Morgunblaðið - 18.08.2007, Side 20

Morgunblaðið - 18.08.2007, Side 20
20 LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Eftir Svanhildi Eiríksdóttur Reykjanesbær | „Ég finn fyrir breyt- ingu á ferðahegðun fólks sem heim- sækir Ísland. Það sækist meira eftir upplifun og vill kynnast íslenskri menningu, borða íslenskan mat, sjá íslensk heimili og kaupa íslenskt handverk, helst beint af handverks- manninum sjálfum,“ sagði Rannveig Lilja Garðarsdóttir, verkefnisstjóri á Upplýsingamiðstöð Reykjaness, í samtali við Morgunblaðið. Heim- sóknum ferðamanna hefur fjölgað á upplýsingamiðstöðina í sumar og koma flestir við strax eftir komuna til landsins eða í ferðalok. Upplýsingamiðstöð Reykjaness hefur verið starfrækt í rúm 4 ár en hún er rekin af Reykjanesbæ og Ferðamálastofu Íslands. Auk þess að annast upplýsingastarf um ferðamál á Reykjanesi eru ferðamenn aðstoð- aðir við bókun gistinga og skipulagn- ingu ferða um landið, svo sem með ábendingum um hvar upplýsinga- miðstöðvar er að finna, með bækl- ingum og svörun fyrirspurna. Rannveig Lilja Garðarsdóttir hef- ur verið verkefnisstjóri Upplýsinga- miðstöðvar Reykjaness frá upphafi og sagðist hún hafa orðið vör við aukningu ferðafólks í sumar. Hún sagði í samtali við blaðamann að ferðamenn komi misjafnlega vel undirbúnir til landsins. „Flestir sem koma hingað eru búnir að kynna sér land og þjóð á Veraldarvefnum en sumir ekki. Þeim bregður oft í brún þegar þeir uppgötva stærð landsins. Ég hef fengið til mín gesti sem eru að skipuleggja ferðir fyrir hópa til landsins og spurð spurninga eins og: „Hvar er keyrt upp á jöklana?“, „Má keyra utan vega?“ og „Þarf að nota bílbelti?“ Þetta segir mér að við þurf- um að auðvelda ferðamanninum að- gengi að upplýsingum og vera vak- andi yfir því að þær séu réttar og góðar,“ sagði Rannveig. Brimið og náttúra Reykjaness heillar Að sögn Rannveigar eru margir möguleikar fyrir ferðamenn á svæð- inu. Hún sagðist meðal annars benda ferðafólki á þá skemmtilegu hringi sem hægt sé að keyra; Reykjanes- bær – Garður – Sandgerði með öllum þeim stöðum sem hægt sé að skoða þar og Reykjanesbær – Reykjanes- viti – Grindavík – Bláa lónið. Báðir hringirnir hafa upp á að bjóða fjöl- breytta afþreyingu fyrir alla fjöl- skylduna. „Íslenskir ferðamenn eru mikið á ferðinni hjá okkur á haustin og veturna og þá eru óvissuferðir og starfsmannaferðir vinsælar, auk fræðsluferða hjá skólahópum.“ Rannveig er félagi í Leiðsögumönn- um Reykjaness og sagði hún að þeir hafi haft í mörg horn að líta. „Í sumar hafa leiðsögumenn séð um leiðsögn daglegra gönguferða hringinn í kringum Bláa lónið en við höfum ver- ið í samstarfi við fyrirtækið, meðal annars með kennslu við Bláa lóns- skólann. Einnig hafa nokkrir félagar staðið fyrir fróðlegum gönguferðum og fyrirlestrum um Reykjanes- svæðið, bæði vetur og sumar, ásamt útgáfu tveggja rita með fróðleik um Reykjanesskagann.“ Aðspurð um vinsæla viðkomustaði sagði Rannveig að alltaf væri vinsælt að fá skipulagðar ferðir með leiðsögn. Af einstökum stöðum nefndi Rann- veig Brú milli heimsálfa þar sem Evrópa og Ameríka mætast, en hægt er að fá skírteini með nafni og dag- setningu á Upplýsingamiðstöðinni sem staðfestir brúarheimsóknina. „Sandvíkin er líka mjög vinsæl eftir að Clint Eastwood dvaldi þar. Á Reykjanesvita og Reykjanestánni finnst ferðamönnum gott að upplifa náttúruna og brimið en Gunnuhver er líka vinsæll áningastaður og stend- ur til að bæta aðgengi að honum enn frekar,“ sagði Rannveig að lokum. Hvar er keyrt upp á jöklana? Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Fjölgun ferðafólks Rannveig Lilja Garðarsdóttir, verkefnisstjóri hjá Upp- lýsingamiðstöð Reykjaness, segist merkja fjölgun ferðafólk til svæðisins. Hér aðstoðar hún erlenda ferðamenn sem vildu komast upp á Langjökul. Í HNOTSKURN »Erlent ferðafólk sækistmeira eftir upplifun og vill kynnast íslenskri menningu, borða íslenskan mat, sjá ís- lensk heimili og kaupa ís- lenskt handverk. »Á Reykjanesvita ogReykjanestánni finnst ferðamönnum gott að upplifa náttúruna og brimið. » Íslenskir ferðamenn erumikið á ferðinni hjá okkur á haustin og veturna og þá eru óvissuferðir og starfs- mannaferðir vinsælar. Ferðafólki hefur fjölgað á Reykja- nesinu í sumar TENGLAR .............................................. www.reykjanes.is www. reykjanesguide.is Reykjanesbær | Fjórða árið í röð efnir Reykjanesbær til umferðar- og öryggisátaks í samstarfi við ýmsa aðila. Leiðir sem hafa verið farnar er m.a. að draga úr hraðakstri í íbúða- hverfum og við gönguleiðir og ókeypis strætisvagnar, hafa dregið úr slysahættu í umferðinni. Átakið hófst 13. ágúst og stendur til 21. september. Markmiðið er að vekja almenning til umhugsunar um umhverfið sitt og umferðarmenningu og stefnt er að slysalausri umferð í Reykjanesbæ. Sérstök áhersla er lögð á mikil- vægi þess að skapa meira öryggi fyr- ir unga vegfarendur á leið í skólann og ekki síður þeirra ungu ökumanna sem hafa nýlega lokið ökuprófi og eru að öðlast reynslu í umferðinni sem nýir vegfarendur. Fánar hafa verið settur upp víða um bæinn með slagorðum til dæmis Aktu varlega! „ég er ný í umferð- inni“. „Skipt getur máli að við leiðbein- um börnum okkar eins vel og kostur er og gætum þess að ofmeta ekki hæfni þeirra í umferðinni. Við viljum minna á að hámarks- hraði í grennd við alla grunnskóla er 30 kílómetrar á klukkustund,“ segir í frétt frá Reykjanesbæ. Umferðar- og öryggisátak í Reykjanesbæ SUÐURNES SUMARSÝNINGU Listasafnsins á Akureyri lýkur á sunnudag. Sýn- ingin er helguð yfirliti á verkum Georgs Guðna landslagsmálara, en þar gefur að líta höfundarverk eins helsta listamanns sinnar kynslóðar. Listasafnið á Akureyri hefur af þessu tilefni gefið út bók um Georg Guðna sem prýdd er fjölda mynda. Í bókinni er að finna fræði- lega ritgerð eftir Hannes Sigurðs- son, forstöðumann safnsins, „Þar sem himinn mætir jörð“, ásamt grein eftir Aðalstein Ingólfsson um Guðna og íslensku landslagshefð- ina. Í ritgerð Hannesar er fjallað um hvernig samræða landslagsins í verkum Guðna leitar jafnvægis við þá skynjun sem þetta viðfangsefni veitir, hvernig Guðna tekst að töfra fram þær fíngerðu sjónhverf- ingar sem fært hafa honum við- urkenningu og aðdáun svo margra. Þegar Guðni hóf nám við Mynd- lista- og handíðaskólann árið 1980 var málverkið nýlega aftur komið í tísku með skvettum og slettum. Á skólaárunum gusaði hann málningu á strigann, lét hana leka í dropatali eða bókstaflega rigna á léreftið. Þegar Guðni afhjúpaði verk sín í Nýlistasafninu árið 1985 urðu áhorfendur heillaðir. Persónuleg efnistök og sérstæð nálgun Guðna gerði það að verkum að honum var strax hampað og hann lauk námi sem boðberi nýrrar sýnar á eitt- hvað sem kallast gat séríslenskt. Guðni hafði enduruppgötvað og endurreist íslensku landslagshefð- ina sem listheimurinn var búinn að afskrifa sem dauða og úr sér gengna. Síðan hafa margir mynd- listarmenn fetað í spor hans þannig að úr hefur orðið nýr skóli ís- lenskrar landslagslistar. Síðasta sýningar- helgi Guðna Morgunblaðið/Kristján Frumherji Sýningu Georgs Guðna í Listasafninu lýkur á morgun. ÍÞRÓTTA- og tómstundaskóla KA lauk í gær, en haldin eru námskeið fyrir börn á aldrinum 6-10 ára þar sem farið er í helstu íþróttir; sund, boltaleiki, óvissuferðir og fleira. Skólinn hefur staðið fyrir tveggja vikna nám- skeiðum á sumrin undanfarin ár. Umsjónarmenn voru Edda L. Kristjánsdóttir og Inga Dís Sigurðardóttir. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Íþrótta- og tómstundaskólanum lokið MINJASAFN Akureyrar býður til sögugöngu um Oddeyrina í dag kl 14. Margs konar atvinnustarfsemi hefur verið á eyrinni, fiskvinnsla, matvælaiðnaður og þjónusta, og henni tengjast nokkrir þekktir ein- staklingar úr sögu Akureyrar. Fyrir þá sem eru áhugasamir um liðna tíma er því kærkomið að rifja þá upp með Hönnu Rósu Sveins- dóttur, sérfræðingi á Minjasafninu, sem mun veita svör við spurn- ingum svo sem: Hvenær er manna- ferða fyrst getið á Oddeyrinni? Hvað fór fram í Gránufélagshús- unum? Allir eru velkomnir, en ekkert þátttökugjald er í gönguna sem tekur um tvo tíma og hentar öll- um. Lagt verður af stað frá Gránu- félagshúsunum, Strandgötu 49. Söguganga um Oddeyrina Mörgum spurningum svarað Ljósmynd/Hörður Geirsson Eyrin Áhugasamir geta í dag fræðst um Sweizerstíl í sögugöngu. ÓPERA Skagafjarðar mun í sam- vinnu við Sinfóníuhljómsveit Norð- urlands sýna óperuna La Traviata eftir G. Verdi á Akureyrarvöku kl. 16 í íþróttahúsinu við Glerárskóla. Hljómsveitarstjóri verður Guð- mundur Óli Gunnarsson, leikstjóri og sögumaður Guðrún Ásmunds- dóttir og listrænn stjórnandi er Alexandra Chernyshova. Alex- andra mun einnig vera einsöngvari ásamt Ara J. Sigurðssyni, Þórhalli Barðasyni, Jóhannesi Gíslasyni, Ír- isi Baldvinsdóttur og Sigríði Ingi- marsdóttur. Einnig kemur fram kór Óperu Skagafjarðar og 14 manna kammerhljómsveit Sinfón- íuhljómsveitarinnar. Forsala miða verður í Pennanum Akureyri, midi- .is og Kaupþingi á Sauðárkróki. Flytja Verdi á Akureyrarvöku

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.