Morgunblaðið - 18.08.2007, Side 24

Morgunblaðið - 18.08.2007, Side 24
Það var annaðhvort að seljaog bæta við sig herbergimeð tilheyrandi kostnaðieða að endurhugsa allt rýmið,“ segir húsmóðirin á heim- ilinu á meðan hún leiðir blaðamann og ljósmyndara inn í bjarta og skemmtilega íbúð. Fjölskyldan hafði hins vegar engan sérstakan hug á að flytja, enda kunna þau af- skaplega vel við sig í þessu rólega og gróna hverfi og ekki spillir fyrir að róluvöllur sem drengirnir tveir á heimilinu kunna vel að meta blasir við út um eldhúsgluggann. Það var því ákveðið að ráðast í framkvæmdir. „Þar sem að þetta er ekki stór íbúð, 88 m², og nýta þarf hvert horn ákváðum við strax að hafa arkitekt með í ráðum. Ég byrjaði því á að setja mig í samband við Ingunni Hafstað, sem rekur teikni- stofuna Arktíka, og fékk hana til að koma með hugmyndir.“ Ákveðið var að gera íbúðina opnari, stækka hurðarop og fjar- lægja veggi. „Það fór mikið pláss í gang sem lá eftir íbúðinni endi- langri, auk þess sem dökkur ma- hóníviður á gólfum og hurðum gerði hana dimma,“ segir Ingunn Hafstað um breytingarnar. „Með því að fjarlægja vegg milli stofu og gangs og opna meira inn í eldhúsið þá hefur náðst að nýta plássið sem áður fór í dimman gang. Að auki er núna góð tenging milli borð- stofu og eldhúss en það var líka markmiðið og öll íbúin er orðin bjartari.“ Ljós eik sem er notuð er í gólf, innréttingar og hurðar ásamt ljós- um veggjum á svo sinn þátt í að auka birtu og rýmiskennd. Breyttir notkunarmöguleikar Fjölskyldan flutti út í sex vikur á meðan að á framkvæmdunum stóð en auk þess að brjóta veggi, var skipt um eldhúsinnréttingu, hurðir, skápa, gólfefni og rafmagn. „Hún var tekin algjörlega í gegn og þegar það var dregið í nýtt raf- magn kom í ljós að við höfðum ekki einu sinni haft jarðtengingu,“ segir húsmóðirin og bætir við að breytingarnar hafi haft heilmikil áhrif á það hvernig fjölskyldan noti húsnæðið. „Strákarnir hafa til dæmis nú gert rýmið sem áður fór undir gang að sínu leiksvæði og það hentar okkur vel þegar við sitjum við matarborðið eða inni í stofu. Sömuleiðis þarf nú ekki að nálgast borðstofuborðið eftir krókaleiðum heldur er tengingin við eldhúsið bein.“ Það felst líka óneitanlega tölu- verð hagkvæmni í því að gera borðstofuna að framlengingu á eld- húsinu og eyða ekki miklu plássi undir bæði eldhús- og borðstofu- borð. Fráleggsborð á hjólum, sem gengur haganlega undir borðplöt- una við eldhúsgluggann, eykur svo enn á þessa tengingu þar sem að auðvelt er að rúlla því fram þegar að boðið er til veislu, ekki síður en að leyfa því að gegna hlutverki teikniborðs fyrir drengina. Dauða rýmið sem venjulega myndast í hornskáp eldhúsinnrétt- inga hefur þá einnig fengið nýtt og skemmtilegt hlutverk. „Ingunn kom með þá hugmynd að grynnka hornskápinn og nýta plássið þess í stað sem skóskáp með efri hillum fyrir húfur vettlinga og þess hátt- ar á ganginum sem er hinu megin við vegginn og sú útfærsla virkar frábærlega.“ Og rýmisnýtnin skilar sér á fleiri stöðum á heimilinu, því að bókahillurnar í borðstofunni eru verk húsbóndans. „Þegar að pláss- ið er lítið gengur náttúrlega ekki að taka 40 cm dýpi undir bókahill- ur þegar meðalbókin er engan veg- in svo breið,“ segir hann og málið var leyst fyrir nokkrum árum með því að sérsmíða 20 cm breiða bóka- hillu sem rúmar vel lesefni fyrir bókaorma. Frumlegt flokkunarkerfi Bækur geta líka vel verið stof- ustáss og sér til gaman hefur hús- móðirin á heimilinu komið sér upp allsérstæðu flokkunarkerfi. „Ég var orðin svo leið á að raða þeim eftir venjulegum leiðum í hilluna þannig að ég ákvað raða í nokkrar hillur eftir lit,“ og það leynir sér ekki að gult, rautt og blátt lita- þema má finna í hinum ýmsu hill- Hvert horn úthugsað Allt litrófið Bókunum er raðað eftir lit í þessar hillur sem eru sérlega grunnar og sérhannaðar af húsbóndanum. Lausn Áður var þarna langur og þröngur gangur sem nýttist illa, en með því að opna inn í borðstofuna skapast nýtt rými og aukin tenging við eldhúsið. Í gróinni íbúðagötu í Vesturbænum býr fjögurra manna fjölskylda sem kann vel þá list að nýta plássið. Nýlega tóku þau íbúðina, sem þau hafa búið í sl. 10 ár, algjörlega í gegn og útkoman felur í sér gjörbreytta notkunarmöguleika. Anna Sigríður Einarsdóttir brá sér í heimsókn. Maddama Húsfreyjan hefur afskaplega gaman af gömlum munum og ber heimilið þess skemmtileg merki. lifun 24 LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.