Morgunblaðið - 18.08.2007, Qupperneq 22
|laugardagur|18. 8. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Á tískuvikunni í Kaupmanna-
höfn sýndu helstu dönsku
hönnuðirnir og tískuhúsin vor-
og sumarfötin 2008. » 26
tíska
Mismunur á innkaupsverði og
útsöluverði bóka á skipti-
bókamörkuðum er allt að
80,6%. » 27
neytendur
Nýlega var íbúð í Vesturbænum
tekin algjörlega í gegn og út-
koman felur í sér breytta notk-
unarmöguleika. » 24
lifun
Síðan 1. ágúst hafa Þorbjörg,sem venjulega er kölluðTobba, og Guðrún Jóns-dóttir, eigendur verslunar-
innar Frúarinnar í Hamborg, staðið
í ströngu, en þá fengu þær nýtt hús-
næði afhent.
Verslunin er um margt sérstök,
lífleg, fróðleg og forvitnileg, því inn-
andyra ægir saman alls konar hug-
myndum sem saman mynda „mega-
búlluna“.
Hringrásin í lífinu
„Við opnuðum búðina fyrir fjórum
árum og keyptum svo húsnæði sem
við fengum afhent 1. ágúst. Við
gengum í það að mála og snurfusa
húsið, sem er sögufrægt hús. Þetta
er rétt hjá KEA og var fyrsta húsið
sem kaupfélagið eignaðist. Það er
líka dálítið gaman að vera að fara
inn í þetta pláss því við erum með
gamalt dót í búðinni. Við erum t.d.
með muni sem voru kannski keyptir
á sínum tíma í kaupfélaginu og eru
svo að koma aftur til okkar. Þeir
fara því eiginlega hringinn,“ segir
Tobba, en í búðinni fæst í raun flest
það sem verslunareigendunum
finnst fallegt eða sniðugt, burtséð
frá því hvort það er nýtt eða notað.
„Þetta er ekki beint venjuleg búð.
Við höldum í þetta gamla – viljum
bjarga gömlum hlutum og gefa þeim
nýtt líf.“
Föt, hönnun og músík
Það eru ekki eingöngu hlutir sem
eiga hug Tobbu því í versluninni er
gott úrval af frumlegum fatnaði,
meðal annars frá Dead, Naked Ape,
Anitu Hirlekar og svo merki búll-
unnar sjálfrar, Frúin í ham.
„Við erum að þróa okkur og erum
í samstarfi við Sputnik, Jón Sæ-
mund og Söru í Nakta apanum og
höfum líka verið að hleypa inn
krökkum sem eru að gera eitthvað
skemmtilegt í hönnun,“ segir Tobba
sem telur að stækkun búllunnar
bjóði upp á marga möguleika til þess
að búa til skemmtilegri verslun. „Við
erum hér með herbergi þar sem eru
bara vinyl-plötur,“ segir Tobba en
það mun vera svokallað gullherbergi
þar sem heilt Elvis Presley-safn er
að finna. Það er afskaplega hentugt
þar sem þess er nú minnst að 30 ár
eru liðin frá því kóngurinn hvarf af
sjónarsviðinu. Í vinyl-plötusafninu
er einnig mikið af Richard Clay-
derman sem af einhverjum ástæðum
virðist ekki seljast vel.
Í framtíðinni eru áform um alls-
konar nýstárlega þjónustu eins og
t.d. búningaleigu. Nú þegar er þó
ein hugmyndin komin í framkvæmd
en það er búð inni í búðinni, eitt her-
bergi sem verður opið þeim sem eru
að hanna eitthvað sniðugt. Þannig
geta þeir sem vilja koma sér á fram-
færi nýtt sér herbergi í búðinni fyrir
eigin vörur.
Tobba segir að einu sinni á ári sé
farið til útlanda til þess að kaupa inn
vörur, t.d. á mörkuðum og svo er
keypt beint af fólki á Akureyri og er
þá ekki verið að leita eftir sér-
stökum tímabilum heldur bara því
sem passar í verslunina. „Svo erum
við dálítið í því að mála húsgögnin og
poppa þau upp,“ segir Tobba sem
leggur mikla áherslu á að staðna
ekki.
Miðað við þetta ætti heldur ekki
að koma á óvart að Frúin í Hamborg
er ekki bara verslun heldur líka per-
sóna sem mun stíga fram á sviðið á
Akureyrarvöku kl. 20.30 á laug-
ardaginn eftir viku.
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Eigendurnir Þorbjörg Halldórsdóttir og Guðrún Jónsdóttir opna Frúna í Hamborg í gömlu og virðulegu húsi og það verður mikið um uppákomur og allskyns gjörninga hjá þeim.
Húsgögn Húsgögn frá hinum ýmsu tímabilum – allt eftir því hvað frúin telur vera inni hverju sinni.
Munir Frúin í Hamborg virðist líka hafa mikið dálæti á fallegum munum.
Hver er frúin
í Hamborg?
Í dag verður „megabúllan“ Frúin í Hamborg opnuð í
nýju húsnæði í Hafnarstræti 90, Akureyri. Ingvar
Örn Ingvarsson spurði Þorbjörgu Halldórsdóttur,
annan eigandann, út í búlluna.
Lifir Kóngurinn Elvis lifir í „megabúllunni“ Frúnni í Hamborg.