Morgunblaðið - 12.05.2007, Qupperneq 84
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
LOFTFIMLEIKAÆFINGAR í
Argentínu smituðu Elínu Björk
Tryggvadóttur af sirkusbakteríunni
en hún hefur nú í félagi við vinkonu
sína Helgu Guðrúnu Óskarsdóttur
stofnað sirkusfélagið Eldmóð og
ætla þær að vera með sirkusnám-
skeið fyrir börn og unglinga hér
heima í sumar.
Saknaði loftfimleikanna
„Maður verður að vera í ágætu
formi til að geta hangið í spotta og
gert kúnstir með efnisstranga. Þótt
þetta líti út fyrir að vera auðvelt þarf
maður að læra tæknina og þetta tek-
ur á,“ segir Elín Björk.
Hún kynntist sirkus af eigin raun
þegar hún dvaldist sem skiptinemi í
Argentínu, en dóttir konunnar sem
hún bjó hjá þar æfði loftfimleika.
Eftir að hún kom heim frá Argent-
ínu saknaði hún loftfimleikanna og
fór ári seinna á sirkusnámskeið í
Englandi.
Var alveg viðþolslaus
„Ég var alveg viðþolslaus,“ segir
Elín Björk og hún kveðst hafa smit-
að Helgu Guðrúnu, vinkonu sína, af
þessum áhuga. Í kjölfarið stofnuðu
vinkonurnar sirkusfélagið Eldmóð.
Helga skellti sér út til Noregs í
nám í sirkuslistum og lærði þar með-
al annars að gleypa eld. Sjálf hefur
Elín áhuga á að bæta við sig frekari
kúnstum í sirkusskóla á Spáni.
Vinkonur í sirkus
Elín Björk og Helga Guðrún stofnuðu sirkusfélagið Eldmóð
og hyggjast kynna börn og unglinga fyrir sirkuslistinni
Morgunblaðið/ÞÖK
Sirkusstúlka Elín Björk kann að
gera sirkuskúnstir af ýmsu tagi. Í sirkuslistum af lífi og sál | 36
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 132. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Síðasta könnunin
Ríkisstjórnin missir þingmeiri-
hluta samkvæmt síðustu skoð-
anakönnun Gallup fyrir Morg-
unblaðið og RÚV. Kaffibandalagið
hefur nauman meirihluta; 32 þing-
menn. Séu allar kannanir síðustu
viku lagðar saman heldur stjórnin
velli, hefur 49,9% atkvæða og 32
þingmenn. » Forsíða og 4
Metnaður í útsendingum
Ríkissjónvarpið og Stöð 2 lofa
áhorfendum sínum ítarlegum upp-
lýsingum og góðri skemmtun í kosn-
ingasjónvarpinu. Báðar stöðvar
verða með beinar útsendingar frá
talningarstöðum og breytir útsend-
ing frá Evróvisjón engu þar um.
Fyrstu tölur verða birtar laust eftir
kl. 22. Kosningasjónvarp Stöðvar 2
hefst kl. 21 en Ríkissjónvarpsins
strax að lokinni Evróvisjón-
söngvakeppninni. Á mbl.is verður
fylgst með tölum þar til úrslit liggja
fyrir. » 2 og 8
Staðfesti Gjábakkaveg
Jónína Bjartmarz umhverfis-
ráðherra hefur staðfest úrskurð
skipulagsstofnunar um mat á um-
hverfisáhrifum Gjábakkavegar. Pét-
ur M. Jónsson sem kærði úrskurðinn
í fyrra harmar staðfestinguna. Hann
segir að baráttunni sé ekki lokið. » 4
SKOÐANIR»
Staksteinar: Ónýt röksemd
Forystugrein: Áhætta
UMRÆÐAN»
Eitt samfélag fyrir alla
Er virk byggðastefna á Íslandi?
Meint mengun flugsins
Stóra skattalækkunarbrellan
Lesbók: Gyðjur úr ólíkum áttum
Börn: Þekking á stjórnmálum
Enski: United er Ferguson
LESBÓK | BÖRN | ENSKI»
. "
#8$
- *
#
9
" 2 2 2 2 2 2 2
2 2 2 2 , : (6 $
2
2
2 2
2
2
2 ;<==/>?
$@A>=?49$BC4;
:/4/;/;<==/>?
;D4$::>E4/
4<>$::>E4/
$F4$::>E4/
$5?$$4G>/4:?
H/B/4$:@HA4
$;>
A5>/
9A49?$5*$?@/=/
Heitast 10 °C | Kaldast 1 °C
N 5–10 m/s, sums
staðar 10–13 m/s NV
til. Snjókoma og síðar
slydda NA-lands, víða bjart
á S- og V-landi. 10 »
Kosningar fara fram
í dag og því eru að-
alsmenn stjórn-
málamenn. Þeir vilja
allir fá að ráða, enda
þótt ólíkir séu. » 78
AÐALSMENN»
Vilja allir
ráða
FÓLK»
Einkaþjálfarinn orðinn
sölufulltrúi. » 74
Beita Íslendingar
jafnmiklum maf-
íósabrögðum við
kosningu í Evró-
visjón og Balkan-
þjóðirnar? » 81
EVRÓVISJÓN»
Mafíósa-
brögð
LJÓл
„Ekki verður öllum rótt er
úrslitin birtast …“ » 76
LEIKHÚS»
Hristir upp í útvarpsleik-
húsi Rásar 1. »74
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Fleiri en Eiríkur ósáttir …
2. Þúsundir fylgdust með risabrúðu
3. Rukkað fyrir ógild atkvæði …
4. Stúlkur stálu upplagi blaðsins …
RISESSAN setur svip á borgina í
dag auk þess sem einn af kjörstöðum
Reykjavíkurkjördæmis norður er í
Ráðhúsi Reykjavíkur. Þess vegna
má búast við fjölmenni í miðbænum í
dag og lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu varar við umferðartöfum.
Að sögn Hrólfs Jónssonar, sviðs-
stjóra framkvæmdasviðs, hafa menn
nokkrar áhyggjur af því að umferð
geti tafið þá sem kjósa í Ráðhúsinu,
þar sem stórmennin fari með göngu-
hraða og á meðan þau fari hjá geti
götur lokast. „Í dag [í gær] voru
25.000 manns uppi við Hallgríms-
kirkju,“ segir Hrólfur, „og þá gefur
augaleið að umferð stöðvast sjálf-
krafa af því að bílarnir komast ekki
fyrir fólki. Lögreglan vill þó ekki
loka neinum götum, hún vill sjá til
hvernig verkast.“ Fólk er hvatt til að
nýta sér almenningssamgöngur til
að auðvelda umferð og leggja ekki
bifreiðum sínum í miðbænum.
Að sögn Hrólfs er ekki hætta á að
allar leiðir að Ráðhúsinu lokist. „Ris-
inn og risessan munu hittast á horn-
inu á Skothúsvegi og Lækjargötu og
fara saman eftir Lækjargötu,“ segir
hann. Þetta muni valda einhverjum
truflunum á umferð, en þeir sem
þurfi að komast að Ráðhúsinu muni
komast þangað eftir öðrum leiðum.
Kosningar
og stór-
menni geta
valdið töfum
RISESSA vakti mikla athygli þar sem hún
gekk um miðbæ Reykjavíkur í gær með
aðstoð götuleikhússins Royal de luxe, að
kynna sér skemmdarverk risans föður
síns, sundurskorna bíla og goshver í Gróf-
inni.
Uppákoman var endapuktur á frönsku
menningarhátíðinnni Pourquois pas? og
um leið upphafspunktur Listahátíðar.
Risessan verður aftur á ferðinni í dag,
leggur upp frá hafnarbakkanum kl. 10:30
og heldur síðan í sína síðustu göngu hér á
landi kl. 15 frá Lækjartorgi.
Bærinn fylltist af börnum sem komu til
að ganga með risessunni og þessi hnáta
komst í nánari snertingu við hana. Ekki er
annað að sjá en vel hafi farið á með þeim
þótt stærðarmunurinn sé óneitanlega
nokkur.
„Hún var skemmtileg. Það var gaman
að sjá hana,“ sagði Flóki Ingólfsson, fimm
ára, sem brá sér í bæinn í gær ásamt skóla-
systkinum sínum á leikskólanum Öldukoti,
til þess að fylgjast með ferðum risess-
unnar. Flóki segir að krakkarnir hafi elt
risessuna en sér hafi ekki þótt hún vera
neitt óskaplega stór. Sumir krakkarnir
hafi samt orðið dálítið hræddir. „En ekki
ég,“ sagði Flóki.
Risessan er átta metra há strengjabrúða
og því enginn hægðarleikur að hafa stjórn
á henni. Það tókst hins vegar bærilega í
blíðskaparveðri í gær. | 77
Götuleikhúsið Royal de Luxe færði Reykjavík í ævintýrabúning
Morgunblaðið/G. Rúnar
Óhrædd Nokkur stærðarmunur var á risessunni og telpunni sem
fékk far með henni í gær. Sú litla virtist þó hvergi bangin.
Risessa
arkaði um
miðbæinn
ÆRNAR á Mógili á Svalbarðseyri
eru með eindæmum frjósamar. Af
um 150 ám, sem bera á bænum,
voru tvær fjórlembdar og 23 þrí-
lembdar á síðasta ári, að sögn
hjónanna Páls og Dóru á Mógili.
Þau segja að útlit sé fyrir að
frjósemin verði ekki minni á bæn-
um í ár. Af rúmlega fjörutíu ám,
sem hafa þegar borið í vor, eru
tvær fjórlembdar og tíu þrílembd-
ar.
Önnur fjórlembdu ánna, Þoka, er
átta vetra og hefur þrisvar sinnum
verið þrílembd en annars tvílembd.
Hin kostakindin, Brynhyrna, bar
líka fjórum lömbum í fyrra.
Frjósamt kyn
Ærnar á Mógili eru sæddar.
Notað er sæði úr hrút undan ann-
arri Þoku, frjósamri á austan úr
Skaftafellssýslu.
„Við eigum mikið undan henni,“
sagði Dóra á Mógili.
Gríðarleg frjósemi | 34
Með eindæm-
um frjósamar