Morgunblaðið - 18.08.2007, Page 39

Morgunblaðið - 18.08.2007, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 39 Á stundu sem þessari koma í huga manns alls kyns minningar, einstakur vinur og félagi hefur verið hrifinn á brott svo alltof, alltof fljótt. Gulli var einn af þeim sem þurfti ekki að segja neitt, hann var bara á staðnum og heimurinn virtist verða heill. Með ró sinni og yfirvegun kom hann manni í gegnum erfiðleika sem á herjuðu og þó svo að hann ætti stundum erfitt með að tjá til- finningar sínar vissi maður hvernig hjarta hans sló og hvern- ig honum leið innanbrjósts. Orðin voru oft svo óþörf í kringum hann. Á síðastliðnum tveimur árum hefur vinátta okkar þróast svo ótrúlega hratt og vorum við ef svo má segja orðin hluti af dag- legri rútínu hvors annars. Við heyrðum svo oft í hvort öðru og ekki voru kaffihúsa- og bíóferð- irnar ófáar svo fátt eitt sé nefnt. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Gulla, það voru ein- stök forréttindi að fá að eiga hann sem vin. Ég tel það vera mikla gæfu að kynnast fólki á lífsleiðinni sem með framkomu sinni og verki er öðrum góð fyrirmynd í orði og verki, þannig var Gulli, fátt þroskar mann meira í lífinu en svona samferðarfólk. Stórt skarð hefur verið höggvið í vinahóp þessa einstaka manns en minningin um ungann og lífs- glaðan mann lifir í brjóstum okk- ar. Með söknuði kveð ég þig kæri vin og vona að þér líði vel þar sem þú ert. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Þín vinkona, Eva Rós. Gunnlaugur Björnsson ✝ GunnlaugurBjörnsson fædd- ist á Selfossi 8. nóv- ember 1977. Hann lést af slysförum 28. júlí síðastliðinn og var jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju 8. ágúst. Með þessari bæn viljum við minnast okkar kæra vinar og bekkjarfélaga Gulla, sem féll frá í blóma lífsins. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mighvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur.) Kæra Ásta, Björn, Guðjón og Hafþór við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Hvíl í friði kæri vinur. Minning þín mun lifa í hjörtum okkar allra Þínir bekkjarfélagar úr Grunnskólanum í Hveragerði. Jæja elsku kallinn minn, þá er ferðum okkar lokið í bili. Við fáum víst ekki yfir örlögunum ráðið, bókin er skrifuð og hand- ritið getur ekki alltaf orðið eins og við kjósum okkur. En maður getur samt ekki annað en setið sár og reiður eftir og velt fyrir sér spurningum eins og af hverju og hvað ef … Við Gulli kynntumst í gegnum okkar sameiginlega áhugamál sem eru mótorhjól. Við hjóluðum mikið saman í sumar, og sötr- uðum ófáa kaffibollana á kaffi- húsum og iðulega snerist mót- orhjólaakstur okkar um það eitt að keyra góðan túr út á land, finna einhvern til að heimsækja eða bara að setjast á kaffihús (mér fannst nú stundum eins og þú hefðir bara átt að éta sykurinn beint upp úr karinu kallinn minn og sleppa kaffinu). Ég veitti því athygli að mótorhjólaumræðurnar sem allt snerist um í upphafi voru farnar að víkja fyrir annars konar málefnum, við vorum farnir að ræða meira saman um persónu- legri málefni eins og vinnu, vini og fjölskyldu. Ég get með stolti sagt að við vorum orðnir meira en bara hjólafélagar, við vorum orðnir góðir vinir. Þegar ég hugsa til baka var geðveikt gam- an að hjóla með þér en hangsið á kaffihúsum og öðrum stöðum var jafnvel enn skemmtilegra. Það broslega er, að stundum ákváðum við að fara út að hjóla og hittast einhvers staðar á hjólunum, en hjóluðum svo ekki neitt allt kvöldið, heldur bara kjöftuðum saman, sýndum okkur og sáum aðra, við gleymdum bara að hjóla meira og þegar ég kom heim eftir „langan“ hjólatúr og konan mín spurði hvert var hjólað, fannst mér eitthvað bogið við þetta, við hefðum alveg eins getað mætt á bíl eða eitthvað og skilið hjólin eftir heima. En ég var búin að átta mig á því að það var umfram allt góður félagsskapurinn sem við sóttumst í og það skipti ekki lengur höfuðmáli að hjóla sem mest. Mér fannst við tveir vera í þessu sporti af sömu ástæðu það var mikið að gera hjá okkur báð- um utan áhugamálsins, þú gegnd- ir ábyrgðarstöðu hjá Tölvulistan- um og varst að læra viðskipta- fræði með vinnu, ég sjálfur nýbúin að ljúka námi og mikið um að vera hjá mér í vinnu og öðru, og við töluðum oft um það hversu gott það var að komast út að hjóla því það hreinsaði hugann al- gjörlega og athyglin og einbeit- ingin fór bara í stund og stað. Við vorum sammála um, og grínuð- umst oft með, að ef við hjóluðum ekki í langan tíma yrðum við skapstyggir og ómögulegir að- standendum, og þar sem við vor- um svo góðir strákar vildum við ekki hafa það þannig og notuðum þau broslegu rök óspart til þess að hittast og hjóla eins oft og við gátum. Þú varst ábyrgðarfullur og góð- ur hjólari og enn betri félagi og vinur. Ég þekkti þig því miður allt of stutt en þú skilur samt mikið eftir hjá mér. Þú hjólar áfram með mér í minningunni, svo lengi sem ég lifi, það er klárt mál kallinn minn. Takk fyrir sumarið Gulli! Minn- ingarnar lifa. Ég vil senda fjölskyldu þinni og vinum, mínar dýpstu samúðar- kveðjur. Þinn hjólafélagi og vinur, Ingólfur Jörgensson (Ingó). Ég hitti Stefán æskuvin minn fyrir um mánuði síðan fyr- ir hálfgerða tilviljun. Það mátti örugglega ekki á milli sjá hvor okkar varð glaðari við þennan fund. Við féll- umst í faðma, kysstumst og hlóg- um af fögnuði eftir að hafa hvorki heyrst né sést í áraraðir. Við gát- um spjallað saman í örstutta stund, rétt nóg til að segja hvor öðrum helstu fréttir af lífinu og tilverunni. Áður en við kvöddumst lofuðum við hvor öðrum því að bæta nú aldeilis úr sambandsleysi síðustu ára, það væri löngu kom- inn tími til að endurnýja gamla vináttu. Tveimur vikum síðar frétti ég af andláti Stefáns. Ég man þegar Stefán kom nýr í bekkinn minn í Heiðarskóla. Ein- hvern veginn æxlaðist það þannig Stefán Jónsson ✝ Stefán Jónssonfæddist í Reykjavík 12. júní 1972. Hann lést í Reykjavík 29. júlí síðastliðinn og var útför hans gerð frá Langholtskirkju 9. ágúst. að hann settist við hliðina á mér í skóla- stofunni og eftir ótrúlega stuttan tíma vorum við farn- ir að þræta um eitt- hvert einfalt mál- fræði- eða stafsetningaratriði. Ég man ekki ná- kvæmlega hvert deiluefnið var en ég man hins vegar að hann hafði rétt fyrir sér en ég ekki. Upp úr þessu urðum við perluvinir og sóttumst eftir því að fá að vinna eins mikið saman og mögulegt var, kepptumst við að fá sem hæstar einkunnir og báðir vildum við helst vera aðeins hærri en hinn. Ekki lágum við þó alla daga yfir bókum heldur tókum líka þátt í íþróttum og öðru fé- lagsstarfi og þar hafði Stefán iðu- lega vinninginn. Það virtist vera sama hverju hann kom nálægt, allt lék í höndunum á honum og alls staðar var hann í fremstu röð. Um nokkurra ára skeið vorum við svo góðir vinir, að ég man varla eftir því að nokkurn tíma hafi okkur orðið sundurorða fyrir utan okkar fyrsta fund. Samt hlýtur það einhvern tíma að hafa gerst þótt ég muni ekki eftir því en það segir þó alltént meira en mörg orð um okkar vináttu að þau skipti skuli vera gleymd en aðeins ánægjulegu minningarnar standi eftir. Fjölskylda Stefáns flutti burt frá Heiðarskóla áður en grunn- skólagöngu okkar lauk og fljót- lega misstum við sjónar hvor á öðrum í erli lífsins. Ég hef alla tíð séð mikið eftir því að hafa ekki gert meira til að halda sambandi við minn góða vin. Af og til frétti ég þó af honum og það kom mér alls ekki á óvart að hann skyldi verða hámenntaður vísindamaður þegar fram liðu stundir. Slíkur hæfileikamaður og dugnaðarfork- ur sem hann var hlaut að feta ein- hverja slíka braut. Fagnaðarfundur okkar Stefáns í sumar var í tvær vikur í huga mér ánægjulegur atburður sem gaf fyrirheit um einhvers konar end- urheimt gamallar vináttu. Nú lít ég á þennan fund sem óvænta og dýrmæta gjöf sem tilviljunin færði mér og er óendanlega þakklátur fyrir að hafa fengið að hitta minn gamla, góða vin og faðma hann einu sinni að mér, áður en öllu lauk. Fjölskyldu og öllum ástvinum Stefáns sendi ég innilega samúð- arkveðju. Valgarður Lyngdal Jónsson. Elsku Jóna. Það er óraunverulegt að hugsa til þess að þú sért ekki með okkur leng- ur, við áttum saman yndislegan dag þegar við fögnuðum 5 ára afmæli Gauta 15. júlí. Jafnvel þegar okkur var sagt frá því hversu alvarlega veik þú værir trúðum við því að samverustundir okkar yrðu fleiri. Það var sár stund þegar við fréttum að baráttu þinni væri lokið. Við trúðum því ekki. Nú hugsum við til baka, hvernig þú leiddir okkur áfram með styrk þínum og jákvæðni. Alltaf glöð og falleg, að hugsa um hvernig þú gætir glatt aðra. Aldrei heyrðum við þig kvarta vegna veikinda þinna. Það er mikið hægt að læra af því hvernig þú tókst á við þinn sjúkdóm, hugsaðir vel um þig og líkama þinn. Fram á síðasta dag gafst þú okkur von, fyllt- ir okkur öryggi og trú. Þær eru margar minningarnar sem vakna. Ég man vel eftir því þeg- ar ég kom til að hitta þig og Bergþór Jóna Friðfinnsdóttir ✝ Jóna Friðfinns-dóttir fæddist á bænum Vallholti í Glerárhverfi á Akureyri hinn 22. nóvember 1951. Hún lést á krabba- meinsdeild Land- spítalans við Hring- braut hinn 18. júlí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Bústaðakirkju 27. júlí. í fyrsta skipti, það var þægileg stund. Við sátum saman í eldhús- inu í Funafold og drukkum te. Mér leið vel, nærvera þín hafði góð áhrif allt í kring- um þig. Börnum okkar þyk- ir afar vænt um þig, hjá þér fengu þau óskipta athygli. Fátt þótti Atla Geir betra enn að vera hjá ömmu og afa á kósíkvöldi, smá dekur, ást og hlýja. Að heimsækja ykkur Bergþór hefur alltaf verið gott, hvort sem maður mætti boðinn eða óboðinn voru móttökur alltaf góðar. Elda- mennska þín var einstök, og gaman að sjá hversu mikinn metnað þú lagðir í allt sem þú gerðir. Missirinn er mikill, en ljósið ert þú og þær fallegu minningar sem við eigum öll með þér. Það veitir okkur styrk. Með hlýhug til þín förum við með bæn fyrir þig elsku amma. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson.) Elsku afi, hugur okkar er hjá þér á þessum erfiða tíma. Guðmundur, Íris, Atli Geir, Gauti og Guðjón. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku mamma, hafðu hjartans þakkir fyrir samverustundirnar og minningarnar sem munu lifa með okkur alla tíð. Við eigum eftir að sakna þín og trúum því að við mun- um hittast á ný. Við kveðjum þig með þakklæti, sofðu rótt og guð geymi þig. Elsku Gunnar, við vottum þér samúð, þú átt okkur alltaf að. Börnin. Þegar þrek og kraftur þagnar og þreytta sálin öðlast frið. Þinni sál minn drottinn fagnar í dýrðar himinn þess ég bið vef þú hana verndar örmum Jesús besti himnum á þerra trega tár af hvörmum þeim sem eftir sjá. Elsku amma, við þökkum þér fyr- ir samfylgdina og að hafa fengið að kynnast þér. Stefán og fjölskylda, Fjóla og fjölskylda. Ingunn Eiríksdóttir ✝ Ingunn Eiríks-dóttir fæddist í Kampholti í Flóa 13. maí 1923. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 8. júní síð- astliðinn. og var út- för hennar gerð frá Hafnarfjarð- arkirkju 15. júní. Drottinn vakir, Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. Blíðlynd eins og besta móðir ber hann þig í faðmi sér. Allir þótt þér aðrir bregðist, aldrei hann á burtu fer. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. Löng þá sjúkdómsleiðin verður, lífið hvergi vægir þér, þrautir magnast, þrjóta kraftar, þungt og sárt hvert sporið er, honum treystu, hjálpin kemur, hann af raunum sigur ber. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga’ og nætur yfir þér. Þegar æviröðull rennur, rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu eigi, hel er fortjald, hinum megin birtan er. Höndin, sem þig hingað leiddi, himins til þig aftur ber. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (Sigurður Kristófer Pétursson.) Elsku Ingunn amma, nú ertu far- in frá okkur, við eigum eftir að sakna þess að koma í heimsókn til þín og fá pönnukökur, kaffi og ann- að meðlæti. Alltaf vorum við velkomin og þú hafðir skemmtilegar sögur að segja okkur. Þú varst sterk og ákveðin með skoðanir á flestum hlutum. Þú fylgdist vel með málefnum fjölskyld- unnar og ferðaðist gjarnan á milli til að taka púlsinn á okkur, en núna síð- astliðin ár voru veikindi farin að draga úr tíðni heimsókna. Það er svo margt sem kemur upp í hugann, margs að minnast. Takk fyrir að hafa átt þig að. Elsku Gunnar, sár er þinn missir, en þú veist að þú átt marga að sem vilja hugga þig og styðja á erfiðum tímum. Lilja, Teitur, Tinna Sif og Viktor Daði, Jón Valgeir, Steinunn, Guðný Margrét, Guðmundur og Pálína Ósk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.