Morgunblaðið - 27.06.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 27.06.2007, Blaðsíða 20
heilsa 20 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Þrengslin. Á þessum kafla var bíll við bíl og á einum stað var bílaröð- in alveg kyrrstæð. x x x Þeir sem eru að fara ísumarfrí og vita ekki alveg hvað þeir eiga af sér að gera gætu gert ýmislegt leið- inlegra en að skoða skjöl sem bandaríska leyniþjónustan, CIA, lét af hendi í gær. Skjöl- in er hægt að sækja í heild sinni eða fimm pörtum. Skjöl þessi hafa fengið viðurnefnið fjölskylduskartgripirnir, en þeim var safnað saman eftir að James R. Schlesinger fyrirskipaði árið 1973 þegar hann var yfirmaður CIA að safnað yrði saman gögnum um þá starfsemi leyniþjónustunnar, sem talist gæti utan ramma laganna. Bandaríska þjóðskjalasafnið krafðist þess að fá skjölin afhent í krafti upp- lýsingalaga fyrir 15 árum og í gær- morgun afhenti leyniþjónustan þau loks. Talið er ólíklegt að þar muni finnast stórfréttir, en víst er að margt forvitnilegt er í skjölunum um misgjörðir CIA, sem í heimildarleysi hleraði síma andstæðinga Víetnam- stríðsins og ýmissa andófsmanna, braust inn til þeirra og opnaði póst til þeirra. Skyndilega skallsumarið á eftir nokkurra vikna hik og fum. Í fjóra daga hefur ekki aðeins verið sól- ríkt sunnan lands, held- ur hlýtt í veðri, meira að segja strekking- urinn í Vesturbænum hefur verið ylvolgur. Veðrið hefur verið betra en veðurfræð- ingar hafa þorað að spá. Kannski eru þeir með leiðréttingarforrit eins og sumir kosn- ingaspáfræðingarnir, sem gera ráð fyrir því að Sjálfstæðisflokk- urinn fái minna fylgi í kosningum en í skoðanakönnunum og passa sig á að lækka spána sína um nokkur mæli- stig á Celsíuskvarða áður en þeir senda spána frá sér. Það er aldrei að vita. x x x Víkverji var á ferðinni um helginaog ók á sunnudag út úr bænum austur fyrir fjall. Fréttir af umferð- arteppunni, sem myndaðist í Mos- fellsbænum og varð til þess að loka þurfti Hvalfjarðargöngunum svo þau fylltust ekki af kyrrstæðum bílum, hafa haft forgang í fjölmiðlum og lítið farið fyrir því að umferðin var í hægagangi nánast frá Rauðavatni og upp að afleggjaranum gegnum   víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Einar Steinþórsson í Stykkishólmi er ekkikaþólskur maður, en hefur þó gengið á páfafund. Ef til vill er það þess vegna sem hann á auðvelt með að setja sig í spor Blairs, sem fór til fundar við páfann og snerist raunar til kaþólskrar trúar: Þó breytist tímar við brosum enn og svo berast dagsins hljómar; hér áður fyrr gengu okkar menn alla leið suður til Rómar. Yfirgefur Blair sitt bú og beint til Rómar fer’ann; við hlið hans stendur fögur frú þar frið og ró uppsker’ann. Þar kaþólska hann tekur trú vill traust og gleði finna; eflaust Blair þar ætlar nú að iðrast gjörða sinna. Bjarni frá Gröf taldi sig vita hvar hann hefði Guð: Ég á ’ann trúi ekki baun enda þekki ég kauðann og ég fæ í ellilaun ekkert nema dauðann. Einar Jochumsson orti: Biblían er bók svo römm að börn til leiðir vantrúar. Hún er meiri höfuðskömm og hneyksli en ljóðin Símonar. VÍSNAHORNIÐ Af Blair og páfanum pebl@mbl.is Ég hef unnið sjálfstætt sem sjúkra-þjálfari við að endurhæfa fólk meðgigt en stærstur hluti skjólstæð-inga minna hefur verið haldinn vefjagigt. Lengi vel átti þessi sjúkdómsgrein- ing undir högg að sækja og hún var jafnvel ekki viðurkennd. Það er sem betur fer að breytast,“ segir Sigrún Baldursdóttir sem í vor opnaði vefinn vefjagigt.is. „Þetta er meistaraverkefni mitt í lýð- heilsufræðum við Háskólann í Reykjavík. Þörfin á fræðsluefni fyrir almenning á íslensku um vefjagigt var fyrir hendi og ég hafði lengi gengið með þennan draum í maganum. Þeir sem þjást af vefjagigt eru fjöldamargir, jafnvel 20 þúsund á Íslandi, og oft hefur ganga þeirra um heilbrigðiskerfið verið nokkuð löng áður en þeir fá rétta greiningu því sjúkdómseinkennin eru mörg. Mér fannst því mikilvægt að safna saman á vefnum öllum helstu upplýsingum um heilkenni vefjagigtar, tengda sjúkdóma og helstu meðferðir því þegar vefjagigt er annars vegar þarf oftar að líta frekar á heildina en einstök atriði. Upplýsingarnar á vefnum eru byggðar á niðurstöðum vísindarannsókna og almennum fróðleik byggðum á reynslu vefjagigtarfólks og fagaðila sem hafa reynslu í meðferð á vefja- gigt,“ segir Sigrún sem vonast til að með auk- inni almennri þekkingu styttist greiningaferli vefjagigtarsjúklinga og að meðferð þeirra verði markvissari. Vefjagigt.is er lýðheilsustarf Sigrún þekkir veikindi af eigin raun og það voru í raun þau sem urðu til þess að draum- urinn sem hún gekk með í maganum varð að veruleika. „Ég greindist fyrir fjórum árum með krabbamein í skjaldkirtli og á meðan meðferð stóð hafði ég meiri tíma en áður og velti þessu þá vel fyrir mér. Ég ákvað þá að fara í lýðheilsufræði í Háskólanum í Reykjavík og fann þar það akademíska bakland sem ég þurfti til þess að koma þessu efni frá mér. Ég hafði áður lokið sérnámi á Manual Therapy, sem er sérnám í liðlosun og mikið notuð í með- ferð gigtar. Þar er maður að vinna með hið smáa en í lýðheilsufræðum er verið að skoða manneskjuna í umhverfi sínu og það finnst mér líka mjög áhugavert. Það má því segja að ég hafi farið úr því smáa í hið stóra.“ Sigrún segir að lýðheilsa sér hugtak yfir al- mennt heilsufar þjóðar eða þjóðfélagshóps. „Lýðheilsustarf miðar að því að viðhalda og efla heilbrigði fólks, með forvarnarstarfi og samfélagslegri ábyrgð á heilbrigði. Starfið byggist á samstarfi ólíkra fræðigreina en grunnur að öllu lýðheilsustarfi er þekking sem er einmitt það sem ég vil gera með vefjagigt.is. Netið hefur gefið alveg nýjar víddir til fræðslu á sjúkdómum í meðferðum og ég held að mér sé óhætt að segja að vefur sem tileink- aður er sérstöku heilkenni sé nýjung hér á landi. Vefurinn er styrktur af fyrirtækjum í at- vinnulífinu og verður áfram í þróun því þau gera mér kleift að vinna við vefinn. Ég vona að hann bæti aðgengi fólks með vefjagigt og að- standenda þeirra að upplýsingum um sjúk- dóminn og þar með verði stigið skref í átt að bættri þjónustu við þennan stóra sjúklingahóp hér á landi.“ uhj@mbl.is Vefjagigt er raunverulegur sjúkdómur Morgunblaðið/G.Rúnar Þjálfun Hreyfing er mikilvæg fyrir vefjagigtarsjúklinga eins og aðra en það þarf oft að sníða hana að þörfum hvers og eins. Fræðslustarf Sigrún Baldursdóttir hefur hleypt vefnum vefjagigt.is af stokkunum. Sigrún Baldursdóttir þekkir veruleika þeirra sem þjást af vefjagigt vel enda hefur hún starfað við endurhæfingu og sjúkraþjálfun þeirra í 16 ár. Unnur H. Jóhannsdóttir ræddi við hana um fræðsluvef sem hún opnaði í vor um sjúkdóminn. Hvað er vefjagigt? Vefjagigt (e. fibromyalgia syndrome) er langvinnur sjúkdómur eða heilkenni (e. synd- rome) sem samanstendur af fjölmörgum ein- kennum frá hinum ýmsu líffærakerfum. Helstu einkenni eru langvinnir og útbreiddir verkir frá stoðkerfi, almennur stirðleiki, yf- irþyrmandi þreyta og svefntruflanir. Önnur algeng einkenni eru órólegur ristill, ofurnæm þvagblaðra, fótapirringur, kuldanæmi, dauð- ir fingur (e. Raynaud’s phenomenon), dofi í útlimum, bjúgur, orkuskortur, úthaldsleysi, minnisleysi, einbeitingarskortur og depurð. Merking orðsins vefjagigt Orðið „Fibromyalgia“ er samsett orð sem þýðir í raun verkir frá bandvef og vöðvavef. Margir rugla orðinu vefjagigt við vöðvagigt en stór munur er á merkingu þessara tveggja orða. Einkenni vefjagigtar eru frá vefjum lík- amans m.a. bandvef, vöðvavef og taugavef en ekki bara vöðvavef. af www.vefjagigt.is FRASINN að fá sér fegurð- arblund er vel þekktur – en nú getur maður víst einnig fengið sér megrunarblund, sam- kvæmt nýrri rannsókn sem greint er frá í Berlingske Ti- dende. Svefn virðist nefnilega fram- kalla saðningartilfinningu hjá líkamanum, en blaðið hefur eftir næringarfræðingnum Per Brænde að skýr tengsl séu milli þess hve mikið fólk sofi og þess hve of þungt það sé. „Því minna sem maður sefur, því minna leptín er í blóðinu. Og leptín er það hormón sem framkallar saðningu,“ segir Brænde. En sé sofið of lítið „framkallar kroppurinn þess í stað hormónið ghrelín, sem vekur hungurtilfinningu og lyst á feitum og sætum mat.“ Og eftir því sem læknirinn og vísindablaðamaðurinn Jerk W. Langer segir stjórnar heil- inn matarlistinni og því sé rök- rétt að tengsl séu líka milli of lítils svefns og ofþyngdar. „Bæði börn og fullorðnir eiga á hættu að verða of þung ef þau sofa of lítið og þar má um kenna leptín og ghrelín horm- ónasveiflum í líkamanum. Svo gerist það líka að ef maður er stressaður og sefur of lítið þá eykur stress-hormónið kort- isón matarlystina. Ekki er þó heldur gott að sofa of mikið, en sjö til níu tíma svefn er að mati Brændegard hæfilegur til að ná fram tilætl- uðum áhrifum. „Þetta snýst ekki heldur um að sofa jafn mikið og hægt er, því það er klárt að maður grennist ekki á því að liggja í rúminu allan daginn.“ Að grennast í svefni Morgunblaðið/Ásdís Svefn Því minna sem maður sefur, því minna leptín er í blóðinu. Og leptín er það hormón sem framkallar saðningu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.