Morgunblaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is VERÐ á þjónustu veitingahúsa hefur hækkað í 28% tilvika frá því í mars í vor. Í 68% tilvika hefur verðið staðið í stað og í 4% tilvika hefur verðið lækkað, að því er fram kemur í nýrri könnun Neytendastofu á verði þjónustu veit- inga- og gistihúsa, en stofnunin tók að sér að fylgjast með því hvernig lækkun virðisauka- skatts á matvæli 1. mars skilaði sér í verðlagi á veitingahúsum. Könnun Neytendastofu náði til 74 veitinga- húsa nú en til 78 í mars síðastliðnum, en 3 veit- ingahús höfðu í millitíðinni hætt rekstri og tölur frá einu þeirra voru ósamanburðarhæfar. Fram kemur að verð hjá þeim veitingahúsum sem hækkuðu verð var á bilinu 2% til 25%, en hækk- unin að meðaltali var 10%. Þeir sem lækkuðu verðið voru í reynd að skila út í verðlag lækkun á virðisaukaskattsprósentunni. Þá kemur einnig fram að hjá þeim 68% veitingahúsa sem voru með óbreytt verð voru 34% veitingahúsa með óbreytt verð frá því í febrúar og verð hjá þeim því óbreytt eftir að virðisaukaskattlækk- unin tók gildi 1. mars sl. Erna Hauksdóttir, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferða- þjónustunnar, sagði enga eina skýringu á því að verð á veitingahúsum hefði þróast með mismunandi hætti á undanförnum mánuðum. Það væri um hundruð veitingastaða að ræða og þar sem hún þekkti best til hefði verðið lækkað. Hins vegar væru aðstæður auð- vitað mjög mismunandi hjá hverjum og einum og það lægi fyrir að miklar hækkanir hefðu orð- ið hjá birgjum og á launum starfsfólks frá því fyrr á þessu ári. Erna benti á að þegar heimsmarkaðsverð á hráefnum hækkaði og birgjar hækkuðu verð væri ekki um annað að ræða en hækka verðið því fæstir veitingamenn væru í stakk búnir til þess að taka á sig slíkar hækkanir. Þá hefðu laun einnig hækkað mikið vegna mikils skorts á starfsfólki. Það kallaði á launaskrið. „En þetta er mjög misjafnt á milli veitingastaða og því ekki hægt að alhæfa í þessum efnum. Mjög margir veitingamenn hafa lækkað verð og virð- isaukskattslækkunin hefur gríðarlega mikil áhrif bæði á svarta atvinnustarfsemi og sam- keppnina við verslanir og aðra sem alltaf hafa verið í lægra virðisaukskattsþrepi,“ sagði Erna. Hún sagði einnig að ef virðisaukaskatturinn hefði ekki lækkað mætti eflaust gera ráð fyrir að verðhækkanir hefðu orðið meiri en þessi könnun sýndi. „En þetta er auðvitað misjafnt milli veitingahúsa, því þau eru auðvitað í bull- andi samkeppni sín á milli og ég er nokkuð viss um það að viðskiptavinir líta til verðsins þegar þeir fara út að borða.“ Verð á veitingum hefur hækkað í 28% tilvika Verð hefur staðið í stað frá því í mars í 68% tilvika segir Neytendastofa Erna Hauksdóttir EKKI hefur reynt mikið á ákvæði reglugerðar um hjálpartæki varð- andi aukahjálpartæki því fá dæmi eru um að Tryggingastofnun fái um- sóknir um styrki til hjálpartækja- kaupa handa fötluðum börnum frá foreldri sem ekki er með lögheimili barnsins. Þetta segir Björk Pálsdóttir, for- stöðumaður Hjálpartækjamiðstöðv- ar Tryggingastofnunar. Í Morgun- blaðinu í gær kom fram að Ásgeir Ingvi Jónsson, faðir átta ára drengs, sem slasaðist mikið í bílslysi í fyrra, fékk synjun frá TR þegar hann sótti um hjálpartækjastyrk til þess að geta haft aðstöðu fyrir drenginn á heimili sínu. Foreldrar drengsins eru skilin og hafa sameiginlegt for- ræði, en lögheimili drengsins er hjá móður hans þar sem hann dvelst að jafnaði. TR hafnaði umsókn Ásgeirs og úrskurðarnefnd almannatrygg- inga staðfesti þá ákvörðun. Ekki veittur styrkur til kaupa á aukahjálpartæki Björk vísar í þriðju grein reglu- gerðar heilbrigðisráðherra um hjálpartæki frá árinu 2003, en þar segir m.a. að ekki sé veittur styrkur til kaupa á aukahjálpartæki til að hafa á heimili aðstandanda ef við- komandi býr annars staðar. Stofnunin fái sjaldan umsóknir svipaðar þeim sem borist hafi frá föður drengsins. Í því tilviki sem um ræði sé talað um baðstól en oft sé það svo að börn sem búa til skiptis hjá foreldrum taki með sér tæki á milli foreldra. Hún segir að fyrir allnokkrum ár- um hafi verið tekið inn ákvæði um aukahjálpartæki fyrir mikið fötluð börn varðandi skóla Þannig að þau geti fengið tvö tæki, annars vegar til þess að hafa heima og hins vegar til þess að hafa í skólanum svo þau séu ekki daglangt án tækja sinna. Hins vegar sé aðeins hægt að fá einn styrk til tækjakaupa til nota á heimili. Aðeins eitt tæki til nota á heimili Lítið reynt á regl- ur um hjálpartæki ÖKUMAÐUR var tekinn í Borgar- nesi í fyrrakvöld, grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. Ekki fundust fíkniefni á manninum. Tekin voru blóð- og þvagsýni úr ökumanninum og er málið í rann- sókn. Undir áhrifum fíkniefna ♦♦♦ SAMKVÆMT upplýsingum frá starfsmanni Varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins var ratsjár- búnaður Ratsjárstofnunar notaður við heræfinguna Norðurvíking 2007, sem fram fór í vikunni. Umsjónar- miðstöð æfingarinnar var í ratsjár- miðstöðinni á öryggissvæði Keflavík- urflugvallar. Eiginleg aðgerðastjórnun fór hins vegar fram úr AWACS ratsjáreftir- litsflugvél NATO, en fylgst var með í ratsjármiðstöðinni á öryggissvæðinu, með þeim upplýsingum sem íslenska ratsjárkerfið aflaði. Þá voru æfingarstjórar í ratsjár- miðstöðinni, sem fylgdust þar með á íslenskum ratsjám, sáu allt sem gerð- ist í loftinu og höfðu nægilegar upp- lýsingar til að geta gefið fyrirmæli þaðan. Það gerðu þeir hins vegar ekki, en öll fyrirmæli sem flugáhafnir fengu á meðan á æfingunni stóð komu frá hermönnum um borð í rat- sjáreftirlitsvélinni. Það var gert því einn hluti af æfingunni gekk út á að stjórna aðgerðum á lofti úr slíkri vél. Fylgdust með í Keflavík Eiginlegur ratsjárbúnaður Rat- sjárstofnunar var því ekki notaður til þess að afla upplýsinga sem skipanir voru gefnar eftir á æfingunni, heldur einungis til þess að fylgjast með því sem fram fór í háloftunum á meðan aðgerðastjórar í flugvél NATO gáfu flugmönnum orrustuþotna fyrirskip- anir. Landvarnaæfingin Norðurvíkingur Notuðu tæki frá Ratsjárstofnun FJÖLMENNI var viðstatt opnun landbúnaðarsýningarinnar Sveita- sæla í reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkóki í gærkvöldi. Við athöfn- ina fluttu ávörp Guðmundur Guð- laugsson sveitarstjóri og landbúnað- ar- og sjávarútvegsráðherra Einar Kr. Guðfinnsson sem setti samkom- una, þá söng Jóhann Már Jóhanns- son bóndi í Keflavík nokkur lög við undirleik Stefáns R. Gíslasonar. Að sögn Jóns Þórs Bjarnasonar sýningarstjóra er þetta þriðja sýn- ingin sem haldin er í Skagafirði og sú langumfangsmesta. Sagði Jón að á rúmlega fimm þúsund fermetra úti- sýningarsvæði væru allir vélasalar landsins og á 1.700 fermetra svæði inni væru svo sýningar og sölubásar þar sem fram færu ýmsar kynning- ar, en einnig eru gestum boðnar veit- ingar úr hinni „skagfirsku matar- kistu“. Alls mun fjöldi þeirra sem eru með sýningar á svæðinu vera um eða yfir fjörutíu. Veitingar úr hinni „skagfirsku matarkistu“ Landbúnaðarráðherra opnar Bændahátíð á Sauðárkróki Morgunblaðið/Björn Björnsson Setning Landbúnaðarráðherra hélt setningarræðu. Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri tók í gær við fyrstu tunnunni hjá Reykjavíkurborg sem ætluð er fyrir pappírsúrgang á heimili sínu í Breiðholti. Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfisráðs, segir bláu tunn- urnar lið í Grænu skrefunum, um- hverfisátaki Reykjavíkurborgar. Aukin endurvinnsla sé hluti af þeim og „fyrsta skrefið í því er að reyna að fá fólk til þess að skilja dagblaðapappírinn frá öðru sorpi. Menn hafa því miður ekki verið nógu duglegir við það,“ segir Gísli Marteinn. Hingað til hefur verið hægt að skila dagblöðunum í Sorpu eða í grenndargáma. „30% af því sorpi sem við erum að urða upp í Álfsnesi er dag- blaðapappír eða prentpappír,“ segir Gísli Marteinn, en frá árinu 2003 hefur magn hans aukist um 76%. Þegar hafa um 300 manns pant- að bláa sorptunnu „og við erum að vona að það verði miklu fleiri“, segir Gísli Marteinn. Fólk getur óskað eftir því að fá slíka tunnu hjá umhverfissviði, en gjaldið fyrir tunnuna er 7.400 krónur á ári og er markmiðið hjá borginni að reksturinn standi und- ir sér með því. Að sögn Gísla Mar- teins verða tunnurnar tæmdar 18 sinnum á ári. Verðmæti til spillis Gísli Marteinn segir að hendi fólk dagblaðapappír í venjulega ruslatunnu sé verið að fara illa með verðmæti á að minnsta kosti tveimur sviðum. „Menn eru þá að setja verðmætt land í Álfsnesi und- ir dagblöð og í öðru lagi erum við að missa af tækifæri til þess að selja þessi dagblöð í endurvinnslu til Svíþjóðar,“ segir Gísli Mar- teinn. Vonir standi til að með bláu tunnunum margfaldist það magn blaða sem hægt er að selja til Sví- þjóðar í endurvinnslu. Borgarstjóri tók við fyrstu pappírstunnunni í gær Bláar tunnur fyrir dagblöð Morgunblaðið/Frikki Endurvinnsla Um 300 manns hafa pantað bláa tunnu eins og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri fékk í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.