Morgunblaðið - 18.05.2007, Side 20
Tilraunastarfsemi meðblöndun óáfengra kokteila,stífar hljómsveitaræfingar,afmælishald og tónleikar
eru meðal verkefna helgarinnar hjá
Ingibjörgu Sörensdóttur sem er í 9.
bekk í Garðaskóla. Ingibjörg spilar á
bongótrommur í hljómsveitinni Ex-
odus sem treður upp í Vídalínskirkju
á sunnudaginn til styrktar þræla-
börnum í ánauð á Indlandi.
Yfirleitt einkennast helgarnar af
samveru með vinum og almennum
rólegheitum hjá Ingibjörgu svo það
verður óvenjulegt annríki hjá henni
næstu daga. „Ég átti afmæli um síð-
ustu helgi og einn vinur minn á af-
mæli í næstu viku svo við ætlum að
halda upp á það á laugardags-
kvöldið. Á föstudaginn ætlum við að
æfa okkur í að blanda drykki –
óáfenga – því við viljum hafa partíið
áfengislaust. Þess vegna þurfum við
að finna út úr því hvernig hægt er að
gera góða, óáfenga kokteila.“
Laugardagurinn fer að miklu leyti
í afmælisundirbúning en þar að auki
verður Ingibjörg á stífum æfingum
með hljómsveitinni Exodus, þar sem
hún spilar á bongótrommur. Hljóm-
sveitin er skipuð 16 unglingum úr
Garðabæ sem ásamt Æskulýðsfélagi
Vídalínskirkju og ferming-
arkrökkum í sókninni hafa í vetur
verið að safna peningum til að leysa
þrælabörn á Indlandi úr skulda-
ánauð. Á sunnudag mun hljóm-
sveitin troða upp á styrktartón-
leikum ásamt þremur öðrum
böndum úr Garðabæ; hljómsveit-
unum Magnyl, Cliff Clavin og Royal
Fanclub. Tónleikarnir eru liður í
vorhátíð kirkjunnar þar sem m.a.
verður boðið til grillveislu að lokinni
fjölskylduguðþjónustu kl. 11. Tón-
leikarnir hefjast svo klukkan 13.
„Það kostar ekkert inn,“ heldur
Ingibjörg áfram, „en við sækjumst
eftir frjálsum framlögum. Ef fólki
líst ekkert á þetta gefur það bara
ekkert!“ Aðspurð segir hún Exodus
spila „tónlist við allra hæfi“, bæði er-
lend og innlend dægurlög sem fólk á
borð við KK og Alanis Morissette
hafa gert fræg.
Annars eru helgarnar með rólegu
sniði hjá Ingibjörgu. „Á föstudags-
kvöldum hitti ég yfirleitt vinina úr
hljómsveitinni. Ég sef út á laug-
ardögum og um kvöldið er oft hitt-
ingur með krökkunum, einhver býð-
ur hinum heim til sín og við pöntum
pitsu og höfum það gaman. Á sunnu-
dögum fer ég stundum upp í kirkju
en annars eru þeir tilvaldir til að
gera ekki neitt, slappa af og fara í
fjölskyldukaffi.“
Morgunblaðið/Golli
Góður málstaður Hljómsveitin Exodus treður upp í Vídalínskirkju á sunnudaginn til styrktar þrælabörnum í ánauð á Indlandi.
Hugur Ingibjargar Sörensdóttur og félaga hennar í unglingahljómsveitinni
Exodus verður hjá þrælabörnum á Indlandi um helgina. Bergþóra Njála
Guðmundsdóttir sló á þráðinn til Ingu.
Afþreying: Það er mjög góð afþreying að fara í
keilu og það hentar allri fjölskyldunni.
Ganga: Ég mæli með því að labba um í
Öskjuhlíðinni og skoða þar kanínur.
Ævintýri: Að fara á túristastaðina á Íslandi. Ný-
lega var ég með útlendinga í heimsókn og komst
að því að Ísland hefur upp á margt spennandi að
bjóða. T.d. er hægt að skella sér í hvalaskoðun
og fyrir yngri en 15 ára kostar það bara 1.500
krónur.
Kaffihús: Ég mæli sterklega með kakói
á Súfistanum.
Viðburður: Núna er mikið um að vera á Listahá-
tíð svo ég mæli með því að fólk kíki á hana.
Ingibjörg mælir með
daglegtlíf
Jón Víðir Hauksson, kvik-
myndatökurmaður hjá Rík-
issjónvarpinu, gefur uppskrift
að ilmandi kjúklingasúpu »24
matur
Daglegt líf skrapp í búðir og
skoðaði ýmislegt sem kemur
sér vel fyrir þann sem er að
dunda í garðinum. »25
daglegt líf
Það er ekki nokkur vandi fyrir
nútímakonur að verða eins
rjóðar í vöngum og þær lystir –
með kinnalit. »23
tíska
Efnileg Ingibjörg Sörensdóttir spilar á bongótrommur í hljómsveitinni
Bongótrommur
og kokteilar
|föstudagur|18. 5. 2007| mbl.is
Hver kannast ekki við að kúra sig niður
í hægindastól með góða bók og lesljós
sér við hlið. Nemendurnir við Kun-
stakademiets arkitektskole í
Kaupmannahöfn hafa nú
slegið tvær flugur í einu
höggi með því að hanna
stóla með innbyggðu ljósi.
„Hingað til hefur verið
heldur óvenjulegt að hanna
ljós inn í húsgögn, ef frá eru
taldar mublur sem ætlaðar
eru til notkunar utanhúss,“
segir Hans-Christian Bauer annar hönn-
uður stólanna í samtali við Aftenposten.
„Hefðbundnar ljósaperur eru fremur
viðkvæmar fyrir hristingi en nýir ljós-
gjafar hafa auðveldað notkun þeirra í
húsgögnum.“
Stólarnir, sem eru verkefni Bauers og
Camilla Nørgaard og kallast 3some, eru
með ljós meðfram kantinum.
Eins og nafnið bendir
til eru þeir þrír talsins.
Þegar ljósið í þeim dvín-
ar eru þeir settir saman
eins og púsluspil og í
hleðslu og verða að upp-
lýstum bolta. Hugmyndin
er að með því geti stól-
arnir höfðað til barna.
Enn sem komið er hef-
ur ekki verið gerður samningur við hús-
gagnaframleiðendur um framleiðslu og
markaðssetningu 3some en stólarnir
fengu þó góðar viðtökur á hús-
gagnasýningunni í Mílanó í síðasta mán-
uði.
Lýsandi húsgögn