Morgunblaðið - 18.05.2007, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
FORMENN stjórnarflokkanna, þeir
Geir H. Haarde og Jón Sigurðsson, til-
kynntu í gær að ekki væri grundvöllur
fyrir áframhaldandi samstarfi flokk-
anna í núverandi ríkissjórn. „Þetta er
niðurstaðan eftir þingflokksfund
Framsóknarflokks í morgun og við er-
um út af fyrir sig sammála um þá nið-
urstöðu,“ segir Geir og upplýsti í kjöl-
farið að líklegast myndi hann fyrst
leita hófanna hjá Samfylkingunni um
myndun nýrrar ríkisstjórnar sem síð-
an varð raunin.
Geir og Jón tilkynntu fjölmiðlum um
niðurstöðuna eftir að hafa rætt saman
á stuttum fundi í stjórnarráðinu. Áður
hafði þingflokkur framsóknarmanna
setið á þriggja tíma fundi.
Geir þvertók fyrir það að stjórnar-
slitunum mætti líkja við skipbrot;
menn væru fyrst og fremst að horfa í
niðurstöðu kosninganna hvað varðaði
Framsóknarflokkinn. Samstarfið hefði
verið mjög langt og gott og skilað
þjóðinni miklum árangri. Hins vegar
væri það svo að eins manns meirihluti
á Alþingi væri mjög naumur, sér-
staklega þegar aukin ferðalög og fjar-
vistir þingmanna væri tekið með í
reikninginn. „Aðalatriðið er auðvitað
það að hér sitji öflug stjórn með góðan
meirihluta á bak við sig. Við getum
ekki skapað þær aðstæður tveir einir
eins og nú standa sakir,“ segir Geir.
„Við þessar aðstæður er sennilega
hyggilegast að stokka spilin upp á
nýtt.“
Gengur ekki við
núverandi skilyrði
Jón Sigurðsson segir að sameiginleg
ákvörðun hafi verið tekin á þingflokks-
fundi um að slíta samstarfinu að vel
ígrunduðu máli. Litið hafi verið til
ákaflega margra mála og sjónarmiða
áður en komist var að sameiginlegri
niðurstöðu um að ekki væru forsendur
til að halda samstarfinu áfram. Jón tók
fram að þreifingar og viðræður ann-
arra flokka í vikunni hefðu haft mikil
áhrif á ákvörðunina, þótt ekki hefði
komið upp trúnarbrestur milli sín og
forsætisráðherra. „Eftir að hafa farið
mjög vandlega yfir þetta, og gert okk-
ur grein fyrir þeim þreifingum og við-
ræðum sem eru í gangi milli annarra
flokka, er það sameiginleg niðurstaða
okkar að þetta gangi ekki við núver-
andi skilyrði,“ segir Jón.
„Hyggilegast að stokka
spilin upp á nýtt“
Morgunblaðið/Ómar
Kveðjuhandtak Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, og Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, tókust í hendur eftir að hafa lýst því yfir að 12 ára samstarfi flokkanna væri lokið.
Þreifingar við aðra flokka í vikunni höfðu áhrif á ákvörðun framsóknarmanna
GEIR H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, og
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylk-
ingarinnar, hafa orðið ásátt um að hefja stjórnar-
myndunarviðræður milli flokkanna tveggja, að því
gefnu umboð til þess hljótist frá forseta Íslands.
Forsætisráðherra mun ganga á fund forsetans
kl. 11 í dag og biðjast lausnar fyrir núverandi
ráðuneyti sitt. Við það tilefni segist Geir munu
fara fram á umboð til að mynda nýja meiri-
hlutastjórn. Geir segist bjartsýnn á að flokkunum
takist að mynda nýja meirihlutastjórn, annars hafi
hann ekki boðað Ingibjörgu á sinn fund í gær. Að
sögn forsætisráðherra var Samfylkingin tekin
fram yfir Vinstri græna þar sem styttra væri milli
flokkanna auk þess sem þingmeirihluti flokkanna
yrði stærri.
„Okkur varð ljóst, eftir að hafa farið yfir stóru
línurnar, að það væri líklegt að við gætum náð
niðurstöðu í þeim málum þar sem skilin hafa verið
á milli þessara flokka,“ segir Ingibjörg Sólrún.
Ekki hafi þó gefist tóm til þess að fara í málefna-
viðræður á fundinum. Geir tók í sama streng og
Ingibjörg: „Við höfum lagt þá línu að reyna að ná
samkomulagi um helstu málefnin og ljúka því eins
hratt og við getum, þannig að hér komist ný og
öflug meirihlutastjórn tilvalda sem fyrst.“
Ef fer sem horfir hefjast stjórnarmyndunar-
viðræður milli flokkanna í dag en formenn flokk-
anna tveggja voru ekki tilbúnir til að taka afstöðu
til þess hversu langan tíma þær tækju.
Ný stjórn komist til valda sem fyrst
Morgunblaið/Ómar
Samstaða Ingibjörg Sólrún og Geir hittust á stuttum
fundi í þinghúsinu í gær. Þau ræðast aftur við í dag.
„ÉG verð að segja að mér finnst
nokkuð óviðurkvæmilegt að það séu í
raun byrjaðar formlegar viðræður
áður en forsætisráðherra er búinn að
segja af sér og fara til Bessastaða.
Það er ekki góður svipur á því að
mínu mati,“ sagði Steingrímur J.
Sigfússon, formaður VG, við Morg-
unblaðið í gær. Steingrímur segir
eðlilegast og lýðræðislegast þegar
ríkisstjórn sé slitið að verkstjórnin
færist til forsetans. „Hann ræði síð-
an við formenn stjórnmálaflokkanna
einn af öðrum og veiti síðan umboð
til stjórnarmyndunar.“ Steingrímur
segir að í þeirri stöðu hefði hann
mælt með því að Samfylkingin, sem
stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn,
fengi umboðið. Nú mælti hann með
því að hið sama yrði gert.
Steingrímur segir tíðindi dagsins
hafa komið sér á óvart en þó hafi leg-
ið fyrir að Sam-
fylkingin hafi síð-
ustu daga
„bankað kröftug-
lega að dyrum hjá
Sjálfstæðis-
flokknum“. VG
hafi lagt á það
áherslu að haga
sér samkvæmt
réttum leik-
reglum og ekki
nálgast Sjálfstæðisflokkinn með
formlegum hætti líkt og Samfylking-
in. Staða stjórnarandstöðuflokkanna
við stjórnarmyndun hefði orðið
sterkari hefðu flokkar hennar beðið
rólegir og beðið eftir að frumkvæðið
færðist yfir í þeirra herbúðir.
Honum finnst enn sá möguleiki
spennandi að Framsóknarflokkur-
inn verji minnihlutastjórn Samfylk-
ingar og VG falli en hann gæti síðan
komið inn í þá stjórn síðar þegar
hann hefði náð vopnum sínum á ný.
Steingrímur hefði mælt með þeirri
leið á fundi sínum með Ingibjörgu
Sólrúnu í vikunni og hann myndi
mæla með þeirri leið fengi hún
stjórnarmyndunarumboð nú í kjöl-
far stjórnarslitanna. Aðspurður
hvort slíkt samstarf Framsóknar-
flokksins og VG væri raunhæft í ljósi
gjörólíkrar afstöðu flokkanna til
stóriðju segir Steingrímur að ljóst sé
að í stjórn vinstriflokkanna og
Framsóknarflokksins yrði sá síðast-
nefndi afar veikur og yrði að gefa
eftir í stóriðjumálinu. Hvað varðar
mögulegar viðræður VG og Sjálf-
stæðisflokks segir Steingrímur að
VG hafi ekki útilokað neina mögu-
leika og sé tilbúin að láta reyna á
slíkar viðræður eins og aðrar.
Telur formlegar viðræður
ekki við hæfi á þessu stigi
Samfylkingin hefði átt að bíða fram yfir stjórnarslit
Steingrímur J.
Sigfússon
GUÐJÓN Arnar
Kristjánsson, for-
maður Frjáls-
lynda flokksins,
segir að atburða-
rás gærdagsins
hafi komið sér
nokkuð á óvart.
Segir hann ljóst
að búið hafi verið
að koma á drög-
um að samstarfi
Sjálfstæðisflokksins og Samfylking-
ar fyrir nokkrum dögum. „Það kem-
ur á óvart hvað þetta gerðist hratt.
Það virðist hafa legið grunnur að
samstarfi milli Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar. Svona lagað fæðist
ekki á hálftíma,“ sagði Guðjón Arnar
í samtali við Morgunblaðið í gær.
Guðjón segir að á meðan viðræður
Framsóknarflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins hafi staðið hafi hann viðrað
þá hugmynd að Frjálslyndi flokkur-
inn kæmi inn í stjórnina. Hafi hann
persónulega haft samband við Jón
Sigurðsson, formann Framsóknar-
flokksins, og varpað fram þessum
möguleika. „Það kom einfaldlega
ekki til viðræðna um málefnalegan
grundvöll því það stóð einfaldlega á
þessu hjá þeim [Framsóknarflokkn-
um] gagnvart sjálfstæðismönnum.“
Tilboðinu var ekki svarað
Ekkert svar hafi því komið frá
stjórnarflokkunum við tilboði Frjáls-
lynda flokksins. Guðjón segir vissan
samhljóm hafa verið á milli Frjáls-
lynda flokksins og Framsóknar-
flokksins í skattamálum en þau auk
byggðamála og heilbrigðismála
hefðu verið áherslumál hefði komið
til slíkra viðræðna.
Spurður um hvað nú taki við segir
Guðjón Arnar að sé Samfylkingin
tilbúin að ræða stjórnarsamstarf við
Sjálfstæðisflokkinn þá hljóti forseti
að fela Geir H. Haarde stjórnar-
myndunarumboð. Hann vill ekki
segja til um hvað honum finnist um
slíka stjórn fyrr en fyrir liggi hvernig
hún muni taka á byggðamálum og
sjávarútvegsmálum.
Hvort einhverjir möguleikar séu í
núverandi stöðu á því að Frjálslyndi
flokkurinn komist í ríkisstjórn segir
Guðjón Arnar að gærdagurinn hafi
sýnt að aldrei sé hægt að segja til um
hvernig atburðarásin þróist. Fyrst sé
að sjá hvernig mál þróist í viðræðum
Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks.
Hraðinn
kom á
óvart
Guðjón Arnar
Kristjánsson
Bauð stjórnarflokk-
unum samstarf