Morgunblaðið - 28.06.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.06.2007, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is BÆJARSTJÓRN Kópavogs hefur tekið ákvörðun um að leggjast gegn því að umhverfisráðherra veiti Rík- eyju Pétursdóttur, hárgreiðslu- meistara í Kópavogi, undanþágu frá skilyrðum um starfsleyfi. Tillaga þess efnis var samþykkt með sex at- kvæðum meirihlutans gegn fimm at- kvæðum minnihlutans. Ríkey hefur allt frá árinu 2003 reynt að fá starfsleyfi til að reka hárgreiðslustofu með einum hár- greiðslustól á heimili sínu. Sveinn Guðmundsson, lögmaður Ríkeyjar, segir að ótrúlegt hafi verið að fylgj- ast með afgreiðslu bæjarstjórn- arfundarins á málinu. „Ég hef bara aldrei séð annað eins á ævi minni,“ segir Sveinn. Hann segir að nú bíði hann og umbjóðandi hans eftir að ráðherra afgreiði undanþágubeiðn- ina, það er hvort hann telji sér skylt að neita um undanþágu frá starfs- leyfi Ríkeyjar, vegna neikvæðrar umsagnar bæjarstjórnarinnar. Sveinn segir málið ætíð hafa snúist um pólitík. Hann segir að við af- greiðslu málsins hafi hvorki verið tekið tillit til stjórnarskrárvarins eignarréttar umbjóðanda síns né af- greiðslu sambærilegra mála á lands- vísu. „Þetta er líka valdníðsla.“ Ómar Stefánsson, fulltrúi Fram- sóknarflokksins í meirihluta bæj- arstjórnar, segir að ákvörðunin hafi verið byggð á því sama og áður; mik- il mótmæli hafi verið í hverfinu, sem sé skipulagt sem íbúðarhverfi. Hann segir það mikinn misskilning að mál- ið hafi dregist á langinn í meðförum yfirvalda í Kópavogi. Guðríður Árnadóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í minnihluta bæjarstjórnar, segir að fulltrúar minnihlutans hafi greitt atkvæði gegn neikvæðri umsögn bæjar- stjórnar. Þeir hafi talið hagsmuni Ríkeyjar vega þyngra en hagsmuni nágranna hennar. Hún segir málið langt frá því að vera pólitískt. „Það kom mér á óvart hvernig atkvæða- greiðslan skiptist í pólitískar línur. Þetta kemur pólitík ekkert við, held- ur er þetta spurning um að vega og meta sjónarmið beggja og greiða at- kvæði samkvæmt því.“ Umsókn um hár- greiðslustól hafnað INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir ut- anríkisráðherra hefur ákveðið að taka til nánari skoðunar lendingar ákveðinna flugvéla á Keflavíkurflug- velli og Reykjavíkurflugvelli. Ákvörð- unin er tekin með hliðsjón af annarri skýrslu sérstaks skýrslugjafa Evr- ópuráðsins, Dicks Martys, um leyni- fangelsi og ólöglegt fangaflug banda- rísku leyniþjónustunnar, CIA, um lofthelgi Evrópuráðsríkja. Þing Evr- ópuráðsins samþykkti ályktun þar sem tekið er undir helstu niðurstöður í skýrslu Martys með 124 atkvæðum gegn 37. Sjö fulltrúar á þinginu sátu hjá. Í fréttatilkynningu ítrekar utanrík- isráðuneytið þá afstöðu sína að ís- lensk stjórnvöld hafi svarað beiðnum Evrópuráðsins um upplýsingar varð- andi leynifangelsi og ólöglegt fanga- flug. Þá er ráðuneytinu að sögn ekki kunnugt um flug á vegum bandarísku leyniþjónustunnar með fanga eða meinta hryðjuverkamenn um ís- lenska lofthelgi eða Keflavíkurflug- völl. Bandarísk yfirvöld hafi aldrei sótt um yfirflugs- eða lendingarleyfi fyrir slíkar flugvélar. Rætt um öryggisráð SÞ Ekki náðist í Ingibjörgu Sólrúnu í gærkvöldi, en hún er nú stödd í Gana þar sem hún sækir leiðtogafund Afr- íkusambandsins. Í dag og á morgun mun Ingibjörg sitja tvíhliða fundi með utanríkisráðherrum Afríkuríkja. Ingibjörg mun annars vegar ræða um afstöðu Íslands til þróunarsamvinnu og málefna Afríku og hins vegar um málefni öryggisráðs Sameinuðu þjóð- anna, en málefni Afríku eru ofarlega á baugi í starfi öryggisráðsins, að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Lendingar ákveðinna véla verði rannsakaðar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Ákvörðunin tekin í ljósi skýrslu um ólöglegt fangaflug Í HNOTSKURN »Dick Marty hefur skilaðannarri skýrslu um leyni- fangelsi og fangaflug. »Þar kemur fram að NATOhafi fallist á leynilegt rammasamkomulag um að CIA starfrækti leynifangelsi í kjölfar 11. september 2001. Dick Marty Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is „VIÐ endurvinnum ekki alls konar pappír sem fellur til á ýmsum deild- um,“ segir Aðalsteinn Pálsson, sviðs- stjóri byggingarsviðs og fram- kvæmdastjóri tækja og eigna Landspítala. Athygli hefur vakið að Landspítalinn, sem er stærsta fyrir- tæki landsins, endurvinnur ekki pappír en nú stendur einmitt yfir samvinnuverkefni Samtaka iðnaðar- ins, Samtaka verslunar og þjónustu og aðildarfyrirtækja á sviði fram- leiðslu, útgáfu og dreifingar dag- blaða, tímarita og markpósts um kynningarátak í flokkun og endur- vinnslu pappírs. „Þetta er ákveðið hagkvæmnismál, hvernig á að gera þetta, við erum með sóttmengað sorp, spilliefni og al- mennt húsasorp sem við skilum af okkur, og við flokkum einnig öll byggingarefni, jarðvegsefni og bylgjupappa. Pappírinn hefur ekki verið flokkaður en það er kannski það skref sem er eftir,“ segir Aðalsteinn. „Þetta snýr líka að því að geta flokkað sorp inni á deildum, það þarf vitanlega ákveðna aðstöðu og rými til þess og svo flutninga, þannig að þetta hefur setið eftir. Það var farið af stað með átak fyrir nokkrum árum og það hefur verið umræða þetta árið um að það þurfi að endurvekja það og fara í gegnum þessa hluti,“ segir Aðal- steinn en bætir við að pappírsnotkun sem slík hafi farið minnkandi undan- farin ár í starfsemi spítalans samfara aukinni tölvunotkun. Aukin endurvinnsla til umræðu Aðalsteinn segir að aukin endur- vinnsla sé á áætlun fyrir nýjan spít- ala en ekki þurfi þó að bíða eftir byggingu hans til að taka áætlunina í gagnið. „Við höfum verið að ræða umhverfisstefnu í vetur og einnig um að hafa rétt efni inni í byggingunni í upphafi. Við höfum losnað við mikið af spilliefnum og alla framköllunar- vökva, en við erum hætt að nota þá,“ segir Aðalsteinn. „Þetta er líka spurning um for- gangsröðun í stóru fyrirtæki, en við höfum lagt mikla áherslu á lyfjaaf- ganga, lyf fara aftur til apóteka og fara í sérstaka förgun, en einnig eru nálar og fleira flokkað á deildum. Þannig hefur pappírinn kannski ver- ið aðeins neðar í þessari forgangsröð en það er heilmikil flokkun í gangi á spítalanum,“ segir Aðalsteinn sem segir pappírinn vera næsta mál á dagskrá. Spurning um forgangs- röðun og hagkvæmni LSH endurvinnur flesta hluti en ekki venjulegan pappír SAMNINGUR var undirritaður á milli Reykjavíkurborgar og Hjalla- stefnunnar ehf. í gær um að hún yf- irtaki rekstur leikskólans Laufás- borgar. Þar hefur verið unnið í anda Hjallastefnu síðustu ár. Margrét Pála Ólafsdóttir, fram- kvæmdastjóri Hjallastefnunnar, segir að stærsta breytingin sé að farið verði af stað með grunnskóla- starf fyrir fjögur börn sem annars hættu á Laufásborg í haust. „Þetta verður útibú frá barnaskóla Hjalla- stefnunnar í Garðabæ. Sjálfstæðið og frelsið færir okkur ýmsa mögu- leika sem við höfðum ekki áður.“ Foreldrar þeirra barna sem þeg- ar stunda nám á Laufásborg greiða eftir sem áður jafnhá leikskólagjöld og á öðrum leikskólum borgar- innar, en heimilt er að innheimta 15% hærri gjöld fyrir nýja nem- endur. „Við munum fara okkur mjög hægt í þeim sökum og engin skref verða tekin nema í fullu samráði og með samþykki for- eldrahópsins,“ segir Margrét Pála að lokum. Grunnskólabörn á Laufásborg Morgunblaðið/G. Rúnar Samningur Fulltrúar Reykjavíkurborgar og Hjallastefnunnar undirrituðu samning um rekstur Laufásborgar. KOMU sendinefndar Norsk Hydro til Þorlákshafnar hefur verið frestað en til stóð að sendinefndin kæmi til Þorlákshafnar í þessari viku til að kanna staðhætti vegna hugsanlegra stóriðjuframkvæmda. Ólafur Áki Ragnarsson, bæjar- stjóri Ölfuss, segir sveitarfélagið hafa beðið um að heimsókninni yrði frest- að vegna Vinabæjarmóts sem nú er haldið í bæjarfélaginu. Hann gerir ráð fyrir að fyrirtækið og sveitarfé- lagið verði í sambandi eftir tvær vikur eða svo. „Nú eru líka tvö fyrirtæki að skoða hér aðstæður og meðan það er viljum við fá tækifæri til að skoða stöðuna,“ segir Ólafur og vitnar þá til áhuga fyrirtækjanna Alcan og Arctus á að reisa álver nærri Þorlákshöfn. För sendi- nefndar frestað Norsk Hydro vill skoða staðhætti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.