Morgunblaðið - 18.05.2007, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
OFANLEITI 2 • HÖFÐABAKKI 9 • KRINGLAN 1
SÍMI: 599 6200 • www.hr.is
www.hr.is
KYNNTU ÞÉR NÁMSFRAMBOÐ Á
HEIMASÍÐU SKÓLANS
Opið fyrir umsóknir
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is
Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragn-
arsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
GEIR H. Haarde forsætisráðherra
afhenti í gær, á þjóðhátíðardegi
Norðmanna, fyrsta eintakið af nýrri
útgáfu Sverris sögu sem er fyrsta
bókin af fjórum í þjóðargjöf Íslend-
inga til Norðmanna í tilefni af 100
ára afmæli endurreists konungs-
veldis í Noregi árið 2005. Afhend-
ingin fór fram við hátíðlega athöfn í
Norræna húsinu.
Fyrir tveimur árum afhenti fyrr-
verandi forsætisráðherra, Halldór
Ásgrímsson, gjafabréf frá íslensku
þjóðinni þar sem kveðið var á um
sérstaka útgáfu fjögurra Nor-
egskonungasagna í fimm hundruð
eintökum handa norskum lesendum.
Þessar sögur eru Sverris saga,
Morkinskinna, Böglunga saga og
Hákonar saga Hákonarsonar. Rík-
isstjórn Íslands samdi um útgáfuna
við stjórn Hins íslenska fornrita-
félags undir forsæti dr. Jóhannesar
Nordals.
Sverris saga er eitt af stórvirkjum
fornbókmennta Íslendinga og elsta
veraldlega konungasagan sem varð-
veist hefur. Sagan er samtímasaga
og gleggsta heimild sem varðveist
hefur um valdabaráttuna í Noregi á
síðari hluta 12. aldar. Sverrir Sig-
urðsson var einn snjallasti konungur
sem setið hefur á valdastóli í Noregi
en hann átti sér marga fjandmenn
innanlands, bæði meðal veraldlegra
höfðingja og kirkjunnar manna. Í
formálanum er nefnt nafn höfundar,
Karls Jónssonar, ábóta á Þingeyrum
í Húnaþingi sem ritaði upphaf sög-
unnar eftir fyrirsögn Sverris sjálfs.
Sagan er örugglega að hluta máls-
vörn Sverris gagnvart andstæð-
ingum sínum og sennilegt að Íslend-
ingur hafi verið fenginn til verksins
þar sem ekki væri hægt að saka
hann um hlutdrægni.
Afhenti
Norð-
mönnum
Sverris
sögu
Morgunblaðið/Ómar
Góð bók Sendiherrahjónin Guttorm Vik og Torbjörg Jofrid Vik ásamt Geir H. Haarde og Ingu Jónu Þórðardóttur.
Athöfn í Norræna húsinu á þjóðhátíðardegi Norðmanna
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
EF Geir H. Haarde forsætisráð-
herra getur upplýst Ólaf Ragnar
Grímsson, forseta Íslands, á fundi
þeirra á Bessastöðum í dag um að
hann geti myndað meirihlutastjórn
er líklegast að hann fái umboð til
stjórnarmyndunar mjög fljótlega,
jafnvel strax í dag. Þetta segir
Björg Thorarensen, prófessor við
lagadeild Háskóla Íslands. Hún
tekur fram að næstu skref ráðist
af því hvað Geir geti sagt forset-
anum um viðræðurnar við Sam-
fylkinguna, þ.e. hversu langt þær
séu komnar.
Þegar ríkisstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks fór frá árið
1995 gekk Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra á fund Vigdísar Finn-
bogadóttur, forseta Íslands, og
baðst lausnar fyrir sig og ráðu-
neyti sitt. Sama dag ræddi Vigdís
við leiðtoga stjórnmálaflokkanna
og daginn eftir veitti hún Davíð
umboð til að mynda nýja ríkis-
stjórn. Í kjölfarið hófust formlegar
viðræður Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks.
Björg tók fram að hún hefði ekki
upplýsingar um hversu langt við-
ræður Sjálfstæðisflokks og Sam-
fylkingar væru komnar. Menn
þyrftu hins vegar að hafa í huga að
ríkisstjórnin hefði haldið meiri-
hluta sínum eftir kosningarnar og
ólíklegt væri að hún færi frá nema
búið væri að tryggja að nýr meiri-
hluti tæki við. „Mér finnst ólíklegt
að verið sé að búa til slíkt óvissu-
ástand í ljósi þess að þessi rík-
isstjórn hélt meirihluta sínum,“
sagði Björg.
Björg sagði að hugtakið stjórn-
armyndunarumboð væri ekki til í
lagalegum skilningi. Í stjórnar-
skránni stæði það eitt að forsetinn
skipaði ráðherra og ákvæði tölu
þeirra. „Stjórnarskráin segir mjög
fátt um stjórnarmyndanir. Þetta
ræðst bara af pólitísku landslagi
hverju sinni. Um þetta gilda
ákveðnar venjur og að sjálfsögðu
hvílir þingræðisreglan þar að baki.
Forsetinn getur ekki skipað ráð-
herra nema meirihluti sé á bak við
ríkisstjórn þótt stjórnarskráin segi
ekkert um það,“ sagði Björg.
Venjan er sú að forseti óski eftir
að fráfarandi ríkisstjórn sitji
áfram sem starfsstjórn á meðan
stjórnarmyndunarviðræður standa
yfir.
Gæti fengið umboð í
dag eða á morgun
Davíð Oddsson fékk stjórnarmyndunarumboð daginn eftir
að hann baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt árið 1995
GUÐNI Th. Jó-
hannesson sagn-
fræðingur segir
óvenjulegt að
Geir H. Haarde
skuli lýsa því yfir
að þegar hann
biðjist lausnar
muni hann óska
eftir umboði for-
seta til stjórn-
armyndunar. Áð-
ur fyrr hafi forseti sjálfur ákveðið
hverjum hann feli umboðið en fari
að sjálfsögðu eftir ábendingum
stjórnmálaforingja. „Fyrst Sjálf-
stæðisflokkur og Samfylking hafa
þegar komist að samkomulagi um
að hefja stjórnarmyndunarvið-
ræður liggur auðvitað í augum uppi
að Geir á að fá umboðið þar sem
Samfylkingin er alveg sátt við það.“
Liggur í augum
uppi að Geir á
að fá umboðið
Guðni Th.
Jóhannesson
ÞRIGGJA manna sendinefnd frá ut-
anríkisráðuneyti og varn-
armálaráðuneyti Þýskalands mun í
dag eiga við ræður við íslensk
stjórnvöld um aukið samstarf í ör-
yggis- og varnarmálum. Viðræð-
urnar munu fara fram í Svartsengi
og var kveikjan að þeim kynning ís-
lenskra embættismanna í Berlín í
vetur á hugmyndum um aukið sam-
starf við önnur NATO-ríki við
Norður-Atlantshaf eftir brottför
Bandaríkjahers frá Íslandi. Ekki er
gert ráð fyrir jafn víðtæku sam-
starfi við Þjóðverja og samið hefur
verið um við Norðmenn og Dani.
Ræða varnar-
mál við
Þjóðverja
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Brim ekki að kaupa
Eigandi Brims vísar frétt Morgunblaðsins um sölu kvóta Kambs á Flateyri á
bug Verkalýðsfélag Vestfirðinga hefur engar staðfestar fréttir fengið
GUÐMUNDUR Kristjánsson, útgerðarmaður og
eigandi Brims hf., neitar því að hann sé að kaupa
hluta kvóta Kambs hf. á Flateyri, eins og talið var
líklegt í frétt Morgunblaðsins í gær. Í samtali við
Morgunblaðið sagði Guðmundur að það hefði ekki
komið til tals. „Ég vil mótmæla þessum ranga orð-
rómi um að við séum að kaupa kvóta á Flateyri.
Þetta er algjörlega úr lausu lofti gripið og ábyrgð-
arlaust af Morgunblaðinu að koma með þetta á
forsíðu,“ sagði Guðmundur.
Engar staðfestar fréttir
Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðs-
félags Vestfirðinga, sagðist ekki hafa fengið nein-
ar upplýsingar um að til stæðu breytingar hjá
Kambi á Flateyri frá forsvarsmönnum fyrirtæk-
isins. Einu upplýsingarnar þar að lútandi væru úr
fjölmiðlum. Finnbogi sagði að ef stórra breytinga
væri að vænta í atvinnurekstri á Flateyri yrði
haldinn fundur með félagsmönnum verkalýðs-
félagsins á staðnum. Almennt talað sagði Finnbogi
það vera mikið áhyggjuefni þegar burðarásar í at-
vinnulífi byggðanna færðust á fárra hendur.
„Þetta ástand er ekki bara á Flateyri, heldur í
sjávarbyggðunum hringinn í kringum landið. Þar
sem fyrirtækin eru á fárra höndum eða jafnvel
bara einni þá er þetta niðurstaða sem verkalýðs-
félögin hafa varað við,“ sagði Finnbogi. Morgunblaðið/Ómar
FIMM ungir menn á tvítugsaldri
réðust á ökumann bíls sem þeir
höfðu lent í árekstri við í Graf-
arvogi í gærkvöldi. Bílarnir voru að
mætast og rákust saman á gatna-
mótum þegar annar beygði til
vinstri. Voru mennirnir allir ölv-
aðir og þurfti nokkurn fjölda lög-
reglumanna til að handtaka þá.
Einn þeirra var fluttur á slysadeild.
Réðust á
ökumanninn