Morgunblaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 45 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Félag eldri borgara í Kópavogi | Ferð í Þórsmörk og A-Landeyjar 23. ágúst. Brottför Gjábakka kl. 8.15, Gullsmára kl. 8.30. Farið í Bása, eigið nesti. Staðháttum lýst og Guðrún Lilja verður með gítarinn. Að Seljalandsfossi á leið í A-Landeyjar. Bakki, Kross o.fl. Kvöldmatur Hlíð, Ölfusi. Skrán- ing og upplýsingar í félagsmiðstöðvum. Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10. Félagsstarf Gerðubergs | Mánud. og miðvikud. er sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug. Þriðjud. og föstud. kl. 10.30 er létt ganga um ná- ur með opið hús í tilefni menningarnætur. Húsið opnar kl. 14 laugardaginn 18. ágúst. Þá hefst harmónikkuball, Vitatorgsbandið spilar fyrir dansi. Kl. 14.30 syngur Ragnhildur Hauksdóttir nokkur lög við undirleik Kristins Valdimarssonar. Hátíðarkaffi. Allir velkomnir. Kirkjustarf Aðventkirkjan í Reykjavík | Biblíurannsókn fyrir börn og fullorðna kl. 10-11. Einnig boðið upp á um- ræðuhóp á ensku. Guðþjónusta í Aðventkirkjunni í Reykjavík kl. 11. Ræðumaður Eric Guðmundsson. Loftsalurinn, Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði | Guðþjónusta og biblíurannsókn kl. 11. grennið. Mánud. 20. ágúst er fræðslu og kynn- isferð um borgina. Leiðsögn veitir Magnús Sæ- dal, byggingafulltrúi. Lagt af stað kl. 13, allir velkomnir. Hraunbær 105 | Handavinnan byrjar á mánudag- inn, skráning er hafin á námskeið sem byrja um mánaðarmót í síma 587 2888 eða á skrifstofu. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er opið öllum. Skráning hafin. Tugir hugmynda liggja frammi. Hugmyndabankinn opinn til 29. ágúst. Hvernig vilt þú sjá félagsstarfið? Draumadísir koma sam- an 23. ágúst. S. 568 3132, asdis.skuladottir- @reykjavik.is. Vitatorg, félagsmiðstöð | Félagsmiðstöðin verð- 90ára afmæli. Í dag, 18.ágúst, er frú Fjóla Bjarnadóttir, Hlíðarhúsum 3, Reykjavík, níræð. Að því til- efni tekur hún á móti vinum og vandamönnum sunnudaginn 19. ágúst, að Brekkum í Fljótshlíð eftir kl. 14. 60ára afmæli. Í dag, 18.ágúst, er sex tugur Geir Friðgeirsson, Sólvalla- götu 66, Rvk., barnalæknir í Domus Medica og Sólvangi Hafnarfirði. Hann verður að heiman í dag með fjölskyldu sinni í faðmi íslenskrar nátt- úru. Brúðkaup | Þorsteinn Hún- fjörð og Helena Eydal gengu í hjónaband í New York hinn 21. júlí síðastliðinn. Þau eru búsett í Reykjavík. MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira lesendum sínum að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælis- tilkynningum og/ eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Hægt er að hringja í síma 569-1100, senda til- kynningu og mynd á net- fangið ritstjorn@mbl.is, eða senda tilkynningu og mynd í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is, og velja lið- inn Senda inn efni". Einnig er hægt að senda vélritaða tilkynningu og mynd í pósti. Bréfið skal stíla á Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. dagbók Í dag er laugardagur 18. ágúst, 230. dagur ársins 2007 Orð dagsins: En ef einhver elskar Guð, þá er hann þekktur af honum. (I.Kor. 8, 3.) Tónlist Hallgrímskirkja | Kl. 15-21. Sálmaveisla í Hallgrímskirkju. Samfelld dagskrá þar sem fluttir verða sálmar frá ýmsum stíl- tímabilum af fjölbreyttum hópi tónlistarfólks. Frumfluttir fjórir nýir íslenskir sálmar sérstaklega samdir fyrir Kirkjulistahátíð. www.kirkjulistahatid.is. Hressó | Kl. 21. Dixiebandið Önd- in verður með sína árlegu tón- leika á Hressó, Austurstræti 20 þetta árið. 11 manna hljómsveit sem spilar New Orleans-tónlist eins og hún gerist best. Kaffi Vín | Dixiebandið Öndin marserar niður Laugarveginn. Skrúðgangan hefst á Laugavegi 73 og endar á Hressó, Austur- stræti 20. Listasafn ASÍ | Á menningar- nótt mun Evridís koma tvisvar fram í listasafni ASÍ, kl. 16 og kl. 20. Á efnisskránni eru sönglög úr ýmsum áttum; íslensk og er- lend þjóðlög og vinsæl sönglög eftir m.a. Atla Heimi Sveinsson og Sigfús Halldórsson. Myndlist Gallerí Fold | Í efri hliðarsal er sýning á teikningum Halldórs Péturssonar. Tvær myndaraðir, frummyndirnar af skopmyndum frá heimsmeistaraeinvígi Fisch- ers og Spasskys í Laugardals- höllinni 1972 og skopmyndir af íslenskum víkingum. Sýningin stendur til 26. ágúst. Gallerí Sævars Karls | Kolbrá Braga sýnir vegglistaverk. Kaffi Sólon | Haukur Snorrason sýnir ljósmyndir teknar úr lofti á flugvél sem hann sjálfur flýgur. Opnun verður frá kl. 16-18 í dag. Listasafn ASÍ | Sýning á verk- um eldri og yngri listamanna úr safnaeigninni. Verk eftir Jó- hannes Kjarval, Jón Stefánsson, Önnu Eyjólfsdóttur, Guðrúnu Kristjánsdóttur, Olgu Bergmann og Birgi Andrésson. Listhús Ófeigs | Steindóra Bergþórsdóttir, Katrín Pálsdóttir og Erla Sigurðardóttir eru með samsýningu á glerverkum og vatnslitamyndum. Opið frá kl. 11- 23 á menningarnótt. Söfn Landsbókasafn Íslands, Há- skólabókasafn | Aukinn skilning mun hún færa oss, þessi Ís- landsferð. Konungskoman 1907. Sýning í Þjóðarbókhlöðu í tilefni þess að í sumar er öld liðin frá komu Friðriks VIII. Danakonungs til Íslands. Sjá nánar á heima- síðu safnsins www.landsboka- safn.is. HESTURINN Inja La Silla stekkur hér fimlega yfir vatns- hindrun með knapann sænska Olaf-Göran Bengtsson á baki. Stökkið fór fram á árlegu Evrópumóti í stökki hesta sem fram fór í Mannheim í Þýskalandi á dögunum. Ekki fylgdi sögunni hvort tilþrifin færðu þeim félögum sigur. Fljúgandi fákur Reuters FRÉTTIR MÁNUDAGINN 20. ágúst og þriðjudaginn 21. ágúst kemur hing- að til lands á vegum World Class kanadískur sérfræðingur, Mary Beavan-Kuipers, sem hefur sérhæft sig í þjálfun og lífsstíl eldri aldurs- hópa. Hún mun sjá um námskeið, bæði fræðslu og verklegar æfingar, fyrir allt áhugafólk um þjálfun eldri aldurshópa í World Class í Laugum. Einnig mun Janus Guð- laugsson M.Ed., íþróttafræðingur og doktorsnemi kynna niðurstöður meistararannsóknar sinnar 2005 og eftirfylgnirannsóknar á eldri ald- urshópum á Íslandi sem gerð var tæpum tveimur árum síðar (2006) á sama hópi. Mjög spennandi námskeið fyrir heilbrigðisstarfsfólk, íþróttakenn- ara, einkaþjálfara og áhugafólk um fólk og heilsu, segir í fréttatilkynn- ingu. Námskeiðsgjald er 14.500 kr. Afsláttur verður veittur fyrir hópa. Skráning er hafin í afgreiðslu World Class í Laugum, í síma 553- 0000 og hjá Gígju Þórðardóttur – gigja@worldclass.is Námskeið um lífsstíl eldra fólks SÖGUSETUR íslenska hestsins stendur fyrir málstofu um sögu hestsins út frá fornleifum, þriðju- daginn 21. ágúst, kl. 13-15, að Hól- um í Hjaltadal. Hestabein sem fundist hafa við fornleifauppgröft eru ómetanlegar heimildir um sögu hestsins; upp- runa hans og notkun í gegnum ald- irnar. Nýleg rannsóknarverkefni hér á landi og í Svíþjóð verða kynnt á málstofunni. Ragnheiður Traustadóttir forn- leifafræðingur flytur erindið „Hvað segja forn dýrabein okkur um söguna?“, Ylva Telldahl forn- leifafræðingur flytur erindið „Notkun dýra í landbúnaði fyrr á öldum“ og Sigríður Björnsdóttir dýralækn- ir flytur erindið „Uppruni íslenska hestsins og heilsufar á landnáms- öld“. Málstofan fer fram á ensku og eru allir velkomnir. Málstofa um sögu hestsins HIN árlega kaffisala sumarbúða KFUK í Ölveri verður á morgun, sunnudaginn 19. ágúst, kl. 14.30-18. Í fréttatilkynningu segir að boðið verði uppá glæsilegt kaffihlaðborð á sanngjörnu verði til styrktar starfinu í Ölveri. Öll leiktæki verða opin, þar á meðal stærsta hengirúm á Íslandi og hoppkastali. Starfinu í Ölveri fer senn að ljúka en rúmlega 400 stúlkur hafa dvalið í þar í sum- ar. Kaffisalan er að sjálfsögðu öll- um opin og gott tækifæri fyrir alla fjölskylduna að fara í góðan sunnu- dagsbíltúr í Borgarfjörð og kíkja í Ölver í leiðinni. Kaffisala í Ölveri Óvenjuleg stemning verðurhjá UNIFEM á Íslandi ídag, laugardag, en þá býð-ur félagið gestum á fram- andi kvennaslóðir í Langtíburtistan. Sjöfn Vilhelmsdóttir er fram- kvæmdastýra landsnefndar UNI- FEM á Íslandi: „Starf UNIFEM fer að mestu fram í þróunarlöndunum þar sem við leitumst við að aðstoða konur sem búa við margskonar að- stæður og ólíkar hindranir,“ segir Sjöfn. „Á laugardag ætlum við að gefa gestum og gangandi innsýn inn í líf kvenna á þessum svæðum, og menningarheim þeirra, með léttleika og gaman í fyrirrúmi.“ Búningar og gripir Meðal annars verður haldin sýning á ljósmyndum frá starfssvæðum UNIFEM: „En við bætum um betur, spilum tónlist og sýnum gripi, og ekki hvað síst ætla nokkrar vaskar og kátar UNIFEM-konur að klæðast búningum og fatnaði frá framandi slóðum og leika á als oddi,“ segir Sjöfn. „Með þessu viljum við minna á að þróunarsamvinna virkar ekki bara í eina átt, heldur höfum við margt að læra af þeim konum sem við leggjum lið á fjarlægum slóðum.“ Landsnefnd UNIFEM á Íslandi eru frjáls félagasamtök: „Meðal markmiða félagsins er að vekja al- menning til vitundar um aðstæður kvenna í þróunarlöndunum. Með stuðningi félagsmanna og með styrkj- um frá fyrirtækjum og opinberum að- ilum fjármögnum við verkefni sem m.a. lúta að því að efla pólitíska þátt- töku kvenna og hamla gegn út- breiðslu alnæmis meðal kvenna í þró- unarlöndunum,“ útskýrir Sjöfn. „UNIFEM leggur áherslu á að veita konum aðstoð og vernd í stríðs- átökum og að efla þátttöku þeirra í friðarferli og uppbyggingu. Á síðustu árum hefur UNIFEM sérstaklega leitast við að beina sjónum umheims- ins að þeim mikla vanda sem kyn- ferðislegt ofbeldi gegn konum á stríðstímum er.“ Hægt verður að heimsækja Langtí- burtistan frá kl. 13 til 17 á Laugavegi 42. Finna má nánari upplýsingar á www.unifem.is Jafnrétti | UNIFEM býður í ferð um framandi slóðir á Laugavegi 42 í dag Konur í Langtíburtistan  Sjöfn Vilhelms- dóttir fæddist á Ísafirði 1970. Hún lauk stúdentsprófi frá MÍ 1990, BA- námi í stjórnmála- fræði frá HÍ 1996 og MA-námi í al- þjóðafræðum frá Háskólanum í Den- ver 1999. Sjöfn starfaði lengi fyrir Þróunarsamvinnustofnun Íslands, m.a. sem verkefnastjóri í Namibíu og hefur einnig unnið sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Hún tók við starfi framkvæmdastýru UNIFEM fyrir rúmu ári.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.