Morgunblaðið - 18.05.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.05.2007, Blaðsíða 1
13.53 Þingflokksfundi Framsóknarflokksins lýkur. 14.32 Formenn stjórnarflokkanna tilkynna stjórnarslit. 17.10 Geir og Ingibjörg lýsa yfir vilja til stjórnarmyndunar. Tólf ára ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks var slitið í gær Viðræður um nýja stjórn Morgunblaðið/Ómar Gengið til viðræðna Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, koma af fundi í Alþingishúsinu síðdegis í gær. Þau munu taka upp viðræður um myndun ríkisstjórnar.  Forsætisráð- herra gengur á fund forsetans  Viðræður við Samfylkingu þegar hafnar STOFNAÐ 1913 . TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is FRÉTTASKÝRING Eftir Ólaf Þ. Stephensen olafur@mbl.is FYLGISTAP Framsóknarflokksins og hinn naumi meirihluti fráfarandi stjórnar eru þær ástæður, sem formenn stjórnarflokkanna gáfu upp fyrir samstarfsslitunum í gær. Það er rétt svo langt sem það nær. Flokkarnir eru t.d. sammála um að atkvæðagreiðslur á Alþingi gætu orðið mjög erfiðar vegna fjarvista þingmanna. Fleira kemur þó til. Fyrst eftir kosningar var raunverulegur áhugi á því í forystu Sjálfstæðisflokksins að láta reyna á áframhaldandi samstarf. Síðustu daga hefur við- horf sjálfstæðismanna til þess samstarfs hins vegar breytzt og stuðningur vaxið við að prófa eitthvað nýtt. Margir frammámenn í flokknum hafa gefið til kynna að þeir séu orðnir þreyttir á Framsókn og að búið sé að „gera allt sem þessir flokkar geta gert saman í bili“ eins og einn orðaði það. Inn í þetta spilar svo sú tilfinning margra sjálf- stæðismanna að Framsóknarflokkurinn dugi ekki til átaka eftir ósigurinn. Geir H. Haarde mun að lokum hafa metið það svo að innan flokksins væri ekki nægur stuðningur við endurnýjað samstarf. Þreifingar milli Sjálfstæðisflokks og Samfylk- ingar fóru illa af stað á fyrstu klukkutímunum eftir kosningar. Þegar leið á vikuna fjölgaði hins vegar mjög óformlegum samtölum á milli lykilfólks í báð- um flokkum. Samfylkingarfólk gaf sjálfstæðis- mönnum sterkt til kynna að hægt yrði í samstarfi flokkanna að koma hreyfingu á mál, sem yrðu í kyrrstöðu í óbreyttu stjórnarsamstarfi með Fram- sókn. Þar voru sérstaklega nefnd heilbrigðismál, landbúnaðarmál, menntamál og velferðarmál. Þreifingar voru einnig á milli Sjálfstæðisflokks- ins og Vinstri grænna en sjálfstæðismenn mátu það svo að viðræður við þá yrðu mun erfiðari. Á þingflokksfundi Framsóknarflokksins í gær- morgun var ákveðið að slíta stjórnarsamstarfinu, á grundvelli upplýsinga frá sjálfstæðismönnum um að þeir hefðu engan áhuga á því lengur. Framsókn- armenn vissu hins vegar ekki af samtali Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur á mið- vikudag fyrr en sú síðarnefnda sagði frá því í fjöl- miðlum síðdegis í gær. Sú yfirlýsing olli gífurlegri reiði í röðum framsóknarmanna, sem telja nú Geir hafa farið á bak við þá. Geir Haarde hefði ekki sleppt þræðinum við framsóknarmenn nema hann hefði verið búinn að fá fyrirheit frá Ingibjörgu um að hún myndi ekki reyna vinstristjórnarviðræður með Framsókn- arflokki og Vinstri grænum. Á milli formanna flokkanna virðist því ríkja traust að þessu leyti. Í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi sagði Ingi- björg Sólrún að samskipti Framsóknar og VG hefðu verið með þeim hætti undanfarið að það væri orðið of seint af þeirra hálfu að koma með tilboð um myndun vinstristjórnar, þar sem hún yrði forsætis- ráðherra. Naumur meirihluti og nýjungagirni  Viðhorfið innan Sjálfstæðisflokksins breyttist  Framsóknarmenn ævareiðir Morgunblaðið/Ómar Annar inn, hinn út? Guðni Ágústsson og Össur Skarphéðinsson hittust við Alþingishúsið í gær. FORMLEGAR stjórnarmyndunar- viðræður milli Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hefjast í dag. Geir H. Haarde, forsætisráðherra og for- maður Sjálfstæðisflokksins, mun í dag ganga á fund forseta Íslands og biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt og óska jafnframt eftir umboði til að mynda nýja meirihlutastjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Tólf ára ríkisstjórnarsamstarfi Framsóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks lauk formlega í gær þegar for- mennirnir Geir H. Haarde og Jón Sigurðsson lýstu því yfir að ekki væri grundvöllur fyrir því að halda því áfram. Áður hafði Framsóknar- flokkurinn haldið þingflokksfund þar sem niðurstaðan varð sú að ekki væri áhugi á áframhaldandi stjórnarsam- starfi. Í kjölfar fundar formannanna upplýsti Geir að hann myndi fyrst leita eftir samstarfi við Samfylkingu. „Aðalatriðið er auðvitað það að hér sitji öflug stjórn með góðan meirihluta á bak við sig,“ sagði Geir og bætti við að við slíkar aðstæður væri farsælast að stokka spilin. „Eftir að hafa farið mjög vandlega yfir þetta og gert okkur grein fyrir þeim þreifingum og viðræðum sem eru í gangi milli annarra flokka er það sameiginleg niðurstaða okkar að þetta gangi ekki við núverandi skil- yrði,“ sagði Jón Sigurðsson um stjórnarslitin. Geir og Jón lögðu báðir áherslu á að samstarf flokkanna hefði verið gott; Geir neitaði að skipbrot hefði orðið og Jón tók fram að enginn trúnaðarbrestur væri milli manna. Bjartsýnn Geir segist bjartsýnn á að flokk- unum takist að mynda nýja meiri- hlutastjórn. Hann tók Samfylkingu fram yfir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð vegna þess að styttra er á milli flokkanna auk þess sem þingmeirihluti yrði stærri. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for- maður Samfylkingarinnar, sagði að þó að ekki hefði gefist tími til að fara í málefnaviðræður væri ljóst að lík- lega gætu flokkarnir náð niðurstöðu í þeim málum „þar sem skilin hafa verið á milli þessara flokka“.  Lengsta | Miðopna  Fædd | 6  Hyggilegast | 4  Gæti fengið | 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.