máni, f. 2006, og c) Jóna Birna, f. 1988. 3) Ásdís sjúkraliði, f. 1955. 4) Ásrún verkamaður, f. 1957. 5) Ásta bóndi, f. 1958. Þorbjörn ólst upp í Bollakoti til 14 ára aldurs að hann fer í vinnu- mennsku að Hlíðarendakoti og á þar heimili þar til hann og Helga hefja búskap í Litla-Kollabæ vorið 1950. Þar bjuggu þau í níu ár. Vor- ið 1959 flytja þau að Grjótá og búa þar óslitið til ársins 1992 í febrúar- lok að þau flytja á Dvalarheimili aldraðra Kirkjuhvol á Hvolsvelli. Þau hættu búrekstri um áramót 1987–1988. Útför Þorbjörns verð- ur gerð frá Hlíðarendakirkju í Fljótshlíð í dag og hefst athöfnin klukkan 14. bóndi í Bollakoti, f. 1904, d. 2002. Hann var albróðir Júlíusar. Börn Jóns og seinni konu hans, Arndísar, voru fimm, Ragnar bóndi í Bollakoti var elstur þeirra, f. 1913, d. 1999, kona hans var Þorbjörg Björns- dóttir, Þorbjörg átti eina dóttur, Sigur- laug húsmóðir í Reykjavík, f. 1915, gift Hannesi Ágústs- yni forstjóra, f. 1912, d. 1996, þau eignuðust tvö börn, Hreiðar bóndi í Árkvörn í Fljóts- hlíð, f. 1918, d. 1996, kvæntur Guð- rúnu Sæmundsdóttir, börn Guð- rúnar eru átta, Þórunn húsmóðir í Hafnarfirði, f. 1919, gift Sigurgeiri Guðmundsyni sjómanni og eign- uðst þau eina dóttur, og Þórunn eignaðist fimm börn með fyrri eiginmanni sínum, Leifi Guðlaugs- syni, eitt þeirra lést í æsku. Eiginkona Þorbjörns var Helga Mig langar að skrifa nokkur kveðjuorð um Þorbjörn Jónsson, fyrrum bónda á Grjótá í Fljótshlíð. Hann var einn af þessum heimakæru ekta bændum sem byggðu Fljóts- hlíðina er ég var þar sem krakki. Ég kynntist Þorbirni í heimsókn- um mínum til Ástu dóttur hans en hún er mikil og góð vinkona mín. Ég fann mig alltaf velkomna að Grjótá, krakkinn skynjar það vel sé hann velkominn. Tekið var á móti manni með bros á vör og boðið í bæinn, spurt var frétta og sýnd þolinmæði þó gestinum dveldist eitthvað fram- eftir. Á Grjótá var og er öllu vel við haldið og snyrtimennskan ræður ríkjum. Þorbjörn var einn af þessum góðu nægjusömu bændum sem ef- laust alltaf var að og kláraði þau verk sem byrjað var á, nostraði við hlutina og gaf sér tíma. Þorbjörn var hægur og dulur mað- ur en leyndi á sér og hafði húmorinn í lagi. Eitt sinn er ég hitti hann á Kirkjuhvoli á Hvolsvelli hafði ég orð á því hve vel hann bæri aldurinn þá að verða níræður, en hann var óvenju sléttur og hrukkulaus í and- liti. Hann leit á mig glettnislega og sagðist ekki hafa nema eina almenni- lega hrukku og hann sæti á henni. Hann var lítið fyrir að trana sér fram en var einlægur í tali og hrekk- laus maður. Ég sendi fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur og megi hann hvíla í friði. Kristín Ólafsdóttir. Þorbjörn Jónsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.