Morgunblaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 17 Seoul. AFP. | Kim Gi-Na og Kim Kyung-Ja virtust býsna langt niðri er þær komu heim til Suður-Kóreu í gær en þær voru í hópi 23 Suður- Kóreumanna sem talibanar í Afgan- istan rændu fyrir mánuði síðan. Tal- ibanar slepptu konunum tveimur sl. mánudag en nítján eru enn í haldi mannræningja. Tveir gíslanna hafa verið teknir af lífi en um það var Gi- Na og Kyung-Ja ekki kunnugt fyrr en við brottför frá Kabúl í gær. Gíslatökumennirnir munu hafa hald- ið gíslum sínum í nokkrum fámenn- um hópum til að gera hugsanlegar björgunaraðgerðir erfiðar. Þetta gerði það hins vegar að verkum, að þeim Gi-Na og Kyung-Ja var engan veginn ljósar aðstæður félaga þeirra. Urðu fyrir miklu áfalli Konurnar voru sagðar hafa orðið fyrir miklu áfalli er þeim voru flutt þau tíðindi, að tveir karlkyns félagar þeirra væru látnir. „Mér þykir leitt að hafa valdið fólki svo mikilli ang- ist,“ sagði Kyung-Ja við komuna heim í gær, en hún er 37 ára gömul. Talibanar rændu S-Kóreumönn- unum – sextán konum og sjö körlum – 19. júlí sl. en þeir voru þá á leið um Suður-Afganistan með rútu. Fólkið var í Afganistan á vegum Saem-Nul-biskupakirkjunnar í S- Kóreu. Forsvarsmenn kirkjunnar hafa sætt gagnrýni fyrir að hafa sent fólkið á hættuslóðir og hafa þeir beð- ið landa sína afsökunar. Stjórnvöld í Suður-Kóreu hafa enn fremur bann- að óþörf ferðalög til Afganistan og hvatt suðurkóresk hjálparsamtök sem þar halda úti starfi að senda fólk sitt heim. Viðræður um lausn gíslanna sem enn eru í haldi talibana miðar lítið áfram en talibanar hafa hótað að drepa þá alla. Stjórnvöld í Suður- Kóreu segjast litla möguleika hafa á því að verða við kröfum gíslatöku- manna, en þeir vilja skipta á Suður- Kóreumönnum og talibönum sem eru í fangelsum afganskra stjórn- valda. AP Lausar úr prísund Kim Kyung-ja (t.v.) og Kim Gi-Na við komuna til Suður- Kóreu. Nítján samlandar þeirra eru enn í haldi talíbana í Afganistan. Blendnar tilfinningar við heimkomuna Ekkert bendir til að miði í viðræð- um við talibana um lausn gísla Máttarstólpi Menningarnætur Dagskrá í Aðalbanka 14.00 Listaverkaganga Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur sýnir og segir frá listaverkum í eigu bankans á heila tímanum 14.00 Gunni og Felix ásamt Sprota skemmta börnum og fullorðnum 15.00 Abbababb Atriði úr barnaleiksýningu ársins 2007 16.00 Schola Cantorum 16.30 Söngleikurinn Ást Skapti Ólafsson syngur nokkur lög 17.00 Haukur og Ragnheiður Gröndal ásamt hljómsveit 17.30 Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar Fjöllistamenn, trúður, eldgleypir og töframaður skemmta fyrir utan bankann. Andlitsmálun, blöðrur og ís fyrir börnin. Menningarnótt 18. ágúst Frá Kynning á sumarhúsalóðum í Fjallalandi Þessa dagana stendur yfir kynning á sumarhúsalóðum í Fjallalandi við Leirubakka. Allir eru velkomnir til að skoða lóðirnar og svæðið umhverfis, sem og aðstöðuna heima á Leirubakka. Lóðirnar eru flestar á stærðarbilinu 0,7 til 1 ha og þær eru seldar með vegi að lóðamörkum, auk þess sem búið er að leggja vatn og rafmagn um svæðið. Allt eignarlóðir. Góð greiðslukjör ef óskað er. Fjallaland er í landi Leirubakka í Landsveit, og er ekið upp veg nr. 26, Landveg frá Vegamótum. Aðeins 100 km frá Reykjavík. Minnum á að heima á Leirubakka er rekin fjölþætt þjónusta við hið nýja sumarhúsahverfi, þar er til dæmis verslun og bensínstöð, hótel og veitingahús, hestaleiga og tjaldstæði og opin glæsileg Heklusýning í hinu nýja Heklusetri. Þá er byrjað að huga að gerð golfvallar á svæðinu, sem eigendur lóða í Fjallalandi munu hafa forgang að. Upplagt að fá sér bíltúr í sveitina, fá sér kaffi í leiðinni og skoða Heklusýninguna eða bregða sér á hestbak! Upplýsingar í síma 893 5046 og á www.fjallaland.is Veðursæld og fögur fjallasýn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.