Morgunblaðið - 18.08.2007, Síða 16

Morgunblaðið - 18.08.2007, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Pretoria. AFP, AP. | Fimm áhrifa- menn á tímum aðskilnaðarstefn- unnar í Suður-Afríku voru í gær fundnir sekir um að hafa árið 1989 lagt á ráðin um að myrða Frank Chikane, sem nú er ráðgjafi Thabo Mbeki, forseta Suður-Afríku. Adriaan Vlok, sem var ráðherra lögreglumála í Suður-Afríku 1986- 1989, og Johan van der Merwe, fyrrum lögreglustjóri, voru hvor um sig dæmdir til tíu ára skilorðs- bundinnar fangelsisvistar en þrír undirmenn þeirra voru dæmdir til fimm ára skilorðsbundinnar fang- elsisvistar. Mennirnir hafa allir játað að hafa lagt á ráðinu um að myrða Chikane árið 1989 með því að setja eitur í undirfatnað hans. Chikane, sem er prestur og skrifstofustjóri hjá skrifstofu forseta Suður-Afríku, hafði áður lýst því yfir að hann ósk- aði ekki eftir því að mennirnir yrðu dæmdir til fangelsisvistar en á síð- asta ári bað Vlok hann afsökunar með því að þvo fætur hans. Tveir hópar mótmælenda höfðu þó safnast saman við dómshúsið í Pretoria í gær. Krafðist annar réttlætis fyrir hönd fórnar- lamba aðskiln- aðarstefnunnar en hinn þess að meðlimir Afríska þjóðarráðsins verði einnig dregnir fyrir rétt vegna þeirra glæpa sem þeir frömdu á tímum aðskilnaðarstefn- unnar. 30.000 hnepptir í varðhald Áætlað er að 30.000 manns hafi verið hneppt í varðhald í ráðherra- tíð Vloks. F.W. de Klerk varð for- seti Suður-Afríku 1989 og hóf í kjöl- farið viðræður um endalok aðskilnaðarstefnunnar við fulltrúa blökkumanna. Hlaut hann fyrir vik- ið friðarverðlaun Nóbels árið 1993, sem hann deildi með Nelson Man- dela. Í fyrstu frjálsu kosningunum 1994 var Mandela síðan kosinn for- seti í stað de Klerks og Afríska þjóðarráðið (ANC) komst til valda. Fyrrverandi lögreglumála- ráðherra S-Afríku dæmdur Adriaan Vlok Ottawa. AFP. | Skipuleggjendur fundar leiðtoga frá Norður- Ameríku fullvissa mótmælendur um að þeir muni bæði sjást og heyrast á fundinum eins og kan- adískir dóm- stólar hafa úr- skurðað að þeir eigi rétt á – úr fjarska. Tekin hefur verið sú ákvörð- un að girða af ráðstefnusvæðið í 2,5 kílómetra geisla með þriggja metra hárri girðingu. Skipuleggjendur fullyrða að þetta komi alls ekki í veg fyrir að mót- mælendur fái að setja mark sitt á ráðstefnuna – það verði nefnilega sýnt beint frá mótmælendum inni á ráðstefnunni og búið er að út- hluta mótmælendum sérstöku mót- mælasvæði í hæfilegri fjarlægð frá ráðstefnunni. Það eina sem gæti hugsanlega farið úrskeiðis í þess- ari áætlun væri að ráðamönnum í Kanada, Mexíkó og Bandaríkj- unum dytti í hug að skipta um stöð. „Lýðræðið er fótum troðið,“ sagði Sophie Shoen frá People’s Global Action-samtökunum í sam- tali við AFP-fréttastofuna. Óvenjuleg mótmæli George Bush verð- ur á fundinum. COSTAS Karamanlis, forsætisráð- herra Grikklands, boðaði í gær til kosninga og fara þær fram 16. sept- ember nk., sex mánuðum áður en fjögurra ára kjörtímabili stjórnar Karamanlis lýkur. Karamanlis sagðist vilja endurnýja umboð sitt til að stjórna landinu. Grikkir kjósa DÓMUR hefur fallið um það í Bras- ilíu að þeir sem gangast undir leið- réttingu á kyni þurfi ekki að greiða fyrir þá læknisþjónustu sem því fylgir. Dómarinn sagði leiðréttingu á kyni falla undir stjórnarskrár- bundin réttindi. Tímamótadómur PRESTUR í Hollandi er nú sekt- aður um 5.000 evrur í hvert sinn sem hann hringir til morgunbæna í kjölfar þess að hringingarnar voru bannaðar. Bæjarbúar höfðu kvart- að mikið undan stöðugum hring- ingum sem veki þá kl. 7.15. á hverj- um degi. Klerkur gefst þó ekki upp. Dýrar hringingar ÞRÍR björgunarmenn biðu bana og sex slösuðust þegar náma hrundi ofan á þá en þeir tóku þátt í til- raunum til að bjarga sex náma- mönnum sem lokuðust inni í námu í Utah 6. ágúst sl. Björgunarstarfi var hætt í bili a.m.k. en ekki er vit- að hvort sexmenningarnir eru á lífi. Slys í námu í Utah Eftir Davíð Loga Sigurðsson og Arndísi Þórarinsdóttur david@mbl.is, arndis@mbl.is RÚSSNESK stjórnvöld hafa ákveð- ið að taka aftur upp reglulegt eft- irlitsflug út fyrir lofthelgi Rússlands og komu rússneskar flugvélar þrisv- ar inn á eftirlitssvæði Íslands í gær. Heimildarmaður Morgunblaðsins sagði rússnesku vélarnar hafa komið úr norðri og flogið meðfram strönd- inni. Íslensk stjórnvöld fylgdust með þeim allan tímann og skiptust á upp- lýsingum við stjórnstöðvar bæði í Noregi og Bretlandi. Breskar og norskar þotur flugu svo í veg fyrir rússnesku vélarnar og fylgdu þeim eftir, en það eru stöðluð viðbrögð Atlantshafsbandalagsins, NATO, í tilfellum sem þessu. Grétar Már Sigurðsson, ráðuneyt- isstjóri í utanríkisráðuneytinu, vildi ekki tjá sig að svo stöddu um málið. Hann sagðist þó myndu kalla rúss- neska sendiherrann á Íslandi á sinn fund eftir helgi og leita skýringa. Vladímír Pútín Rússlandsforseti greindi frá þessari breyttu varnar- málastefnu Rússa í gær en fjórtán langdrægar sprengju- og könnunar- vélar munu hafa hafið eftirlitið. „Flugmenn okkar hafa verið fastir á jörðu niðri of lengi. Þeir eru ánægðir að komast í loftið á ný,“ sagði Pútín. Í kalda stríðinu flugu sovéskar sprengjuvélar reglulega inn á svæði þaðan sem hæglega hefði mátt skjóta stýriflaugum með kjarnaoddum á skotmörk í Banda- ríkjunum. Slíkar aðgerðir lögðust hins vegar af við hrun Sovétríkjanna. Pútín harmaði í gær að frá 1992 hefði Rússland hætt eftirlitsflugi á fjar- lægum slóðum. Það hefði valdið vandræðum í öryggismálum Rúss- lands enda hefðu aðrir ekki fylgt for- dæmi þeirra. Virtist Pútín þar vera að vísa til Bandaríkjamanna. Ekki í fyrsta sinn við Ísland Rússneskum sprengjuvélum hef- ur á undanförnum árum endrum og sinnum verið flogið til svæða undan ströndum Noregs og Íslands, sem og undan norðausturströnd Rússlands, yfir Beringshafið að Alaska. Slíkt eftirlitsflug hefur hins vegar ekki verið algengt og benda ummæli Pút- íns í gær til þess að breyting kunni að verða þar á. Fyrr í þessum mánuði gerðu rúss- neskir embættismenn grein fyrir því að rússneskar herþotur hefðu flogið nálægt Kyrrahafsríkinu Guam þar sem Bandaríkjaher rekur herstöð og að bandarískar herflugvélar hafi verið sendar á loft til að veita þeim eftirför. Bandaríska varnarmála- ráðuneytið sagði rússnesku flugvél- arnar hins vegar ekki hafa komið svo nálægt að ástæða hefði verið talin til að grípa til aðgerða. Þá flugu rússneskar sprengjuvél- ar inn í breska lofthelgi í síðasta mánuði og voru breskar Tornado- herþotur sendar í veg fyrir þær. Rússar taka aftur upp eftirlitsflug Rússneskar herþotur birtust við strendur Íslands í gær Í HNOTSKURN »Talsmaður rússneska flug-hersins, Alexander Drobísj- evskí, segir flugvélar af gerðinni Tupolev-160, Tu-95 og Tu-22M m.a. hafa tekið þátt í eftirlits- fluginu í gær. »Bandarískir embættismennsögðust ekki hafa áhyggjur af ákvörðun Rússa. Aðrar að- stæður væru uppi nú en á tímum kalda stríðsins. Sean McCor- mack, talsmaður utanríkisráðu- neytisins, kallaði ákvörðunina þó „áhugaverða“. ANGELA Merkel, kanslari Þýska- lands, lagði á það áherslu á frétta- mannafundi í Ilulissat á Grænlandi að bæði Kína og Bandaríkin yrðu að eiga aðild að nýju samkomulagi um takmörkun á losun gróðurhúsa- lofttegunda út í andrúmsloftið sem tæki við af Kyoto-bókuninni svo- nefndu þegar hún rennur úr gildi 2012. Engin ríki losa eins mikið magn koltvísýrings út í andrúms- loftið og löndin tvö. Merkel var á Grænlandi til að kynna sér afleiðingar loftslags- breytinga en nærri Ilulissat er að finna jökullinn Sermeq Kujalleq sem vísindamenn segja eitt skýrasta dæmið um loftslagsbreytingar. „Það hafði sterk áhrif á mig að sjá ísinn og heyra að jökullinn hefur hopað 15 km á sex árum,“ sagði Merkel á blaðamannafundinum sem haldinn var seint í fyrrakvöld. Áður hafði hún skoðað jökulinn ásamt Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dana, og Hans Enoksen, formanni grænlensku landstjórnarinnar. Reuters Nýr loftslagssamningur mikilvægur MICHAL Krzyzanowski, sérfræð- ingur hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnun- inni (WHO), hefur varað við því að loftmengun í Peking í Kína geti vald- ið mörgum keppendum á Ólympíu- leikunum árið 2008 alvarlegum vandræðum. Þá hefur hann ráðlagt þeim áhorfendum, sem eiga við ein- hvers konar öndunarfæravandamál að stríða, að hugsa sig tvisvar um áð- ur en þeir ákveði að sækja leikana. Þetta kom fram á fréttavef BBC í gær. Ein af helstu orsökum loftmeng- unarinnar í Peking er sögð sú að þar eru um þrjár milljónir bíla og fjölgar bifreiðum í borginni um 1.200 á dag að jafnaði. Í gær hófst fjögurra daga tilraun borgaryfirvalda í Peking til að draga úr loftmengun en tilraunin felst í því að fækka bílum á götum borgarinnar um 1,3 milljónir. Er það gert með því að banna bifreiðar sem enda á ákveðnum númerum að aka um götur borgarinnar á ákveðnum dögum. Vonir standa til að með þessu móti megi minnka loftmengun í borginni um 40% en borgarbúar sögðust þó lítinn mun hafa fundið í gær og enn mátti sjá mengunarský yfir borg- inni. Gangi tilraunin hins vegar að óskum stendur til að aðferðinni verði beitt við að draga úr mengun á með- an á Ólympíuleikunum stendur. Jacques Rogge, yfirmaður Al- þjóða-Ólympíunefndarinnar varaði við því í síðustu viku að hugsanlega verði keppni í einhverjum greinum frestað á Ólympíuleikunum verði að- stæður taldar heilsuspillandi. Varað við loftmenguninni Reuters Loftmengun Mengunin blasir við hvert sem litið er í Peking. Bjóðum nú síðustu sætin til Mallorca í ágúst á ótrúlegu tilboði. Bjóð- um einstök kjör á gistingu á nokkrum af okkar vinsælustu gististöð- um, Las Gaviotas eða Alcudia Pins í Alcudia. Góðar íbúðir á frábær- um sumarleyfisstað sem bjóða frábæran aðbúnað í sumarfríinu. Njóttu lífsins á Mallorca við góðan aðbúnað. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Mallorca Sértilboð 24. og 31. ágúst frá kr. 29.990 Góð gisting - aðeins örfáar íbúðir Verð kr. 29.990 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð á Las Gaviotas eða Alcudia Pins í viku. Verð kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð á Las Gaviotas eða Alcudia Pins í viku. Munið Mastercard ferðaávísunina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.