Morgunblaðið - 12.05.2007, Page 80
80 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
THE REAPING kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.16.ára
SPIDER MAN 3 kl. 12 - 3 - 6 - 9 - 10:30 B.i.10.ára
SPIDER MAN 3 VIP kl. 12 - 3 - 6 - 9
BLADES OF GLORY kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i.12.ára
SHOOTER kl. 8 B.i.16.ára
BREACH kl. 5.50 - 10:30 B.i.12.ára
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 2 - 4 LEYFÐ
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 1:30 - 2 - 3:30 - 4 LEYFÐ
WILD HOGS kl. 8 B.i.7.ára
BECAUSE I SAID SO kl. 6 LEYFÐ
/ ÁLFABAKKA
eee
V.J.V. TOPP5.IS
WWW.SAMBIO.IS
BECAUSE I SAID SO Diane KeatonMandy Moore
GOAL 2 kl. 3:30 - 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i. 7 ára
THE REAPING kl. 6 - 8:10 - 10:20 B.i. 16 ára
BLADES OF GLORY kl. 2 - 4 - 8:10 B.i. 12 ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 1:50 - 4 LEYFÐ DIGITAL 3D
MEET THE ROBINSONS ótextuð m/ensku tali kl. 6:10 LEYFÐ DIGITAL 3D
300 kl. 10:20 B.i. 16 ára DIGITAL
/ KRINGLUNNI
FRÁ FRAMLEIÐANDA
MATRIX, DIE HARD OG
LETHALWEAPON
SUMT ER EKKI HÆGT AÐ ÚTSKÝRA MEÐ VÍSINDUM
STÓRSTJÖRNUR ÚR
Hraðskreiðir bílar, súpermódel og partý...
Þarf ekki eitthvað meira til að sanna að þú sért frábær leikmaður?
REAL MADRID... HILARY SWANK
AÐALSMENN VIKUNNAR VILJA ALLIR FÁ AÐ RÁÐA. AÐALS-
MENNIRNIR ERU Á ALLRA VÖRUM OG KEPPAST UM ATKVÆÐI
ÞJÓÐARINNAR Í ALÞINGISKOSNINGUNUM Í DAG. ÞETTA ERU
VARAFORMENN STJÓRNMÁLAFLOKKANNA SEX SEM BERJAST
UM VÖLDIN Í LANDINU. VERST AÐ ÞEIR GETA EKKI ÞEGIÐ LIÐS-
STYRK FRÁ EFTIRLÆTIS OFURHETJUM SÍNUM.
VARAFORMENNIRNIR
Hvað viltu segja
við ungt fólk sem
er að kjósa í
fyrsta sinn?
Sestu niður,
hugsaðu rólega
og af skynsemi.
Ísland býður þér
gríðarleg tæki-
færi, þar höfum
við Framsókn-
armenn með
bjartsýni og trú staðið að verki.
Ef þú stofnaðir hljómsveit í dag,
hvað myndi hún heita og hvernig
tónlist spilaði hún?
Be kind myndi hún heita og hún
myndi spila geggjað rokk.
Uppáhalds ofurhetjan?
Gunnar á Hlíðarenda.
Áttu þér uppáhalds persónu í sjón-
varpsþætti?
Derrick.
Hvern af hinum varafomönnunum
myndirðu helst vilja eiga sem með-
leigjanda?
Það á að vera vík á milli vina og
fjörður á milli frænda. Engum, það
myndi kosta of mikið þras.
Geggjað
rokk með
Be kind
Guðni Ágústsson,
Framsóknarflokki.
Hvað viltu segja
við ungt fólk sem
er að kjósa í
fyrsta sinn?
Mæta á kjörstað
og kjósa um þau
málefni sem því
finnst mikilvæg-
ust í samfélaginu!
Ef það eru um-
hverfis-, jafn-
réttis- og velferð-
armál er ég viss um að atkvæðið
ratar á góðan stað.
Ef þú stofnaðir hljómsveit í dag,
hvað myndi hún heita og hvernig
tónlist spilaði hún?
Ég er reyndar upplýsingafulltrúi
kvennahljómsveitarinnar Putin as a
Woman sem stefnir í að verða mjög
þétt indí-band.
Uppáhalds ofurhetjan?
Lögregluhundurinn Rex.
Áttu þér uppáhalds persónu í sjón-
varpsþætti?
Alan Shore í Boston Legal.
Hvern af hinum varafomönnunum
myndirðu helst vilja eiga sem með-
leigjanda?
Ágúst Ólafur virðist vera einkar
snyrtilegur maður og örugglega
þægilegur meðleigjandi. Þorgerður
Katrín er reyndar örugglega líka
hress meðleigjandi.
Pútín sem
kona
Katrín Jakosdóttir,
Vinstri grænum.
Hvað viltu segja
við ungt fólk
sem er að kjósa í
fyrsta sinn?
Hugsið ykkur vel
um. Kosning-
arnar snúast um
hvaða stefnu
landið og þjóðin
taka inn í fram-
tíðina og hún er
ykkar. Kynnið
ykkur stefnumál Frjálslynda flokks-
ins á vefnum okkar xf.is.
Ef þú stofnaðir hljómsveit í dag,
hvað myndi hún heita og hvernig
tónlist spilaði hún?
Hún myndi heita Reykjavík Norður
og spila rokkaða þjóðlagatónlist.
Uppáhalds ofurhetjan?
Þórður kakali, hetja og fyrirmynd
mín úr Íslendingasögum.
Áttu þér uppáhalds persónu í sjón-
varpsþætti?
Edmund Black Adder sem Rowan
Atkinson lék í samnefndum þáttum.
Hvern af hinum varafomönnunum
myndirðu helst vilja eiga sem með-
leigjanda?
Það er aldrei leiðinlegt í kringum
Guðna Ágústsson.
Aldrei leið-
inlegt í
kringum
Guðna
Magnús Þór Haf-
steinsson, Frjáls-
lynda flokknum.
Hvað viltu segja
við ungt fólk sem
er að kjósa í
fyrsta sinn?
Nú er málið að
skipta um stjórn
eftir 12 löng ár og
gefa nýrri og
ferskari stjórn
séns. Við viljum
að öll börn fái
jöfn tækifæri. Við
ætlum að gera Ís-
land betra, ódýrara og grænna og
höfnum því að það eigi bara að vera
gott fyrir suma að búa á Íslandi.
Ef þú stofnaðir hljómsveit í dag,
hvað myndi hún heita og hvernig
tónlist spilaði hún?
Kratarnir og þeir myndu spila gott
þjóðlagarokk með harmonikkum og
þverflautum í bland.
Uppáhalds ofurhetjan?
Egill Skallagrímsson. Hann toppar
allar amerískar ofurhetjur í hetju-
stælum.
Áttu þér uppáhalds persónu í sjón-
varpsþætti?
Repúblikann Bree í Desperate Hou-
sewifes.
Hvern af hinum varaformönnunum
myndirðu helst vilja eiga sem með-
leigjanda?
Þorgerður Katrín er skemmtileg og
klár kona og íþróttakempa í þokka-
bót. Katrín Jakobsdóttir er hins veg-
ar sérfræðingur í glæpasögum,
þannig að valið er erfitt. Ég geri
ekki upp á milli þessara tveggja.
Þær eru, báðar tvær, öflugir fulltrú-
ar sinna flokka.
Repúblik-
aninn Bree í
uppáhaldi
Ágúst Ólafur
Ágústsson, Sam-
fylkingunni.
Hvað viltu segja
við ungt fólk sem
er að kjósa í
fyrsta sinn?
Nýtið kosninga-
réttinn, tækifær-
in falla ekki af
himnum ofan.
Ef þú stofnaðir
hljómsveit í dag,
hvað myndi hún
heita og hvernig
tónlist spilaði
hún?
Ætli hún myndi ekki heita Blondie,
verst að nafnið er upptekið. Við
myndum spila góða danstónlist og
jafnvel Sálarlögin.
Uppáhalds ofurhetjan?
Ástríkur.
Áttu þér uppáhalds persónu í sjón-
varpsþætti?
Stelpurnar í Sex & the City
Hvern af hinum varaformönnunum
myndirðu helst vilja eiga sem með-
leigjanda?
Katrínu Jakobsdóttur.
Blondie
spilar Sálina
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir,
Sjálfstæðisflokki.
Hvað viltu segja við ungt fólk sem
er að kjósa í fyrsta sinn?
Íslandshreyfingin er eini stjórn-
málaflokkurinn sem getur tryggt að
stóriðjuhlé verði gert á næsta kjör-
tímabili. Greiddu atkvæði með land-
inu þínu. Og fólkið sem er í framboði
fyrir Íslandshreyfinguna er traust.
Ef þú stofnaðir hljómsveit í dag,
hvað myndi hún
heita og hvernig
tónlist spilaði
hún?
Kvenna-
hljómsveitin
Pollýönnurnar
og hún myndi
leika gömul, ís-
lensk dægurlög.
Uppáhalds of-
urhetjan?
Köngulóarmaðurinn (Spiderman).
Áttu þér uppáhalds persónu í sjón-
varpsþætti?
Peter Griffin, pabbinn í Family Guy.
Hvern af hinum varaformönnunum
myndirðu helst vilja eiga sem með-
leigjanda?
Ég held að það væri gaman að leigja
með Þorgerði Katrínu, og við yrðum
varla þreyttar hvor á annarri því við
sæjumst sjaldan, vegna annríkis
beggja!
Pollýanna
og Spider-
man
Margrét K.
Sverrisdóttir