Morgunblaðið - 27.06.2007, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2007 21
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 17-18
LAUGAVEGUR 86-94, GLÆSILEG NÝBYGGING
Mjög vandaðar, 2ja og 3ja herbergja íbúðir á
2. og 3. hæð
í glæsilegu lyftuhúsi í hjarta miðborgarinnar
Íbúðirnar eru fullbúnar, með vönduðum eikarinnréttingum og fataskápum.
Eikarparket á gólfum. Baðherbergisgólf og veggir eru lögð marmarasteini
og með vönduðum tækjum frá Phillipe Starck og Duravit. Innfelldir spegla-
skápar eru í baðherbergjum. Í eldhúsum íbúðanna eru gæða tæki frá AEG úr
burstuðu stáli, þ.e. ísskápur með frysti, uppþvottavél og bökunarofn með
keramikhelluborði. Hiti er í gólfum og gólfsíðir gluggar í stofum. Svalir eru
á öllum íbúðum og möguleiki er á að kaupa sérbílastæði með hverri íbúð.
Aukin hljóðeinangrun er í gólfum og veggjum. Dyrasími með myndavéla-
kerfi í hverri íbúð. Sameign hússins er afar glæsileg, lögð svörtu graníti.
ÍBÚÐIRNAR AFHENDAST VIÐ KAUPSAMNING.
ÍBÚÐIRNAR ERU FRÁ 70,4 FM UPP Í 94,5 FM.
VERÐ ER FRÁ 26.308.000.-
ÍBÚÐIRNAR ERU FRÁ 70,4 FM UPP Í 124,6 FM
VERÐ ER FRÁ 28.420.000.-
ÖLL SELD
ÍBÚÐIRNAR VERÐA TIL SÝNIS Í DAG, MIÐVIKUDAG, FRÁ KL. 17-18.
SÖLUMENN VERÐA Á STAÐNUM. VERIÐ VELKOMIN.
Bílastæði kostar kr. 1.500.000 að auki.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500,
FAX 570 4505.
fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fast-
eignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali.
2. HÆÐ
3. HÆÐ
4. HÆÐ
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík
Sími: 591 9000 · www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
Hafnarfjörður sími: 510 9500
All
ra
síð
us
tu
sæ
tin
!
Terra Nova býður nú síðustu sætin til Golden Sands í Búlgaríu í júlí
á ótrúlegum kjörum. Gríptu tækifærið og skelltu þér til þessa vin-
sæla sumarleyfisstaðar sem býður þín með frábæra strönd, einstakt
loftslag, ótæmandi afþreyingarmöguleika, fjölbreytta veitingastaði og
fjörugt næturlíf.
Súpersól til Búlgaríu
Þú bókar sæti og
4 dögum fyrir brottför
færðu að vita hvar
þú gistir.
Kr. 29.995
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn í hótelher-
bergi/ stúdíó/íbúð í viku. Súpersól tilboð, 2. og 9. júlí.
Aukavika kr. 10.000 á mann.
Kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í viku. Súpersól
tilboð, 2. og 9. júlí. Aukavika kr. 10.000 á mann.
2. og 9. júlí frá kr. 29.995
NÝJAR rannsóknir sýna að ef konur
gangast undir hormónameðferð rétt
eftir tíðahvörf getur hún verndað
þær gegn elliglöpum, þrátt fyrir að
slíkt auki áhættuna hjá eldri konum.
Frá þessu er sagt á vef
MSNBC.com.
Rannsóknin bætir enn í vafa-
brunninn um það hvort gott eða vont
er fyrir konur að taka hormóna til
verndar gegn öldrunarsjúkdómum.
Hið viðtekna svar hefur verið „vont“
á undanförnum árum en nýjustu
gögn sýna á hinn bóginn að tíma-
setning getur verið lykilatriði, í það
minnsta hvað varðar hjartaáföll og
elliglöp.
Sérfræðingar vara þó við því að
um sé að ræða niðurstöður frum-
rannsókna. Dr. Victor Henderson
hjá Stanford-háskóla fór fyrir rann-
sókninni og hann tekur undir þau
varnaðarorð og segir að of snemmt
sé að íhuga að setja yngri konur aft-
ur á hormóna til að koma í veg fyrir
elliglöp.
Áratugum saman tóku konur
markvisst hormóna vegna hitakófa
eftir tíðahvörf og til að bægja frá sér
einkennunum. Árið 2002 voru birtar
tímamótaniðurstöður rannsókna
sem sýndu fram á aukna hættu á
hjartaáföllum, heilablóðfalli og
brjóstakrabba í konum sem voru á
hormónunum estrógen-progestin.
Töflur sem eingöngu innihéldu
estrógen voru síðar jafnframt tengd-
ar heilablóðfalli. Í kjölfarið hættu
milljónir kvenna að taka slíkar töflur
og sérfræðingar stjórnvalda í
Bandaríkjunum ráðlögðu að horm-
ónarnir yrðu eingöngu notaðir við
mjög alvarlegum einkennum tíða-
hvarfa og að eingöngu yrðu notaðir
minnstu mögulegu skammtar í eins
stuttan tíma og hægt væri.
Sérstaklega gegn Alzheimer
Undanfarnar vikur hafa komið
fram vísbendingar um að betra geti
verið fyrir konur taka hormóna fljót-
lega eftir tíðahvörf og áhættan geti
verið minni heldur en ef þær hefja
hormónainntöku þegar þær eru
orðnar eldri. Ennfremur er komið
fram að hormónarnir auka ekki
hættuna á hjartaáfalli hjá konum á
aldrinum 50–59 ára.
Nýjustu rannsóknirnar voru gerð-
ar á 7.153 konum. Fyrri rannsóknir
höfðu sýnt að hjá konum sem tóku
hormóna eftir 65 ára aldur jókst
hættan á elliglöpum um 75%. Nýj-
asta rannsóknin sýndi á hinn bóginn
að hjá konum sem tóku hormóna
fyrir 65 ára aldur minnkaði áhættan
á elliglöpum því sem næst um helm-
ing.
Elliglöp komu fram hjá 22 af 2.228
konum, eða einungis einu prósenti,
sem tóku hormóna snemma, en hjá
84 konum af 4.925 sem gerðu það
ekki, eða 1,7 prósentum kvenna.
Verndaráhrifin komu sérstaklega
fram gagnvart Alzheimers-
sjúkdómnum, sem er þekktur elli-
hrörnunarsjúkdómur.
„Þetta eru athyglisverðar og
sannfærandi niðurstöður,“ var haft
eftir dr. JoAnn Manson við Brig-
ham-kvennaspítalann í Boston, en
hún kom einnig að rannsókninni.
Reuters
Rannsóknir Komið hafa nú fram vísbendingar um að betra geti verið fyrir
konur að taka hormóna fljótlega eftir tíðahvörf og áhættan geti verið
minni heldur en ef þær hefja hormónainntöku þegar þær eru orðnar eldri.
Tímasetning hormóna-
töku lykilatriði
ÞEIR sem eru fæddir blindir muna
langar runur af orðum yfir tvöfalt
betur en þeir sem sjá. Vísindamenn
telja að m.a. sé hægt að rekja þetta
til þess að blindir notist við eins
konar minnislista til að rata um.
Almennt eru blindir 20 til 35 pró-
sent flinkari við að muna langa
lista af hlutum eða viðfangsefnum
en sjáandi fólk að því er fram kem-
ur á forskning.no. Minnishæfileikar
þeirra koma þó fyrst að fullu í ljós
þegar kemur að því að muna röð
hlutanna. Samkvæmt tilraunum
sem vísindamennirnir Noa Raz og
Ehud Zoharty við Hebreska há-
skólann í Ísrael gerðu, mundu þeir
þátttakendur, sem voru blindir,
milli 85 og 135 prósent fleiri orð í
réttri röð en þeir sem höfðu fulla
sjón.
Vísindamennirnir telja að skýr-
inguna megi finna í því að blindir
þurfi á einskonar minnislistum að
halda til að rata í umhverfi sínu.
Meðan sjáandi fólk getur litið yfir
svæðið og fengið yfirsýn þurfa
blindir að þreifa sig áfram frá hlut-
um til hluta til að átta sig á því
hvar þeir eru og hvert þeir eiga að
fara.
Önnur skýring er að blindir not-
ist við uppröðun hluta til að þekkja
þá aftur, til dæmis með því að raða
svipuðum krukkum í kryddhillu í
ákveðinni röð frá vinstri til hægri.
Þannig geta þeir vitað í hvaða
krukku er oregano og hvaða
krukka inniheldu pipar.
Morgunblaðið/Þorkell
Blindir
muna betur
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111