Morgunblaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 33
og nota ég eina sérstaka uppskrift frá henni enn í dag. Ávallt þegar komið var í heimsókn til Siggu og Magnúsar að Sæbergi, á þeirra fallega heimili sem þakið var hannyrðum frúarinnar, var farið að rifja upp liðnar stundir, skoða gamlar og nýjar myndir. Slysavarnadeildin Björg naut starfskrafta hennar í mörg ár. Kærkomið var og tilhlökk- unarefni þegar þær vinkonurnar Sigga og Leifa komu í sína árlegu heimsókn til mín til margra ára, þá var skrafað og hlegið og dagurinn leið allt of fljótt. Hún Leifa var svo sann- arlega góð og trygg vinkona hennar Siggu, og hefur það komið skýrt fram í veikindunum sem voru þungbær og sár. Umhyggja Leifu og Hrannar dóttir hennar var eins og dætur Siggu væru. Voru þær fram á síðasta dag við sjúkrabeð hennar og hafa verið góður og mikill stuðningur við Magnús og syni. Síðast þegar við hjónin komum í heimsókn var ynd- islegt að sjá umhyggjuna sem hún naut heima fyrir. Þar var Sigurbjörg ömmustelpan að teikna og dunda sér við að búa til myndir handa ömmu sinni. Ég er þakklát fyrir að hafa átt þessa hreinskiptnu og trúföstu vin- konu. Guð blessi og styrki eiginmann hennar, syni, tengdadætur og barna- börn. Þó missi ég heyrn og mál og róm og máttinn ég þverra finni, þá sofna ég hinst við dauðadóm, ó, Drottinn, gef sálu minni að vakna við söngsins helga hljóm í himneskri kirkju þinni. (Ólína Andrésdóttir.) Kveðja Halldóra V. Steinsdóttir. Hvað er betra en góðir nágrannar? Um leið og við kveðjum Sigurbjörgu Guðmundsdóttur þá verður okkur það ljóst. Um langan aldur hafa fjölskyldur okkar verið tengdar vináttuböndum. Og þegar við Edda urðum ábúendur í Akbraut fyrir nokkrum árum tók hún okkur sannarlega fagnandi og lét ekki sitt eftir liggja að koma til liðs við okkur í endurbótum og gæslu Ak- brautar. Hún fylgdist með framkvæmdum, var með í ráðum og sagði okkur kosti og lesti á hugmyndum okkar. Það er gott að eiga vini sem ekki eru viðhlæjendur. Þannig var Sigga, hún uppskar ómælda virðingu og væntumþykju frá okkur hér í Ak- braut. Hennar verður sárt saknað. Þorbjörn og Edda. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 33 ✝ Gunnur Gunn-arsdóttir fædd- ist á Hamarsheiði í Gnúpverjahreppi 16. september 1917. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Kumbaravogi 11. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ólína Ásgeirs- dóttir, f. 19. febrúar 1898, d. 18. ágúst 1936, og Gunnar Gunnlaugsson, f. 16. október 1885, d. 3. febrúar 1917. Ólína giftist síðan Sæmundi Jóhannssyni, f. 2. maí 1893, d. 18. ágúst 1944. Systkini Gunnar, sammæðra eru Margrét, f. 1926, Ásgeir, f. 1927, Sigríður, f. 1928, Jóhann, f. 1930, Ásta Rakel, f. 1931 og Gunnar, f. 1935. Sambýlismaður Gunnar er Eiríkur K. Eiríksson, f. 25. mars 1926. Börn Ei- ríks eru Lilja, f. 1949 og Björn Heið- rekur, f. 1953. Gunnur og Eirík- ur bjuggu allan sinn búskap að Gafli í Villingaholtshreppi. Gunnur verður jarðsungin frá Villingaholtskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Ung flutti hún af Skriðufelli, en þar sér yfir Þjórsá, niður í Selpart í Flóa, kot við Hólmasel sem var sel frá Traustholti sem áin hafði klofið frá meginlandinu vestanmegin á ferð sinni fram á síðmiðöldum og kallast þar Traustholtshólmi. Þar er ekki annað nú en hrófatildur undir snös, mófugl á hreiðri og stöku kæpa sem gónir upp í vindinn á eyraroddanum uppnorður af hólmanum og hefur bitið undan sér hálfsmánaðar kópinn svo hann sífr- ar í áttlausri maínóttinni allt til morguns. En í Selparti hefur verið búið af myndugleika undanfarna áratugi, móar brotnir undir tún og mýrin, þar sem brúnklukkur vok- uðu í mógröfum, vaðfuglar sperrtu sig á móti sólu og vætan small slikj- uð undan gúmmístígvélunum alla leið út að Skógsnesi, hún er komin í rækt. Rækt er orð sem hæfir Gunni vel. Hún lagði rækt við sitt og sína svo eftir var tekið. Þegar Sæmundur og Ólína féllu frá löngu fyrir aldur fram hélt hún heimili áfram á Selp- arti af miklum dugnaði þótt hálf- systkini hennar fimm hafi verið vart meira en táningar og sum börn. Þannig hélt hún saman og hlúði að þessari fjölskyldu og mörgum fleir- um á langri ævi. Þótt hún sjálf hafi ekki alið börn tók hún að sér og hafði í fóstri, ár eða sumarlangt, mörg ungmenni sem nutu þess ör- yggis sem nærvera hennar og um- hyggja veitti. Hún tók við mér, sex ára áttlausum undanvillingi, og var mér sem móðir. Hún lagði hlýja hönd á vanga mér og klappaði mér á kollinn þegar ég þurfti þess með. Gunnur var glæsileg kona sem bar sig með reisn. Hún var hrokk- inhærð, breiðleit og brosti oft glettnislega, sló sér á lærið þegar hún hló, deplaði augunum og sneri vanganum til hægri. Sumir sögðu að hún væri til hægri, en það þóttu tíðindi þá, þegar flestir vestan Þjórsárinnar voru meiri framsókn- armenn en framsóknarmenn. Hún var orðheppin og kunni þá list að gera sér ekki rellu út af smámun- um. Þá var hún bókelsk og hafði af- bragðs söngrödd. Fátt þótti henni betra en að bregða sér á hestbak; átti enda marga gæðinga um ævina. Hún tal- aði við dýr og þau voru fljót að skynja vilja hennar ekki síður en mannfólkið. Oft var kátt á Selparti þegar ekki þótti enn ósiður að fara í kvöldkaffi á milli bæja. Þangað komu meðal annarra Tómas á Fljóthólum sem hló svo dátt að kýrnar litu upp af beitinni, bræðurnir á Króki, Jósep í Selinu og frændfólkið frá Sýrlæk. Þá var Gunnur í essinu sínu, veitti rausnarlega, lagði sitt til málanna og kleip hvergi af. Kleinurnar henn- ar voru fjórðungsfrægar, enda steiktar stökkar upp úr hrossafeiti. Og það var ekki einskær hending að þegar hún hafði lagt í pönnukökur og brugðið þeim fyrstu á að menn á næstu bæjum fundu skyndilega hjá sér þörf til að reka inn nefið, ef stóð til þeirra áttin. Þannig voru í lífi hennar mörg gleðiefni. Hún skóp þau sjálf og veitti öðrum með sér. Gunnur safnaði ekki punktum hjá flugfélögum. En hún hafði víðsýni sem tók mið af stórum fjallahring og notadrjúgt vit eins og þeir sem þekkja landið og árstíðirnar. Henn- ar Frón voru Flóinn, uppsveitirnar og Hamarsheiðin þar sem hún fæddist. Þessi heimur dugði henni og hún dugði honum vel. Guðbrandur Gíslason. Kæra Gunnur. Nú er komið að kveðjustund. Langar mig að þakka þér öll árin sem við nutum sam- vista. Ég var aðeins 16 ára þegar ég kom fyrst á heimili þitt og tengda- föður míns að Gafli. Þú tókst mér svo vel og aldrei léstu mig finna að ég væri bara krakki og þér fannst bara sjálfsagt að reyna að kenna mér að baka flatkökur og brauð og annað sem nauðsynlegt var að kunna. Þegar dætur mínar fóru að koma í heiminn gladdi það þig mikið að þær skyldu kynnast Gaflinum sem opnu afahúsi. Alltaf gátum við leit- að til ykkar ef okkur vantaði pöss- un, líka eftir að þú varst orðin veik og við gerðum okkur ekki grein fyr- ir því. Gunnur mín. Við Bjössi þökkum þér allar góðar stundir og allt sem þú gerðir fyrir okkur. Megi Guð vera með þér. Kveðja, Arnheiður (Adda). Í dag fylgjum við mætri konu til grafar. Hún Gunnur var engri lík. Ákveðin og röggsöm með húmorinn í lagi. Við systur höfðum gaman að því að koma til afa og Gunnar að Gafli þegar við vorum litlar. Þá var margt gert sér til dundurs, eins og að lesa allar bækurnar í bókahill- unni inni í stofu, spila á orgelið eða leika við Kol og síðar Bangsa. Skemmtilegast var samt að fá að tína egg úti í hænsnakofa með Gunni og svo þurfti líka oft að tína rabarbara, því þá vissi maður að Gunnur myndi búa til rabarbar- agraut. Hún hafði lúmskt gaman að ærslunum í okkur systrum og hafði það á orði að ærslin hefðum við ef- laust frá honum Eiríki afa okkar. Það var erfitt að sætta sig við hversu veik Gunnur varð. En við huggum okkur við það að nú er hún laus frá sínum þrautum og er ef- laust að baka flatkökur einhvers staðar á betri stað. Elsku Gunnur, við þökkum þér samfylgdina. Guð blessi minningu Gunnar Gunnarsdóttur. Tinna Ósk, Lilja og Fríða Björnsdætur. Í dag er Gunnur frá Gafli borin til grafar, komið er að kveðjustund enn vegna veikinda hennar má þó segja að raunveruleg kveðjustund sé löngu komin og farin. Við systurnar fórum mjög oft til afa og Gunnar þegar við vorum litl- ar. Í minningunni var alltaf líf og fjör, mikið af krökkum þar í sveit og við lékum okkur úti og inni og máttum ekki vera að því að fara heim. Við gistum oft og við fengum ný- bakaðar bollur og kakó í morgun- mat. Þar voru alltaf ný ævintýri handan við hornið. Gunnur bakaði bestu flatkökur sem ég hef smakkað og reyndar var allt gott sem hún bakaði, yngri systur mínar urðu t.d. alltaf svo svangar þegar við komum í hlaðið. Gunnur kenndi mér að hekla og bý ég vel að þeim fjársjóði. Gunnur var mjög gestrisin heim að sækja jafnvel þótt hún og afi væru í dyrunum á leið út þegar gesti bar að garði, þá dreif hún sig inn og hafði til kaffi og með því. Alla tíð þar til veikindi hennar fóru að segja til sín fengum við systurnar jólagjafir frá þeim, ull- arsokka, bækur o.fl. Ég á enn Dim- malimm bókina sem ég fékk þegar ég var 8 ára og í dag les ég hana fyrir börnin mín. Mér finnst svo leiðinlegt að þú skyldir ekki fá tækifæri til að fylgj- ast með okkur systrum fullorðnast og kynnast börnunum okkar. Takk fyrir samfylgdina og við sjáumst á ný síðar. Inga Dóra Björnsdóttir. Í dag kveð ég Gunni móðursystur mína, sem í mínum augum var ein af þessum hvunndagshetjum sinnar samtíðar. Hún tókst á við lífið strax í barnæsku enda sá hún aldrei föður sinn sem fórst í sjó áður en hún fæddist. Foreldrar hennar höfðu þá aðeins verið gift í viku. Móðir henn- ar giftist síðar afa mínum og hófu þau búskap í Selparti í Gaulverja- bæjarhreppi og með honum eign- aðist hún sex börn. Gunnur var níu ára þegar móðir mín, elst hálfsystkina hennar, fæð- ist og reyndi þá mjög á aðstoð hennar við barnauppeldið. Hún var aðeins nítján ára þegar móðir henn- ar dó frá barnahópnum og varð hún afa mínum ómetanleg aðstoð við að halda heimilinu saman. Löngu síðar þegar hún hafði haf- ið sambúð og búskap að Gafli í næstu sveit hófust kynni mín af Gunni þegar ég var í sveit hjá þeim Eiríki í mörg sumur eða frá níu ára aldri og fram yfir fermingu. Segja má að Gunnur hafi helgað líf sitt þjónustu við aðra og taldi sig alltaf þurfa að vera til staðar þegar á þurfti að halda. Hennar staður var því heima og vildi hún mjög lítið vera á ferðinni út á við. Hún hélt uppi miklum heimilisbrag með öllu tilheyrandi; eldamennsku, bakstri og öllu því sem sveitabú þarfnast, þar með talið heyskap og búfjár- störfum. Öll þessi vinnubrögð lærði ég af henni og var látin taka fullan þátt í þeim. Sumrin hjá Gunni voru því mikill skóli fyrir mig, sem ég hef notið æ síðan. Gunnur hafði gaman af því að fara á hestbak og átti góðan reið- hest sem hét Rauður. Stundum fékk ég Rauð og hnakkinn hennar að láni en það var þó bara til spari. Annars var það bara Brunki hans Madda sem við krakkarnir fengum að nota. Gunnur naut þess að rækta í kringum bæinn, bæði blóm og tré. Á Gafli voru einnig ræktaðar bæði rófur og kartöflur sem gáfu tekjur. Gunnur kynntist lífinu án raf- magns og annarra nútímaþæginda, þvotturinn þveginn á bretti með sólskinssápu og síminn var ein stutt og ein löng. Hún var orðin fimmtug þegar sjónvarpið kom að Gafli. Sjónvarpsins naut hún vel því það færði hana nær hringiðu þjóðlífsins þar sem hún var lítið fyrir það að fara af bæ. Einnig naut hún lesturs góðra bóka. Þó hún færi óvíða þá var ein ferð ár hvert sem hún hafði mjög gaman af en það var að fara í réttirnar á haustin. Þá var mikill undirbúning- ur með pönnuköku- og flatköku- bakstri og var mikill spenningur hjá okkur krökkunum fyrir réttarferð- inni. Stundum bar réttardaginn upp á afmælisdaginn hennar og hefði hún orðið níræð um næstu réttir. Ég er henni þakklát fyrir öll þau góðu sumur í sveitinni þar sem Gunnur kenndi mér að vinna og njóta nátt- úrunnar og skilja lífið. Slíkt ber að þakka. Síðustu fimm árin dvaldi Gunnur á Kumbaravogi. Hún var orðin veik þegar hún kom þangað og hrakaði heilsu hennar með árunum. Á Kumbaravogi hlaut hún bestu umönnun og leið eins vel og heilsan gaf tilefni til. Ég vil þakka því góða fólki sem annaðist hana árin sem hún dvaldi þar. Ragnheiður. Í dag kveðjum við móðursystur okkar Gunni Gunnarsdóttur. Við systkinin kölluðum hana alltaf „Gunni á Gafli“ því þar bjó hún ásamt honum Eiríki sínum eftir að við systkinin komumst til vits og ára. Gunnur átti engin börn sjálf en við vorum börnin hennar, ásamt mörgum öðrum börnum sem dvöldu hjá þeim Gunni og Eiríki, í lengri eða skemmri tíma. Bræðurnir voru kaupamenn og gengu í öll helstu útiverk en við systurnar vorum meira í nokkurs konar heimsóknum. Heimsóknirnar gátu verið mislangar hjá okkur, frá einum degi, allt upp í heilt sumar. En alltaf var okkur vel tekið og við eigum góðar minningar frá Gafli. Gunnur var vanaföst og hafði ákveðnar reglur; alltaf hafragraut- ur sex daga vikunnar, það var ekki um annað að velja. En ef við lygn- um aftur augunum og rifjum upp sunnudagsmorgnana þá getum við enn fundið bragðið af heimsins besta kakói sem Gunnur reiddi fram, í grænum fallegum bollum, ásamt öðrum kræsingum. Gunnur gaf okkur systkinunum alltaf jóla- og afmælisgjafir á yngri árum. Það fylgdi því alltaf dálítil spenna að sjá hvað við fengum sent frá Gafli og vorum við ekki svikin af innihaldinu. Það er okkur huggun að vita að Gunnur á Gafli sé komin á betri stað þar sem síðustu árin hennar hér hafa verið henni erfið sökum veikinda. Minning um konu sem raulaði við vinnu sína í sveitinni mun lifa með okkur áfram um ókomin ár. Guð geymi þig elsku Gunnur. Ásdís, Gunnar, Hjalti, Sólveig og Ragnheiður Ásta. Gunnur Gunnarsdóttir kranakakó og borðuð lefsa. Það var góður andi í húsinu hjá þeim og þang- að var gott að koma. Það þekkja þeir sem þangað hafa komið. Afi var af þeirri kynslóð fólks sem þurfti að vinna fyrir hlutunum. Í þá daga þekktust ekki þau þægindi sem við teljum sjálfsögð í dag. Þá þurftu menn að heyja baráttu fyrir lífsbjörg- inni. Þessari reynslu miðlaði afi til okkar og lagði okkur ófáar lífsregl- urnar. Hann var bóndi, sjómaður, kjötiðnaðarmaður og mikill náttúru- unnandi. Honum þótti afskaplega vænt um Stafafellsfjöll enda þekkti hann þar með nafni hverja þúfu og hvern stein. Við gleymum aldrei öll- um ferðunum í Arasel og seinna í okk- ar sumarbústað með afa. Hann hafði sterkar skoðanir og lá ekki á þeim við þá sem hann þekkti. Göntuðumst við oft með það að nú væri sá gamli að skila séráliti eða að fjargviðrast. Afi var um margt einstakur maður. Hann var ógleymanlegur þeim sem kynntust honum. Hann var fróður, skemmtilegur og einstaklega orð- heppinn. Hann var mjög traustur og grandvar. Við kveðjum afa með sökn- uð í hjarta og trúum því að hann, pabbi og amma hafi fundið sér stað á himnum þar sem andinn frá Hagatúni 9 og 11 svífi yfir. Hannes Ingi Jónsson, Jónas Egilsson og Borgþór Egilsson. Lokið er langri og farsælli ævi. Það er óhætt að segja, að Hannes hafi dáið eins og hann lifði. Sáttur við allt og alla og fullur þakklætis til þeirra sem önnuðust hann síðustu vik- urnar. Ég ætla ekki að hafa mörg orð um Hannes þó margt hafi ég þegið af honum fóðrið, bæði andlegt og líkam- legt. Veit að það hefði ekki verið hon- um að skapi að ég hlæði hann lofi að leiðarlokum. Seinasta ár var ákaflega örlagaríkt í lífi Hannesar. Við lát Sigurbjargar hinn 12. október sl. stóð hann frammi fyrir því að ákveða hvort selja ætti einbýlishús þeirra í Hagatúninu, eða hann að vera í því áfram. Algjörlega að eigin frumkvæði tók hann þá ákvörðun að selja og flytja upp í Ekru, sem hann gerði um áramótin. Þetta hefur varla verið auðvelt, en sjálfur var hann fullkomlega sáttur. Sagði að þessi ákvörðun hefði verið tekin á hár- réttum tíma og maður vissi aldrei hvað framtíðin bæri í skauti sér. Mér finnst þetta lýsa Hannesi mjög vel, enda eitt af sterkustu einkennum hans mikil réttsýni, ekki bara á aðra heldur líka sjálfan sig og sína. Hann hafði einstaklega jákvæðar og heil- brigðar lífsskoðanir og með brosi á vör lifði hann algjörlega í samræmi við þær. Það væri örugglega minna af geðlæknum og gleðipillum ef við ætt- um fleiri honum líka, menn sem ómeð- vitað dreifa gleði og góðvild til sam- ferðafólks á langri vegferð. „Farðu heill vinur, hver minning er mæt.“ (G.H.). Sigrún Benediktsdóttir. Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.