Morgunblaðið - 12.05.2007, Qupperneq 63

Morgunblaðið - 12.05.2007, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 63 þar sem Drangeyin blasir við í bak- grunninn rétt yfir sjávarfletinum og hryssurnar silast upp veginn með folöldum sínum. Hestar frá Birni gerðu það gott á keppnisvöllum er- lendis og hér heima og héldu gæða- stimpli hrossanna frá Hofstöðum inni í umræðunni. Það er hins vegar erfitt að hugsa sér Hofstaði án Björns, svo samofið er nafn hans staðnum, en þannig eru víst örlögin og þróun tímans. Björn var sér- stakur persónuleiki sem gerði lífið hér á jörðinni litríkara og skemmti- legra. Endurminningin um greind- an, sérstæðan, hugsandi, hagmælt- an og „húmoristískan“ einstakling lifir „ævinlega“ að leikslokum. Ég votta afkomendum og að- standendum Björns samúð mína um leið og ég kveð vin minn Björn á Hofstöðum hinstu kveðju. Helgi Sigurðsson. Látinn er vinur okkar og vel- gjörðarmaður Björn Runólfsson bóndi á Hofsstöðum, Skagafirði. Það var á áttunda áratug síðustu aldar að við vorum svo lánsöm að kynnast Birni. Við fyrstu kynni virtist hann lokaður og feiminn en það breyttist og kom þá betur í ljós hve hlýr maður og mikill húmoristi hann var. Björn var einstaklega góður heim að sækja og voru því Hofsstaðir löngum þéttsetnir gestum. Hús- bóndinn lét sér það vel líka og reiddi hverja veisluna af annarri fram úr ísskápnum upp á eldhús- borðið og sagði þá oft og iðulega nokkuð glaðhlakkalegur á svip: ,,Sjáið þið ekki veisluna drengir?“ Oft á tíðum settist hann við org- elið og spilaði undir margraddaðan söng sem barst að sjálfsögðu langt út fyrir húsveggi. Heimsóknir okk- ar til Björns á Hofsstöðum urðu fastur liður í ferðum okkar norður í Skagafjörð. Þangað var alltaf skemmtilegt að koma því Björn hafði uppörvandi en um leið róandi áhrif á menn. Það sem einkenndi persónuleika Björns var húmorinn annarsvegar og hinsvegar alvaran undir niðri og oft, í seinni tíð, áhyggjur af versn- andi heimi. Sjóndeildarhringurinn hans Björns var stór og fagur í orðsins fyllstu merkingu. Að horfa til hafs frá Hofsstöðum á fögru roðagylltu sumarkvöldi lætur engan mann ósnortinn. Það er beinlínis ógleym- anleg lífsreynsla og öllum mönnum hollt. Á þessum fallega stað lifði hann stóran hluta ævi sinnar og þarna var hrossastóðið hans sem hann hafði yndi af að umgangast. Hrossastofninn á Hofsstöðum var landsþekktur og þaðan hafa komið margir úrvalsgæðingar sem keppt hafa á fjölmörgum hestamannamót- um bæði hérlendis og erlendis. Björn hugsaði vel um hrossin sín og augljóslega mátti sjá hversu hændir hestarnir voru að honum þegar hann gekk um stóðið. Hann seldi hrossin oft bandvön og vildi helst selja þau í ,,kippum“, þ.e. nokkur í einu. Hlátur Björns var mjög innilegur og eftirminnilegur. Ef eitthvað vakti sérstaklega kátínu hans gat hann grátið svo úr hlátri að ekki varð umflúið að bregða hendi undir auga og þerra gleðitárin og öll sam- koman veltist um af hlátri yfir skemmtilegum sögum og mikilli orðheppni. En það eru svo sem eng- in nýmæli í Skagafirðinum. Þetta er sá landshluti þar sem fólk kann ennþá kúnstina að koma saman og gleðjast. Vonandi hverfur sú kúnst þeim aldrei. Nú þegar Björn hefur yfirgefið sviðið sem við öll hrærumst á, er okkur efst í huga innilegt þakklæti. Í gegnum hann kynntumst við mörgu góðu fólki, bæði skyldmenn- um hans og vinum. Við keyptum af honum marga gæðinga sem reynd- ust okkur mjög vel. Hryssa úr stóð- inu hans er nú komin í folaldseignir hjá okkur og hún ber greinilega svipmót og hæfileika Hofsstaða- kynsins. Þessa hryssu auk annarra hrossa gaf Björn okkur af miklum rausnarskap og vinsemd. Vertu sæll kæri vinur,við þökkum fyrir einstök kynni og samfylgd. Guð geymi þig. Gunnar og Þórdís, Dallandi. Fallinn er frá í hárri elli Björn Þórður Runólfsson, hrossabóndi á Hofstöðum. Björn var í hópi þeirra skagfirsku hrossabænda er kallaðir voru aust- anvatna merakóngar. Með ræktun- arstarfi sínu, elju og þolinmæði tókst þeim að bæta og auka ræktun íslenska hestsins. Í hugann koma úr þessum hópi 4 frændur mínir, þeir Friðrik á Svaðastöðum, sem látinn er. Sigurjón Runólfsson á Dýr- finnustöðum, einnig látinn, Björn Þórður Runólfsson á Hofstöðum sem nú er kvaddur og Jóhannes Runólfsson á Reykjarhóli, einn Dýrfinnustaðabræðra, sem enn stundar ræktun hrossa af miklum krafti, þrátt fyrir háan aldur. Björn kom úr stórum systkina- hópi. Þau voru 12 systkinin og fóst- urbörn 2 á Dýrfinnustöðum. For- eldrarnir voru þau Runólfur Jónsson og María Jóhannesdóttir, bæði komin af þekktum bændaætt- um í Skagafirði. Björn var hinn 4 í röðinni og var skírður í höfuðið á langafa sínum Birni Þórðarsyni, hreppstjóra og dannebrogsmanni á Skála í Sléttu- hlíð. Davíð Stefánsson gerir sveit- arhöfðingjanum Birni góð skil í bók sinni Sólon Islandus. Björn var mjög stoltur af langafa sínum og sagði gjarnan sem svo. Hann fékk orðuna fyrir það afrek, að afstýra því að fólk og fénaður horfélli í Fellshreppi í harðindunum miklu. En vinnuharður var hann karlinn. Þau Dýrfinnustaðasystkini lærðu snemma að vinna og urðu þekkt að dugnaði og hagleik. Smíðar og hannyrðir voru þeim leikur einn. Þau voru einnig söngelsk og glað- vær. Björn hóf snemma að vinna með þungavinnuvélar og eignaðist gröf- ur og önnur tæki. Starfaði með þessi tæki víða um land, t.d. í Strákagöngum. Þáttaskil urðu í lífi hans, þegar hann eignaðist hina fornfrægu jörð Hofstaði og hóf af fullum krafti hrossarækt sína en það var gamall draumur. Stofninn í stóði hans voru afkom- endur höfðingjans Sóma 670 frá Hofstöðum. Hafa hross frá Birni dreifst víða um land og erlendis t.d. í Noregi og Þýskalandi. Tókst honum að koma upp ótrú- lega mörgum, afburðahrossum, sem flest eiga uppruna sinn í Sóma 670. Björn lagði mikið upp úr því að hrossin hefðu alhliða gang og geðs- lagið væri gott. Björn hafði sama háttinn á og Jóhannes bróðir hans á Reykjarhóli, að taka folöldin inn á fyrsta vetri og gera þau bandvön. Þannig var hægt að lesa út bæði geðslag og ganglag folaldanna og búa þau þannig undir tamninguna. Ávallt var gaman að heimsækja Björn, ræða stjórnmál, sögu, ætt- fræði, heimspeki og hrossarækt. Björn átti það og til að setjast við orgelið og kompónera mönnum til mikillar ánægju. Með þessu öllu lyftu menn svo glasi og nutu hins frábæra útsýnis frá Hofstöðum. Oft var gestagangur mikill enda átti húsbóndinn vini víða um land og margir útlendingar, hestamenn og aðrir vildu líta við hjá dæmigerð- um íslenskum bónda. Björn var hagyrðingur dágóður en flíkaði því ekki. Er við hæfi að birta hér frábæra vísu eftir hann, en hún er með heimspekilegu ívafi og lýsir vits- munum Björns. Frá því lífs míns fjör var vakið og fór að stríða, aleiga mín er andartakið sem er að líða. Við hjónin og fjölskyldan öll vilj- um þakka vináttu og ánægjuleg kynni alla tíð og erum þess fullviss, að á nýjum slóðum er Björn að at- huga ganglag folalda og hreyfingar þeirra með framtíðina í huga. Einkadóttur Björns, Guðbjörgu og eiginmanni hennar Jóni V. Gísla- syni og börnum þeirra, Berglindi Eygló og Birni Þórði, vottum við samúð okkar. Veri Björn Guði fal- inn. Rannveig og Hilmar Björgvinsson. Það er fallegt á Hofsstöðum. Út um norðurgluggann í eldhúsinu sér út til eyja, þar er ótæmandi brunn- ur fegurðar. Björn á Hofsstöðum kunni að meta fegurðina í nátt- úrunni. „Ég vorkenni þessum vesa- lingum sem sjá ekki fegurðina í sköpunarverkinu“, sagði hann. Ég átti margar ógleymanlegar samverustundir með Birni, bestar voru þær þegar við vorum tveir ein- ir, þær voru sálarbætandi. Við gengum saman í stóðið og Bjössi heilsaði upp á vinina sína, hrossin komu til hans full trausts og hann klóraði þeim undir kjálkunum, það var hans háttur. Hann sagði að hrossin væru mannþekkjarar og ef maður gat ekki nálgast svona tvö, þrjú og klórað þeim undir kjálk- unum, þá fékk maður falleinkunn, þetta var eins konar próf á hvern mann maður hafði að geyma. Sjálf- ur gerði hann þær kröfur til sinna hrossa að þau hefðu traust geðslag og mýkt í gangi. „Hún lullar prýði- lega þessi,“ sagði hann oft og end- aði þá gjarnan í hláturroku. Þetta var ekki sagt hrossinu til hnjóðs, þvert á móti, þetta voru meðmæli. Að vera undan hinum og þessum úr Blönduhlíðinni var heldur ekki svo slæmt, en það svar fékk maður iðu- lega þegar grennslast var fyrir um ættir einhverra hrossa, þannig var Björn. Þegar við höfðum gert hrossun- um skil var haldið til bæjar. „Við skulum sjóða kaffi,“ var viðkvæðið hjá Birni, og á eldhúsborðinu gat verið gríðarstór kaka sem Björn kallaði „vallhólma“ vegna stærðar sinnar, veislan var fullkomnuð með staupi af Gammel Dansk sem Björn taldi heilsubótardrykk. Oftar en ekki var gengið til stofu, Björn sett- ist við orgelið og sagði: „syngdu, syngdu“, og svo spilaði hann Bortniansky eða eitthvað annað og ég söng. Á eftir hölluðum við okkur ef til vill hvor í sinn sófann og spjölluðum; umræðuefnið gat verið af ýmsum toga, Björn var allsstaðar vel heima og hafði skýra lífssýn og ákveðnar skoðanir, oft vandaði hann ráðamönnum þjóðarinnar ekki kveðjurnar eða auðvaldinu sem sveifst einskis í að skara eld að eig- in köku, hann vildi að jafnræði ríkti milli þegna þessarar þjóðar. Hann talaði sig heitan um heimsvalda- stefnu Bandaríkjamanna og vopna- framleiðendum og stríðsherrum hafði hann andstyggð á. Björn hafði löngum óbilandi trú á vegsemd íslenska hestsins, áttaði sig á því löngu á undan Guðna Ágústssyni að hesturinn væri okkar skeleggasti sendiherra og fagnaði uppbygging náms í hestafræðum og reiðmennsku við Hólaskóla þegar öðrum þótti skólinn setja niður við þetta hrossastúss. Þannig var Björn. Björn orðaði það einhverju sinni á ævikvöldi að þetta líf væri allt of stutt. Ég skildi hann svo að í hinu stóra samhengi óravíddar tímans þá væri þessi örskotsstund jarðvistar varla mælanleg. Engu að síður var Björn fyrir allnokkru ferðbúinn og ég held honum hafi stundum fund- ist að hann þyrfti að bíða fararleyfis fulllengi, en kallið kom að lokum og ég veit að hann var því feginn. Með þessum fátæklegu orðum vil ég kveðja Björn á Hofsstöðum og þakka honum fyrir samverustund- irnar, margar og góðar. Aðstandendum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Ingimar Ingimarsson. Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ JÓHANNA JÓHANNSDÓTTIR ljósmóðir frá Skógum, Fellsströnd, Dalasýslu, lést sunnudaginn 29. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Við þökkum góða umönnun á liðnum veikindaárum. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Umhyggju, félag til stuðnings langveikum börnum. Guð blessi minningu hennar og öll hennar störf. Vinir og vandamenn. ✝ Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, HJALTI JÓSEFSSON fyrrum bóndi á Hrafnagili, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtu- daginn 10. maí. Pálína Ragnhildur Benediktsdóttir, Bergur Hjaltason, Þóra Guðrún Hjaltadóttir, Ingibjörg Hjaltadóttir, Benedikt Hjaltason, Ragnhildur Hjaltadóttir og fjölskyldur. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EYJÓLFUR RAGNAR EYJÓLFSSON, lést á hjúkrunardeild Hrafnistu í Reykjavík miðviku- daginn 9. maí. Útför auglýst síðar. Ragnheiður Eyjólfsdóttir, Guðbjörg Jóna Eyjólfsdóttir, Jón Aðalsteinsson, Eyjólfur Óskar Eyjólfsson, Birna Guðmundsdóttir, Guðný Erna Þórarinsdóttir, Hildimundur Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, amma og tengdamóðir, SVAVA KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR fornbókasali, Sóltúni 28, Reykjavík, lést á heimili sínu fimmtudaginn 10. maí. Hrafnkell Guðjónsson, Soffía Hrafnkelsdóttir, Einar Gunnar Einarsson, H. Jóhanna Hrafnkelsdóttir, Heimir Hrafnkelsson og barnabörn. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birt- ing dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um for- eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl- ast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í minningargrein- unum. Undirskrift | | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Ef mynd hefur birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á mynda- móttöku: pix@mbl.is og láta um- sjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.