Morgunblaðið - 21.05.2007, Side 19

Morgunblaðið - 21.05.2007, Side 19
fjármál heimilanna MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2007 19 föstudag til að fá skýr- ingu á því hvers vegna ekki hefði verið staðið við gert samkomulag. Stúlkan, sem ansaði að þessu sinni, sagðist ætla að athuga málið og hafa samband fljótlega. Það gekk ekki eftir á föstu- dag, ekki heldur á laug- ardag og því síður í gær. Ekki þýddi heldur að hringja í fyrirtækið því símtölum var ekki svar- að. Ekki beint í sam- ræmi við upplýsingar á vefsíðu fyrirtækisins, þar sem meðal annar stendur að fyrirtækið veiti bestu þjónustuna. x x x Unga móðirin sagði Víkverjaþessa sögu og frá samskiptum sínum við umrætt fyrirtæki. Hún sagði að hún sætti sig ekki við svona framkomu og slíka „þjónustu“ en væri ráðþrota og vissi ekki hvert hún ætti að snúa sér til að vekja athygli á þessum svikum. Henni var heitt í hamsi og lái henni hver sem vill. Ekki vantar lýsingarorðin á vefsíðu umrædds fyrirtækis, en eftir að hafa heyrt fyrrnefnda sögu af samskiptum við það hljóma þau eins og hjóm eitt og eiga ekkert skylt við sum- arleikjagleði og sprell. Sumarleikir og sprellfylgja gjarnan hækkandi sól og al- mennt má segja að börnin bíði spennt eftir þessum árstíma. Að fá tækifæri til að leika sér í hoppkastala jafnast jafnvel á við jólin á sumum bæjum. Með það í huga ákvað ung móðir í Hafnarfirði að gera vel við son sinn á níu ára afmæli hans á uppstigningardag, hafði samband í síma við fyrirtæki sem leigir meðal annars hopp- kastala og gekk frá pöntun á einum slíkum. Ákveðið var að starfsmenn fyrirtækisins kæmu með gripinn klukkan níu að morgni en þegar ekkert bólaði á þeim um 20 mínútum síðar hringdi konan í fyr- irtækið. Stúlkan, sem ansaði, sagðist ætla að athuga málið og hringja aftur. Það símtal kom aldrei og ekki var svarað hjá fyrirtækinu meira þann daginn. Strákurinn hafði meðal ann- ars boðið öllum bekkjarsystkinum sínum í afmælið og biðu krakkarnir spenntir eftir hoppkastalanum sem aldrei kom. Þeim var ekki skemmt. x x x Móðirin var ekki ánægð með gangmála og hringdi í fyrirtækið á      víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Hjá fólki, er ekki kann meðfé að fara, gengur flest átréfótum. Það kemstfyrr eða síðar í vand- ræði, sem geta bakað sjálfu því og fjölskyldu þess óbætanlegt tjón, seg- ir í inngangi bókarinnar Hvernig get ég búið mínu borgið?. Ef þessi orð þóttu eiga vel við á Íslandi fyrir 45 árum, hvernig ríma þau þá við nú- tímann? Svari nú hver fyrir sig. Og nú hefst predikunin, sem í ,,Hvernig get ég búi mínu borgið?“ er vita- skuld nokkuð áberandi, enda um kennslubók að ræða. Þar er sko messað um að fólk þurfi að kunna skil á ýmsum fjárhagslegum stað- reyndum og ekkert verið að tala undir rós. ,,Óðar en það [unga fólkið ]fer að vinna sér inn peninga, verður meiri þörf en áður þekkingar og hygginda í fjármálum. Enn nauðsynlegri verð- ur forsjálni í þessum efnum, þegar að hjónabandi og heimilisstofnun kemur.“ Nokkrar fjárhags- legar lífsreglur Svarið við spurningunni um hvort forsjálni í þessum efnum sé raun- verulega nauðsynleg er einfaldlega svarað svona: ,,Mjög fáir menn hafa svo miklar tekjur, að þeir geti gert allt sem þeir telja sig nauðsynlega þurfa að gera, og þaðan af síður allt sem þá langar til að gera. Flestir verða að neita sér um margt og verða að láta sér nægja brýnustu nauðsynjar. Í þessu liggur vandinn.“ Þessi messuorð gæti margur nú- tímamaðurinn áreiðanlega gert að sínum og stytt um leið sjálfkrafa og án mikillar fyrirhafnar skuldahal- ann. Í sumum tilfellum getur það nefnilega verið svona einfalt að fá búi sínu borgið. Í bókinni er það áréttað að hæfi- leikinn til að fara vel og skynsamlega með fjármuni sína sé sjaldnast áskapaður og til þess að sá hæfileiki nái góðum þroska er gert ráð fyrir víðtækri þekkingu og þjálfun, því fyrr, því betra. Bent er á nokkrar góðar fjárhagslegar lífsreglur eins og sparnað. ,,Sparnaður er nauðsyn- legasta skilyrði þess, að menn geti komið fjárhag sínum í gott horf. Þeir einir, sem eiga sparifé upp á að hlaupa, geta horfzt í augu við ýmiss konar erfiðleika, sem flestir menn lenda í fyrr eða síðar á ævinni. Spari- fjáreign vekur þá þægilegu tilfinn- ingu í brjósti manna að þeir séu óháðir samborgurum sínum. Menn þurfa ekki að leita hjálpar til vina sinna en ,,blóðugt er hjarta, þeim er biðja skal,“ og svo getur farið, að ,,versnar allur vinskapur.““ Já, sum sannindi standa sko alveg tímans tönn og eiga jafnvel enn bet- ur við í íslensku samfélagi nær 60 ár- um eftir að þau birtust fyrst á prenti! Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Faglegar Þær bera sig faglega að matreiðslunni, stelpurnar í Húsmæðraskóla Reykjavíkur árið 1972. Nútíminn Fólk á öllum aldri í nútímanum gæti haft gagn af því að glugga í þessa rúmlega 50 ára gömlu bók. Hagkvæmt Fyrir 35 árum lærðu ungar stúlkur að strauja föt, pressa og bursta og gera jafnvel við saumsprettur enda hagkvæmt fyrir heimilið. Slíkir gjörningar hafa síðan verið á hröðu undanhaldi. Hvernig fæ ég búi mínu borgið? Heimilishagfræði er orð sem varla þekkist í ís- lenskri umræðu en þó snýst líf flestra einmitt um hana. Það eru ekki margir áratugir síðan orðið var tamt þeim sem námu við húsmæðra- skólana hér á landi. Kennslubókina í þeim fræðum rak óvænt á fjörur Unnar H. Jóhannsdóttur en bókin lumar á mörgum sígild- um sannindum. Um bókina „Hvernig get ég búið mínu borgið?“ kom fyrst út árið 1950 hjá Ísa- foldarprentsmiðju. Hún var notuð sem kennslubók í heimilishagfræði og kennd við húsmæðraskólana hér á landi en á bókarkápu er einnig mælt með henni sem nytsamlegri handbók fyrir heimilin, enda veiti hún margs konar fræðslu um t.d. skatta, tryggingar, íbúðarval, hús- hitun, fæðiskostnað og fatakaup. Árið 1962 var hún endurútgefin og er það sú útgáfa sem stuðst er við hér. Höfundur bókarinnar var sænskur doktor, Orvar Josepshsson, að nafni en á frummálinu nefnd- ist bókin „Hur man sköter sin ekonomi.“ Þar í landi var hún notuð sem kennslubók í heimilishagfræði í gagnfræðaskólum og ýmsum öðrum skólum. Þýðendur bókarinnar, þau Sigríður Haraldsdóttir og Arnljótur Guðmundsson, endursömdu þó marga kafla bókarinnar og staðfærðu efni hennar að íslenskum aðstæðum. „Ég minnist þess nú ekki að efni bókarinnar hafi haft mikil áhrif á mig,“ segir Björk Bjarkadóttir og hlær en hún las bókina „Hvernig fæ ég búi mínu borgið?“ í Húsmæðraskólanum á Varmalandi skólaárið 1968-1969. „Ég var þá 18 ára og hafði ekki mikinn áhuga á viðfangsefninu en lærði það eins og annað og tók prófið með ágætum árangri að mig minnir. Það var svo margt annað sem við stelpurnar höfðum áhuga á en heim- ilisstörfum á þessum árum og okkur fannst þetta nú dálítið gamaldags.“ Björk átti nokkrum áratugum síðar eftir fara í skóla og læra viðskipta- fræði. „Ég starfaði sem fangavörður í fjölmörg ár og skellti mér svo í Há- skólann í Reykjavík í viðskiptafræði um fimmtugt. Háskólinn í Reykjavík er besti skólinn, mjög nútímalegur og skemmtilegur,“ segir Björk sem er þá bæði með gömlu sannindin og þau nýju á hreinu. Húsmæðraskólinn á Varmalandi ólíkur HR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.