Morgunblaðið - 14.10.2007, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 55
í dag frá kl. 14 - 15
Ásakór 13 -15 - Kópavogi
Komdu og skoðaðu!
Löggiltur fasteignasali á staðnum
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
Náttúruperlur í næsta nágrenni
Frábært skipulag, allt sér
Vandaðar innréttingar
Fjölskylduvænn staður
Glæsilegt útsýni
Um er að ræða 3-5 herbergja íbúðir frá 103-160 fm.
Stæði í bílageymslu með flestum íbúðum. Afhending nóv-des 2007.
FÖSTUDAGINN 5. október
skrifar Helgi Hafsteinn Helgason
yfirlætislega grein í Morg-
unblaðið, þar sem hann fjallar um
störf hjúkrunarfræðinga á hroka-
fullan hátt. Yfirleitt svarar maður
ekki svona skrifum en þar sem
innihald skrifa Helga Hafsteins er
þess eðlis, þá er ekki annað hægt
en að skrifa nokkur orð um
„meintan skort á hjúkrunarfræð-
ingum“ og breytingu á störfum
hjúkrunarfræðinga.
Í raun þarf ekki að eyða mörg-
um orðum í þennan „meinta“
skort á hjúkrunarfræðingum eins
og Helgi Hafsteinn orðar það. All-
ir raunveruleikatengdir ein-
staklingar sem koma að heilbrigð-
iskerfinu hér á landi vita um
raunverulegan skort á hjúkr-
unarfræðingum. Þetta styðja
rannsóknir og opinberar skýrslur.
Vitneskjan um skort á hjúkr-
unarfræðingum er ekki bundin við
heilbrigðisstarfsmenn, því stjórn-
málamenn hafa margsinnis tjáð
sig um skort á heilbrigðisstarfs-
fólki og meira að segja gripið til
aðgerða í því samhengi.
Nóg um það, Helgi Hafsteinn
fjallar um starfssvið hjúkr-
unarfræðinga og hvernig það hef-
ur breyst undanfarna áratugi fyrir
tilstuðlan „forsvarsmanna hjúkr-
unarfræðinga“. Jafnframt nefnir
hann að „hinn venjulegi hjúkr-
unarfræðingur“ vilji bara vinna
vinnu sína!
Ekki átta ég mig alveg á því
hvað Helgi Hafsteinn er að fara í
þessu samhengi né heldur hvar
hann fær upplýsingar um „hinn
venjulega hjúkrunarfræðing“. Lík-
legast er Helgi Hafsteinn þó að
vísa til þess þegar hjúkrunarkonur
voru undirsettar læknum sem allt
gátu og vissu.
Vissulega hefur starfsvið hjúkr-
unarfræðinga breyst, annað væri
óeðlilegt. Heilbrigðisþjónustan á
að breytast í takt við þarfir og
kröfur samfélagsins. Með aukinni
tæki og þekkingu breytast hlutir,
það á við um allar lifandi og sjálf-
stæðar fræðigreinar.
Að leggjast inn á sjúkrahús get-
ur verið flókið ferli. Huga þarf að
mörgum þáttum þegar veikindi
eru annarsvegar og oft þarf að
sitja fyrir aftan tölvu í því sam-
hengi, til þess eins að sjúkrahús-
innlögnin og allt sem henni tengist
(fyrir og eftir) gangi hreinlega
upp. Það að fylgja eftir sjúkling-
um, t.d. með fræðslu og að und-
irbúa útskrift heim, er líka hjúkr-
un. Eða er skilgreining á hjúkrun
kannski þröngur afmarkaður þátt-
ur sem á sér bara stað við rúm
sjúklingsins í huga Helga Haf-
steins?
Að tengja skort á hjúkr-
unarfræðingum því að þeir „eyði
dýrmætum tíma í skriffinnsku“
ber merki fáfræði og hroka. Hvað
varðar skráningu hjúkrunar, þá
hefur Landlæknisembættið sett
fram tilmæli um lágmarksskrán-
ingu vistunarupplýsinga sem
hjúkrunarfræðingum ber að
fylgja. Þarna inn í spilar öryggi og
velferð sjúklinga stórt hlutverk,
sem og að geta boðið upp á bestu
mögulegu heilbrigðisþjónustu sem
völ er á. Skráning hjúkrunar er
langt frá því að vera ótengd sjúk-
lingaþjónustunni. Með vandaðri
skráningu hjúkrunar verður m.a.
til þekking sem kemur notendum
heilbrigðisþjónustunnar beint og
óbeint til góða. Allar lifandi fræði-
greinar vinna markvisst að því að
búa til þekkingu og er „af því
bara“ þekking eitthvað sem flestir
vilja ekki sjá. Stundar Helgi Haf-
steinn Helgason kannski „af því
bara“ lækningar?
Já, það vantar hjúkrunarfræðinga
Þorsteinn Jónsson svarar grein
Helga Hafsteins Helgasonar » Að tengja skort áhjúkrunarfræð-
ingum því að þeir „eyði
dýrmætum tíma í skrif-
finnsku“ ber merki fá-
fræði og hroka.
Þorsteinn Jónsson
Höfundur er hjúkrunarfræðingur.
mbl.is
smáauglýsingar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni