Morgunblaðið - 21.05.2007, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2007 11
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Enn á ný hafa menn séð ástæðu til aðhampa færeyska fiskveiðistjórn-unarkerfinu og kalla það beztu fisk-veiðistjórnun í heimi. Það var gert í
fréttaskýringaþættinum Kompási fyrir nokkru.
Ekki var að skilja annað af þeirri umfjöllun en
fiskidagakerfið svokallaða hefði bjargað Fær-
eyingum frá glötun vegna þess að dönsk stjórn-
völd heimtuðu að þeir tækju upp kvótakerfi, eftir
að þorskstofninn við eyjarnar var hruninn. Kvóta-
kerfið var við lýði í tvö ár en síðan tekið upp fiski-
dagakerfi, þar sem ákveðið er hve marga daga
hvert skip megi stunda veiðar, en ekkert hámark
er á afla einstakra tegunda.
Nú hlýtur öllum sem eitthvað hugsa um fisk-
veiðar að vera ljóst að enginn fiskistofn getur
hrunið á sama degi og eitthvert tiltekið fisk-
veiðistjórnunarkerfi er tekið upp. Það tekur tíma
að ganga svo nærri fiskistofni að stærð hans fari
niður í sögulegt lágmark. Það voru veiðarnar fyrir
kvótakerfið sem rústuðu þorskstofninn við Fær-
eyjar upp úr 1990. Engin raunverulega reynsla
fékkst á kvótakerfið við Færeyjar. Það varði að-
eins í tvö ár og á því tímabili var þorskstofninn í
lágmarki. Það má þó kannski segja að sú fisk-
vernd, sem fékkst í þau tvö ár sem kvótakerfið var
notað, hafi lagt grunn að uppbyggingu stofnsins.
Stofninn náði sér svo ágætlega á strik og fór ná-
lægt hámarki nokkrum árum síðar eins og sýnt
var á línuriti í þættinum Kompási. Á sama tíma
var fiskidagakerfið við lýði og er enn. Hvort það
er því kerfi að þakka að stofninn náði sér á strik
getur vel verið. En ef svo er hlýtur það líka að
vera sama kerfi að kenna að stofninn er nú kom-
inn niður að hinni sögulegu lágmarksstærð sem
var í kringum 1995. Þegar bezt lét fór þorskaflinn
við Færeyjar í um 40.000 tonn, en nú stefnir aflinn
á þessu ári í 7.000 til 8.000 tonn. Fyrstu þrjá mán-
uði þessa árs dróst útflutningur af þorski, ýsu og
ufsa saman um 8.000 tonn eða 35% í magni mælt.
Þetta var ekki sýnt á línuritinu í Kompási, enda
hentaði það illa umfjölluninni um svokallaða yf-
irburði færeyska fiskidagakerfisins.
Nú getur vel verið að Færeyingar séu ánægðir
með fiskveiðistjórnun sem leiðir til svona mikilla
sveiflna. Annað var ekki að heyra í þættinum.
Sveiflur af þessu tagi eru hins vegar eitt það
versta í útflutningi á fiski. Þegar aflinn minnkar
geta menn ekki staðið við gefin fyrirheit um stöð-
ugleika í afhendingu og missa því viðskipta-
sambönd og markaði. Þegar aflinn eykst svo aft-
ur, þarf að hafa mikið fyrir því að vinna
markaðina á ný, ef þess er þá nokkur kostur. Aðr-
ir hafa þá fyllt í skörðin og verða ekki svo auðveld-
lega hraktir þaðan.
Fiskifræðingar í Færeyjum hafa mælt gegn
fiskidagakerfinu og telja veiðiálag allt of mikið,
eins og sjá megi á minnkandi þorskstofni. Þeir
fiskifræðingar byggja á þeirri fiskveiðistjórnun,
sem víðast hvar í heiminum er notuð, meðal ann-
ars af Alþjóða hafrannsóknaráðinu, að byggja
þurfi upp fiskistofna með ákveðnu aðhaldi við
veiðarnar að takmarka þurfi hámarksafla. Fær-
eysk stjórnvöld kjósa aðra leið og hafa gert í um
20 ár. Því fer að komast sú reynsla á þá fisk-
veiðistjórnun að hægt sé að meta hvort hún sé
rétta leiðin eða ekki. Staðreyndin nú blasir við.
Þorskstofninn er nálægt sögulegu lágmarki og út-
flutningur á botnfiskafurðum hefur hrunið á
þessu ári. Fallið um 35%. Hvað framtíðin ber í
skauti sínu á enn eftir að koma í ljós. Vonandi nær
stofninn sér á strik á ný. Það eru vissulega kostir
við færeysku leiðina, en gallar ekki síður.
Bezta kerfi í heimi?
» Þorskstofninn er við Fær-eyjar nálægt sögulegu lág-
marki og útflutningur hefur
hrunið á þessu ári.
Bryggjuspjall
Hjörtur Gíslason
hjgi@mbl.is
MACRAE, dótturfyrirtæki Yong’s
Seafood í Bretlandi, er að taka í
notkun nýja verksmiðju fyrir ferskt
sjávarfang. Við það munu bætast
við 50 ný störf hjá fyrirtækinu.
Fiskvinnsla á Bretlandseyjum hef-
ur átt undir högg að sækja og mikið
verið um uppsagnir á undanförnum
mánuðum.
Nýja verksmiðjan kostar um 1,3
milljarða króna og er 6.000 fer-
metrar að stærð. Það er mesta fjár-
festing fyrirtækisins um þessar
mundir. Þegar eru 230 manns starf-
andi í nýju verksmiðjunni sem
framleiðir kældar tilbúnar sjáv-
arafurðir fyrir verzlanakeðjuna
Waitrose. Framleiðslan mun meðal
annars byggja á reyktum laxi.
Markaðurinn fyrir reyktan lax á
Bretlandseyjum eykt um 15% á ári.
Jafnframt er sala Waitrose á kæld-
um fiskafurðum ört vaxandi, eða
um 35%, þar sem skelfiskur og lax
eru í fararbroddi.
Young’s er stærsta sjávarafurða-
fyrirtæki Bretlands. Starfsmenn
eru um 5.000, þar af 1.800 í Skot-
landi. Þaðan kaupir fyrirtækið fisk
fyrir um 10 milljarða króna á ári.
Young’s eyk-
ur umsvifin
ÚR VERINU
VIÐSKIPTI
ÞETTA HELST ...
● ÁRIÐ 2006 störfuðu 456 fyr-
irtæki í upplýsingatækniiðnaði hér
á landi og fjölgaði þeim því um 34
frá árinu 2005. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Hagstofunni varð fjölg-
unin helst meðal fyrirtækja í hug-
búnaðargerð og ráðgjöf, en þeim
fjölgaði um 28 milli ára. Fyrirtæki í
síma- og fjarskiptaþjónustu voru
tveimur fleiri árið 2006 en árið áð-
ur og fjöldi fyrirtækja í heildverslun
með upplýsingatæknivörur var 137
árið 2006 en 133 árið 2005.
Á síðasta ári starfaði 21 fyr-
irtæki við framleiðslu upplýsinga-
tæknivara og hefur sá fjöldi hald-
ist nokkuð stöðugur frá árinu
1998. Heildarvelta upplýsinga-
tæknifyrirtækja jókst um 13% milli
ára og nam rétt tæpum 113 millj-
örðum króna árið 2006. Fjórð-
ungur heildarveltu er í fyrirtækjum
sem starfa við hugbúnaðargerð og
ráðgjöf, 29% heildarveltu verður til
í fyrirtækjum í síma- og fjar-
skiptaþjónustu og 46% eru til-
komin vegna fyrirtækja í heildversl-
un.
Fjölgun fyrirtækja
í upplýsingatækni
● EFNT er til morgunverðarfundar á
Nordica hóteli í dag um það sem að-
standendur fundarins kalla „fjármála-
storminn vorið 2006“. Þar mun pró-
fessor við Harvard-háskóla, dr.
Gregory Miller, kynna rannsókn sem
hann hefur gert á viðbrögðum ís-
lenskra aðila við neikvæðri umfjöllun
erlendra greiningaraðila og fjölmiðla á
síðasta ári.
Bjarni Ármannsson, fv. forstjóri
Glitnis, er einnig ræðumaður á fund-
inum en í pallborðsumræðum taka
þátt Þórður Friðjónsson, forstjóri OMX
á Íslandi, Halla Tómasdóttir, fram-
kvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Bjorn
Richard Johansen, framkvæmdastjóri
samskiptasviðs Glitnis, og Richard
Thomas, forstöðumaður Kredit-
rannsókna hjá Merrill Lynch.
Fundurinn hefst kl. 8.30 en að hon-
um standa Glitnir, Viðskiptaráð Ís-
lands, Félag viðskipta- og hagfræð-
inga, OMX og Félag um
fjárfestatengsl.
Morgunfundur um
fjármálastorminn
BANDARÍSKI tölvurisinn IBM hef-
ur ákveðið að verja einum milljarði
dollara á ári, um 65 milljörðum ís-
lenskra króna, til að ná fram betri
nýtingu á þeirri orku sem fyrirtækið
notar við framleiðslu sína. Markmiðið
er að orkan nýtist helmingi betur en
nú. Fréttavefur bandaríska blaðsins
New York Times (NYT) greinir frá
þessu nýverið.
Í greininni segir að fjölmörg tækni-
fyrirtæki, sem noti mikla orku, hugsi
á sömu nótum og IBM í sambandi við
orkunotkun. Vegna stærðar IBM og
mikillar orkunotkunar fyrirtækisins
þá veki ákvörðun þess hins vegar sér-
staka athygli.
IBM stefnir að því að ná markmið-
inu um tvöfalt betri nýtingu orkunnar
í hundruðum tölvuvera fyrirtækisins
víðs vegar um heiminn á árinu 2010.
Ætlunin er að ná þessu fram með
bestu mögulegu nýtingu á jafnt vél-
og hugbúnaði. Meðal þess sem gert
verður er að taka í notkun hagstæð-
ustu kælikerfi í vélbúnaðinum, sem
nái fram hámarksnýtingu á orkunni
og eyði engu í óþarfa. Þá er stefnt að
því að koma fyrir hugbúnaði sem sér
til þess að slökkt verði tímabundið á
öllum þeim vélum sem ekki eru í
beinni notkun í tiltekinn tíma. Einnig
verður leitast við að tryggja sem
besta nýtingu á loftræstingu í tölvu-
verunum.
Samkvæmt frétt NYT ætlar IBM
ekki einungis að taka upp breytta
hætti í eigin tölvuverum heldur einnig
beita sér fyrir því að viðskiptavinir
fyrirtækisins geri slíkt hið sama þar
sem hægt er.
Netið kallar á meiri orku
Í frétt NYT segir að stóraukin
notkun á Netinu hafi kallað á mikla
aukningu í tölvubúnaði víðs vegar um
heiminn á síðastliðnum áratug. Orku-
notkun þessu samfara hafi einnig
aukist umtalsvert og kostnaðurinn við
orkuöflunina sé farinn að skipta miklu
máli fyrir mörg fyrirtæki. Hefur NYT
eftir William M. Zeitler, aðstoðarfor-
stjóra hjá IBM, að stjórnendur fyr-
irtækisins telji það bráðnauðsynlegt
fyrir fyrirtækið að taka á þessu
vandamáli, og það eigi einnig við um
fjölmarga viðskiptavini þess.
Reuters
IBM Samuel Palmisano, forstjóri IBM, flytur erindi á viðskiptaþingi í Nýju-Delí á Indlandi á dögunum.
IBM stefnir að helm-
ingi betri orkunýtingu
FJÖLDI umsókna í meistaranám við
viðskipta- og hagfræðideild Háskóla
Íslands er vel á fjórða hundrað og er
það þriðjungsaukning frá síðasta ári.
Í tilkynningu frá skólanum segir að
þessi fjöldi umsókna staðfesti hve
uppbygging meistaranámsins við
deildina hafi gengið vel undanfarin
ár. Hún hafi gegnt forystuhlutverki í
menntun stjórnenda og sérfræðinga
á sviði viðskiptafræði og hagfræði og
rannsóknum á sviði þessara greina í
nær sjö áratugi. Undanfarin ár hafi
orðið örar breytingar á starfi deild-
arinnar.
Meistaranámið var tekið upp árið
1991, fyrst í hagfræði og nokkrum ár-
um síðar í viðskiptafræði. Í dag eru í
boði tíu námsleiðir á meistarastigi.
Um er að ræða fjármál fyrirtækja,
fjármálahagfræði, hagfræði, heilsu-
hagfræði, mannauðsstjórnun, mark-
aðsfræði og alþjóðaviðskipti, reikn-
ingshald og endurskoðun, stjórnun
og stefnumótun, viðskiptafræði og
MBA-nám.
Morgunblaðið/Kristinn
Sókn Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands er í mikilli sókn, líkt og
þessir nemendur skólans er brugðu sér í fótbolta á skólalóðinni.
Metaðsókn í meistara-
nám í viðskiptafræði
BANDARÍSKA stórfyrirtækið
General Electric (GE) ætlar að hasla
sér völl í fjármögnun kaupa á evr-
ópskum fótboltafélögum. Hefur fyr-
irtækið hafið samstarf við breskt
ráðgjafarfyrirtæki, Hermes Sports
Partners, til að sinna þessu verkefni.
GE ætlar ekki að standa í rekstri
fótboltaklúbba heldur fyrst og
fremst að sjá um fjármögnun kaupa
á þeim. Fyrirtækið kom að kaupum
bandaríska olíuframleiðandans Mal-
com Glazers þegar hann keypti Man-
chester United fyrir 790 milljón
pund á árinu 2005.
Haft er eftir Harry Philip hjá Her-
mes-ráðgjafarfyrirtækinu, í breska
blaðinu Telegraph, að allt bendi til
þess að framhald verði á því að
helstu fótboltalið á Bretlandi og í
Evrópu almennt muni skipta um
hendur á komandi árum. Tækifæri
GE og Hermes til að koma að þeim
málum séu mikil.
General
Electric í
fótboltann
Reuters
Fótbolti Wayne Rooney og Petr
Cech eigast við í bikarúrslitunum
um helgina en General Electric
kom að kaupum Glazers á Man.
Utd. á sínum tíma.