Morgunblaðið - 18.08.2007, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 18.08.2007, Qupperneq 48
Allt það furðulegasta, fyndnasta og rugl- aðasta sem ég varð vitni að var nefnilega í Japan … 52 » reykjavíkreykjavík Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is VILHELM Anton Jónsson kalla sumir Villa naglbít. Ekki er það vegna þess að maðurinn sé slarkari og slagsmálahundur, heldur vegna þess að hann var eitt sinn fremstur meðal jafningja í þeirri ágætu hljómsveit 200.000 naglbítar. Vilhelms er getið hér vegna þess að í vikunni kom út fyrsta sólóskífa hans og ekki bara fyrsta sólóskífan, heldur platan sem er talsvert frá- brugðin öðru því sem hann hefur sent frá sér hingað til, kassagítarskífa með enskum textum sem heitir The Midnight Sirkus. Ævinlega einn á ferð Svo bar við fyrir nokkrum árum að kærasta Vil- helms hélt til Lundúna í nám og hann fór með – ætlaði sér að mála enda var hann þá í miklu mál- arastuði. Hann kom sér því upp vinnuaðstöðu, en allt fór á annan veg. „Ég var mikið einn á ferð, gekk um borgina og drakk kaffi. Einn daginn fór ég svo að fikta í M- Boxi mínu, tók upp bank, breytti í trommutakt og samdi svo lag í beinu framhaldi. Svo samdi ég annað lag strax á eftir og áttaði mig þá á því að auðvitað ætti ég að gera plötu – ég hafði allan tím- ann í heiminum til að semja lög og taka þau upp og líka allt sem þurfti,“ segir Vilhelm. Hann datt líka heldur en ekki í stuð, samdi 30- 40 lög sem hann valdi síðan úr 25 lög, samdi við þau almennilega texta og tók upp prufur. End- anleg niðurstaða var þau 15 lög sem finna má á diskinum, en einnig á hann þrjú upptekin og full- kláruð lög til viðbótar. Tregi og vonlaus þrá Það vekur eflaust athygli flestra sem heyra að platan er í öðrum gír en fyrri verk Vilhelms, lág- stemmdari og rólyndislegri, þó textarnir séu upp fullir með trega og vonlausri þrá eins og alltaf – rómantískar rökkursögur eins og hann lýsir þeim. Vilhelm segir að frá því hann hófst handa í plötusmíðinni hafi hann verið staðráðinn í að gera slíka plötu, en ekki megi heldur gleyma því að hún hafi verið unnin í heimahúsi að mestu. „Þegar maður er að taka upp inni í svefnherbergi er ekki hægt að vera með hávaða.“ Því til viðbótar rifjar hann upp að hann hafi allt- af verið áhugamaður um þjóðlaga- og vísnalög og reyndar má sjá það á textum hans fyrir 200.000 naglbíta, sem eru líkari þjóðlagatextum, litlar dramatískar smásögur, en rokktextum. Ást og dauði, ást og dauði Hvað ensku textana varðar bendir Vilhelm á að hann hafi jafnan samið á ensku, líka þegar smíðað var fyrir Naglbítana, og ekki gert íslenska texta fyrr en rétt áður en lögin voru tekin upp og jafn- vel ekki fyrr en komið var í hljóðverið. Svo fannst mér passa að hafa textana á ensku þar sem ég var að taka upp í Bretlandi og gaman að sjá hvort ég gæti gert eitthvað við þetta úti.“ Eins og getið er eru textar plöturnar allajafna dapurlegir, en ekki segist Vilhelm hafa skýringu á því hvers vegna hann sæki svo í skuggann, en svo hafi það eiginlega verið alla tíð. „Ást og dauði, ást og dauði, þetta snýst allt um ást og dauða, annað æskilegt en hitt óumflýjanlegt.“ Æskilegt og óumflýjanlegt Morgunblaðið/Ómar Sólóskífa Vilhem Anton „naglbítur“ Jónsson brosir að depurðinni. fjórtán tónleikum í Bretlandi á tímabilinu frá 15. september til 19. október. Fyrstu tónleikar Jakobínurínu með Kaiser Chiefs verða síðan 29. október í München, en sveitin hitar einnig upp á tónleikum í Winter- thur 30. október og Vín 31., Offen- bach 2. nóvember, Berlín 4., Köln 5., Bremen 12., Amsterdam 14. og Antwerpen 16. nóvember. Íslendingum gefst kostur á að sjá piltana spila tvívegis á þessum tíma, fyrst sem upphitun fyrir Franz Ferdinand í Nasa 14. sept. og svo kemur Jakobínarína einnig fram á Airwaves 19. október. SKAMMT er í að fyrsta breiðskífa Jakobínurínu komi út, en skífan var tekin upp í Wales fyrr á þessu ári. Sveitin er líka að undirbúa kynn- ingu á plötunni og kemur sér ef- laust vel í því tilliti að henni var boðið að hita upp fyrir bresku rokk- sveitina Kaiser Chiefs á nokkrum tónleikum í Evróputónleikaferð. Platan mun heita The First Cru- sade og kemur út á vegum Regal/ Parlophone 24. september næst- komandi. Hægt er að hlusta á lög af plötunni á MySpace-síðu sveit- arinnar. Tónleikahald Jakobínurínu ytra hefst með því að sveitin leikur á Hitar upp fyrir Kaiser Chiefs Margverðlaunaðir Hljómsveitin Kaiser Chiefs hefur verið hlutskörp á und- anförnum verðlaunahátíðum í Evrópu og fer mikinn um þessar mundir. Dýravinir Nú virðist allt ætla á fullt hjá drengjunum í Jakobínurínu.  Uppselt er á tónleika GusGus á NASA í kvöld en ásókn í miðana var gríðarleg þegar þeir fóru í sölu og ljóst að færri komast að en vilja. Hljómsveitin heldur reyndar aðra tónleika fyrr um daginn þar sem aðgangur mun vera bannaður fólki eldra en tvítugt nema í fylgd með barni eða unglingi. Loksins, hljóm- sveit með beittan pólitískan húmor! Nú væri gott að eiga lít- inn frænda eða frænku!  Fjórða breiðskífa hljómsveit- arinnar múm, go go smear the poi- son ivy, er nú væntanleg í lok mán- aðarins. Heil þrjú ár eru frá því að síðasta plata sveitarinnar, summer make good, kom út og í tilefni af tímamótunum mun sveitin halda sérstaka útgáfutónleika í Museum of Garden History í London þann 29. ágúst nk. Miðar á tónleikana verða hins vegar ekki seldir á al- mennum markaði heldur mun fara fram happdrætti á heimasíðu sveit- arinnar, www.randomsummer- .com, þar sem aðdáendur geta skráð sig í pott og einfaldlega von- að það besta. Sérstakir múm-tón- leikar í London  Þegar litið er yfir dagskrá Bíó- daga Græna ljóssins vekur athygli hversu margar myndir koma inn á viðkvæm og jafnvel ógeðfelld mál- efni. Þar má finna myndir um barnaníðing, sjálfsmorð, af- brigðilegar kynhvatir, erótíska til- raunastarfsemi og líkamsbreyt- ingar og loks mann sem lést eftir náin kynni við hest. Það verður sem sagt ekkert 3-bíó á Bíódögum… Erótík og afbrigðileg- heit á Bíódögum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.