Morgunblaðið - 21.05.2007, Side 18

Morgunblaðið - 21.05.2007, Side 18
daglegt líf 18 MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Fyrrverandi húsvörður erOlgeir Engilbertsson titl-aður í símaskránni enmörgum þætti starfs- heitið sennilega ekki fullnægjandi enda manninum margt til lista lagt og hann langt frá því að vera sestur í helgan stein. Í hlutverki bingóstjór- ans er Olgeir hvað eftirminnileg- astur Rangæingum eldri en tvævet- ur – minningin um Inga seytján gleymist seint – á meðan þeir hinir yngri munu kannski frekar kynnast bóndanum í Nefsholti á nýlegri heimasíðu hans, nefsholt.com. Eftir góða skemmtun af pistlum, ýmsum fróðleik og gömlum og nýj- um myndum finnst blaðamanni við hæfi að slá á þráðinn til höfundarins. „Það er ágætt ef einhver getur haft gaman af þessu,“ segir Olgeir. „Ég var að fóðra kindur fyrir nágranna minn, Jón Ágúst Reynisson í Selási, sem er mikill tölvumaður, og það komst til tals að það gæti verið gam- an að geyma myndir þannig að hann bjó síðuna til fyrir mig. Myndirnar ættu a.m.k. ekki að glatast þegar þær eru komnir þarna upp í loftið,“ segir hann vísandi til netsins. „Í fullu starfi við að gera ekki neitt“ Fjársjóður liggur á heimasíðu Ol- geirs, t.a.m. ættu margir fjallmenn á Landmannaafrétti fyrr og síðar að kannast við sig, í máli og myndum. Afrétturinn er honum mikið hjart- ans mál og hefur hann í áratugi farið á fjall. „Ég er líka með nokkrar ferðasögur þarna inni, mér datt í hug að skrifa um erfiðleikaferðina ’79 á fjalli því þetta náttúrlega gleymist annars. Þannig að maður er í fullu starfi við að gera ekki neitt. Ég er hættur að vinna fast en það fylgir því alltaf heilmikil vinna að vera á jörðum.“ Hann og kona hans, Guðný Finna Benediktsdóttir, halda 20–30 kindur sem hann segir rúm- lega í heimilið. Bloggið end- urspeglar einmitt lífið í sveitinni – eða vill hann kalla þetta blogg? „Það má kannski segja það en þetta er ekki formleg bloggsíða, ég set þetta undir fréttir.“ Hann auglýsir eftir fróðleik um Landréttir sem hann viðar nú að sér fyrir ferðaþjón- ustufólk á Leirubakka í Landsveit en hann segist ekki enn hafa fundið myndir frá því fyrir 1942 þegar hætt var að reka á fjall vegna sauðfjárveikivarna, til 1961. „Það væri gaman ef einhver ætti myndir frá fyrri tíð en þá var þarna tjald og dansað. Ég er búinn að skrifa svo- litla grein um Landréttir og Fjalla- baksleiðina, eins hef ég skrifað um áhrif eldgosa á smalamennskur og nýtingu afréttarins.“ Olgeir, Geimstöðin og afrétturinn Olgeir liggur ekki á skoðunum sínum um það sem hann kallar „náttúruverndarkjaftæðið“. Hann segir það líta út fyrir að sumt fólk haldi að enn séu milljón fjár á Ís- landi. „Ég þykist vera alveg eins mikill náttúruverndarmaður og hver annar, öfgarnar eru svo svakalegar. Mörg hundruð þúsund ferðamanna fara um landið og stöðugt verður að búa til göngustíga því þetta er ofsa- legur átroðningur, eins og inni í Laugum. Aðallandskemmdirnar sem ég sé í sveitum eru þar sem allt- of mörg hross hafa troðið niður í litlum hólfum. Við fórum í daginn hring upp í Tungur og niður um Grímsnes og sá ég kindur á þremur stöðum en það voru víða hross.“ Svo virðist sem Olgeir, Land- mannaafréttur og Geimstöðin renni saman í eitt á haustin en Geimstöðin er forláta Vípon (Dodge Weapon), árgerð 1953, í eigu Olgeirs. „Geim- stöðin er á fornbílaskrá og ég hef farið á honum á fjall frá 1977 og þar áður á öðrum eldri frá 1964. Núna er ég bara í því að flytja dótið enda æði mikið hlass en ég er hættur að fara í leitir, enda farinn að eldast og mæð- ast. Við förum alltaf á bílnum inn í Jökulgil ef það er mögulegt, til þess að gefa kaffi, og venjulega er slatti af fólki með. Hér er ekki vandamál að manna þessar ferðir og það verð- ur oft að neita mönnum. Þetta er eins og fótboltalið – dugleg liðsheild hefur allt að segja en það er alltaf einhver breyting á mannskapnum og einhvern tímann gefst maður upp. Ég held það komi nú einhver í staðinn!“ segir Olgeir með sínum sérstöku áherslum. Hann segir reyndar ekki allra að taka að sér hlutverk Víponsins. „Það er ekki gaman að vera með fína bíla í þessu og dröslast með blauta menn og hunda. Bíllinn minn hefur ennþá staðið sig en önnur hliðin er þó að verða alveg ónýt og uppistöðurnar ryðgaðar. Það vantar bara einhverja styrktaraðila til að leggja í viðgerð því hún stenst örugglega enga hag- fræði. Ég sagði einu sinni í gríni að mig vantaði bara auglýsingu utan á bílinn. Allt er orðið í boði einhvers – föt þáttastjórnenda eru frá hinu og þessu fyrirtækinu – þess vegna sagði ég eitt sinn á bingói eftir að hafa kynnt hver gæfi vinningana: En fötin okkar Tobba eru frá hinum og þessum. Það var að sjálfsögðu hlegið að því.“ Olgeir og fjölskylda hans vinna að því að stika gönguleið frá Land- mannalaugum og niður á Rjúpna- velli vestan við Heklu í samstarfi við rekstraraðila á svæðinu en leiðin liggur um Landmannahelli og Áfangagil. „Þetta er mjög sniðug leið og hægt að fara þetta í áföngum. Þetta er náttúrlega það svæði sem maður þekkir best en auðvitað eru ýmis flott svæði í nágrenninu, t.d. á Holtamannaafrétti.“ Sá afréttur liggur að Þjórsá sem er mikið í um- ræðunni þessa dagana. „Maður er auðvitað beggja blands með virkjun í neðri hluta Þjórsár en ef það væru engar virkjanir komnar eða rann- sóknir gerðar hérna inn frá þá veit ég ekki hvort það væri enn búið að brúa Tungnaá. Það verður nátt- úrlega alltaf rask af lónum en þegar ekkert má hreyfa á einum stað er vísað á annan – en þá má ekkert gera þar. Þá er vísað á jarðhita sem þýðir að einhver brennisteinslykt og mengun drekkir ykkur þarna í Reykjavík.“ Hægt hefur verið að fylgjast með framvindunni hjá farfuglunum á nefsholt.com þar sem fugl gægist inn í nánast hverja færslu. Daginn fyrir viðtalið flaug sægur af gæs og álft í norðurátt sem mun merkja hlýrri daga. Olgeir les í náttúruna eins og bændum er lagið; nýleg færsla segir frá 15 stiga hita á Suð- urlandi, maríuerlu við fjárhúsið, flugvelli í Vatnsmýri og grænum svæðum andspænis íbúðablokkum. thuridur@mbl.is Morgunblaðið/RAX Fjársjóður Olgeir Engilbertsson horfir hér inn í Geimstöðina, margreynda Víponinn sinn, en í sameiningu hafa þeir flutt „blauta menn og hunda“ í ára- tugi á Landmannaafrétti og þar á meðal ljósmyndara Morgunblaðsins. Blogg í boði Olgeirs í Nefsholti Allir sem hafa komið á Laugaland í Holtum hafa séð hann, margir Sunn- lendingar þekkja hann og Víponinn og hann eru samofnir Landmanna- afrétti. Þuríður Magn- úsína Björnsdóttir ræddi við bóndann og blogg- arann Olgeir í Nefsholti. TENGLAR ..................................................... nefsholt.com HÚSHJÁLP, kokkur, bílstjóri, húsvörður og framkvæmdastjóri fjölskyldunnar í einni og sömu manneskjunni. Ef hin dæmigerða heimavinnandi húsmóðir í Bandaríkjunum fengi borgað fyrir vinnu sína myndi hún þéna meira en átta milljónir á ári sam- kvæmt nýrri bandarískri rannsókn sem Aft- enposten greinir frá. Í rannsókninni hefur verið reiknað út að verkefni húsmóðurinnar taki yfir tíu starfs- greinar því í henni mætast húshjálp, kokk- ur, leikskólakennari, starfsmaður í þvotta- húsi, bílstjóri, húsvörður, tölvuráðgjafi, vélstjóri, framkvæmdastjóri og sálfræð- ingur. Vinnudagur dæmigerðrar heimavinnandi húsmóðir er aukinheldur mun lengri en gengur og gerist, heilir 92 tímar á viku. Í rannsókninni eru 40 þeirra grunnvinna en hinir 52 tímarnir reiknast sem yfirvinna. Móðir sem vinnur fulla vinnu utan heimilis er hins vegar talin vinna heimilisstörf að andvirði 5 milljóna króna árlega að með- altali. Rannsóknin byggist á svörum frá 26.000 heimavinnandi húsmæðrum og 14.000 mæðrum sem að auki vinna utan heimilis. Þá hafa eldri rannsóknir leitt í ljós að vinna móður er meira virði í beinhörðum pen- ingum en vinna föður. Húsmóðurstarfið átta milljóna virði Morgunblaðið/Golli Vinnuþjarkar Heimavinnandi húsmæður strita meir en margan grunar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.