Morgunblaðið - 28.06.2007, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
UNDIRBÚNINGSFUNDUR að
stofnun samtaka um betri byggð á
Kársnesi var haldinn í gærkvöldi og
tæplega fimmtíu manns sóttu fund-
inn. Kveikjan að stofnun samtak-
anna er óánægja með fyrirhugaðar
breytingar á skipulagi svæðisins, en
þar er gert ráð fyrir skipahöfn og
umtalsverðri þéttingu byggðar.
Arna Harðardóttir er ein þeirra
sem standa að stofnun félagsins.
Hún sendi inn athugasemd við
skipulagið, eins og flest þeirra sem
að samtökunum standa.
Tvöfalt fleiri íbúar og þunga-
flutningar frá skipahöfn
Arna segir að íbúafjöldi á Kárs-
nesi tvöfaldist ef allar hugmyndir
bæjaryfirvalda um uppbyggingu á
svæðinu verði að veruleika. Umferð-
armannvirki og aðrir innviðir hverf-
isins beri ekki slíka fjölgun.
Hún er einnig mjög ósátt við
áframhaldandi starfsemi á hafnar-
svæðinu. „Flestir Kársnesingar voru
farnir að hlakka mjög til þess að
losna við stórskipahöfn úr bænum
þegar Atlantsskip ákváðu að flytja,
því höfninni hafa fylgt gríðarlegir
þungaflutningar. Eina leiðin frá
höfninni er eftir Kársnesbraut í
gegnum íbúðahverfi og við teljum að
þessi umferð eigi þar ekki heima. Við
teljum þessa höfn vera algjöra tíma-
skekkju og setjum stórt spurningar-
merki við viðskiptalegar forsendur
hennar.“
Óánægja með viðbrögð
bæjaryfirvalda
Arna telur að ekki sé tekið mið af
vilja íbúanna í þessu máli. „Það sem
hefur gerst frá því að tillögurnar
voru kynntar er að bærinn segist
hafa komið til móts við okkur með
því að fækka íbúðum úr 1.060 í 845.
Niðurstaðan er samt sem áður sú að
bílum fjölgar meira en Kársnes-
brautin þolir. Bærinn hefur ennþá
áform um uppfyllingu og stórskipa-
höfn sem við erum ósátt við.
Nýleg umfjöllun í Morgunblaðinu
sýnir okkur það að forsvarsmenn
bæjarins telja íbúa Kársness vera
mjög ánægða með þessar fyrirhug-
uðu breytingar. Það er skoðun okkar
að þetta mat þeirra sé alls ekki rétt,
heldur séu miklu fleiri sem eru
óánægðir. Okkur finnst full ástæða
til að koma því á framfæri,“ segir
Arna að lokum.
Samtök um betri byggð á
Kársnesi í burðarliðnum
„Bílum fjölgar
meira en Kárs-
nesbrautin þolir“
Skipulag Íbúar Kársness undirbúa stofnun samtaka um betri byggð.
Óánægja er meðal þeirra um framkvæmdir á vegum bæjarins.
Í FYRSTA skipti á Íslandi var í gær undirritaður
samningur milli íþróttafélags og fyrirtækis úr
atvinnulífinu, þess efnis að íþróttamannvirki fé-
lagsins beri nafn fyrirtækisins. Valsmenn hafa
samið við Vodafone á Íslandi og mun heimavöll-
ur Vals því í framtíðinni heita Vodafonevöll-
höllin verður um 2.200 fermetrar og er búin
1.300 sætum auk þess sem 700 áhorfendur geta
staðið. Stúkan við Vodafonevöllinn tekur 1.500
manns og er ráðgert að jafnstór stúka rísi gegnt
henni árið 2008. Enn á eftir að fullklára mann-
virkin en þau verða formlega vígð 25. ágúst.
urinn Hlíðarenda, og íþróttahúsið mun heita
Vodafonehöllin Hlíðarenda.
Aðstaðan á Hlíðarenda er á góðri leið með að
verða hin glæsilegasta, en frá árinu 2004, þegar
framkvæmdir hófust, hafa Valsarar þurft að æfa
og spila víðs vegar um höfuðborgina. Vodafone-
Vodafonehöll og -völlur eru nær tilbúin á Hlíðarenda
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
OF OFT kemur
fyrir að foreldrar
bregðist eftirlits-
skyldu sinni þegar
þeir fara með
börnum sínum á
sundstaði. Slysin
gera ekki boð á
undan sér og það
á ekki síst við um
drukknun sem er
hljóðlátt slys. Það
er því staðreynd að ekki má líta af
börnum í sundi eitt augnablik og
ábyrgð foreldra er mikil. Forstöðu-
maður Forvarnarhúss kallar eftir því
að þegar sundlaugaslys eru rannsök-
uð verði leitað að sökudólgi, annars
verði ekki lært af slysunum.
„Við höldum stöðugt áfram og segj-
um: „þarna skall hurð nærri hælum“
eða „litlu mátti muna“, svo slappa allir
af þar til næsta fyrirsögn birtist, en
ekki er víst að það barn verði svo
heppið,“ segir Herdís Storgaard, for-
stöðumaður Forvarnarhúss Sjóvá.
Hún bendir á að það sé afar áber-
andi með þá Breta sem hingað koma
sem ferðamenn að þeir spyrji mikið út
í öryggisatriði við sundstaði. Það sé
ekki síst vegna þess hversu strangar
öryggisreglurnar eru í Bretlandi.
Reglurnar eru einnig strangar hjá
Norðurlandaþjóðunum og vill Herdís
að farið verði að fordæmi nágranna-
þjóðanna. „Ef það kemur í ljós að
ábyrgðin er ekki hjá rekstraraðila
sundstaðarins, heldur sé við foreldra
að sakast þá er barnaverndarnefnd
tilkynnt um málið. Það er þetta sem
ég kalla á.“
Herdís hefur þegar rætt hugmynd-
ina við núverandi umboðsmann
barna, Ingibjörgu Rafnar, sem hún
segir hafa sýnt mikinn skilning. Hins
vegar gafst ekki tími til að vinna úr
hugmyndinni en Herdís segist ætla
að taka málið upp að nýju þegar Mar-
grét María Sigurðardóttir tekur við
starfinu 1. júlí nk.
Kallar á hertar reglur
um eftirlit foreldra
Herdís
Storgaard
Í HNOTSKURN
»Í rannsókn á slysum ásundstöðum á árunum
1983-94 kom í ljós að 48 börn
drukknuðu eða voru næstum
drukknuð. 13 börn létust og
þrjú hlutu varanlegan heila-
skaða.
»Versta árið er þó árið 1994þegar sjö börn drukknuðu.
Eftir það lagaðist ástandið til
muna. Fjögur börn hafa nærri
drukknað það sem af er ári.
UNGMENNIN þrjú sem slösuðust
alvarlega þegar bifreið þeirra skall
harkalega á veitingastaðnum Ham-
borgarabúllunni hafa öll verið út-
skrifuð af gjörgæsludeild Landspít-
alans í Fossvogi.
Áreksturinn átti sér stað aðfara-
nótt föstudags og voru ungmennin í
kjölfarið talin hættulega slösuð. Nú
um helgina voru þau hins vegar öll
útskrifuð af gjörgæsludeild og eru á
batavegi. Hafði ökumaðurinn verið á
miklum hraða í vesturátt þegar
áreksturinn varð og lék grunur á að
hann hefði verið í kappakstri.
Ungmennin
komin úr
gjörgæslu
♦♦♦
Vörður tryggingar hf. I Borgartúni 25 I sími 514 1000 I www.vordur.is
G
O
TT FÓ
LK
Neyðarnúmer vegna
tjóna allan sólarhringinn
514 1099
TVEGGJA daga vinnufundir
æðstu stjórnenda bandarísku
kauphallarinnar Nasdaq og nor-
rænu kauphallarinnar OMX Nord-
ic Exchange hófust hér á landi í
gær, vegna yfirtökutilboðs Nasdaq
í OMX.
Hafa forstjórar fyrirtækjanna,
þeir Magnus Böcker frá OMX og
Robert Greifeld frá Nasdaq, leitt
viðræðurnar. Byrjað var á fundum
í Reykjanesbæ og þaðan farið í
Bláa lónið, en fundahöld halda
áfram í dag. Sem kunnugt er hefur
Nasdaq lagt fram tilboð í OMX
upp á 3,7 milljarða dala, jafnvirði
rúmlega 230 milljarða króna og
hafa stjórnir félaganna tveggja
samþykkt tilboðið fyrir sitt leyti.
Helga Björk Eiríksdóttir, mark-
aðs- og kynningarstjóri OMX á Ís-
landi, segir yfirtökutilboðið enn
vera til meðferðar. Markmið fund-
arins á Íslandi sé ekki síst að
koma á persónulegum tengslum
milli manna.
Sænsk stjórnvöld áhyggjufull
Þó að stjórnir félaganna hafi
samþykkt tilboðið er óljóst hvort
allir hluthafar muni gera það.
Sænska ríkið er stór eigandi að
OMX, með 6,6% hlut, en í Fin-
ancial Times í gær lýsir Mats
Odell, viðskiptaráðherra Svía,
áhyggjum af yfirtöku Nasdaq og
áhrifum hennar á samkeppnis-
hæfni norræna markaðarins.
Sænski markaðurinn megi ekki
verða fyrir áhrifum frá þeim
bandaríska og þeim reglum sem
þar gilda.
Forstjórar
kauphalla
funda hér