Morgunblaðið - 14.10.2007, Side 8
8 SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VEÐUR
Óskar Bergsson, varaborgar-fulltrúi Framsóknarflokksins,
sagði á fundi framsóknarmanna sl.
föstudag, skv. frásögn Stöðvar 2, að
Alfreð Þorsteinsson, fyrrum borgar-
fulltrúi framsóknarmanna, hefði
getað einbeitt sér að því að fella
borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks eftir
að Guðlaugur Þór Þórðarson heil-
brigðisráðherra hefði rekið Alfreð
frá málefnum hátæknispítalans.
Hvernig dettur Óskari Bergssyni íhug að halda svona nokkru
fram?
Auðvitað hefurAlfreð aldrei
starfað svo ómál-
efnalega að mál-
efnum borgar-
búa, að persónu-
legir hagsmunir
hans hafi ráðið
ferð.
Og raunar má með sama hættispyrja, hvernig mönnum detti í
hug, að Guðlaugur Þór Þórðarson
heilbrigðisráðherra, hafi látið póli-
tísk sjónarmið ráða, þegar hann
boðaði skipulagsbreytingar í sam-
bandi við byggingu hátæknisjúkra-
húss.
Þótt ýmislegt megi um íslenzka
pólitík segja er auðvitað ljóst, að
svona vinna menn ekki og þess
vegna hefur Óskar Bergsson rangt
fyrir sér.
Hann á ekki að væna flokksbróðursinn um að svo lágkúruleg sjón-
armið ráði gerðum hans.
Gleymum ekki orðum MarkúsarAntons í einni frægustu ræðu
veraldarsögunnar á Fórum-torgi í
Róm:
Rómverjar, vinir, landar, ljáiðeyra … því víst er Brútus heið-
ursmaður, já og þeir allir, allir heið-
ursmenn.“
STAKSTEINAR
Alfreð
Þorsteinsson
Að hefna harma?
FRÉTTIR
!
"
#$
%&'
( )
* (!
+ ,-
. / 0
+ -
!
" "
12
1
3
4
2-2
* -
5 1
%
6!
(78
9 4 $ (
#
$
%% ""&
" "
$
:
*$;<= %%%%
*!
$$
; *!
'( ) % %( % *
>2
>! >2
>! >2
') " %+ "&,%- "!
<? !-
!"# !$%&
'
! $ "
(
6
2
&
)
!
*#
+
* !"#'
& '
%
% ;
#,! +
*
- %
% ! %
./ %%00 " %%1 %+ "&%2 3% " %
3%43##5
3'45@4
@*>5A BC
*D./C>5A BC
,5E0D).C
#6
#6
3 43 #3#
3#
43 3#
3#4
3#
3 3 3 64
6
6
6
#6
#6
#6
#6
6
64
6
64
#6
#6
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Brynjar Jóhannsson | 13. október
Slæmt fyrir alla?
Guðlaugur Þ. Þórðarson fer
stundum alveg ískyggilega í
taugarnar á mér og þá sér í lagi
þegar hann byrjar að alhæfa
einhverja tóma vitleysu. Í við-
tali við Ríkissjónvarp sagði
hann að tíðindin um borg-
arstjórnarslit væru SLÆM
FYRIR ALLA REYKVÍK-
INGA. Svona rétt eins og allir
úr Reykjavík væru sjálfstæðis-
menn eða þá væri ekki treyst-
andi til að hafa pólitískar skoð-
anir.
Meira: brylli.blog.is
Andrés Magnússon | 12. október
Fyrirsagnaleikir
Þegar nafni Blaðsins
var breytt í 24
stundir og útlitinu
nokkuð breytt var ég
ekki alveg viss um
tilganginn. En í
morgun áttaði maður
sig á því að það er verið að reyna
að búa til einhvern vísi að götu-
blaði að enskum hætti. Ég hef
mínar efasemdir um að íslenskan
henti vel í slíka fyrirsagnaorða-
leiki og þessi fyrsta tilraun féll
nokkuð flöt.
Meira: andres.blog.is
Guðmundur Jónas Kristjánsson
| 13. október
ESB-samráð
Það er einstakt að ís-
lenzkur ráðherra kalli
á annan ráðherra í
ALLT ÖÐRU RÍKI
sér til stuðnings í einu
mesta pólitíska hita-
máli Íslandssögunar
er varðar aðild Íslands að Evrópu-
sambandinu. Þetta gerir Ingibjörg
Sólrún í Fréttablaðinu í dag. Þar
fær hún sér til hjálpar utanrík-
isráðherra Noregs, Jonas Gahr
Störe, sem er reyndar eldheitur
ESB-sinni eins og Ingibjörg. Í
Fréttablaðinu skrifa þau SAMAN
SÖMU áróðursgreinina um dá-
semdir þess að Ísland og Noregur
gangi í Evrópusambandið og hafi
um það samráð. Vitað var um hug
utanríkisráðherra í Evrópumálum,
en aldrei hefði manni dottið í hug að
ráðherra legðist svo lágt að kalla á
ERLENDAN RÁÐHERRA mál-
flutningi sínum til hjálpar.
Meira: zumann.blog.is/blog/zumann/
Einar K. Guðfinnsson | 13. október
Rýtingsstunga
Segja má að koss Al-
freðs Þorsteinssonar á
tárvota hvarma
Björns Inga Hrafns-
sonar og sem þjóðin
varð vitni að í sjón-
varpinu – hafi verið
innsigli hins nýja meirihluta í
Reykjavík. Þetta var viðeigandi. Al-
freð er sjálfur guðfaðirinn (skrifað
hér með litlum staf) og slæmir kossi
á sitt pólitíska sköpunarverk.
Upphafið markar svo framhaldið.
Það var ofið svikum af hálfu Björns
Inga Hrafnssonar og snúið utan um
hagsmuni en ekki hugmyndir, né
málefni. Það hefur komið vel í ljós
undanfarna daga og er nú alveg
óumdeilt.
Björn Ingi Hrafnsson lýsir svo
eftirfarandi yfir á vakningafundi
Framsóknarflokksins í Reykjavík í
gær: „Mér hefur fundist á undan-
förnum árum og kannski ein-
hverjum fleirum að oftar hefði mátt
standa í lappirnar í erfiðum málum
og segja hingað og ekki lengra.“
Þess ber að geta að þessum orð-
um var fagnað með lófataki í hópi
trúnaðarmanna Björns Inga í
Reykjavík í gær.
Hverjum eru nú þessi skeyti ætl-
uð? Það er augljóst. Halldór Ás-
grímsson fyrrverandi forsætisráð-
herra verður fyrir þessum örvum
Björns Inga Hrafnssonar fyrrum
aðstoðarmanns síns. Það var Hall-
dór Ásgrímsson sem stofnaði til
hins farsæla stjórnarsamstarfs við
Sjálfstæðisflokkinn. Síðustu árin
hans í stjórnmálum var hann for-
sætisráðherra. Björn Ingi Hrafns-
son er að segja núna að allt hafi
þetta verið of dýru verði keypt.
Forsætisráðherrastóllinn þá vænt-
anlega líka. Engum manni öðrum
geta því verið ætluð þessi eitruðu
skot.
Svona er ekki sagt í hita leiksins,
heldur meðvitað. Það er verið að
kynda undir tiltekinni skoðun.
Þetta er líka drengilega mælt af
hinum gamla aðstoðarmanni eða
hitt þó heldur. Úti í Kaupmanna-
höfn situr Halldór Ásgrímsson á
friðarstóli og er ekki gerandi í
stjórnmálum dagsins í dag. Nú má
hann sæta þessum lymskulegu
árásum frá Birni Inga Hrafnssyni; í
atburðarás þar sem Halldór er víðs-
fjarri.
Hvað gengur honum eiginlega til,
meintum framtíðarforingjanum í
Framsókn? Hvers vegna þarf hann
að vega svona úr launsátri sínu í
garð síns gamla læriföður? […]
Staða Björns Inga Hrafnssonar
sem aðstoðarmanns formanns
Framsóknarflokksins, lyfti honum í
upphafi til þeirra metorða sem hann
nýtur svo sæll og glaður í dag. Nú
launar kálfurinn ofeldið.
Meira: ekg.blog.is/
BLOG.IS
Rauði krossinn auglýsir eftir sjálfboðaliðum í heim-
sókna þjónustu.
Markmið verkefnisins er að rjúfa einsemd og félagslega
einangrun fólks. Boðið er upp á hefðbundnar heimsóknir
inn á einkaheimili en einnig heimsóknir á stofnanir.
Sjálfboðaliðar þurfa að hafa áhuga á mannlegum sam-
skiptum og skuldbinda sig til að heimsækja gestgjafa
sinn reglulega í samræmi við samkomulag þeirra á milli.
Nánari upplýsingar í síma 570 4000
og á raudikrossinn.is
er styrktaraðili átaksins
ÞESSIR kátu krakkar voru fyrir skömmu léttklæddir
að leika sér í einu verkanna eftir hann Ásmund Sveins-
son og nýttu sér það, að öðru hverju gefst stund á milli
stríða. Þegar lægðirnar ganga austur og norður af
landinu birtir upp hér syðra eitt augnablik eða þar til
næsta lægð kemur. Tíðin hefur verið ákaflega stirð og
votviðrasöm að undanförnu og ekki er að sjá, að neitt
lát verði á því.
Morgunblaðið/Golli
Prílað á styttu