Morgunblaðið - 18.05.2007, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
● SAGA Capital Fjárfestingarbanki
og Marel hafa gert samning sín á
milli um að Saga Capital gerist við-
skiptavaki með hlutabréf í Marel, fyr-
ir eigin reikning Saga Capital. Fyrir er
Landsbanki Íslands einnig með
samning um viðskiptavakt. Tilgang-
urinn með viðskiptavakt Saga Capi-
tal er að efla viðskipti með hlutabréf
í Marel og stuðla að skilvirkri og
gegnsærri verðmyndun hlutabréfa í
félaginu, eins og segir í tilkynningu til
kauphallarinnar. Samhliða samningi
um markaðsvakt hefur verið gerður
samningur milli Marel og Saga Capi-
tal um kaup hins síðarnefnda á 3,7
milljónum nýrra hluta í Marel, sem
nú eru orðnir alls 370 milljónir.
Saga Capital með við-
skiptavakt fyrir Marel
● HLUTABRÉF í
Bandaríkjunum
lækkuðu í gær,
þriðja daginn í
röð. Lækkunina
leiddu bréf stórra
fjármálafyrirtækja
eins og JP Morg-
an og Citigroup
en farið er að
bera á áhyggjum
á nýjan leik af
stöðunni á bandaríska fast-
eignamarkaðnum, sem muni draga
úr vexti efnahagslífsins þar vestra.
Haft var eftir Ben Bernanke, seðla-
bankastjóra Bandaríkjanna, í gær að
herða þyrfti útlánareglur til að draga
úr auknum vanskilum íbúðareig-
enda. Hann reyndi þó að draga úr
áhyggjum manna af áhrifum á efna-
hagslífið.
Enn lækka hlutabréfin
í Bandaríkjunum
Ben Bernanke
framt 112 skráðum fyrirtækjum
fjármálaráðgjöf.
Þetta er meðal þess sem kom fram
í kynningu Sigurjóns Þ. Árnasonar,
bankastjóra Landsbankans, á kaup-
unum í London í gær. Hann sagði við
Morgunblaðið að þessi kaup væru
mikilvægt skref í þeirri stefnu bank-
ans að styrkja alþjóðlega fjárfest-
ingabankastarfsemi Landsbankans.
Jafnframt myndi staða bankans í
Bretlandi styrkjast verulega og þá
væri jákvætt að fá fleiri erlenda fjár-
festa í hluthafahóp Landsbankans
með bresku eigendum Bridgewell.
Meðal stærstu verð-
bréfamiðlara Breta
Landsbankinn styrkir stöðu sína með kaupunum á Bridgewell
Stækkun Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, ásamt Nick
Stagg, forstjóra Landsbanka UK, og Jim Renwick, sem stýrði Bridgewell.
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
KAUP Landsbankans á breska fjár-
málafyrirtækinu Bridgewell, sem til-
kynnt var um í gær, munu styrkja
stöðu bankans í Bretlandi verulega í
þjónustu við minni og meðalstór fyr-
irtæki. Landsbankinn hefur gert til-
boð í allt hlutafé Bridgewell, greiðir
125 pens á hlut og samkvæmt því er
félagið metið á rúmar 60 milljónir
punda, um 7,6 milljarða króna. Að
mestu leyti er greitt fyrir kaupin
með hlutabréfum í Landsbankanum.
Hafa stjórnendur og lykilstjórn-
endur Bridgewell skuldbundið sig til
að starfa hjá sameinuðu félagi, sem
mun taka nafnið Landsbanki Securi-
ties UK. Nick Stagg verður forstjóri
og Jim Renwick, forstjóri Bridge-
well, hans næstráðandi.
Kaupin eru háð samþykki yfir-
valda á Íslandi og í Bretlandi en
reiknað er með að kaupferlinu ljúki
fyrir lok júlí nk. Gert er ráð fyrir að
kostnaður vegna endurskipulagn-
ingar og kaupanna sjálfra muni
nema um 10 milljónum punda, eða
um 1,2 milljörðum króna
Eftir sameininguna verður Lands-
banki Securitas UK einn stærsti
miðlari verðbréfa á breskum hluta-
bréfamarkaði. Aðeins JPMorgan
Cazanove sinnir verðbréfamiðlun
fyrir fleiri skráða viðskiptavini. Þá
verður félagið í tíunda sæti á lista yf-
ir fjölda viðskiptavina í FTSE-250
hlutabréfavísitölunni, og veitir jafn-
Í HNOTSKURN
»Bridgewell hefur um tímaverið í sigtinu hjá Lands-
bankanum. Fyrirtækið er sam-
bærilegt og Teather &
Greenwood en með mun
stærri viðskiptamannahóp.
»Hjá Bridgewell hafa starf-að um 130 manns og ljóst
einhver fækkun verður.
ALCOA sendi
stjórn Alcan bréf
í gær þar sem því
er heitið að fyr-
irtækið muni
standa við allar
skuldbindingar
Alcan við fylk-
isstjórn Québec í
Kanada, heima-
slóðum Alcan, og viðhalda m.a.
ákveðnum langtímasamningum um
orku- og vatnsréttindi. Alcoa hefur
sem kunnugt er gert hluthöfum
Alcan yfirtökutilboð.
Í bréfinu til Alcan, sem Alain
Belda forstjóri Alcoa ritar undir,
kemur fram að með yfirtökunni
muni Québec-fylki taka ákveðna
forystu í áliðnaði í heiminum og
styrkja stöðu sína sem mikilvæg
miðstöðu stóriðju. Áréttuð eru
áform Alcoa um að hafa höf-
uðstöðvar sameinaðs fyrirtækis á
tveimur stöðum; þ.e. í New York í
Bandaríkjunum og Montreal í Kan-
ada, auk þess sem yfirstjórn fleiri
framleiðsluþátta verði í Kanada.
Í tilkynningu frá Alcoa fagnar
Belda því að yfirvöld í Québec hafi
opinberað þá samninga sem höfðu
verið gerðir í gegnum tíðina við
Alcan, eftir að yfirtökutilboðið var
lagt fram. Alcoa hafi skoðað þessa
samninga og talið góðar forsendur
fyrir því að sameinað félag geti
staðið við allar skuldbindingar í
garð Kanadamanna.
Standa við
samninga
Alcan og
Québec