Morgunblaðið - 18.08.2007, Side 26
Rützou Áherslan er á mittið með breiðu belti.
Tískuvikan í Kaupmannahöfn er nýaf-staðin en þar sýndu helstu dönskuhönnuðirnir og tískuhúsin vor- ogsumarfötin 2008. Tískuvika er haldin
tvisvar á ári í borginni, í febrúar og ágúst, og
er hún sú stærsta í Norður-Evrópu. Vikuna
sækja jafnan meira en 50.000 manns úr tísku-
iðnaðinum frá yfir 40 löndum; hönnuðir, blaða-
menn og fulltrúar verslana.
Íslenskar konur þekkja vel þekktustu
dönsku merkin eftir heimsóknir til fyrrver-
andi höfuðborgar okkar auk þess sem mörg
þeirra eru til sölu í verslunum hérlendis.
Dönsku merkin falla Íslendingum vel í geð
enda er áherslan gjarnan á klæðileika og nú-
tímalegt viðhorf til kvenleika. Verður hér
greint frá nokkrum helstu merkjunum.
Glamúrdrottningin Malene Birger hefur
byggt upp mikið tískuveldi í Danmörku og
opnaði glæsilega verslun í miðborg Kaup-
mannahafnar á síðasta ári, sem vert er að
heimsækja. Búðin er við Antonigade 6, nærri
Kongens Nytorv.
Annað stórt nafn í danska tískuheiminum er
Bruuns Bazaar, sem þekkt er fyrir einfaldan
og klassískan stíl og fæst í 25 löndum. Bræð-
urnir Theis og Bjørn Bruun stofnuðu tísku-
húsið og sýndu fyrstu línuna árið 1995. Fjórum
árum síðar kynntu þeir til sögunnar BZR-
línuna, sem er ódýrari og höfðar frekar til
yngra fólks.
Annað merki sem Íslendingar ættu að
þekkja er Rützou, sem stofnað var af Susanne
Rützou árið 2000. Susanne var þó enginn ný-
græðingur í bransanum þegar hún stofnaði
eigið merki því hún tók þátt í að koma Bruuns
Bazaar á fót og vann þar 1994-1999.
Munthe plus Simonsen var stofnað af hönn-
uðunum Naja Munthe og Karen Simonsen árið
1994 en þær kynntust í listaskóla í Kolding.
Þær hafa þá stefnu að engar tvær línur séu
eins því hver og ein er byggð á sjálfstæðri hug-
mynd. Hönnunin er jafnan fáguð og kvenleg.
Loks má nefna Baum und Pferdgarten en
hönnuðirnir Helle Hestehave og Rikke
Baumgarten stofnuðu merkið árið eftir að þær
kláruðu nám við Danmarks Designskole 1998.
Föt þeirra eru oft heldur nýstárleg en þó er
ekki farið of langt frá hinu klassíska og klæði-
lega, eins og hjá svo mörgum dönskum tísku-
húsum.
Á upptalningunni sést að dönsk tíska hefur
verið í heilmikilli uppsveiflu síðustu ár og er
iðnaðurinn sístækkandi og skiptir máli í
dönsku atvinnulífi.
Til viðbótar þessum þekktari nöfnum eru
yngri hönnuðir farnir að
láta mikið á sér bera
og má þar helst
nefna Henrik Vibs-
kov, Wood Wood og
Stine Goye. Föt
þeirra hafa verið
vinsæl hjá listahá-
skólanemum og eru
gjarnan litrík, undir
sterkum áhrifum frá tí-
unda áratugnum.
ingarun@mbl.is
Klassískt
og klæðilegt
Hönnuðir sýndu nýverið vor- og sumartískuna 2008 á tísku-
viku í Kaupmannahöfn. Inga Rún Sigurðardóttir skoðaði
það helsta sem Danirnir hafa upp á að bjóða.
Ivan Grundahl Hanskarnir eru flottir.
Bruuns Bazaar Danska ofurfyrirsætan
Lykke May tók þátt í sýningunni sem fram
fór í Ny Carlsberg Glypotek.
Munthe plus Simonsen Fyrirsæturnar þurfa aðstoð til að verða flottar á sýningarpallinum.
Rützou Mörg armbönd eru alveg málið.
AP
Rützou Ljósblái og léttleikandi kjóllinn fær
skemmtilegt og harðara yfirbragð notaður
við dökkbláar leggings.
Munthe plus Simonsen Sýningin fór fram í Ráðhúsinu. Ivan Grundahl Rautt og rómantískt.
Munthe plus
Simonsen
Svart, hvítt
og stílhreint.
Malene Birger Sýningin fór fram í Hellerup.
Malene Birger Glamúrinn var hvarvetna.
tíska
26 LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ