Morgunblaðið - 18.08.2007, Side 34

Morgunblaðið - 18.08.2007, Side 34
34 LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sigrún IngaSigurgeirs- dóttir fæddist í Mó- eiðarhvolshjáleigu í Rangárvallasýslu, 2. október 1941. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Suð- urlands 12. ágúst síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Guðríður Guð- mundsdóttir, f. 14. nóvember 1918, d. 24. febrúar 1996 og Sigurgeir Ingvars- son, f. 18. júlí 1914. Bræður Sig- rúnar eru Guðmundur Birnir, f. 1970, kvæntur Sigrúnu Magn- úsdóttur, dætur þeirra eru Ragn- heiður Inga, f. 6. febrúar 1996, Guðlaug Hildur, f. 16. mars 1999 og Magnea Reyndís, f. 8. ágúst 2004. 2) Gunnar Valgeir, f. 19. október 1971, unnusta Kristina Tyscenko. Sonur Gunnars Val- geirs er Gunnar Gauti, f. 15. ágúst 2002 og dóttir Kristinu er Gerda Taujanskyté, f. 8. desem- ber 1994. 3) Uppeldissonur frá árinu 1969 er Pétur Kúld, f. 25. mars 1954, kvæntur Margréti Auði Óskarsdóttur. Synir þeirra eru Pétur Kúld, f. 4. mars 1981, Birkir Kúld, f. 1. ágúst 1984 og c) Óskar Kúld, f. 11. apríl 1989. Sigrún stundaði nám á Selfossi, við Skógaskóla og Húsmæðra- skóla Reykjavíkur, auk þess sem hún var við nám í Danmörku. Útför Sigrúnar verður gerð frá Selfosskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 10.30. 1944, kvæntur Ágústu Traustadótt- ur og Pálmar Sölvi, f. 1952, kvæntur Valgerði K. Sigurð- ardóttur. Fyrri maður Sig- rúnar var Sigurður Þorvaldsson og eignuðust þau son- inn Þorvald, f. 2. ágúst 1963, d. 11. febrúar 1992. Þau skildu. Seinni maður Sig- rúnar er Reynir Val- geirsson, f. 1943, synir þeirra eru: 1) Sigurgeir, f. 27. ágúst Elsku mamma, okkur skilur að um tíma dauðans hönd. Þó að hvíld sé þreyttum blessun, og hægur byr að ljóssins strönd. Þó er jafnan þungt að skilja: Þokast nær mörg fögur mynd, þegar hugur krýpur klökkur, kær er minninganna lind. Sérhvert barn á mæltri móður margt að þakka, er samvist dvín. Yfir brautir æskubreka okkur leiddi höndin þín. Því við bindum þöglum huga, þýtt, með hlýrri vinamund, þakkarkrans, sem tregatárin tállaus vökva á kveðjustund. Vertu blessuð, elsku amma, okkar hugsun með þér fer yfir hafið. Hinum megin horfnir vinir fagna þér. Þó við dóminn skapa ei skiljum, skýrist margt við kærleiks yl. Lítil barnssál líka getur leitað, saknað, fundið til. Vinarkveðja okkar allra er hér borin fram í dag, kærleikshlý við hvílu þína, er klukkur leika sorgarlag. Fögur samstarfsmanna minning mestur dýrðarsjóður er. Blítt á leiði blómum vaggar blærinn, sem um dalinn fer. (Höf. ók.) Sigurgeir, Valgeir, Sigrún og Kristina. Smávinir fagrir, foldarskart, fífill í haga, rauð og blá brekkusóley, við mættum margt muna hvort öðru að segja frá. Prýðið þér lengi landið það, sem lifandi guð hefur fundið stað ástarsælan, því ástin hans alls staðar fyllir þarfir manns. Faðir og vinur alls, sem er, annastu þennan græna reit. Blessaðu, faðir, blómin hér, blessaðu þau í hverri sveit. Vesalings sóley, sérðu mig? Sofðu nú vært og byrgðu þig. Hægur er dúr á daggarnótt. Dreymi þig ljósið, sofðu rótt! (Jónas Hallgrímsson.) Kveðja frá barnabörnum. Það er sunnudagur og sólin skín í heiði. Fallegur síðsumardagur eins og margir bræður hans þetta sumarið. En slæmar fréttir vekja okkur. Sig- urgeir tengdafaðir minn hringir og til- kynnir lát Sigrúnar dóttur sinnar. Þetta er óvænt frétt þrátt fyrir veik- indi Sigrúnar hin síðari ár. Það er stutt síðan ég talaði við Sigrúnu og þá var hún hress, kát og glöð og hafði helst áhyggjur af mér. Sigrún var elst af þremur börnum Sigurgeirs Ingvarssonar og konu hans Guðríðar Guðmundsdóttur. Þau systkinin ólust upp á Selfossi þegar kauptúnið var að byggjast upp. Þá hefur Sigrún verið ung og glaðvær kona og lífið brosað við henni. Hún eignaðist sitt fyrsta barn, Þorvald og síðar þá Sigurgeir og Valgeir. Þorvald missti Sigrún ungan. Enginn getur skilið hversu mikið áfall það er að missa barnið sitt nema sá sem sjálfur reynir. Allt frá því að ég kynntist Sigrúnu hefur hún átt stórt pláss í mínu hjarta. Hún var mikil gæðakona þó að lífið léki ekki alltaf við hana. Bar umhyggju fyr- ir öðrum í ríkum mæli. Sérstaklega var henni umhugað um föður sinn. Þau voru náin og hjálpuðust mikið að. Seinni árin bjuggu þau á sama hlaðinu og þegar Sigrún var lasin var pabbi hennar alltaf nærri og aðstoðaði hana. Frá fæðingu var hún heilsutæp og versnaði heilsa hennar hin síðari ár. Það er ekkert líf að vera tengd við súr- efnisvél allan sólarhringinn og fara ekki út úr húsi. Þrátt fyrir það hélt hún glaðværð sinni og góðu geði. Ég man eftir því þegar Gauja sagði mér frá því þegar Sigrún fæddist. Við höfðum farið á fornar slóðir til að skoða bæinn sem þau bjuggu á, Móeiðarhvolshjáleigu. Gauja og Geiri stóðu yfir rústum síns gamla bæjar. Þetta hafði verið óeinangrað steinhús og sagði Gauja mér að á veturna hefði verið svo kalt í húsinu að rúmteppin frusu föst við veggina. Ljósmóðirin var móðir Sigurgeirs, Sigríður Steinsdótt- ir húsfreyja á Minna- Hofi. Gauja hafði fengið rauða hunda á meðgöngunni og skaðaðist heyrn Sigrúnar og heilsa við það. Sigrún var lágvaxin og nett kona. Hún hringdi oft í Pálmar bróður sinn og spurði þá hvort litli-stóribróðir væri heima. H ann var yngstur en hún elst og minnst. Þá var talað lengi og spjall- að um heima og geima. Sigrún var spaugsöm og glaðlynd. Þegar krakk- arnir mínir þrír höfðu vaxið henni yfir höfuð ung að aldri hrópaði hún upp yfir sig. ,,Hvað, ertu orðinn stærri en frænka!“ Það var nú auðvelt því hún var lítil og börnin mín hávaxin. Þeim þótti mjög vænt um frænku sína og hlógu að gríninu. Þau voru þakklát fyr- ir gjafirnar hver jól þó að ríkidæminu væri ekki fyrir að fara hjá henni, enda öryrki og ekki er nú mulið undir þá hjá þeim, sem yfir þeim málum ráða. Elsku Geiri og fjölskyldur Sigur- geirs og Valgeirs. Ég sendi ykkur inni- legar samúðarkveðjur vegna andláts Sigrúnar. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikindaviðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Valgerður K. Sigurðardóttir. Meira: mbl.is/minningar Það er ekki á óskalista að kveðja Sigrúnu litlu frænku mína, sem ég tók á móti þegar hún kom í þennan heim. En heimurinn hefur svo sannarlega ekki verið léttur yfirferðar fyrir hana. Mikið mun ég sakna hennar. Að heyra ekki lengur röddina þegar ég hringdi og hún sagði glöð, Dóra frænka, en gaman að heyra í þér, svo var spjallað og það oft ansi lengi. Sig- rún var bæði glöð og þakklát fyrir allt sem fyrir hana var gert. Fylgdist af einlægni með líðan og gjörðum mínum og þeirra sem stóðu henni nær. Alltaf voru bréf og kort frá Sigrúnu minni þess eðlis að þau voru geymd og lesin mörgum sinnum, seinast núna fyrir örfáum dögum þegar ég stóð í flutningum. Ekki datt mér í hug þegar ég kvaddi hana á sunnudegi í byrjun ágúst að það væri okkar síðasta sam- verustund. Glaðar og hressar rædd- um við um barnabörn og eins og vant var þakkaði hún mér innilega fyrir að nenna að koma í heimsókn og bjarta brosið hennar mun fylgja mér og góð- ar óskir. Börn og barnabörn hafa misst góða móður og ömmu, sem var svo stolt af þeim og þreyttist aldrei á að lofa þau fyrir gæði þeirra við sig. Þakka ber öllum þeim sem héldu tryggð við hana og heimsóttu í veikindum hennar í gegnum árin. Nú er Sigrún mín laus úr viðjum veikinda og komin til ástvinanna, sem hún saknaði oft svo sárt. Megi guð og góðar vættir vernda okkur sem sökn- um hennar. Geiri minn, þú varst klett- urinn hennar sem ekkert haggaði, enginn gæti átt betri föður en þig. Nú hallar að hausti og áður en varir kem ég í hópinn, þá tekur litla frænka á móti mér og vísar mér veginn. Vertu sæl mín ljúfa. Þín, Dóra frænka. Elsku Sigrún með þessum orðum kveðjum við þig: Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Innilegustu samúðarkveðjur send- um við til ykkar allra, Geiri, Sigurgeir, Valli og fjölskyldur. Guð veiti ykkur styrk og kraft á þessum erfiðu tímum. Blessuð sé minning hennar. Hildur og fjölskylda. Elsku Sigrún Huggun er okkur í þungum harmi að vita þig lausa við sjúkdóms böl. Hvílandi nú upp aðalföðurs barmi hugljúfa, fríska og lausa við kvöl. Ástvinir allir nú saman hér stöndum og leitum að styrk kæri Drottinn til þín. Trú á þig bindi os fastari böndum nú að huggun í harmi við leitum til þín. Á kveðjustund við erum hér kæru vinir, frændur og frænkur. Lífið kemur og lífið fer en öll við hittumst um síðir aftur. Nú kveðjum við þig kæri vinur sem á förum ert í burtu hér. En nú hittir þú alla ættmennina sem farnir eru á undan þér. (Höf. ók.) Innilegar samúðarkveðjur sendum við ykkur öllum Geiri, Sigurgeir, Valli og fjölskyldur. Megi Guð veita ykkur styrk á þessum erfiða tíma. Valdís og fjölskylda. Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, SVANHILDUR JÓNSDÓTTIR, dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund, áður til heimilis á Melhaga 18, lést þriðjudaginn 7. ágúst. Sálumessa verður sungin fyrir henni, þriðjudaginn 21. ágúst kl. 13.00 í Kristskirkju í Landakoti. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningarkort Kristskirkju í Landakoti. Einar Magnússon, Steinunn Stefánsdóttir, Sigrún Brynja Einarsdóttir, Magnús Rannver Rafnsson. ✝ Ástkær móðir mín, amma okkar, langamma og systir, Pálína Kristín Björnsdóttir, lést á hjúkrunarhemilinu Skjóli, laugardaginn 11. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Rósa Björg Andrésdóttir, Andrés Páll Hallgrímsson, Ragnheiður Guðnadóttir, Hallgrímur Valur Hallgrímsson, Kikki Kristine Koch, Stefán Þór Hallgrímsson, Ingibjörg Björnsdóttir og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi, GUÐMUNDUR GAUTI VALDIMARSSON, Bröttuhlíð 10, Akureyri, lést mánudaginn 13. ágúst. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju, föstudaginn 24. ágúst kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Anna Lilja Valdimarsdóttir, Guðmundur A. Stefánsson, Sigurður Valdimarsson, Sigrún Björk Kristinsdóttir og fjölskyldur. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐLAUG ÓSK FJELDSTED frá Raknadal, Aðalstræti 71, Patreksfirði, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, fimmtu- daginn 16. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Björgvin Björgvinsson, Ingibjörg Svala Ólafsdóttir, Kristín Guðlaug Björgvinsdóttir, Þórarinn Helgi Bergsson, Deborah Leah Bergsson, Kristín Ósk Bergsdóttir, Bergþór Smári Óskarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, sonur, bróðir, mágur og tengdasonur, ÁSGEIR ÞÓR JÓNSSON, til heimilis í Bólstaðarhlíð 58, Reykjavík, lést í Reykjavík, sunnudaginn 12. ágúst. Útförin verður gerð frá Háteigskirkju, mánudaginn 20. ágúst kl. 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hins látna er vinsamlegast bent á að láta börn hans njóta þess. Stofnaður hefur verið reikningur þeim til handa: 0117-05-068920, kt. 310869-3849. Ása Ásmundardóttir, Ásgrímur Þór Ásgeirsson, Ásgerður Margrét Ásgeirsdóttir, Óskírð Ásgeirsdóttir, Ásdís Bjarkadóttir, Jón Friðgeir Einarsson, Margrét Kristjánsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Einar Þór Jónsson, Stig A. Wadentoft, Kristján Jónsson, Ásmundur Þórarinsson, Auðbjörg H. Hrafnkelsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.