Morgunblaðið - 16.05.2007, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2007 19
MENNING
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Krýsuvíkurkirkja Þar verður nýtt verk þeirra Matthíasar og Atla frumflutt.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
LJÓÐSKÁLDIÐ Matthías Johann-
essen og tónskáldið Atli Heimir
Sveinsson hafa samið ljóð og lag sem
frumflutt verða í sérstakri hátíð-
armessu í Krýsuvíkurkirkju um
hvítasunnuna.
Tilefnið er 150 ára afmæli Krýsu-
víkurkirkju og 10. ártíð Sveins
Björnssonar, listmálara í Hafnarfirði,
sem átti sér vinnustofu í Sveinshúsi í
Krýsuvík, en það hýsir nú Sveins-
safn. Jafnframt marka tímamótin 10
ára samband kristnihalds og lista á
staðnum.
Altaristaflan kemur með vorið
Erlendur Sveinsson kvikmynda-
gerðarmaður, sonur Sveins, er í for-
svari fyrir aðstandendur Sveinssafns,
sem er í samstarfi við Hafnarfjarðar
kikju um endurreist kristnihald í
Krýsuvíkurkirkju. Hún er ein af elstu
timburkirkjum landsins og í eigu
Þjóðminjasafnsins. Sveinn faðir hans
var ötull baráttumaður fyrir því að
messuhald yrði tekið þar upp að nýju
eftir miðja 20. öld, þegar það hafði
legið niðri um langt árabil.
„Starfið okkar í Krýsuvík síðustu
tíu ár er gegnheilt dæmi um nánd
systranna trúar og listar,“ segir Er-
lendur. „Það hefur þann ramma að
faðir minn málaði altaristöflu fyrir
kvikmynd sem ég gerði um hann og
hún er hengd upp í vormessu í
Krýsuvík og tekin niður í haust-
messu. Við höfum starfrækt lista-
safnið og haldið fjórar þemasýningar
og kirkjugestir hafa verið boðsgestir
á þeim.“
Ljóð Matthíasar heitir Munu ós-
ánir akrar vaxa, og segir Erlendur
það vera um óravíddir sköp-
unarverksins og tímann frá upphafi
þess í hvellinum mikla. Þetta sé ljóð
um manninn í goðsögulegum heimi
arfleifðarinnar. Hann segir tónlist
Atla Heimis einfalda og látlausa og
hæfa ljóðinu afar vel, en flytjendur
verða Þorleifur Hauksson lesari,
Ágúst Ólafsson söngvari, Hlín Er-
lendsdóttir fiðluleikari, Björn Thor-
oddsen gítarleikari og Guðmundur
Sigurðsson organisti.
En Atli lætur ekki staðar numið
við ljóðið, heldur hefur hann af tilefn-
inu gert nýja útsetningu að sálmi
Páls Ísólfssonar við ljóð Matthíasar,
að ósk Gunnþórs Ingasonar, auk þess
að semja inngöngu- og útgöngu-
tónlistina og altarisgöngutónlist. Það
verða hátalarar fyrir utan fyrir þá
sem ekki komast inn. Verk Atla og
Matthíasar verður endurflutt í
Sveinssafni í messukaffi.
Leyndardómur smæðarinnar
Það var Erlendur sem átti frum-
kvæði að því að panta verkin hjá
Matthíasi og Atla Heimi.
Hann talar um „leyndardóm
smæðarinnar“, spurður um braginn
sem skapast hefur kringum kristni-
haldið og listina í Krýsuvík. „Það
myndast ákveðin stemning þegar fáir
eru samankomnir. Kirkjan rúmar
þrjátíu manns, en við höfum verið þar
sextíu, þannig að hún hefur verið út-
troðin og belgd. Það er sama sagan í
Sveinssafni. Það er hæfilegt að vera
með þrjátíu manns þar, en við höfum
verið með sextíu manns í kirkjukaffi.
Þetta er skemmtilegt. Það er tvennt
sem einkennir þetta starf. Annars
vegar er það þetta samspil trúar og
listar, sem lýsir sér til dæmis í flandr-
inu með altaristöfluna vor og haust,
abstrakt altaristöflu sem búin var til
fyrir kvikmynd og passar strangt til
tekið ekkert inn í þessa kirkju, nema
hvað Þjóðminjasafnið hefur haft þá
víðsýni til að bera að taka hana inn.
Hitt atriðið er einmitt nándin. Fólk
er þétt upp við hvað annað og hljóð-
færaleikararnir oní gestunum. Hljóð-
færakosturinn ræðst af aðstæðum
hverju sinni: harmónikka, fiðla, saxó-
fónn, flautur og gítar. Gestabæk-
urnar hafa líka gegnt sérstöku hlut-
verki því í þeim fékk kirkjan málið.
Hún talar við okkur gegnum þær.
Það er mjög merkilegt að sjá hvernig
fólk tjáir sig um kirkjuna á öllum
heimsins tungumálum. Mér fannst
tilefnið stórkostlegt þegar saman
færi tíu ára afmæli þess starfs sem
hefur byggst á jarðarför föður míns
og temanu um dauða og upprisu, og
150 ára afmæli kirkjunnar sem
stendur á kirkjustað sem við höfum
heimildir um í kirkjuskrá Páls bisk-
ups í Skálholti árið 1200. Sagan er
sterk, eins og náttúran í Krýsuvík.“
Lag Atla Heimis við ljóð Matthíasar frumflutt í Krýsuvíkurkirkju á hvítasunnu
Nánd systranna
listar og trúar
Tónskáldið Atli Heimir SveinssonLjóðskáldið Matthías Johannessen
VORVINDAR IBBY á Íslandi,
viðurkenningar fyrir gott
framlag til barnamenningar,
voru veittir sunnudaginn síð-
astliðinn þremur aðilum: Borg-
arbókasafni Reykjavíkur, Þor-
gerði Jörundsdóttur og Örnólfi
Thorlacius.
Borgarbókasafnið þykir hafa
starfað ötullega að því að
glæða áhuga barna og unglinga
á bókalestri. Þorgerður hlaut
viðurkenningu sem nýliði á sviði barnabókagerð-
ar, fyrir bækurnar Þverúlfs saga grimma og Mitt
er betra en þitt. Örnólfur hlaut viðurkenningu fyr-
ir vandaðar þýðingar á fræðibókum fyrir börn.
Bókmenntir
Þrír heiðraðir með
Vorvindum IBBY
Þorgerður
Jörundsdóttir
LISTMÁLARINN Baltasar
Samper var útnefndur heið-
urslistamaður Kópavogs á af-
mælisdegi bæjarins, 11. maí.
Baltasar er landsmönnum að
góðu kunnur, hefur málað
freskur fyrir kirkjur og kap-
ellur og haldið fjölda mál-
verkasýninga hér á landi og er-
lendis.
Baltasar hefur sótt mikinn
innblástur í norræna goða-
fræði í verkum sínum, gert andlitsmyndir og
myndir af hestum. Baltasar fæddist í Barcelona
árið 1938 og fluttist til Íslands 1963. Hann hefur
búið í Kópavogi í 42 ár.
Myndlist
Baltasar Samper
bæjarlistamaður
Baltasar
Samper
AUSTFIRSKT tónlistarfólk
mun standa að tónleikum í
Kirkju- og menningarmiðstöð-
inni á Eskifirði á hvítasunnu-
dag, sunnudaginn 27. maí. Þar
mun austfirsk tónlist ráða ríkj-
um.
Tónleikarnir bera yfirskrift-
ina „Austfirska söngbókin“ og
verða á þeim flutt lög eftir Inga
Tómas Lárusson, Svavar
Benediktsson, Óðin G. Þór-
arinsson og bræðurna Þorvald og Þorlák Frið-
rikssyni. Haldnir verða tvennir tónleikar, að
kvöldi hvítasunnudags kl. 20.30 og annan í hvíta-
sunnu kl. 15.
Tónleikar
Austfirsk tónlist á
hvítasunnu
Ingi Tómas
Lárusson
RONI Horn hefur sett mark sitt á
Ísland með svipuðum hætti og J.W.
Turner setti á Feneyjar með mál-
verkum sínum. Þessu heldur Brian
Sholis, aðstoðarritstjóri lista-
tímaritsins Artforum, fram í um-
fjöllun sinni um Vatnasafn Roni
Horn og yfirlitssýningu á verkum
hennar í Hafnarhúsi, Oz.
„Í huga mér mun ímynd landsins
ávallt tengjast verkum Horn,“ segir
Sholis. Það virki einnig öfugt, þ.e.
að ímynd Horn muni alltaf tengjast
Íslandi. Fyrirsögn umfjöllunar-
innar er nokkuð skondin, Vatn í
flösku, en þar vísar Sholis til jökul-
vatnsfylltra glersúlna í innsetningu
Horn í Vatnasafni.
Sholis segir þann gjörning að
varðveita ís úr jöklum í vatnsformi í
glersúlum vera ögrandi, enda eigi
hann að vera það. Með því sé verið
að undirstrika að jöklar heimsins
séu að bráðna. Horn vilji með
Vatnasafni skrá kynni manna af
landinu og hverjum öðrum. Sholis
var í fríðu föruneyti þekktra, er-
lendra sýningarstjóra, safnara og
galleríeigenda. Ekki sé annað hægt
en að dást að því hvernig Horn hafi
búið til rými þar sem hægt sé að
„grandskoða samband áhorfandans
við útsýni og tengsl tilfinninga og
framkvæmda“. Sholis segir sýn-
inguna Oz vel samsetta og sýning-
arstjórn þar til fyrirmyndar.
Ímynd Ís-
lands sam-
ofin Horn
Vatnasafnið í Artforum
Lifðu, og leiktu aðra betur.Með þessum orðum laukleikritinu Cymbeline eftir
Shakespeare í Þjóðleikhúsinu í
gærkvöldi í uppsetningu breska
leikhópsins Cheek by Jowl.
Ég veit ekki alveg við hverju varað búast en þessi boðskapur
lagðist vel í mig. Hann kallaðist á
við þá leikspeki sem Declan Don-
nellan, annar forsprakka leikhóps-
ins, lét hafa eftir sér í Morg-
unblaðinu sl. föstudag að leiklist
þyrfti að vera lifandi.
Og það var satt að segja hugg-unarríkt að sjá Donnellan lýsa
því hvernig slæm leiksýning er sú
allra versta upplifun sem hægt er
að hugsa sér: „Það er merkilegt
hvað tíminn verður afstæður í leik-
húsinu ef leiksýning er leiðinleg.
Ein klukkustund verður eins og
vika og maður er hissa að vera ekki
orðinn fúlskeggjaður í lok sýning-
arinnar,“ sagði Donnellan. Hann
viðurkenndi enn fremur að hann og
Nick Ormerod, hinn stjórnandi
hópsins, færu sjaldan í leikhús sjálf-
ir, þeim þætti skemmtilegra að fara
í bíó.
Þetta gaf fyrirheit um að leiksýn-ing þeirra yrði skemmtileg. Og
það stóðst! Cymbeline er dásamlegt
leikhús. Laust við þetta leikræna
yfirlæti sem einkennir svo margar
sýningar, laust við sirkusleg yf-
irboð og auðvitað laust við yf-
irgengilegan revíuleikinn íslenska.
Verkinu var einfaldlega komið tilskila á líflegan og oft húm-
orískan hátt, af virðingu við text-
ann og blessunarlega án einhverra
stórkostlegra átaka. Þau ykkar sem
stundum upplifið eilífðina í leikhúsi
farið núna og upplifið andartakið.
Eilífðin og andartakið
MENNINGARVITINN
Þröstur Helgason
vitinn.blog.is
„ÞETTA er bráðskemmtileg sýn-
ing, töfrandi og heillandi. Þetta er
svona sýning sem hreif bæði unga
og aldna, fullorðna og börn, blanda
af leikhúsi og sirkus. Ofsalega
skemmtileg og ólík því sem við er-
um vön hérna á Íslandi,“ sagði
Magnús að lokinni sýningu.
„Þetta er sirkus, galdrar og tón-
list í góðum kokkteil, fransk-
evrópskur blær yfir þessu.“
Magnús sagði engar sjónhverf-
ingar hafa verið á ferð, meira leik-
hústöfra. „Það voru hestar og hest-
vagnar og svona, gert með
leikhústöfrum. Þannig að þetta er
einföld list leikarans og sirkuslista-
mannanna sem
nýtur sín þarna.
Þetta var galdrað
fram úr alls kon-
ar dóti og drasli
sem fékk líf á
sviðinu. Mér
fannst hún alveg
ofsalega
skemmtileg og
frískandi. Þetta
er svo ólíkt því
sem við erum að gera hér á landi,
svo ólíkt leikhúsinu hér. Sýningin
var mjög falleg og hrífandi, ég fann
það á gestum að þeir voru mjög
hrifnir. Börnin ekki síst.“
Hvernig var?
Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri
fór á sýningu Les Kunz í gærkvöldi
Magnús Geir Þórð-
arson leikhússtjóri.
Dagskráin í dag
Sýning um feril Helga Tóm-
assonar
Opnun í anddyri Borgarleikhúss kl.
19.
San Francisco-ballettinn
Ballettar eftir Helga Tómasson
1. sýning í Borgarleikhúsinu kl. 20.
Les Kunz – trúðar og
töfrandi tónlist
5. sýning í félagsheimilinu Valaskjálf
kl. 20.
Cymbeline eftir William
Shakespeare
2. sýning Cheek by Jowl í Þjóðleikhús-
inu kl. 20.
Vakin er athygli á því að gagnrýni
um viðburði Listahátíðar og annað
efni um hátíðina, má finna á bloggi
menningardeildar Morgunblaðsins:
Listahátíð í Reykjavík
TENGLAR
.................................
listir.blog.is
www.listahatid.is
♦♦♦