Morgunblaðið - 28.06.2007, Blaðsíða 48
48 FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÓNBÚAR valhoppa um bæinn
raulandi helstu krækjurnar frá ní-
unda áratugnum. Þá þenja þeir
barkana og taka undir með óskalög-
um sjómanna. Og einhvers staðar
stendur hinn færeyski Jógvan og
brosir yfir velgengni splunkunýrrar
breiðskífu sinnar.
Já, Íslendingar eru í nostalgíu-
kasti þessa dagana ef marka má sölu
plötunnar 100 íslensk 80’s lög. Og
kannski nýafstaðinn sjómannadagur
hafi hleypt auknu fjöri í sæfara; þeir
vita í það minnsta hvers þeir óska
sér og flykkjast útí næstu plötubúð.
Þá eru safnplötur greinilega vinsæl-
ar; auk hinna áðurnefndu „eitís“- og
sjómannasafna hvílir Pottþétt 43 í
sjöunda sæti.
Íslenskar plötur ráða lögum og
lofum á íslenska plötulistanum að
þessu sinni. Og gullbarkinn Garðar
Cortes er á góðri leið með að verða
þar fastagestur.
Hástökkvari síðustu viku er Jó-
hann Jóhannsson. IBM1401: A
User’s Manual stekkur upp um heil
99 sæti.
Loks er gaman að geta þess að
öldungur vikunnar er gamalkunn
djassplata, Gling Gló með Björk, og
situr í 26. sæti eftir 99 vikur.
!
"
# $ $% %&
%'()
*+ , %
'#
%-./)%
!
"!## "!$%
&
'((
)*+!
"
,% -"
,%
"!,%"
.%+/&%(
012)
3
%
) 4
!"
#$
%& # $$ '$ $
( &)
*$ +, -.
/ 0&. ").
1$
23.
4
1) $ )
5 2$ '3 5
6.$ $ 4$ #$
/7 , !8 )
9 : .. ; ." <
= > 4$ &? 5:: > 2.
1 %$
@). A 0
"
&01
%
2 , -./)
-./)
-./)
3,3
$4
,0
"
#
$%0.'(
',567'89 "# *2+%%
5
&4(5
!
'!0!
!
32
!
.%/
62 7
8%2/
'* 29%/
"/93%
02% 47
:7%
012);.%+/&%(<'7'=
1." "B:
#$
@ C D$ #3
E$$& $F
G $
EH7 = 6 3
' I$. 5$:
5J G :$
%$F$F
G"F$ B
4J
4$ . K +,
/$"
@88
4$. J&
F
DL =$J
/$:3
2J =
M: L$:
4$
(,:
"
"
"
"
;
"
%%
"
$4
(,:
<
0,=
#
, (
>+ "
Nostalgíukast hjá
plötukaupendum
Morgunblaðið/ÞÖK
Jógvan Sigurvegari X-factor er
Færeyingur og söngvari
DRENGIRNIR í Sprengjuhöllinni
ættu að vera í sjöunda himni þessa
dagana. Hin angurværa ballaða
þeirra, „Verum í sambandi“, heldur
velli sem vinsælasta lag síðustu viku,
en lagið hefur haldið til á topp 30-
listanum í 10 vikur og vermt hásætið
að undanförnu. Þá virðast lands-
menn fagna endurkomu Travis-
manna.
Íslendingar eru nokkuð áberandi
á listanum, en á meðal nýliða eru
kántrífélagarnir í Klaufum, með
vestraslagarann „Búkalú“, og Stef-
án Hilmarsson sem syngur lagið
„Astrópía“ fyrir samnefnda kvik-
mynd. Í sautjánda sæti situr svo kon-
ungur reynsluboltanna, Sir Paul
McCartney. Hann kyrjar lagið
„Dance Tonight“ en sitt sýnist hverj-
um um þá smíð; sumir dansa með og
brosa út að eyrum, aðrir hrista haus-
inn og harma smekkleysi meistarans
og skort á sjálfsgagnrýni.
Öldungurinn að þessu sinni er
Red Hot Chili Peppers-smellurinn
„Desecration Smile“. Hann hefur
setið í 13 vikur á listanum. Það er
spurning hvort Sprengjuhöllin
sprengir chili-piparinn ekki bráðum
burt og hirðir einnig öldungs-
verðlaunin.
Sprengjuregn og
dansandi Bítlar
HLJÓMSVEITIN Maroon 5 sló rækilega í
gegn með smellinum „This Love“ af fyrstu
plötu sinni, Songs about Jane, frá árinu
2002. Á annarri breiðskífu sveitarinnar er að
finna haganlega smíðað popp, þægilegt, óm-
þýtt, vinalegt. Bestu lögin eru fyrstu núm-
erin tvö, „If I Never See Your Face Again“
og „Makes Me Wonder“. Mjög grípandi, hrynheit, sumarleg,
dansvæn og skemmtileg blanda af Justin Timberlake, Prince og
The Police. Síðan siglir platan inn í prýðilegan poppsjó – reynd-
ar örlar aldrei á andagift eða frumleika, og fyrir vikið finnst
mér hún dálítið þreytandi til lengdar. Hér er engu að síður að
finna afar vel framreitt (en hugsanlega of-pródúserað) gæða-
popp sem ætti að höfða til margra.
Prinsalegt löggupopp
Maroon 5 – It Won’t Be Soon Before Long Sverrir Norland
ÉG hef einhverra hluta vegna alltaf haft per-
vertískan áhuga á Bon Jovi, fundist sveitin
skemmtileg á sinn hallærislega hátt og lög á
borð við „Livin’ on a Prayer“ og „Shot thro-
ugh the Heart“ eru óneitanlega klassísk inn-
an popp-metalsins. En nú hef ég fengið nóg.
Lost Highway er einskonar „tribute“ til
Garth Brooks og líkt og fyrirmyndin er eftirmyndin slæm. Þar
fyrir utan ná textarnir nýjum lægðum eins og eftirfarandi ljóð-
línur úr laginu „We Got It Going On“ sýna glögglega:
„Is there anyone out there lookin for a party / Shake your
moneymaker baby, smoke it if you got it / We just want to have
some fun / If you don’t want to kiss this / Everybody raise your
hands / Come on I need a witness.“ !!??
Kántrí eða vestern?
Bon Jovi - Lost Highway Höskuldur Ólafsson
CHROMEO er ansi skemmtilegur elektró-
fönk-dúett sem hafa gert grípandi takta og
lifandi laglínur að aðalsmerki sínu. Chromeo
ætla að troða upp á Iceland Airwaves í októ-
ber en þeir unnu sér inn talsverðar vinsældir
hér á landi með laginu „Needy Girl“ fyrir
fáum árum. Hljómur þeirra á Fancy Foot-
work er ennþá skemmtilegri en á fyrri plötu þeirra, She’s in
Control, sökum þess hver ófeimnir þeir eru við að vera stefnu
sinni trúir.
Á nýju plötunni ganga þeir enn lengra í stælingum sínum á
danstónlist níunda áratugarins og vanda sig við það og það er
heildarmynd plötunnar sem gerir hana skemmtilega – sjald-
gæfur kostur hjá sveitum á borð við þessa.
Má bjóða þér í dans?
Chromeo – Fancy Footwork Helga Þórey Jónsdóttir
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
SHREK 3 m/ensku tali kl. 8:15 - 10:20 LEYFÐ DIGITAL
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 4:15 - 6:15 LEYFÐ DIGITAL
CODE NAME: THE CLEANER kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára
OCEAN'S 13 kl. 8 - 10:30 B.i. 7 ára DIGITAL
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 5 B.i. 10 ára DIGITAL
SHREK 3 m/ensku tali kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
SHREK 3 VIP m/ensku tali kl. 8 - 10:10
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ
OCEAN'S 13 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.7.ára
OCEAN'S 13 VIP kl. 5:30
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 6 - 8 - 10 B.i.10.ára
ZODIAC kl. 6 - 9 B.i.16.ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
WWW.SAMBIO.IS
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
MYND OG HLJÓÐ
Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SHREK, FÍÓNA,ASNINN OG STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
ERU MÆTT AFTUR Í SKEMMTILEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA.
STÆRSTA OPNUN Á TEIKNIMYND FYRR OG SÍÐAR.
eee
S.V. MBL.