Morgunblaðið - 18.05.2007, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 29
Tveggja hæða verslunar-, iðnaðar-
og skrifstofuhúsnæði við Eyjarslóð
í Reykjavík, samtals 596 fm.
Húsnæðið skiptist þannig: neðri
hæð; 302 fm, verslun, tvær skrif-
stofur og lagerhúsnæði með
stórum innkeyrsludyrum, mikil
lofthæð. Efri hæð; 294 fm,
móttaka, skrifstofur, opið rými og
kaffistofa. Möguleiki að leigja
hvora hæð fyrir sig. Fallegt sjá-
varútsýni.
TIL LEIGU - EYJARSLÓÐ
Fimm herbergja, 107,4 fm, íbúð á
þriðju hæð (efstu) með góðu út-
sýni. Stofa og borðstofa eru park-
etlagðar, vestursvalir, gott útsýni.
Eldhús er flísalagt, hvítar innrétt-
ingar, borðkrókur. Sérþvottahús
og fataherbergi með skápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og
gólf. Hjónaherbergi, gott skápa-
pláss, tvö barnaherbergi, aukaher-
bergi í kjallara. Í sameign er sérgeymsla og hjóla- og vagnageymsla. Þak
nýlega viðgert. Leikvöllur í næsta nágrenni. Verð 20,5 millj.
DVERGABAKKI
SIGLINGASTOFNUN
Stefnumótun í samgöngum
Samgönguráð efnir til þriðja fundar í fundaröð sinni um
stefnumótun í samgöngum. Fundarefnið að þessu sinni er:
Fjármögnun samgöngumannvirkja
Fjármögnun samgöngumannvirkja í Noregi - veggjöld/
einkaframkvæmd
Astrid Fortun, norsku Vegagerðinni
Fjármögnun samgöngumannvirkja á Íslandi
Sigfús Jónsson, framkvæmdastjóri hjá Nýsi
Álit nefndar samgönguráðherra um einkaframkvæmd í
samgöngum
Stefán Jón Friðriksson, viðskiptafræðingur hjá fjármálaráðu-
neytinu
Umræður og fyrirspurnir
Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 24. maí 2007 kl. 15-17
á Grand Hótel Reykjavík. Aðgangur er ókeypis og öllum er
heimill aðgangur. Væntanlegir þátttakendur eru vinsamlega
beðnir að skrá sig á netfangið postur@sam.stjr.is eigi síðar en
klukkan 12:00 þann 23. maí nk.
Samgönguráð
Flugmálastjórn Íslands - Siglingastofnun Íslands - Vegagerðin
Samgönguráðuneytið
SÖFN eru hornsteinar hverrar
þjóðar. Þau hafa viðamikið, lögbund-
ið hlutverk sem hefur þróast og auk-
ist eftir því sem tímar líða. Söfnin
bera sameiginlegar skyldur. Líkt og
aðrar stofnanir sem starfa í almanna-
þágu skulu þau hafa há-
leit og skýr markmið að
leiðarljósi. Safnmenn
ættu að skoða og meta
störf sín í víðu sam-
hengi bæði í tíma og
rúmi.
Alþjóðasamtök safna
ICOM (International
Council of Museums)
voru sett á laggirnar
árið 1946 þegar síðari
heimstyrjöldinni var
nýlokið. Síðan þá hefur
mikið vatn runnið til
sjávar og enn blasir við
ný og breytt heimsmynd. Árlegur há-
tíðisdagur ICOM, alþjóðasafnadag-
urinn, er jafnan haldinn 18. maí.
Hann er að þessu sinni helgaður yf-
irskriftinni Söfnin – menningararfur
mannkyns.
Hugtakið er víðtækt og skírskotar
til þess að í heimi sem hefur skroppið
saman vill alþjóðasamfélag safna
beina því til safnmanna að þeir líti á
störf sín og skyldur í stóru samhengi
og leiti leiða til samvinnu og samhæf-
ingar. Hvert eitt safn, hvar svo sem
það er í heiminum, ber með öðrum
söfnum ábyrgð á að safna, varðveita
og kynna kerfisbundið menningar-
arfleifð og menningarerfðir. Öll fag-
leg störf sem leyst eru á íslenskum
söfnum eru skerfur til bættrar menn-
ingar og fræðslu sem mun koma nýj-
um kynslóðum að gagni um ókomna
framtíð.
Alþjóðaráð safna vill
að í tilefni alþjóðasafna-
dagsins kynni starfs-
menn safna sér hvað
gert er í öðrum söfnum,
bæði heima fyrir og á
alþjóðavísu.
Samtökin vilja jafn-
framt benda á að sam-
vinna og samhæfing er
ákjósanleg leið til þess
að ná árangri við af-
mörkun ákveðinna
verkefna og að söfnin
leggi áherslu á að draga
lærdóm af þeim sem
undan fara og séu þess minnug að
fjarlægðir teljast ekki lengur til
hindrana. Til þess þarf kjark og víð-
sýni. Það er árangur og jafnframt
fagnaðarefni að söfnin hafa á síðustu
áratugum tekið æ virkari þátt í sam-
félagsumræðu og lagt sinn skerf til
betra mannlífs.
Fyrir fámenna þjóð í tiltölulega
stóru landi er nauðsynlegt að sam-
hæfa aðgerðir heima fyrir en huga
jafnframt að því sem gert er í söfnum
annars staðar í heiminum. Það mun
seint verða svigrúm til þess að fram-
kvæma allt sem hugurinn girnist.
Það er mikilvægt að hugsa sig vel um
og leita leiða til þess að uppfylla
væntingar stjórnvalda og almennings
til safna. Sníða verður stakkinn eftir
vextinum og benda má á að í lönd-
unum í kringum okkur er unnið starf
sem getur nýst okkur í framtíðinni.
Íslandsdeild ICOM tekur í dag, 18.
maí 2007, á alþjóðasafnadegi, undir
með alþjóðakór safna og hvetur söfn
á Íslandi til að sjá starfssvið sitt og
verkefni í endurnýjuðu ljósi og hafa
það hugfast að missa ekki sjónar af
sínu höfuðhlutverki og líta á árangur
í starfi sem framlag til þess að bæta
og auðga mannlífið.
Hægt er að kynna sér málefni
ICOM á vefslóðinni: icom.museum
eða icom.org en slóðin á heimasíðu
Íslandsdeildar ICOM er www.icom.is
Söfnin og menningar-
arfur mannkyns
Lilja Árnadóttir hvetur söfn til
dáða á alþjóðasafnadeginum » 18. maí er alþjóða-dagur safna. ICOM
alþjóðaráð safna hefur
valið deginum árið 2007
yfirskriftina: Söfnin og
menningararfur mann-
skyns.
Lilja Árnadóttir
Höfundur er formaður Íslands-
deildar ICOM og fagstjóri
á Þjóðminjasafni Íslands
ÍSLENDINGAR hafa tekið vel í
þær nýjungar sem Já hefur kynnt
á Netinu frá því að
fyrirtækið var stofnað
en Já rekur upplýs-
ingaþjónustuna 118,
annast ritstjórn og
útgáfu Símaskrár-
innar og rekstur Já-
.is. Já er vel þekkt
meðal Íslendinga en
kannanir sýna að 92%
landsmanna nota
Símaskrána á Netinu
og að Já.is er með
105.000 vikulega not-
endur. Þessar tölur
eru starfsfólki mikil
hvatning til að veita
hina bestu þjónustu á hverjum
tíma og að vera í fararbroddi þeg-
ar kemur að nýjungum. Með
hækkandi sól og auknum ferðalög-
um þykir okkur því vel við hæfi að
kynna nýjung Já.is, Íslandskort
sem er tengt öflugum gagna-
grunni og leitarvél.
Kortið er að finna undir flip-
anum Kort á vefsíðu Já. Kortið er
tengt öflugum gagnagrunni og er
ætlað að auðvelda notendum að
leita eftir ýmiss konar þjónustu
eða heimilisföngum um allt land á
skjótan og þægilegan hátt.
Virkni kortsins má skipta í
tvennt:
Annars vegar er um að ræða
leitarbox þar sem fólk getur slegið
inn heimilisfang á Íslandi og feng-
ið staðsetningu þess á korti. Kort-
ið má svo prenta út með einföld-
um hætti. Valin svæði
bjóða einnig upp á
loftmynd.
Hins vegar er búið
að taka saman gagna-
grunn fyrir höf-
uðborgarsvæðið,
Reykjanes, Suður-
land, Austurland,
Norðurland eystra,
Norðurland vestra,
Vestfirði og Vest-
urland. Undir hverju
svæði má skoða á
korti alla skráða
möguleika á gistingu
og afþreyingu, apó-
tek, bensínstöðvar, bílastæði,
heilsugæslustöðvar, pósthús og
ýmsa aðra þjónustu. Með því að
smella á þann valkost sem fólk vill
skoða nánar birtast upplýsingar
um heimilisfang og símanúmer.
Kortið er gagnvirkt þannig að
notendur geta fært það til, þysjað
nær og fjær, prentað kortið út og
skoðað loftmyndir af völdum
svæðum.
Notendum símaskrárinnar á
Netinu hefur fjölgað um 30% frá
því að Já tók til starfa í ágúst
2005 sem er vísbending um að við
séum á réttri leið. Um leið og við
þökkum góðar viðtökur vonum við
að kortin á Já.is komi sem flestum
að góðum notum.
Öflugri þjónusta á Já.is
Sigríður Margrét Oddsdóttir
skrifar um nýjungar á Já.is »Með hækkandi sól ogauknum ferðalögum
þykir okkur því vel við
hæfi að kynna nýjung
Já.is, Íslandskort sem
er tengt öflugum gagna-
grunni og leitarvél.
Sigríður Margrét
Oddsdóttir
Höfundur er framkvæmdastjóri Já.
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
DAGANA 21. til 23. maí nk. fer
fram atkvæðagreiðsla um for-
mannskjör í Sjúkraliðafélagi Ís-
lands.
Stéttafélag sjúkraliða var stofnað
1992 undir öflugri stjórn Kristínar
Á. Guðmundsdóttur og var mikið
gæfuspor fyrir sjúkraliða. Kjaramál
stéttarinnar hafa batnað til muna
og stéttin barist saman við hlið
sterks formanns sem ætíð hefur
unnið af heilindum fyrir sjúkraliða-
stéttina. Eitt af aðalsmerkjum
hvers félags á að vera sterk forysta,
hana hafa sjúkraliðar undir forystu
Kristínar Á. Guðmundsdóttur.
Við, sjúkraliðar á Heilsugæslu
Hafnarfjarðar – Sólvangi, Firði og
Heilsugæslu Garðabæjar, treystum
Kristínu Á. Guðmundsdóttur til
þess að leiða félagið af heilindum og
heilla fyrir félagið – eins og hún
hefur ávallt gert.
Sjúkraliðar, kjósum Kristínu Á.
Guðmundsdóttur til áframhaldandi
forystu í Sjúkraliðafélagi Íslands.
AGNES SVAVARSDÓTTIR,
ENIKA H. JÓNSDÓTTIR,
FJÓLA REYNISDÓTTIR,
GERÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR,
GYÐA HAUKSDÓTTIR,
GRÓA JÓNSDÓTTIR,
HULDA K. ÓLAFSDÓTTIR,
SÚSAN BLACK,
SVAVA H. SVAVARSDÓTTIR,
HELMA GUNNARSDÓTTIR,
Kristínu sem formann
Sjúkraliðafélgas Íslands
Frá sjúkraliðum, Heilsugæslunni
Hafnarfirði og Garðabæ
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn