Morgunblaðið - 14.10.2007, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 51
Draumahús ehf., sími: 530-1800 - Hjalti Pálmason hdl. og Sigurður J. Sigurðsson löggiltir fasteignasalar
29.900.000
Björt 91,5 fm 4 herb. íbúð á 3. hæð í góðu húsi
ásamt 2 geymslum samtals 7,5 fm. Öll helsta
þjónusta í göngufæri. Árdís tekur á móti gestum.
Dunhagi 17 - 107
Opið hús milli kl. 15 og 16
66.900.000
Glæsilegt 195,7 fm. 7 herb. parhús ásamt ósamþ. rými,
samt. um 225,7 fm. Fallegur garður m/suður sólpalli.
Sölumaður Draumahúsa tekur á móti gestum.
Grófarsmári 14 - 201 Kóp
Opið hús milli kl. 15 og 16
66.900.000
Glæsilegt 5 herb. parh. 2h. 207,5 fm á frábærum
stað í Lindahverfi með innb. bílskúr, stórri ver-
önd og heitum potti. Verðlaunagata.
Ólafur og Drífa taka á móti gestum.
Fjallalind 21 - 201
Opið hús milli kl. 15 og 16
41.800.000
Fallegt 5 herb 214,9 fm. endaraðhús á þremur
pöllum þ.a. 20 fm. innbyggður bílskúr við
Staðarbakka. BÓKIÐ SKOÐUN S. 530 1800/1808
Staðarbakki - 109 Rvk
74.900.000
Stórglæsilegt 6 herb. parhús 252,5 fm með frábæru
útsýni, mjög vönduðum gólfefnum og innréttingum.
Verðlaunateikning.
Guðmundur tekur á móti gestum.
Goðasalir 6 - 201 Kóp
Opið hús milli kl. 15 og 16
18.900.000
66,8 fm. 2ja herbergja íbúð á jarðhæð, kjallara, á mjög góðum stað í Vestur-
bænum. Svalir í suður og leiksvæði sunnan við húsið.
Guðrún tekur á móti gestum.
Keilugrandi 4 - 107 Rvk
Opið hús milli kl. 16 og 18
ATVINNUHÚSNÆÐI
ÓSKAST
Ég óska eftir ýmiskonar atvinnuhúsnæði á skrá
í mismunandi stærðum.
Ég er í sambandi við hugsanlega kaupendur,
sumir leita eftir húsnæði í langtíma leigu.
Vinsamlegast hafið samband við
Halldór Svavarsson í síma 897 3196.
Halldór Svavarsson
RE/MAX Stjarnan
S.897 3196
halldorsvavars@remax.is
Allar RE/MAX fasteignasölur eru sjálfstætt reknar og í einkaeign
RE/MAX Stjarnan • Bæjarhraun 6 • 220 Hafnarfjörður • Sími 517 3629
Opið hús sunnudaginn 14 okt. kl. 16-17
LANGAMÝRI 28 – GARÐABÆ
Mjög snyrtileg og góð, 86,8 fm íbúð og 23,4 fm bílskúr í litlu fjölbýli,
á frábærum stað í Mýrunum í Garðabæ. Sérinngangur af svölum.
Íbúðin er á tveim hæðum þar sem búið er að innrétta þakrýmið á
mjög smekklegan hátt og nýtist það sem setustofa og svefnherbergi,
rýmið er ekki inn í fermetratölu eignar og er það ca 25 fm.
Verð 32,8 millj.
Sölumaður Sigurður, s. 898 3708.
Fyrir rúmum 24 ár-
um var lítil, yndisleg
dóttir mín borin til
skírnar í þjóðkirkjunni.
Kirkjan tók þetta litla
óskrifaða blað að sér,
með tilboði um að hún
gæti alltaf leitað þang-
að. Í uppvextinum sótti
hún það sem í boði var
hjá kirkjunni og 14 ára
staðfesti hún skírnina
með fermingunni. Fjöl-
skyldan fagnaði og allir
óskuðu þess að hennar
biði björt og gæfurík
framtíð. Þá þegar var
hins vegar komið í ljós
að þetta fallega og sak-
lausa barn var mis-
þroska og með athygl-
isbrest. Áður en varði
var hún komin inn á
vafasama braut vímu-
efna og vandamála sem
því fylgja.
Nú hefur þessi dóttir
mín verið í mikilli fíkni-
efnaneyslu í 10 ár og
eins og þeir einir vita sem til þekkja
þá hefur þetta ástand bitnað á henn-
ar nánasta umhverfi og skilið eftir sig
sorg, vanmátt og hjálparleysi okkar
sem að henni stöndum. Við höfum
reynt allt. Líka það að loka heimilum
okkar og vísa henni á gráa götuna.
Það er óendanlega sárt. Sorgin er
endalaus og óskaplega slítandi.
Stúlkan okkar hefur verið í með-
ferðum á flestum stofnunum lands-
ins, en fallið trekk í
trekk og flokkast nú
með þeim sem lítið sem
ekkert er hægt að gera
fyrir. Það er búið að
loka á hana öllum dyr-
um, en ég vil nota tæki-
færið og þakka þeim
sem hafa aðstoðað og
hjálpað dóttur minni og
okkur hinum í gegnum
árin. Það hefur fleytt
okkur milli ára.
Flestar þær með-
ferðir sem stúlkan mín
hefur sótt eiga það sam-
merkt að þar er leitað í
trúna. AA-kerfið bygg-
ist mikið upp á því og
12 spora kerfið einnig.
En þetta eru stutt ferli
og einstaklingar sem
komnir eru út úr „kerf-
inu“ eru ekki velkomn-
ir, aftur og aftur. Þeir
eiga einfaldlega hvergi
heima og eru hluti af
hinum heimilislausu
þessa lands sem enginn
virðist vilja hafa í
næsta nágrenni við sig. Sálarlíf dótt-
ur minnar og þessa fólks er í molum.
Sjálf er hún búin að missa öll tengsl
við raunverulega vini og brjóta allar
brýr að baki sér. Öll hennar áhuga-
mál, allt hennar líf er horfið inn í
heim vímunnar og götunnar. Hún á
að heita fullorðinn einstaklingur og
sjálfráða.
Ég veit ekki hvernig er hægt að
hjálpa henni, en það er alveg ljóst að
það sem hún nauðsynlega þarf er
öruggt skjól, föst regla, aðhald og
hlýja. Heimili til langframa. Getur
kirkjan, sem tók við henni ungri og
saklausri, veitt henni þetta? Eða er
stúlkan mín ein af óhreinu börn-
unum, svörtu sauðunum sem „hinar“
stofnanirnar eiga bara að sjá um?
Hún er nú samt barn Guðs, alveg
eins og önnur, og þarfnast þess alveg
óskaplega að einhver hafi færni og
tækifæri til að veita henni skjól.
Kannski getur hún lært upp á nýtt að
þykja vænt um sjálfa sig og aðra?
Kannski getur hún fundið jákvæða
sjálfsmynd og horfið úr heimi vímu-
nnar, ef til er nógu varanlegt skjól
sem vill og hefur úthald í baráttunni
við ofurafl vímunnar.
Vímuvarnastefna þjóðkirkjunnar
er langt og mikið plagg. Fullt af fögr-
um fyrirheitum, en hvað er vímu-
varnapresturinn að gera? Ég hef
ítrekað og án árangurs reynt að
hringja í síma hans sem skráður er í
Grensáskirkju. Loks fékk ég þau
svör að hann væri ekki þar, heldur
tengdur Kópavogskirkju. Að endingu
náði ég í hann og fékk þá þær upplýs-
ingar að kirkjan gætið því miður lítið
gert fyrir dóttur mína, þótt hann
sjálfur vildi gjarnan liðsinna okkur.
Mikið vildi ég óska að þjóðkirkjan
notaði eitthvað af fjármunum sínum
til að opna heimili fyrir fólk eins og
dóttur mína. Heimili, sem ég og öll
hin sem eigum „vonlausa“ fíkla gæt-
um treyst á. Þar sem starfaði vandað
fólk á ábyrgð þjóðkirkjunnar. Eru
prestar og djáknar ekki tilbúnir til
kærleiksþjónustu og sálgæslu? Er
einhver von fyrir mig að leita á náðir
þjóðkirkjunnar, eða bendir hún bara
á aðra?
Hvað megnar
þú þjóðkirkja?
Guðný Arndal biður kirkjuna
um hjálp til handa dóttur sinni
sem hefur verið í mikilli fíkni-
efnaneyslu í 10 ár
Guðný Arndal
Höfundur er móðir
eiturlyfjaneytanda.
» Getur þjóð-kirkjan
hjálpað okkur
og opnað lang-
tímaheimili
fyrir fíkla sem
hvergi eiga
heima í
„kerfinu“?