Morgunblaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Á VEGUM forsætisráðuneytisins var skipuð nefnd sem m.a. átti að endurskoða fyrirkomulag og for- sendur örorkumats og kanna at- vinnuþátttöku öryrkja. Markmið nefndarinnar var að finna lausnir til að fyrirbyggja örorku og efla þátttöku ör- yrkja á vinnumarkaði. Meðal tillagna nefnd- arinnar var að breyta lögum og reglugerðum sem latt hafa fólk til tekjuöflunar, að meta starfsfærni í stað starfsfærniskerðingar og stórauka möguleika til starfsendurhæf- ingar. Nefndin lagði til að núgildandi ör- orkumat yrði fellt nið- ur. Að setja atvinnu- þátttöku í forgrunn og styrkja úrræði sem auka virkni ein- staklinga hefur víðtæk áhrif. Þau fyrirtæki sem skapa fólki með skerta starfshæfni möguleika til starfa leggja miklu meira til sam- félagsins en þótt bein fjárframlög í styrktarsjóði kæmu til. Íslendingar hafa verið í fremstu röð varðandi at- vinnuþátttöku fólks frá 15-64 ára, en það á ekki við um atvinnuþátttöku öryrkja. Það er ekki bara launa- umslagið sem skiptir máli. Vinnu- staðurinn er mikilvægur. Fé- lagsskapurinn, tilfinningin að tilheyra hópi, finna sig í hlutverki og skipta máli. Að vera í vinnu skapar ramma í tilverunni. Þar sem vinnutími og álag er hæfilegt bætir það heilsu og vellíðan. Að færa athyglina frá færniskerðingu en horfa þess í stað á styrkleika einstaklinga er kúvending frá fyrra kerfi og kallar á annars konar þekkingu en hingað til hefur verið í forgrunni. Efla þarf hæfileika og styrkleika einstaklinga og draga fram þætti sem gagnast hafa á þeim vinnustöðum sem tekið hafa á móti einstaklingum með skerta starfs- hæfni. Verðmæt þekking býr líka í þeim sem hrakist hafa af vinnu- markaðinum í langan tíma en komist þangað aftur. Ef slík þekking verður ekki dregin fram á skipulegan hátt verður uppskeran undir væntingum, þó svo að lögum og reglugerðum yrði breytt og starfendurhæfing stórefld. Viðhorf atvinnurekenda, verk- stjóra, samstarfsmanna og almenn- ings gagnvart fólki með skerta vinnugetu verða að breytast. Það gerist ekki nema með milliliðalausri samvinnu á vettvangi. Stjórnvöld verða auk þess að setja ákveðnar viðmiðunarreglur til að liðka til fyrir aukinni þátttöku á atvinnumarkaði. Leggja mætti til ákveðið lágmarks- hlutfall, t.d. að 15. hver ráðning félli í skaut starfsmanns sem ætti við fötl- un að stríða. Svo mætti verðlauna fyrirtæki með 30% eða fleiri fatlaða starfsmenn, s.s. í formi skattaíviln- ana. Ráðuneytin og fyrirtæki á veg- um hins opinbera eiga að sýna í verki að þeim sé alvara í því að auka þátttöku öryrkja á atvinnumarkaði og vera í fararbroddi í að ráða fólk með skerta vinnugetu og hafa í gangi tilraunaverkefni sem getið gæti af sér þekkingu sem yfirfæra mætti í einkageirann. Það hefur sýnt sig að atvinnutæki- færi, með þar til gerðum stuðningi, fyrir þá sem eru t.d. geðsjúkir skilar meiri árangri en ýmis sérhæfð úr- ræði. Markmiðið með atvinnuþátt- töku er ekki lækning eða að skerða fjárstuðning. Fái geðsjúkir hins veg- ar tækifæri til að vinna við verkefni sem þeir kjósa sjálfir og á þeim hraða sem þeir ráða við, minnkar eftirspurnin eftir fjárfrekri heil- brigðisþjónustu. Ráðamenn verða að gera sér grein fyrir því að það tekur tíma að aðlagast atvinnulífinu. At- vinnurekendur verða líka að fá stuðning til að geta sýnt fólki þá þol- inmæði og umburðarlyndi sem þarf og stuðningurinn verður að vera á vinnustaðnum sjálfum og vinna þarf með allt vinnuumhverfið. Einnig þarf að undirstrika að bati kemur ekki jafnt og þétt. Hann er ekki bara upp á við og bein leið, heldur koma bakslög og alls kyns hliðarspor. Allt- af er hætta á að allir verði steyptir í sama mót og gengið út frá því að þarfir allra séu svipaðar. Einnig þarf að hafa það hugfast að óþarfi er að fara í ákveðnar stellingar í sam- skiptum, hvort sem um geðsjúka, fatlaða, lækna eða ráðamenn er að ræða. Við erum öll venjulegt fólk sem krefst eðlilegrar framkomu. Við viljum að okkur sé sýnd virðing og öll viljum við hafa áhrif á nær- umhverfið. Sum okkar þurfa lengri tíma í leiðbeiningar, skýrari fyr- irmæli og meiri þolinmæði þegar læra þarf. Sumir eru næmari fyrir pirringi og vanlíðan annarra og mis- túlka þennan pirring og taka hann persónulega. Flestir ná meiri ár- angri ef viðmótið er jákvætt og hvetjandi og sumir þurfa samstarfs- félaga sem standa með þeim sem ekki geta varið sig séu þeir beittir órétti eða misskilningur kemur upp. Góð læknismeðferð, endurhæfing og aukið sjálfstraust duga skammt ef ekki kemur til eftirfylgd á vinnu- staðnum sjálfum. Ef þeir sem þar eru í forsvari fá ekki aðstoð við að aðlaga vinnuumhverfi og/eða leið- beiningar um nálgun, þá duga skammt nefndarálit um fögur fyr- irheit á vegum forsætisráðuneyt- isins. Langþráð markmið hjá flest- um skjólstæðingum sem ég hef kynnst í geðheilbrigðiskerfinu er að komast í vinnu, að fá að eiga samleið með öðrum og taka þátt í samfélag- inu. Ekki hefur þá skort viljann heldur hafa verið of margar hindr- anir og lokaðar dyr. Atvinnuleg endurhæfing – Ný tækifæri til atvinnuþátttöku Elín Ebba Ásmundsdóttir skrif- ar um atvinnuþátttöku öryrkja » Að færa athyglinafrá færniskerðingu en horfa þess í stað á styrkleika einstaklinga er kúvending frá fyrra kerfi og kallar á annars konar þekkingu. Elín Ebba Ásmundsdóttir Höfundur er forstöðuiðjuþjálf i geðsviðs LSH og lektor við HA. MEÐAN Íslendingar bíða á heitu sumri eftir því að ný rík- isstjórn efni öll kosningaloforðin um bættan hag aldraðra, lífeyr- isþega og öryrkja, væri tilvalið fyrir þá að stytta sér stundir með því að heimsækja Regnbogann á Hverf- isgötunni og horfa á mynd Michaels Moore um neyðarástandið í heilbrigðis- og trygg- ingarmálum í Banda- ríkjunum – ríkasta þjóðfélagi heims. Myndin heitir „Sicko“ og er hluti af bíódögum Græna ljóss- ins, sem gefur okkur næstu daga kost á að upplifa öðruvísi kvik- myndir en þessa venjulegu spennuþrilla frá Hollywood, sem eru daglegt brauð þeirra, sem leggja leið sína í kvikmyndahús hér á landi. Moore kann á því tökin að sýna kjarna málsins vafningalaust og á eftirminnilegan hátt. Myndin er um stærsta þjóðfélags- vanda Bandaríkja- manna, sem er sá, að þetta ríkasta þjóðfélag heims er eina þróaða rík- ið í heiminum, sem býður þegnum sínum ekki upp á almannatrygg- ingar. Fimmtíu milljónir manna njóta engra trygginga. Þetta eru hinir fátæku, sem hafa einfaldlega ekki efni á því. Þessi mynd er ekki um það fólk. Hún er um hina, sem kaupa sér tryggingar dýrum dómum hjá tryggingafélögunum. En trygginga- félögin eru rekin í gróðaskyni og tryggja ekki hvern sem er. Smáa letrið er lúmskt og því er beitt mis- kunnarlaust. Ef sjúkrasaga þín eða fjölskyldunnar þykir vafasöm, er þér einfaldlega hafnað eða iðgjöldin eru hækkuð upp úr öllu valdi. Það er hart barist um að þjóna hinum ríku en hinir efnaminni liggja óbættir hjá garði, í bókstaflegum skilningi. Keypt pólitík Tryggingafélög og auðhringir græða á tá og fingri. Þau kaupa stjórnmálamenn með ríflegum framlögum í kosningasjóði og ráða fyrir vikið löggjöfinni. Þessi auðfélög og heilsugæsluheildsölur í þjónustu þeirra eru ráðandi á auglýs- ingamörkuðum og ráða í krafti þess fjöl- miðlaumræðunni. Þeim hefur tekist að sannfæra Bandaríkja- menn um, að al- mannatryggingar séu sama sem komm- únismi. Sameiginlega tókst þessum auð- félögum með pólitísk- um mútugreiðslum og rándýrri fjölmiðla- herferð að koma til- raun Hillary Clinton um skylduaðild al- mennings að almanna- tryggingum á vegum ríkisins fyrir katt- arnef í upphafi for- setaferils Clinton 1992. Clinton náði sér aldrei pólitískt eftir þann ósigur. Bandaríkjamenn verja allt að því tvisv- ar sinnum meira fé til sjúkratrygginga og heilbrigðisþjón- ustu en aðrar þróaðar þjóðir. Kerf- ið þjónustar hina ofurríku ágætlega en bregst öllum almenningi hrap- allega. Kerfið er rándýrt, óhag- kvæmt, eyðslusamt og árangurs- lítið. Ástandið er eiginlega þjóðarharmleikur. Í myndinni segir Moore ótal sög- ur af einstaklingum og fjölskyldum, sem kerfið hefur brugðist. Dæmin eru „legio“. Einna átakanlegust er saga slökkviliðsmanna og sjálf- boðaliða, sem lögðu nótt við nýtan dag við að bjarga fórnalömbum 11. september í New York og hlutu við það varanlegan heilsuskaða. Það vantaði ekki hræsnina í hátíðarræð- unum, þegar þessu fólki var lýst sem bandarískum hetjum. Þegar á reyndi, voru „hetjurnar“ meðhöndl- aðar sem úrhrök, sem kæmu bandarísku þjóðfélagi ekki við. Fyrirmyndarríkið Á einum stað gefur Moore orðið laust Bandaríkjamönnum, sem búa í Frakklandi og eiga ekki orð til að lýsa aðdáun sinni á franska velferð- arkerfinu. Heimilislæknirinn kemur í húsvitjanir, þegar eftir er leitað. Aðgangur að heilsugæslustöðum og sjúkrahúsum er tafarlaus og án gjaldtöku. Foreldrar eiga rétt á fæðingarorlofi á launum. Allt sam- an sjálfsagðir hlutir í augum þeirra, sem alist hafa upp við samfélags- þjónustu evrópska velferðarríkisins. Þessir Bandaríkjamenn, sem bjuggu í Frakklandi, áttu varla orð til að lýsa aðdáun sinni, á sama tíma og bandarískir pólitíkusar og fjölmiðlar forheimskuðu sig á að lýsa Frakklandi sem óvinaríki út af andstöðu Frakka við Íraksstríðið. Þeir gátu ekki einu sinni tekið sér í munn orðin „French fries“ lengur; þær urðu að heita „freedom fries“. Sá sem vill reyna að skilja þann reginmun, sem er á samfélagsgerð, lífsviðhorfum og lífsstíl Evrópu- manna og þeirra afla í Bandaríkj- unum, sem hafa ráðið lögum og lof- um um þróun bandarísks þjóðfélags á undanförnum áratug- um, ættu að bregða sér í Regnbog- ann og sjá „Sicko“. Þeir verða reynslunni ríkari. Eftir stendur spurningin: Hvernig má það vera, að ríkasta þjóðfélag heims býr hin- um efnaminni þegnum sínum – og þeim fer fjölgandi – lífslíkur, sem standast ekki samanburð við örs- nautt þriðja heims land eins og t.d. Kúbu? Moore átti mikinn þátt í því með fyrri myndum sínum að koma vit- inu fyrir fjölmarga Bandaríkja- menn varðandi Íraksstríðið. Von- andi tekst honum að sannfæra nógu marga Bandaríkjamenn fyrir komandi forsetakosningar um, að almannatryggingar flokkast undir mannréttindi og heilbrigða skyn- semi. Til eru þau svið mannlegrar tilveru, þar sem mannúðinni ber að vísa gróðasjónarmiðinu á dyr. Kennslustund í kvikmyndahúsi Jón Baldvin Hannibalsson skrifar um kvikmynd Michaels Moore um ástandið í heil- brigðis- og tryggingarmálum í Bandaríkjunum »En trygg-ingafélögin eru rekin í gróðaskyni og tryggja ekki hvern sem er. Smáa letrið er lúmskt og því er beitt miskunn- arlaust. Jón Baldvin Hannibalsson Höfundur var sendiherra Íslands í Bandaríkjunum 1998-2003. NETFRÉTTABRÉF breska tímaritsins Auto Express gefur yf- irlit yfir 100 spar- neytnustu og vist- mildustu bílana á breska markaðnum samkvæmt könnun AE. Ekki kemur á óvart að smábíla- flokkurinn, nú kall- aður borgarbílaflokk- ur, kemur best út í sparneytni og vist- mildi (visthæfi kalla embættismenn Reykjavíkur það). Hér verður til- færður listi yfir 10 bestu. Eldneyt- iseyðsla er í frum- texta að breskum sið gefin upp í mílum á hvert gallon, hér um- reiknað í lítra pr. 100 km að íslenskum sið – mílan 1,609 km og br. gallón 4,546 lítr- ar. – Aukastöfum er sleppt, sem hefur í för með sér að þrír bílar koma út með 6,1 í eyðslu en eru með einhvern aukastafamun í breska listanum (mpg). Þetta er merkilegur listi (sjá mynd). Í fyrsta lagi nær enginn þessara bíla að fá ókeypis bílastæði í Reykjavík því eldsneytiseyðsla er yfir 5 l pr 100 km – ef rétt er munað um kröfurnar, þó koldíox- íðmengun sé undir mörkum. Í öðru lagi: Tveggja manna pút- an Smart með 0,7 l vél er yfir 7 l í eyðslu og nær aðeins í 8. sæti á listanum. Það gera aftur á móti fjórir bílar með 1,2 l vél og þar yf- ir, þar á meðal toppbíllinn, Fiat Panda 1,3 Multijet. Í þriðja lagi: Aðeins tveir bílar á þessum lista eru með dísilvél – þeir tveir efstu. Í fjórða lagi: Aðeins tveir fram- leiðendur eiga fleiri en einn bíl á þessum lista, Citroën og Fíat. Í fimmta lagi: Minnsti koldíoxíð- útblásturinn er úr vélinni með stærsta rúmtakið, Citroën C2 1,4 HDI – en það er líka dísilvél. Ég get ekki stillt mig um að undirstrika góða útkomu Fiat á þessum lista. Hún kemur mér ekki á óvart. Á hlaðinu hjá mér áttu Fíatbílar um tíma heimahöfn – raunar aðeins gamli og góði Fiat Uno, þeir urðu hér 5 alls ef ég man rétt og hver öðrum betri nema einn sem var hálf mislukkaður. Hann var líka sá eini sem var með 1,3 l vél; hinir voru allir með 1,0 l vél. (Ég komst aldrei til að eiga gamla Fiat Multipla með miðspikið undir framrúðunni – sem er einhver fallega ljótasti bíll sem ég man eftir auk þess að vera þægilegur og skemmtilegur í akstri). Hins vegar hefur Fíat sætt því óláni að vera rægður hérlendis langt umfram nokkra skynsemi. Innan þeirra marka sem hægt er að ætla smá- bílum stendur Fiat vel fyrir sínu og – eins og hér kemur fram – er ágætlega hagkvæmur í akstri. Mig langar að bísa hér frá Jeremy Clarkson, þeim orðhvata starfsbróður mínum úr Top Gear, upphafsorðum hans í umsögn um Fiat Panda (tim- esonline.co.uk): „A little while back I tested a bog-standard Fiat Panda and while it was slower than a real panda, it was also a damn sight cheaper to buy or run. So on balance, I liked it very much.“ Hér er Clarkson að tala um grunngerðina með 1,2 60 ha bens- ínvél. Til að gæta allrar sanngirni og firra mig því að vera vændur um að slíta orð hans úr samhengi tek ég fram að næstum allur af- gangur umsagnar hans fer í að tala um hve hættulegt sé að vera á kraftlitlum bílum á hraðbraut- unum – sem að mínu viti er ekkert bundið við Fiat. Ég vil líka benda á að Fiat Panda 1,3 Multijet en 70 ha og dísill. Þó ég hafi ekki ekið þessum tiltekna bíl veit ég af reynslu að Fiat kemur best út Sigurður Hreiðar skrifar um sparneytnustu bílana í flokki borgarbíla Sigurður Hreiðar » 8 af 10 vist-mildustu bíl- unum fá ekki frítt í bílastæði í Reykjavík, sé rétt munað/ skilið að eyðsla þurfi líka að vera undir 5 l pr. 100 km.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.