Morgunblaðið - 27.06.2007, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FORMÚLU 1-kappinn Nico Ros-
berg var staddur hér á landi í gær
og sýndi hann listir sínar við
Smáralind en þetta er í fyrsta
sinn sem vél alvöru formúlubíls er
þanin hér á landi.
Nico er finnskur í aðra ættina
og þýskur í hina en hann ólst að
mestu upp í Mónakó og segist
hann hafa sofnað við hljóðið í
formúlubílum og vaknað við sama
hljóð til að fara í skólann. „Faðir
minn keppti í Formúlu 1 og þann-
ig byrjaði ég í þessu,“ segir Nico
en faðir hans, Keke Rosberg, er
finnskur og fyrrverandi heims-
meistari í formúluakstri. Hann
segir miklar kröfur gerðar til sín
vegna föður síns og að hann vilji
að sjálfsögðu feta í fótspor hans
og vinna heimsmeistaratitilinn.
Hann er yngsti kappakstursmað-
urinn í formúlunni en segir það
ekki há sér neitt.
Formúlubíllinn sem Nico sýndi í
gær er 2007-útgáfa Williams sem
notuð er í tilraunaakstri Williams
um allan heim en hann vegur 600
kg og honum fylgir 20 manna
starfslið ásamt 8 tonnum af bún-
aði.
„Dagskráin mín er mjög þétt –
ég kom seint í gærkvöldi [í fyrra-
kvöld] og fer í fyrramálið,“ segir
Nico en bætir við að þrátt fyrir að
hann sé viss um að Ísland sé þess
virði að skoða það þá muni hann
ávallt velja að fara heim til fjöl-
skyldunnar og slaka á ef hann
eigi þess kost, en hann á kærustu
sem bíður hans í Mónakó. „Ég
ætla þó út að borða í kvöld [í gær]
með öllum bifvélavirkjunum og
við ætlum að hafa það gott en fara
snemma að sofa,“ segir Nico.
„Það er mikið um rallí í Finn-
landi en ég held að faðir minn hafi
þó markað upphafið á sögu
finnskra ökuþóra í formúlunni,“
segir hann en segist þó ekki vita
mikið um Finnland.
Er með hraðann í blóðinu
Morgunblaðið/Friðrik
Þungur Formúlubíllinn sem Nico sýndi í gær er 2007-útgáfa Williams sem notuð er í tilraunaakstri Williams um allan heim. Bíllinn vegur 600 kíló.
Nico Rosberg, ökuþór í Formúlu eitt, sýndi takta í Smáralindinni í gær
Rosberg Vill feta í fótspor föður
síns og verða heimsmeistari.
Formúluökumaður sýnir
listir sínar við Smáralind
VEFVARP mbl.is
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
„ÞAÐ hafa orðið ótrúlega mörg slys
á sundstöðum á þessu ári og nú fer
sá tími í hönd að fólk ferðast til
nýrra staða sem það þekkir ekki
vel. Þess vegna verður fólk að vera
sér mjög meðvitandi um hætturn-
ar,“ segir Sigrún A. Þorsteinsdótt-
ir, sviðsstjóri slysavarnasviðs
Slysavarnafélagsins Landsbjargar,
um þau ítrekuðu sundlaugarslys
sem orðið hafa að undaförnu.
„Það er mikilvægt að foreldrar
séu sér vel meðvitandi um hvað
börn þeirra eru að gera og missi
ekki sjónar á þeim. Það vill svo til
að drukknun er hljóðlátt slys sem
gerir ekki boð á undan sér. Fólk
ætti að nota öryggisbúnað á ósynd
börn, s.s. armkúta og slíkur bún-
aður ætti alltaf að vera á börnunum.
Það ætti ekki að leyfa börnunum að
taka þá af sér þegar farið er t.d. í
vaðlaugina. Fólk ætti ekki að hugsa
sem svo að ekkert komi fyrir „mig
og mína“. Þó að sundstaðir hafi
ákveðnum skyldum að gegna og
vinni eftir öryggisreglum, er aldrei
hægt að leggja ábyrgðina alfarið á
starfsfólkið.“
Fjögur börn hætt komin
Að minnsta kosti fjögur börn
hafa það sem af er árinu verið mjög
hætt komin í sundlaugum en bjarg-
að á síðustu stundu með miklu snar-
ræði. Hefur þannig tekist að af-
stýra dauðaslysum á svæðum sem
allajafna eru álitin skemmti- og
leiksvæði en geta orðið lífshættuleg
eins og dæmin sanna. Slysin hafa
orðið í laugum á höfuðborgarsvæð-
inu og nú síðast á Akureyri þar sem
tókst að bjarga sex ára dreng frá
drukknun á mánudag. Alvarlegasta
slysið varð þó í Sundlaug Kópavogs
í vor þegar 15 ára unglingur fannst
meðvitundarlaus á laugarbotni og
hefur legið á sjúkrahúsi síðan. Voru
tildrög málsins í rannsókn hjá lög-
reglunni vikum saman og að lokum
fékkst sú niðurstaða að enginn
hefði séð tildrög slyssins. Í eftirlits-
myndavélum sást drengurinn held-
ur ekki. Það var hins vegar sund-
kennari á laugarbakka sem fyrstur
sá að ekki var allt með felldu.
Rúmum mánuði síðar varð annað
sundlaugarslys, að þessu sinni í
Mosfellsbæ. Þá var það 2 ára barn
sem fannst í svokallaðri lendingar-
laug fyrir rennibraut. Sundlaugar-
gestur kom fyrstur auga á barnið
en skömmu síðar kom sundlaugar-
vörður og lífgaði barnið við.
Ekki leið mánuður uns næsta at-
vik átti sér stað, nú á Ylströndinni í
Nauthólsvík. Þá var átta ára stúlka
hætt komin þegar hún missti fót-
anna úti í lóninu við ströndina.
Henni tókst þó að ná taki á örygg-
islínu sem liggur þvert yfir lónið og
komast aftur til lands. Tæpri viku
síðar, þ.e. í fyrradag, varð síðan enn
eitt slysið, á Akureyri. Þar var sex
ára drengur hætt kominn en bjarg-
að af viðstöddum. Svo vildi til að
meðal sundlaugargesta voru þrír
sérfræðingar sem lífguðu drenginn
við ásamt sundlaugarstarfsfólki.
Foreldrar fyrst og fremst
ábyrgir fyrir börnum í sundi
Í HNOTSKURN
»26. apríl var 15 ára dreng bjargað af laugarbotni SundlaugarKópavogs.
»29. maí var tveggja ára barni bjargað af laugarbotni í Lága-fellslaug í Mosfellsbæ.
»19. júní var 8 ára stúlka hætt komin í Nauthólsvík.
»25. júní var sex ára dreng bjargað frá drukknun í sundlaugAkureyrar.
Skuggahliðar Sundstaðir skipta flesta miklu máli en eru ekki hættu-
lausir. Ítrekað hefur legið við banaslysum undanfarnar vikur.
AÐALSTEINN Sveinsson, oddviti Þ-lista í
Flóahreppi, segir sveitarstjórnarfund í
næstu viku næsta skref varðandi Urriða-
fossvirkjun, en á nýlegum íbúafundi í
hreppnum kom fram eindregin andstaða við
virkjunina. Aðalsteinn gat lítið sagt til um
það í samtali við Morgunblaðið hvor skipu-
lagstillagan yrði ofan á, með virkjun eða án
hennar. „Það eina sem við höfum samþykkt
er að halda áfram viðræðum við Landsvirkj-
un og að skoða áfram þá möguleika, hver
ávinningur sveitarfélagsins hér gæti orðið.
Ég get ekki séð að viðræðurnar séu komnar
á það plan að menn telji ótvíræðan hag af
virkjuninni,“ sagði hann, en vildi að öðru
leyti ekki tjá sig um hvorn kostinn hann
teldi líklegri.
Aðspurður sagðist Aðalsteinn ekki geta
svarað því beint hvort sveitarstjórnin fari
eftir þeim vilja sem fram kom á íbúafund-
inum. „Við höfum fengið fjölmörg erindi og
ábendingar, aðrar en þær sem komu fram á
fundinum,“ segir hann og telur að mun fleiri
sjónarmið séu uppi í hreppnum en þar komu
fram. Fundurinn hafi aðeins verið einn liður
í því ferli að fá fram skoðanir sem flestra.
Margrét Sigurðardóttir sveitarstjóri
sagði samkomulagið við Landsvirkjun alltaf
hafa lagt áherslu á framkvæmdir sem
kæmu sem flestum íbúum hreppsins til
góða. „En vilji íbúanna kom nokkuð skýrt
fram á fundinum. Sveitarstjórn hlýtur að
skoða það mál alvarlega,“ sagði Margrét að
lokum. Stefnt er að því að auglýsa tillögu að
aðalskipulagi fyrir Flóahrepp nú í sumar.
Fleiri sjónar-
mið uppi í
Flóahreppi
„ÞAÐ er auðvitað eðlilegt að á þessum fundi
séu áberandi raddir þeirra sem eru á móti
virkjuninni. Það kemur ekkert á óvart,“
segir Friðrik Sophusson, forstjóri Lands-
virkjunar, um fund íbúa Flóahrepps í fyrra-
kvöld um aðalskipulag hreppsins og tillögur
Landsvirkjunar um mótvægisaðgerðir
vegna fyrirhugaðrar Urriðafossvirkjunar.
„Við erum í viðræðum við sveitarstjórn-
ina og verðum það áfram til þess að forma
þær mótvægisaðgerðir sem okkur ber að
efna til vegna virkjunarinnar. Vonandi leiða
þær viðræður til niðurstöðu sem verða báð-
um til góðs og fella virkjunina að aðalskipu-
lagi svæðisins,“ sagði Friðrik í gær.
Fróðlegt og gagnlegt
Helgi Bjarnason, verkefnisstjóri hjá
Landsvirkjun, sat fundinn og segir hann
hafa verið gagnlegan fyrir Landsvirkjun.
Fróðlegt hafi verið að heyra sjónarmið
heimamanna. „Það kom í sjálfu sér ekkert
nýtt þarna fram frá okkar sjónarmiði séð en
það var fróðlegt að heyra hljóðið í fólki,“
segir Helgi. Flestir sem tóku til máls lýstu
sig andvíga virkjun en einn var henni með-
mæltur. „Menn báru fyrir sig ýmis sjón-
armið, bæði fagleg rök og tilfinningarök.“
Viðræðum
haldið áfram
SAMTÖKIN Sól á Suðurlandi, Sól í
Straumi og Sól á Suðurnesjum lögðu fram
ályktun á fundi íbúa Flóahrepps í fyrra-
kvöld, þar sem fagnað er samþykkt hrepps-
nefndar Flóahrepps frá þrettánda júní um
að hafa Urriðafossvirkjun ekki inni á að-
alskipulagi sveitarfélagsins. Segja samtökin
að samþykktin sé mikil hvatning til þeirra,
sem vilja verja náttúruna við Þjórsá og
hindra að orka þaðan verði seld til stóriðju.
Segja samtökin að viðbrögð Landsvirkj-
unar við ákvörðun hreppsnefndar um drög
að skipulagstillögu án virkjunar séu ámæl-
isverð. Óeðlilegt sé að skipulagstillögurnar
séu nú orðnar tvær eftir heimsókn Lands-
virkjunar í Flóann.
„Sól á Suðurlandi, Sól í Straumi og Sól á
Suðurnesjum vilja ekki trúa því að hrepps-
nefnd Flóahrepps sé boðið að selja náttúru-
perlur á svæðinu fyrir opinberar fram-
kvæmdir eða þjónustu, hvað þá að
hreppsnefndin gangi að slíkum afarkost-
um.“
Fagna virkj-
unarsamþykkt
♦♦♦
♦♦♦