Morgunblaðið - 18.08.2007, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 19
MENNING
INGIBERG Magnússon hefur
leitt margan manninn gegnum
grunnþekkingu teikningar sem
kennari á listasviði við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti í nær tvo ára-
tugi. En FB var um langt skeið
eini framhaldskólinn á landinu
sem bauð upp á myndlistarbraut.
Ingiberg er lunkinn teiknari og
því er tilefni fyrir áhugasama að
líta við í Grafíksafni Íslands og sjá
þar vandað handverk. En hand-
verk er þó ekki það eina sem sýn-
ing Ingibergs hefur upp á að
bjóða heldur eru athyglisverðar
rannsóknir í gangi um eðli litar og
forms sem taka á sig ólíkar birt-
ingarmyndir.
Í sýningarsal Grafíksafnsins
sýnir Ingiberg 14 myndverk, öll
unnin með þurrpastel á pappír að
undanskilinni lágmyndinni (eða
skúlptúr á vegg) „Umhverfingu“
sem listamaðurinn gerði er hann
dvaldi sem gestalistamaður í
Gunnarshúsi á Skriðuklaustri. Má
segja að lágmyndin sé miðjuverk
sýningarinnar þar sem efniviður-
inn, sem er tré, vísar til teikninga
Ingibergs af skógarlendi en form-
rænan vísar til abstraktmynda
listamannsins sem byggja á torf-
hleðslu. Í myndunum tróna þung
og dimm form trjáa eða torfs sem
umsvifalaust jarðtengja mann.
Þessi form eru síðan skorin með
snaggaralegri línuteikningu og inn
á milli forma glittir í liti sem
skapa samspil ljóss og skugga.
Tvær myndir, „Jafndægur á
vori og hausti,“ virðast í fyrstu
skera sig dálítið frá hinum og
sigla inn á svið mínimalískrar ab-
straktsjónar. En þegar betur er
að gáð þá snúast þær um tíma
sem er skrásettur með birtu-
skilum sólarhrings, annars vegar
að vori og hins vegar að hausti, og
er hver litaskipting vandlega
merkt með viðeigandi orðum og
útskýringum.
Rýmislega gerir sýningin sig
ágætlega þrátt fyrir ýmsa ókosti á
salarkynnum en það eru þó þessir
ólíku möguleikar teikningarinnar
sem listamaðurinn kannar innan
afmarkaðs sviðs forms og litar,
ljóss og skugga, sem gera sýn-
inguna spennandi.
Ljós og
skuggar
MYNDLIST
Grafíksafn Íslands
Opið fimmtudag-sunnudags
frá 14-18. Sýningu lýkur 19. ágúst.
Aðgangur ókeypis.
Ingiberg Magnússon
Morgunblaðið/ÞÖK
Vetrarskógur Þung form trjáa eru
skorin með snaggaralegri teikningu.
Jón B. K. Ransu
KIRKJULISTAHÁTÍÐ veifaði hár-
réttu tré með framkomu brezka org-
elsnillingsins Christophers Herricks
er fyllti vel stuðlabergsguðshús
Skólavörðuholts á miðvikudag – jafnt
áheyrendum sem magnaðri spila-
mennsku. Reyndar ætti Klais-orgelið
að vera honum þegar kunnugt, því 7.
hljómdiskur Herricks í heims-
reisuröð hans fyrir Hyperion-
útgáfuna, „Organ Fireworks“, var
tekinn upp í Hallgrímskirkju 1997.
Það kom líka fram af auðsærri yf-
irsýn flytjandans yfir raddmöguleika
hljóðfærisins er hann stýrði af neðra
spilborði án aðstoðarmanns, og m.a.s.
án nótnaflettara. Vísast mælistika á
rútínu eins og hún gerist verald-
arvönust.
Verkefnavalið var fjölbreytt og
hressilegt í anda
diskaraðartitilsins
og skartaði
skemmtilegum
andstæðum.
T.a.m. var himinn
og haf milli sinfón-
íska Háskóla-
forleiks Brahms í
litríkri útsetningu
Lemares og 3.-5.
þáttar úr Fiesta!
eftir Iain Farrington (f. 1977) þar
sem djass-sölsubræðingur brezka
tónskáldsins myndaði kostulegan
kontrast. „Big Ben“ klukkuslögin
heimskunnu lögðu síðan grunn að
Carillon de Westminster fantasíu
Viernes (d. 1937) með miklum lokaklí-
max; einmitt nú meðan frum-
spilverkið við Tems er þagnað um
stundarsakir vegna viðgerðar. Eftir
fúgatóskotið Praeludium Buxtehudes
í g-moll BuxWV 148 og fótspilssóló
systurverksins í C-dúr BuxWV 137
kom hnausþykkt Hommage Petrs
Eben til Danans mikla í Lübeck er
byggði á hvoru tveggja. Vel til fundin
samröðun – jafnvel þótt æviárin
„1870-1937“ skv. tónleikaskrá [ritleki
frá Vierne?] stæðust varla, enda ku
tékkneska tónskáldið enn á lífi.
Seinni hálfleikur bauð fyrst upp á
vellandi flauturaddaforleik og fótfráa
6/8 fúgufimi í Prélude et fugue Marc-
els Dupré (d. 1971) í g-moll. Eftir tíst-
sætan Andante-miðþátt úr spil-
klukkusónötu Mozarts í F K616
(m.a.s. Haydn og Beethoven unnu
annað eins fyrir salt í grautinn!) kom
að safaríkri meginstoð tónleikanna,
Sonata Eroïca Belgans Josephs
Jongen (d. 1953), þar sem undrafimi
Herricks lék á alsoddi. Loks voru flík-
uð aukalögin Amazing Grace og tív-
olíkát norskættuð Festmusikk.
Hvergi var spurning um aðild og
rétt brezka virtúóssins, er lék hvar-
vetna sem sá er valdið hefur. Helzt
var óljóst í Hallgrímsheyrðinni hvort
Herrick hefði átt stilla mesta hraðann
í hóf og lofta aðeins betur um skjót-
ustu nótnarunur fyrir 5. stjörnuna.
Að endingu spurning til viðhalds-
aðilja: jafnt hand- sem fótspilslyklar
orgelsins áttu til að skrölta á veikari
stöðum. Gæti flókinn verið farinn að
harðna?
Flugeldameistari á fullu
TÓNLIST
Hallgrímskirkja
Verk eftir Brahms, Farrington, Vierne,
Buxtehude, Eben, Dupré, Mozart og
Jongen. Christopher Herrick orgel.
Miðvikudaginn 15. ágúst kl. 20.
Kirkjulistahátíð
Ríkarður Ö. Pálsson
Christopher
Herrick
MÉR var nýlega bent á að
„Draumalandssöngvarar“ séu býsna
margir í íslensku tónlistarlífi.
„Draumalandssöngvarar“ eru þeir
sem syngja aðallega Draumalandið,
Hamraborgina, Þótt þú langförull
legðir, Ég lít í anda liðna tíð og þar
fram eftir götunum. Auðvitað er
ekkert að þessum lögum í sjálfu sér,
en það er bara svo margt annað til!
Sem betur fer eru til undantekn-
ingar. Á kammertónleikum á
Kirkjubæjarklaustri um helgina hóf
listrænn stjórn-
andi hátíð-
arinnar, Guðrún
Jóhanna Ólafs-
dóttir mezzósópr-
an, upp raust sína
og söng Poema
en form de can-
ciones eftir
Turina, Damunt
de tu només les
flors eftir
Mompou og fimm „negrasöngva“
eftir Montsalvatge. Þetta er tónlist
sem vanalega er ekki í boði fyrir ís-
lenska tónleikagesti og það eitt að
hún hafi verið á dagskránni er í
sjálfu sér fagnaðarefni. Rödd söng-
konunnar var að vísu dálítið hvöss í
upphafi, en það lagaðist fljótlega og
var sérstök ánægja að heyra síðast-
nefndu lögin við meðleik Víkings
Heiðars Ólafssonar píanóleikara,
sem voru einstaklega safarík og til-
finningaþrungin, en jafnframt afar
vel flutt tæknilega séð.
Víkingur var ekki eini hljóðfæra-
leikarinn sem kom fram á tónleik-
unum, því einnig spilaði Elena Jáu-
regui fiðluleikari Rúmenska
þjóðdansa eftir Bartók og Playera
eftir Sarasate við meðleik Francisco
Javier Jáuregui gítarleikara. Því
miður bar hún ekki gæfu til að spila
af tilhlýðilegri nákvæmni og skýr-
leika til að flutningurinn gæti talist
viðunandi.
Mun athyglisverðara var samspil
gítarleikaranna Roberts Brig-
htmore og Francisco Javier sem fyrr
var nefndur; þeir léku m.a. saman
þætti úr ballettinum El Amor Brujo
eftir Manuel de Falla og gerðu það
af mikilli kostgæfni, enda var út-
koman skemmtilega grípandi, alveg
eins og ástríðufullur ballett á að
vera.
Ekki Draumalandssöngvari
TÓNLIST
Félagsheimilið á
Kirkjubæjarklaustri
Verk eftir Turina, Mompou, Montsal-
vatge og fleiri. Flytjendur: Guðrún Jó-
hanna Ólafsdóttir, Víkingur Heiðar Ólafs-
son, Robert Brightmore, Elena Jáuregui
og Francisco Javier Jáuregui. Laug-
ardagur 11. ágúst.
Kammertónleikar Jónas Sen
Guðrún Jóhanna
Ólafsdóttir
LARS Jansson er einn af helstu pí-
anistum evrópsks djass. Hann kom
fyrst til Íslands með kvartetti Arild
Andersens 1977 og svo í fyrra til að
stjórna Stórsveit Reykjavíkur.
Hann lék um tíma með Jan Grab-
arek; en nú fyrst
og fremst með
tríói sínu þar
sem Lars Dani-
elsen er á bassa
og Anders Kjell-
berg á trommur.
Hann kom hing-
að með konu
sinni Kristinu
Svanberg, sem
er klassískur pí-
anisti, og syni þeirra Paul Svanberg
sem er efnilegur trommari. Þau
léku á Hornafirði, Eskifirði og við
Mývatn ásamt Gunnari Hrafnssyni
bassaleikara og Kristjönu Stef-
ánsdóttur söngkonu og svo í Frí-
kirkjunni. Kristina rammaði tón-
leikana inn; lék Chopin og Liszt í
upphafi og Johann Sebastian firna-
vel í lokin. Tríóið lék splunkunýja
ballöðu eftir Jan og svo Latour,
sem finna má á nýjustu skífu hans.
Gunnar og Paul eru hvorki Dani-
elsen né Kjellberg, en stóðu sig vel.
Kristjana söng gullfallegar ballöður
eftir Lars og lög eftir Sigurð Flosa-
son, Börk Bjarnason og Tómas R.
Einarsson. Hún var eins og Lolla í
æðra veldi í lagi Tómasar: Ef það
sé djass og skattaði með miklum
húmor. Húmorinn geislaði líka af
Jansson í lokalagi tríósins: To All
Four Winds og meðan atónal tón-
listin hljómaði framkvæmdi hann
mikinn gjörning, sló kirkjuofninn,
sveiflaði pálmanum, hristi nótna-
blöð lék á píanóið með fótum og
höfði og synti bringu- sem baksund.
Svo ríktu djasshljómar og sálar-
sveifla í meistaralegum píanóspuna.
Skemmtilegir tónleikar fjölhæfra
listamanna.
Húmorísk-
ur Jansson
Vernharður Linnet
TÓNLIST
Fríkirkjan í Reykjavík
Laugardagskvöldið 11. ágúst 2007.
Lars Jansson og félagar. Lars Jansson
KIRKJULISTAHÁTÍÐ
2 0 0 7
11.−19. ágúst
FESTIVAL OF SACRED ARTS
„É
g
v
il
l
o
fs
y
n
g
ja
D
ro
tt
n
i“w w w. k i r k j u l i s t a h a t i d . i s
LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST
15.00–21.30 – Hallgrímskirkja
SÁLMAFOSS
FJÓRIR NÝIR ÍSLENSKIR SÁLMAR FRUMFLUTTIR!
Yfir 400 flytjendur koma fram:
Voces Thules, Ian Wilson, Eyþór Ingi Jónsson, Björn
Steinar Sólbergsson, kór Akureyrarkirkju, Dómkórinn,
Björn Thoroddsen, Sigurður Flosason, Guðmundur Vignir
Karlsson, Ellen Kristjánsdóttir,Wilfried Kaets, Matthías
Hemstock, Hljómskálakvintettinn og margir fleiri.
SÍMI 510 1000 – MIÐASALA 9-17 OG Á MIDI.IS
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST
19.00 – Skálholtsdómkirkja
ÍSRAEL Í EGYPTALANDI
eftir G. F. HANDEL
FRUMFLUTNINGUR Á ÍSLANDI
Flytjendur: Robin Blaze, Kirstín Erna Blöndal, Elfa Margrét
Ingvadóttir, Þórunn Vala Valdimarsdóttir, Eyjólfur Eyjólfsson,
Alex Ashworth, Hrólfur Sæmundsson, Benedikt Ingólfsson,
Alþjóðlega barokksveitin í Haag og Schola cantorum.
Stjórnandi: Hörður Áskelsson.
Miðaverð kr. 4.900/3.600
EINSTAKUR VIÐBURÐUR
BAROKK Í HÆSTA
GÆÐAFLOKKI
SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST
19.00 – Hallgrímskirkja
ÍSRAEL Í EGYPTALANDI eftir G. F. HANDEL
LOKATÓNLEIKAR KIRKJULISTAHÁTÍÐAR
Miðaverð kr. 4.900/3.600
Afturköllun að frumkvæði Mattel
www.neytendastofa.is
www.safety.mattel-online.com
Mattel, Inc. afturkallar að eigin frumkvæði eina vöru úr „CARS“
vörulínunni með vöruheitinu „Sarge“ sem framleidd var á tímabili-
nu frá mars 2007 til júlí 2007. Afturköllun leikfanganna er niður-
staða aukinna rannsókna og stöðugra prófana á vegum Mattel.
4 bílar hafa verið fluttir til Íslands.
Mattel afturkallar að eigin frumkvæði segulleikföng sem fram-
leidd voru á tímabilinu frá 2002 til 31. janúar 2007, þeirra á meðal
tilteknar dúkkur, fígúrur, leikfangasett og fylgihlutir með litlum
öflugum seglum sem gætu losnað af. Afturköllunin er til viðbótar
afturköllun Mattel að eigin frumkvæði í nóvember 2006 á átta
leikföngum og byggir á viðamiklu innra eftirliti með vörumerk-
jum frá Mattel. Allar vörur sem um ræðir voru framleiddar fyrir
lok janúar 2007. Viðbótarafturköllunin er ekki vegna tilkynninga
um meiðsli heldur vegna fjölgunar tilkynninga um lausa segla og
vegna nýrra og strangari reglna Mattel um heldni segla.
Á Íslandi nær afturköllunin til 4 vara í línunni Doggie Day Care,
af þeim voru 488 stykki flutt inn, og 19 vörur í línunni Polly
Pocket en 1.006 stykki af þeim voru flutt inn. Vörurnar voru
seldar í leikfangaverslunum Hagkaupa og í Leikbæ.
Við ráðleggjum neytendum að taka þessar vörur af börnum tafar-
laust og skila þeim í leikfangaverslanirnar. Leikfangaverslanirnar
geta aðeins tekið við vörum sem seldar voru hjá þeim. Aðrar vörur
þarf að senda til Mattel í Danmörku. Mattel mun senda
neytendum nýja vöru að jafnvirði eða meira.
Upplýsingar um vörurnar má nálgast á vef Mattel
www.safety.mattel-online.com eða á
www.neytendastofa.is Hægt er að hafa samband við
Mattel í Danmörku í síma +45 43 20 75 75
(á dönsku/ensku)
MIKILVÆG AUGLÝSING UM AFTURKÖLLUN
VEGNA ÖRYGGIS