Morgunblaðið - 21.05.2007, Page 40
MÁNUDAGUR 21. MAÍ 141. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Mikilvægar niðurstöður
Bandarísku læknasamtökin hafa
heiðrað Gunnar H. Gíslason, lækni í
Kaupmannahöfn, og samstarfsmenn
hans og segja að niðurstöður rann-
sókna þeirra á notkun gigtarlyfja séu
þær næstmikilvægustu sem birtar
hafi verið opinberlega á síðasta ári. »
Forsíða
Málefnasamningur
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar voru á Þingvöllum um
helgina og funduðu um mögulegt
stjórnarsamstarf flokkanna. For-
menn þeirra, Geir H. Haarde og
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sögðu
að viðræðurnar hefðu gengið vel og
fyrst og fremst væri verið að vinna
að orðalagi stjórnarsáttmála. » 2
Ungir gerendur
Kynferðisafbrot þar sem ung-
menni eru í hlutverki geranda eru
vaxandi vandamál í nútímasamfélagi
og staðreyndin er sú að ungmenni
eru sá hópur gerenda sem fer örast
vaxandi í kynferðisbrotamálum. Ro-
bert E. Longo flytur erindi um málið
í vikunni. » 4
Harmleikur
Fjölskylda 75 ára gamallar banda-
rískrar konu varð vitni að því ásamt
fleirum þegar brimalda hreif konuna
á haf út úr Reynisfjöru með þeim af-
leiðingum að hún drukknaði og tveir
ferðafélagar hennar lentu í hættu við
björgunartilraunir. » 6
Aukinn vatnsbúskapur
Með því að styrkja gróðurþekju
Íslands verður vatnsbúskapur fram-
tíðarinnar efldur til muna og því ber
að huga að þessum ávinningi þegar
rætt er um landgræðslu og skógrækt
sem leið til að binda koldíoxíð. Þetta
segir Andrés Arnalds, fagmálastjóri
Landgræðslu ríkisins. » 8
SKOÐANIR»
Ljósvaki: Kosningakerfi …?
Staksteinar: Breytt afstaða?
Forystugreinar: Flokkarnir og
landbúnaðarpólitíkin | Rússland og
nágrannarnir
UMRÆÐAN»
Lög eða skynsemi?
Furðuskrif Morgunblaðsins
Hvað er DRM?
Kjósum Kristínu Á. Guðmundsdóttur
Heitast 10° C | Kaldast 1° C
Suðlæg átt á landinu,
víða 5-8 metrar á sek-
úndu. Skúrir eða hagl-
él sunnan og vestan til.
» 10
Martin Regal fór á
Cymbeline í með-
förum Cheek by
Jowl og fannst eitt-
hvað skorta á
töfrana. » 36
LEIKLIST»
Bretarnir
töfruðu ekki
LISTIR»
Skiptar skoðanir um
veggjakrot. » 37
www.allmusic.com
er helsta uppflettirit
tónlistaráhuga-
manna og -fræðinga
á vefnum nú um
stundir. » 39
VEFSÍÐA VIKUNNAR»
Tónlistar-
vefsíða
TÓNLEIKAR»
Goran Bregovic var
skemmtilegur. » 35
FÓLK»
Jakob Frímann eignaðist
aðra dóttur. » 33
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Valur sigraði Fylki 2:1
2. Longoria erfið
3. Mikil stemning í Laugardalshöll
4. Árni og Björn færast niður …
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
KONUR eru nú í meirihluta í stjórn Skák-
sambands Íslands og telur Guðfríður Lilja Grét-
arsdóttir, sem var endurkjörin formaður sam-
bandsins á aðalfundinum um helgina, að það sé
einsdæmi í skákheiminum. Framkvæmdastjóri
sambandsins er einnig kona, Ásdís Bragadóttir.
Frábært fólk
Guðfríður Lilja segir að hún hafi ætlað að
hætta sem formaður en hún hafi fengið miklar
áskoranir um að halda áfram í eitt ár og hún
hafi orðið við þeirri beiðni. Hún segir að hún
hafi unnið með frábæru fólki í stjórninni og
starfið hafi gengið mjög vel en miklu máli skipti
fyrir hreyfinguna að fleiri konur séu virkar inn-
an hennar. „Það skiptir langmestu máli að hafa
gott fólk og það skiptir líka máli að fleiri konur
láti til sín taka,“ segir hún.
Fylgja börnunum
Guðrún Sóley Guðjónsdóttir á tvö börn, tví-
tugan son og 14 ára dóttur, sem hafa verið í
skákinni og hefur hún fylgt þeim eftir á þeirri
braut í 15 ár. „Það er tímabært að hafa bein
áhrif á það sem er gert og það sem er ekki
gert,“ segir hún um þá ákvörðun sína að taka
sæti í stjórninni.
Hjördís Bragadóttir hefur verið í varastjórn
undanfarin tvö ár. Hún segir að óskað hafi verið
eftir þátttöku foreldra skákbarna í stjórninni og
hún hafi orðið við þeirri ósk en sonur hennar er
Hjörvar Steinn Grétarsson, einn efnilegasti
skákmaður landsins. „Þetta leggst vel í mig,“
segir Hjördís.
Guðfríður Lilja segir að mikil vinna sé fram-
undan hjá Skáksambandinu, mörg verkefni blasi
við og ekki síst í sambandi við áframhaldandi
uppbyggingarstarf. Stefnt sé að mótahaldi úti á
landi og frekari þátttöku barna- og unglinga í
stórmótum erlendis.
Börnin toga í mæðurnar
Konur í meirihluta í stjórn Skáksambands Íslands í fyrsta skipti í sögunni
Áframhaldandi uppbyggingarstarf framundan og mörg verkefni ráðgerð
Morgunblaðið/Ómar
Skákdrottningar Frá vinstri Guðrún Sóley Guð-
jónsdóttir, Ásdís Bragadóttir, Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir og Hjördís Björk Birgisdóttir.
Í HNOTSKURN
» Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, formaðurSkáksambandsins, bar fram tillögu um
næstu stjórn og var hún samþykkt.
» Í stjórninni með henni eru HelliskonurnarHarpa Ingólfsdóttir, fyrrverandi Íslands-
meistari í skák, Hjördís Birgisdóttir og Guð-
rún Sóley Guðjónsdóttir.
» Auk þeirra eru í stjórninni Óttar FelixHauksson frá Taflfélagi Reykjavíkur, Karl
Gauti Hjaltason úr Taflfélagi Vestmannaeyja
og Björn Þorfinnsson úr Helli.
ÞRJÁR nýjar ís-
lenskar óperur
sem eru í smíð-
um voru kynntar
á Óperudeiglu
Íslensku óper-
unnar á föstu-
daginn. Óperu-
deiglan var
stofnuð fyrir um
einu og hálfu ári,
í þeim tilgangi að skapa vettvang
fyrir tilraunastarf og nýsköpun á
sviði óperulistar og stuðla að því að
samdar verði nýjar óperur fyrir al-
menning.
„Óperuformið hefur þörf fyrir
nýjar óperur því annars á það á
hættu að verða gamaldags,“ segir
Daníel Bjarnason tónskáld sem sér
um framkvæmd Óperudeiglunnar
ásamt Ingólfi Níels Árnasyni. Óp-
erudeiglan var haldin í tengslum
við óperustjóraþing sem haldið var
í Íslensku óperunni en þar voru við-
staddir óperustjórar annars staðar
af Norðurlöndum og frá Eystra-
saltsríkjunum. Yfirskrift þingsins í
ár var „Nýsmíði ópera“. | 14
Þrjár nýj-
ar íslensk-
ar óperur
Óperudeiglan ýtir
undir nýsköpun
Daníel Bjarnason
LIÐSMENN hljómsveitarinnar frægu U2 mættu á
rauða dregilinn á kvikmyndahátíðinni í Cannes til að
kynna þrívíddarmyndina U2 3D sem sýnd er á hátíðinni
og er upptaka frá tónleikum sveitarinnar.
Gömlu brýnin létu sér ekki nægja að ganga rauða
dregilinn heldur voru hljóðfærin dregin fram á honum
miðjum og teknir nokkrir vel valdir slagarar, hátíð-
argestum til mikillar gleði.
Með U2 á myndinni er Catherine Owens sem leik-
stýrði kvikmyndinni ásamt Mark Pellington. | 34, 36
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
U2 á rauða dreglinum í Cannes