Morgunblaðið - 18.05.2007, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2007 33
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Samúðar og
útfaraskreytingar
Bæjarhrauni 2 • sími 565 0300
Hafnarfirði
✝
Faðir okkar,
SIGURÐUR KR. ÁSBJÖRNSSON,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn
13. maí, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 22. maí kl. 15.00.
Kristján Sigurðsson,
Þórunn Sigurðardóttir, Hreinn Pálmason
og barnabörn.
✝
Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ARNDÍS PÁLSDÓTTIR,
Barkarstöðum,
Miðfirði,
sem lést á Heilbrigðisstofnuninni Hvammstanga
fimmtudaginn 10. maí, verður jarðsungin frá Mel-
staðarkirkju laugardaginn 19. maí kl. 14.00.
Ragnar Benediktsson,
Karl Georg Ragnarsson, María Rós Jónsdóttir,
Ásta Pálína Ragnarsdóttir, Magnús Sverrisson,
Jenný Karólína Ragnarsdóttir, Hilmar Sverrisson,
Margrét Halla Ragnarsdóttir, Jón Gunnarsson,
Benedikt Ragnarsson, Jóhanna Helga Þorsteinsdóttir,
Álfheiður H. Árdal,
Helga Berglind Ragnarsdóttir, Sigmar Benediktsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝ Eyjólfur Ragn-ar Eyjólfsson
fæddist í Hafnar-
firði 31. mars 1921.
Hann lést á Hrafn-
istu í Reykjavík 9.
maí síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Eyjólfur
Gíslason sjómaður,
f. í Hleinagarði í
Eiðaþinghá 1890,
d. í Reykjavík
1921, og unnusta
hans Ragnheiður
Guðmundsdóttir,
verka- og saumakona í Hafnar-
firði, f. á Hellnum á Snæfellsnesi
20. ágúst 1894, d. í Hafnarfirði
17. febrúar 1932.
Eyjólfur kvæntist 8. nóvember
1941 Hansínu Sigurbjörgu
Hjartardóttur, f. í Ytri-Kefla-
víkurbæ á Hellissandi 13. júlí
1919, d. 7. maí 2003. Foreldrar
september 1938, gift Hildimundi
Björnssyni.
Eyjólfur var sjómaður í mörg
ár en 1959 fluttist hann norður í
Vestur-Húnavatnssýslu og var
þar bóndi lengst af uns hann
flutti til Hvammstanga 1973.
Eyjólfur vann að ýmsum félags-
málum alla tíð. Hann endurvakti,
ásamt fleirum, Æskulýðsfylking-
una í Hafnarfirði 1942 og var
formaður hennar um skeið,
starfaði í Verkalýðsfélaginu á
Hvammstanga og var um tíma
formaður þess. Hann starfaði
lengi fyrir Alþýðubandalagið á
Hvammstanga, og var fyrsti for-
maður Félags eldri borgara í V-
Húnavatnssýslu (stofnað 1992),
fyrst í bráðabirgðastjórn og síð-
an var hann kosinn á aðalfundi.
Eyjólfur vann að félagsmálum
hjá SÁÁ í nær 3 áratugi. Var
hann m.a. formaður Staðarfells-
nefndar um árabil. Einnig var
hann í aðalstjórn SÁÁ og fram-
kvæmdastjórn SÁÁ. Eyjólfur var
virkur þátttakandi í Samfylking-
unni frá stofnun hennar.
Eyjólfur verður jarðsunginn
frá Bústaðakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
Hansínu voru hjónin
Sigurrós Hansdóttir
húsfreyja, f. á
Einarslóni á Snæ-
fellsnesi 30. apríl
1898, d. 11. desem-
ber 1970, og Hjörtur
Cýrusson verkamað-
ur, f. á Öndverð-
arnesi á Snæfells-
nesi 26. júlí 1891, d.
3. maí 1971. Börn
Eyjólfs og Hansínu
eru: Ragnheiður
Sæbjörg, f. í
Hafnarfirði 26. mars
1943, gift Skúla Árnasyni, d.
1994; Guðbjörg Jóna, f. í Reykja-
vík 19. febrúar 1950, gift Jóni
Aðalsteinssyni; og Eyjólfur Ósk-
ar, f. í Reykjavík 24. janúar
1952, kvæntur Birnu Guðmunds-
dóttur. Fyrir átti Hansína dótt-
urina Guðnýju Ernu Þórar-
insdóttur, f. í Reyjavík 21.
Pabbi var heppinn maður. Alltaf
eitthvað svo heppinn. Þegar engin
bílastæði var að hafa fann hann
eitt … á besta stað. Þegar hvergi
var hægt að setjast niður fann hann
alltaf eitt sæti. Besta sætið. Hann
rataði ávallt á besta matinn og
skemmtilegasta fólkið. Þegar hann
tók sig upp og fór í ferðalög var það
alltaf góða veðrið sem fylgdi hon-
um. Hvert sem hann fór. Hann tal-
aði um það góða og skemmtilega í
lífinu, en valdi að eiga með sjálfum
sér það sem erfitt var og leiðinlegt.
Fallegar minningar um móður sína
rifjaði hann gjarnan upp, en talaði
minna um sorgina, sem fylgdi því
að missa hana aðeins 11 ára gamall.
Fyrir stuttu fundum við þessa
vísu á minnismiða á skrifborðinu
hans pabba:
Ég sakna þín móðir og sárt ég finn
hve sorgin var djúp og breið,
þá einn með sáran söknuð minn,
ég söng og grét um leið.
Faðir pabba lést stuttu fyrir fæð-
ingu hans og ólst hann því upp hjá
einstæðri móður. Eftir að hún dó
var hann sendur burt til að vinna
fyrir sér aðeins barn að aldri.
Mesta gæfa hans í lífinu var án
efa að hitta mömmu. Milli þeirra
var djúp og mikil vinátta. Þau voru
bæði heiðarleg, orðvör og traust og
höfðu sömu lífsgildin í heiðri. Með
mömmu eignaðist pabbi líka stór-
fjölskyldu, sem hann mat mikils.
Þau voru fólk sem gott var að eiga
að.
Fyrir pabba voru allir menn jafn-
ir, enginn var honum æðri og meiri
og enginn var honum smærri. Það
var sama hvaða titil menn báru,
hann var eins við alla, jafningi
allra. Pabbi var mikil félagsvera,
maður gleðinnar, orðsins og út-
þrárinnar. Hann naut sín vel í
góðra vina hópi og hafði unun af því
að ræða við fólk. Frásagnargáfa
hans var einstök, frásagnir hans
voru alltaf skemmtilegar og jafnvel
þótt þær væru ekki beint skemmti-
efni þá urðu þær samt svo áheyri-
legar.
Eftir langa vinnuævi keypti hann
sér tölvu og lærði á hana. Hann var
alltaf eitthvað að grúska, í ætt-
fræði, vísunum sínum eða öðru, og
tók meðal annars saman ættfræði-
rit fyrir alla stórfjölskylduna.
Dauðinn er lækur en lífið er strá,
skjálfandi starir það straumfallið á.
Við rákumst á þessar ljóðlínur
eftir Matthías Jochumsson fyrir
nokkru og varð hugsað til föður
okkar, sem þá var orðinn þreyttur
og þjakaður af erfiðum sjúkdómi.
Þreyttur en þrátt fyrir allt glaður.
Já, pabbi var heppinn maður. Og
það erum við líka. Við áttum góðan
föður, sem við kveðjum nú með
söknuði og virðingu.
Guðbjörg Jóna og Ragnheiður.
Eyjólfur Ragnar Eyjólfsson vin-
ur minn og baráttufélagi er látinn.
Með honum er genginn einn ötul-
asti og besti stuðningsmaður SÁÁ.
Ég sá Eyjólf fyrst á kandídatsárinu
mínu á Landakoti árið 1976. Hann
var sjúklingur þar og einhverra
hluta vegna tók ég betur eftir hon-
um en öðrum sjúklingum. Hann var
síðan fyrsti maðurinn sem ég sá í
gegnum lúguna á apótekinu á
Hvammstanga þegar ég kom þang-
að tæpu ári síðar. Okkur varð strax
vel til vina þótt við værum hvor af
sinni kynslóðinni. Við áttum margt
sameiginlegt og skröfuðum mikið
um landsins gagn og nauðsynjar og
báðir vorum við komnir í áfengis-
meðferð þremur árum seinna.
Eyjólfur fór snögga ferð í bæinn
frá Hvammstanga og lærði að vera
án áfengis á 10 dögum á Silunga-
polli árið 1979. Á næstu árum
þurrkaði hann næstum upp Norð-
urland vestra. Hann kom suður aft-
ur með nokkra menn með sér sum-
arið 1988 og var þá kosinn í stjórn
SÁÁ árið sem ég varð stjórnarfor-
maður. Hann sat í stjórn SÁÁ síðan
og um tíma í framkvæmdastjórn.
Alltaf var hann tilbúinn að hjálpa
og taka til hendinni innan SÁÁ ef
með þurfti. Hann fékk viðurnefnið
„alkaskelfirinn“ og hrjúfa röddin
hans hljómaði oft í símanum á Vogi.
Við munum sakna hans þar.
Hann hafði átt viðburðaríka ævi
áður en ég kynntist honum og oft
þurft að hafa fyrir hlutunum. Hann
var fyrrum sjómaður og bóndi en
var sestur að á Hvammstanga þeg-
ar ég kom þangað 1977. Hann var
mikið félagsmálaljón, hagyrðingur
góður og virkur í pólitíkinni og
kirkjulegu starfi. Hann talaði af
mikilli reynslu og þekkti allar hlið-
ar lífsins.
Hann var alltaf áberandi á
stjórnarfundum SÁÁ og svipmikill
og áberandi í félagsstarfinu þótt
ekki væri hann hár í loftinu. Nú
sakna hans allir í SÁÁ. Ég og fjöl-
skyldan mín finnum til ákveðins
tómleika og missis.
Ég tala því beint til þín, kæri vin-
ur, til að segja þér að SÁÁ-fólk,
stjórn og framkvæmdastjórn þakka
þér samstarfið og eljuna og geyma
allar góðu minningarnar um þig.
Öllu þínu fólki sendum við hug-
heilar samúðarkveðjur.
Þórarinn Tyrfingsson.
Hugurinn leitar til bernskuár-
anna. Það voru þreyttir krakkar
sem stigu út úr bílnum á Geitafelli
á Vatnsnesi eftir langt og strangt
ferðalag eftir gömlu malarvegum
landsins. En þreytan hvarf fljótt
þegar við komum inn í eldhúsið til
Hansínu móðursystur okkar og
mannsins hennar, hans Eyjólfs sem
við kveðjum nú í dag. Eftir að hafa
fengið hressingu vorum við endur-
nærð og þá var ekki til setunnar
boðið og haldið út að líta eftir heim-
alningum, farið í könnunarleiðang-
ur í fjósið eða kíkt í „búið“ í gamla
hænsnakofanum úti á hól.
Í minningunni var alltaf hálf ætt-
in á Geitafelli. Börnin léku sér úti
og upplifðu ýmis ævintýri á meðan
fullorðna fólkið var innivið og
ræddi málin. Þar voru þau hjónin
Eyfi bóndi og Sína, eins og þau
voru ávallt kölluð, hrókar alls fagn-
aðar og lágu ekki á skoðunum sín-
um frekar en aðrir viðstaddir. Á
slíkum stundum fór Eyfi gjarnan
með vísur sem hann orti ýmist á
staðnum eða átti í handraðanum og
þótti okkur mikið til þess hæfileika
koma.
Árin liðu og Eyfi og Sína fluttu
inn á Hvammstanga. Eftir því sem
við systkinin tókum út okkar
þroska fórum við að hafa skoðanir á
þjóðmálum og taka þátt í umræðum
fullorðna fólksins. Í eldhúskrókn-
um á Hvammstanga nutum við þess
að hlusta á og taka þátt í hressileg-
um umræðum um pólitík þar sem
menn voru með hlutina á hreinu.
Það sama var uppi á teningnum eft-
ir að þau Sína og Eyfi fluttu til
Reykjavíkur. Þegar ættin kom
saman var skrafað og reifað, farið
með vísur og rætt um pólitík.
Eyfi veitti gleði með brosi sínu
og innileika og hann var glettinn á
sinn hlýlega máta. Hann gaf sig all-
an í það sem hann tók sér fyrir
hendur, hvort sem það var þátttaka
í AA-starfi, ættfræði eða pólitík.
Fyrst og síðast var Eyfi hugsjóna-
maður – og það var gaman að upp-
lifa hans pólitíska eldmóð hvort
sem það var á stjórnmálafundum
eða í eldhúsinu heima.
Það eru minningar eins og þess-
ar um samskiptin við ættingja og
vini úr íslenskri alþýðustétt sem
gert hafa okkur systkinin að þeim
manneskjum sem við erum í dag.
Við þökkum fyrir samskipti okkar
og kynni af Eyfa bónda.
Rósa, Guðbrandur og Þröstur.
Maísólin sendir geisla sína inn
um gluggann þegar ég rifja upp
kynni mín af Eyjólfi. Í kvöld lýkur
vetri. Það var napur vindur og vor-
hret þegar Eyjólfur fæddist en fað-
ir hans var þá nýlátinn úr lungna-
bólgu. Það var atvinnuþref og
móðir hans vann myrkranna á milli
við að vaska fisk. Þegar Eyjólfur
var 11 ára var hún borin fárveik frá
þvottakarinu og lést stuttu síðar.
Það voru erfiðir tímar fyrir mun-
aðarlausan pilt á kreppuárunum
sem mörkuðu sín spor. Svo varð
piltur að manni sem trúði á maís-
tjörnuna. Vildi berjast fyrir betra
lífi og bera fána framtíðarlandsins.
Hann kynntist Hansínu sem varð
hans akkeri, stjarnan sem skein.
Eyjólfur gekk löngum á brattann
og hans gæfa var að snúa af þeirri
braut. Þá tóku við bjartir tímar þar
sem hann varð öðrum fyrirmynd,
vakinn og sofinn í að gefa fólki von.
Þegar ég heimsótti Eyjólf vin
minn um daginn þá sagðist hann
vilja láta syngja Maístjörnuna yfir
sér. Hann var tilbúinn að fara en
þurfti þó að ljúka einu verki. Hann
kaus utan kjörfundar, trúr sínum
málstað allt til enda.
Ég minnist áttræðs „unglings“
sem lét tölvuleik stela tíma frá
ættfræðigrúskinu. Ég minnist
sagnamanns sem lagði spilin á
borðið umbúðalaust.
Í huga mínum mun Maístjarna
nóbelsskáldsins ævinlega vekja
minningu um alþýðumanninn Eyj-
ólf Ragnar Eyjólfsson. Í kvöld lauk
vetri vinnandi manns og geislar
maísólarinnar lýsa upp minningu
hans.
Eyrún Ingadóttir.
Þegar ég var unglingur átti ég
þess kost að gerast kaupamaður í
sveit. Árið var 1971, bærinn hét
Geitafell. Ábúendur þar voru Eyj-
ólfur R. Eyjólfsson og Hansína
Hjartardóttir.
Þegar ég kom í sveitina, blautur
á bak við eyrun, óharðnaður ung-
lingurinn, kom Eyjólfur á móti
mér. Hann tók þéttingsfast í hönd
mína. Hjá þeim Eyjólfi og Hansínu
átti ég tvö þroskandi sumur.
Eftir sveitadvölina var lítið sam-
band milli okkar Eyjólfs en við
höfðum þó spurnir hvor af öðrum.
Síðan var það fyrir nokkrum ár-
um, þegar ég sótti fund hjá Sam-
fylkingarfélaginu í Reykjavík, að
fundum okkar Eyjólfs bar aftur
saman. Við ljómuðum báðir. Hann
tók í hönd mína, hlýlegt handtak,
en ekki eins þétt og forðum á
hlaðinu á Geitafelli.
Ég hef oft haft á orði að ég hafi
hlotið gott uppeldi hjá föður mínum
og móður. Uppeldi unglingsáranna
hjá hjónunum á Geitafelli mótaði
mig ekki síður. Takk fyrir mig
Ægir Magnússon.
Eyjólfur R. Eyjólfsson bar
starfsheitið verkamaður með reisn.
Ég minnist þess hversu hreinn og
beinn og hjálpsamur hann var við
alla þegar við áttum samleið á
Hvammstanga á árum áður. Það
var talsverður aldursmunur á okk-
ur og við höfðum vaxið upp við ólík
kjör, en náðum vel saman. Hann
var hugsjónamaður og mikill
verkalýðssinni og sósíalisti, en á
seinni árum fann hann hugsjónum
sínum ekki síst farveg innan SÁÁ.
Þær voru ófáar ferðirnar sem hann
fór á sínum tíma suður með fólk á
þurrkloftið hjá þeim samtökum.
Það var gert af manngæsku einni
saman og ekki ætlast til neinna
launa. Þannig var hann.
Fólkinu hans sendi ég samúðar-
kveðjur.
Matthías Halldórsson.
Eyjólfur Ragnar
Eyjólfsson
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum.
Myndir | Ef mynd hefur birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að
senda hana á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minningar-
greina vita.
Minningargreinar