Morgunblaðið - 18.05.2007, Side 18
Bolungarvík | Það var líf og fjör í
sal grunnskóla Bolungarvíkur síð-
astliðinn föstudag. Það hefði mátt
heyra saumnál detta þegar spenn-
ingurinn var sem mestur. Hrafn
Jökulsson, boðberi skáklistarinnar,
kom í heimsókn í skólann.
Ekki var nóg með að hann kæmi
færandi hendi til nemenda í 3. bekk
þar sem hann færði þeim skák-
kennslubókina „Skák og mát“,
heldur var sett upp fjöltefli þar sem
nemendur úr öllum bekkjum áttu
þess kost að tefla við skákmanninn
víðförla. Það voru því tæplega sjö-
tíu börn sem settust við skákborðið,
tóku í hönd meistarans og svo var
hugsað … og hugsað … , segir í
fréttatilkynningu um viðburðinn.
Tveimur nemendum tókst að
gera jafntefli við Hrafn, það voru
Fylkir Eyberg Jensson í 5. bekk og
Brynja Dagmar Jakobsdóttir í 6.
bekk.
Fjöltefli Hrafn Jökulsson tefldi við nemendur Grunnskóla Bolungarvíkur.
Tveimur nemendum skólans tókst að ná jafntefli við gestinn.
Tefldi við 70 skóla-
börn í Bolungarvík
18 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
„ÞAÐ er þessi þörf sem liggur í því
að fanga augnablikið, grípa það
sem augað sér og ná því á filmu
eða myndflögu. Og sjá svo árang-
urinn þegar vel gengur. Það er
ekki annað hægt en að sinna þess-
ari þrá,“ segir Páll Guðjónsson
áhugaljósmyndari. Hann er for-
maður sýningarnefndar Fókuss,
félags áhugaljósmyndara, sem
opnar á morgun sýninguna
„Mannlíf í Fókus“ í Tjarnarsal
Ráðhúss Reykjavíkur.
Páll fékk fyrstu myndavél sína
þegar hann var tólf ára strákur í
sveit í Borgarfirði og byrjaði þá
strax að mynda af krafti. Þremur
árum seinna fékk hann nýja
myndavél, af rússneskum ættum,
og efldist þá enn áhuginn og hann
lærði framköllun og stækkun
mynda. Upp úr tvítugu breyttust
aðstæður, eins og algengt er, við
tók vinna, fjölskylda og að koma
sér upp þaki yfir höfuðið. „Ekki
voru lengur forsendur til að sinna
þessu áhugamáli með sama krafti
en í staðinn tók ég myndir af fjöl-
skyldunni og í ferðalögum.“
Sýning í Rússlandi
Fyrir nokkrum árum gekk Páll í
það verk að flokka og skrá filmu-
safnið og það varð til þess að áhugi
á ljósmyndun vaknaði á ný. „Þegar
ég var að fara yfir þessar 15 til 20
þúsund myndir fór ég að spyrja
sjálfan mig að því hvort ég ætlaði
að halda þessu svona áfram. Svarið
var það að ég ákvað að reyna að
snúa mér aftur að alvöruljósmynd-
un,“ segir Páll. Hann fór á nám-
skeið til að rifja upp fræðin og tók
upp þráðinn þar sem frá var horfið
um tvítugt.
Páll stofnaði strax ljósmynda-
síðu á Netinu og tók þar þátt í
verkefni hóps fólks úr öllum
heimshornum. Það fólst í því að
taka eina mynd á dag í heilt ár og
setja myndirnar samdægurs inn á
Netið. „Það var minn skóli að fara í
gegnum þetta krefjandi verkefni,“
segir Páll.
Í gegnum þetta verkefni og ljós-
myndasíðu sína fékk Páll fyrir-
spurn frá Rússlandi um ákveðna
mynd. Þau samskipti þróuðust út í
það að Páll fékk boð um að halda
ljósmyndasýningu í Arkangelsk, á
vegum norrænu ráðherranefndar-
innar. Páll og kona hans, Ingibjörg
Flygenring, voru viðstödd opnun
sýningarinnar í Rússlandi. Hann
segir að það hafi verið mikil upp-
lifun. „Þessi litla sýning mín var
viðburður í þessu 300 þúsund
manna héraði, svo helst mætti
líkja því við komu Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands til Kópaskers. Ég
vil ekki líkja mér við Sinfóníuna
eða gera lítið úr Kópaskeri, en eins
og allir á Kópaskeri myndu vita af
komu Sinfóníuhljómsveitarinnar
fór sýning mín ekki fram hjá íbú-
um héraðsins, hún var svo ræki-
lega kynnt,“ segir Páll. Sýningin
fór á milli nokkurra borga og síðan
voru myndirnar boðnar upp, að
ósk Páls og Ingibjargar, og sölu-
andvirði þeirra varið til styrktar
góðu málefni í héraðinu.
Mannlíf og landslag
Páll hefur talsvert fengist við
óhlutbundna ljósmyndun, liti og
form. Hann hefur einnig ánægju af
því að taka myndir af mannlífi.
Segir að stundum megi líkja sér
við „paparazzi“-ljósmyndara þar
sem hann standi á götuhornum í
erlendum borgum til að taka
myndir af vegfarendum án þess að
þeir viti af því. Landslagið hefur
þó einnig togað í hann og hann á
von á að það verði meira í fókus á
næstu árum.
Ljósmyndaáhuginn vaknaði hjá Páli Guðjónssyni þegar hann skoðaði safnið
Verð að sinna þessari þrá
Ljósmynd/Páll Guðjónsson
Hvíld Páll Guðjónsson hefur gaman af því að taka myndir af fólki og
mannlífi. Hér hefur hann komist í feitt á sundlaugarbakkanum.
Í HNOTSKURN
»Páll Guðjónsson er 56 áraviðskiptafræðingur og
starfar sem framkvæmda-
stjóri byggðaþróunarsviðs
hjá Eykt hf. Hann var bæj-
arstjóri í Mosfellsbæ í tíu ár.
»Fókus er félag áhuga-ljósmyndara á höfuðborg-
arsvæðinu, opið öllu ljós-
myndaáhugafólki.
Félagsmenn eru um sjötíu.
Gönguferð Páll Guðjónsson með
ljósmyndabúnaðinn á bakinu á
leið í Núpsstaðaskóg.
MANNLÍF í Fókus, ljósmyndasýning
Fókuss, félags áhugaljósmyndara, verður
opnuð í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur
á morgun, laugardag, klukkan 14. Á sýn-
ingunni eru á annað hundrað ljósmyndir
eftir 28 Fókusfélaga.
Sýningin í Ráðhúsinu er tólfta ljós-
myndasýning Fókuss og sú fjórða í röð
viðameiri sýninga félagsins sem síðustu
árin hafa verið haldnar í Ráðhúsinu. Páll
Guðjónsson, formaður sýninganefndar,
segir að viðfangsefni fyrri sýninga hafi
mest verið tengd landinu og náttúru
þess. „Við höfum fengið viðbrögð á sýn-
ingum okkar, meðal annars sýningu sem
haldin var í Ráðhúsinu á síðasta ári, um
að það vantaði meira líf í myndirnar,
fólk. Okkur fannst rétti tíminn nú til að
taka þessari áskorun og láta á það reyna
hvort við gætum ekki endurspeglað
mannlífið á sama hátt og landslagið,“
segir Páll. Hann bætir því við að sýn-
endur sem séu fjölbreyttur hópur fólks á
öllum aldri og úr öllum stéttum sam-
félagsins túlki viðfangsefnið á mismun-
andi hátt.
Þeir 28 Fókusfélagar sem eiga myndir
á sýningunni eru Arnar Már Hall Guð-
mundsson, Ágúst Hrafnkelsson, Árný
Björg Jóhannsdóttir, Einar Ásgeirsson,
Elín Þórðardóttir, Georg Theodórsson,
Guðmar Guðjónsson, Guðmundur J. Al-
bertsson, Gunnlaugur Auðunn Júlíusson,
Haukur Gunnarsson, Helga Jörgensen,
Helgi Bjarnason, Hilmar Snorrason, Ingi-
björg Hannesdóttir, Jóhannes Johann-
essen, Jón Sigurgeirsson, Jón Þor-
grímsson, Jónas Erlendsson, Júlíus
Valsson, Kim Mortensen, Páll Guð-
jónsson, Páll Pétursson, Pálmi Bjarnason,
Pálmi Guðmundsson, Rafn Sigurbjörns-
son, Rannveig Sigurgeirsdóttir, Sævar
Jónasson og Sæþór L. Jónsson.
Sýningin verður opin alla daga vik-
unnar á sama tíma og Ráðhús Reykjavík-
ur til sunnudagsins 3. júní.
Fókus hefur starfað í átta ár. Félagið
er opið öllu áhugafólki um ljósmyndun,
jafnt byrjendum sem lengra komnum, að
því er fram kemur í fréttatilkynningu.
Mannlíf í Fókus
opnuð í Ráðhúsinu
Húsavík | Þingeyingar fagna
áformum Fjarðaflugs um flug til
Húsavíkur. Af því tilefni er efnt til
hátíðar um enduropnun flugstöðv-
arinnar, á morgun, laugardag, á
milli kl. 16 og 19.
Allt frá því að áætlunarflug lagð-
ist af til Húsavíkur fyrir nokkrum
árum hefur verið unnið að því að
koma flugvellinum aftur í reglu-
bundna notkun og stuðla að áætl-
unarflugi á ný, segir í fréttatilkynn-
ingu um hátíðina sem Norðurþing,
Flugstoðir og Fjarðaflug standa
fyrir.
Hátíð við endur-
opnun flugstöðvar
LANDIÐ
Akranes | Ný Bónusverslun verður
opnuð á Akranesi á morgun, laug-
ardag, klukkan 10. Boðið verður
upp á fjölda opnunartilboða. Versl-
unin er 26. verslun Bónuss.
Verslunin er 1.250 fermetrar að
stærð, með rúmgóðum göngukæl-
um fyrir mjólk og kjöt annars veg-
ar og grænmeti og ávexti hins veg-
ar. Verslunin er af því tagi sem
Bónus og viðskiptavinum þess þyk-
ir best um þessar mundir, segir í
fréttatilkynningu.
Verslunin á Akranesi verður
með nokkuð hefðbundnu Bónussn-
iði þar sem boðið verður upp á alla
helstu vöruflokka í matvöru og sér-
vöru eftir því sem pláss leyfir. Með-
al nýjunga er nýtt rafrænt verð-
merkingakerfi sem draga á úr
hættunni á röngum verðmerk-
ingum. Kemur fram í tilkynningu
að það skipti mjög miklu máli fyrir
Bónus að hafa ávallt rétt verð uppi.
Verslunarstjóri í nýju versl-
uninni verður Þorsteinn Böðv-
arsson.
Rafrænt verðmerk-
ingakerfi í nýrri
Bónusverslun
Eftir Hafþór Hreiðarsson
Húsavík | Sjóminjasafn-
inu á Húsavík var fyrir
skemmstu fært að gjöf
líkan af skuttogaranum
Kolbeinsey ÞH 10 sem
smíðuð var fyrir Húsvík-
inga í Slippstöðinni á Ak-
ureyri 1981. Það var
Kristján Ásgeirsson,
fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri togaraút-
gerðanna Höfða hf. og Ís-
hafs hf., sem afhenti
Guðna Halldórssyni, for-
stöðumanni Sjóminja-
safnsins, líkanið við at-
höfn í safninu.
Viðstaddir athöfnina
voru nokkrir fyrrverandi
áhafnarmeðlimir af Kol-
beinsey ásamt fyrrver-
andi starfsmönnum út-
gerðarinnar í landi. Þá
var Margrét Ásgríms-
dóttir, ekkja Benjamíns
Antonssonar sem lengst
af var skipstjóri á Kol-
beinsey, einnig viðstödd.
Kristján sagðist lengi
hafa reynt að ná líkaninu
frá Slippstöðinni, þar
sem það hefur verið alla
tíð, en lítt orðið ágengt.
Það var ekki fyrr en Ant-
on Benjamínsson, sonur Benjamíns
skipstjóra, tók þar við stjórn að það
tókst og var þá auðsótt mál.
Kolbeinsey var smíðuð í Slippstöð-
inni 1981 og var hún í útgerð á Húsa-
vík allt til ársins 1997 er hún var seld
Þorbirninum hf. og fékk nafnið
Hrafnseyri ÍS 10.
Kolbeinsey Kristján Ásgeirsson og Margrét
Ásgrímsdóttir við líkanið af Kolbeinsey ÞH sem
afhent var Sjóminjasafninu.
Sjóminjasafninu
fært líkan af
Kolbeinsey ÞH
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson