Morgunblaðið - 14.10.2007, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ferðalög
L
angt í burtu, óraveg frá
Íslandi, er stórt land
þar sem fólkið borðar
með prjónum, les og
skrifar framandi tákn
og býr við ævafornan menningararf.
Miklar þjóðfélagsbreytingar ein-
kenndu síðustu öld og nú er síður en
svo lognmolla í þessu fjölmennasta
ríki heims. Alþýðulýðveldið Kína er í
mikilli uppbyggingu, útrás, líkt og ís-
lensku fyrirtækin sem nú reyna að
festa sér sess þar í landi. Íslendingar
hafa ekki farið varhluta af opnun
kínversks viðskiptalífs og samfélags.
Mikil umfjöllun hefur verið um sam-
skipti Íslands og Kína, mest um
heimsókn forseta Íslands og starf-
semi íslenskra athafnamanna og fyr-
irtækja. Menningartengsl eru þó
ekki síður mikilvægur þáttur í slíku
samstarfi.
Hamrahlíðarkórinn, undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur, hélt um
miðjan september til Kína sem boð-
berar íslenskra menningarstrauma,
nánar tiltekið íslenskrar kór-
tónlistar. Ferð þessi var farin á veg-
um sendiráðs Íslands í Kína og er
kórinn stærsti hópur Íslendinga sem
þangað hefur komið í opinberum er-
indagjörðum.
Hamrahlíðarkórinn skipa sextíu
ungmenni á aldrinum 17-25 ára sem
fóru ásamt stjórnanda og tveimur
fararstjórum, þeim Jóhanni Ingólfs-
syni og Kent Lárusi Björnssyni, í
tveggja vikna tónleikaferð til fjög-
urra kínverskra borga. Ferðin hófst
í höfuðborginni Peking, þaðan lá
leiðin til Xianyang, þá til Wuhan og
lokaáfangastaðurinn var Qingdao.
Heimsóknirnar byggðust hver á
mismunandi tengingum við borg-
irnar. Tengiliður kórsins í Peking
var Daxing nr. 1-framhaldsskólinn,
en nafnið er til komið vegna þess að
hann er elsti skólinn á sínu stigi í
Daxing-hverfinu í Peking. Nöfn
borganna Xianyang og Qingdao
hljóma ef til kunnuglega, en Geysir
Green Energy og Enex hafa unnið
að jarðvarmaverkefnum í samstarfi
við borgaryfirvöld í Xianyang, og
ýmis íslensk fyrirtæki hafa nú hafið
starfsemi í hafnarborginni Qingdao.
Þá komst vinabær Kópavogs, Wuh-
an, einnig á síður dagblaðanna nú í
október í tengslum við kínverska
menningarviku.
Frá hráum eggjum til KFC
Óhætt er að segja að móttökurnar
sem kórinn fékk hafi einkennst af
mikilli gestrisni allt frá fyrsta degi.
Þar sem enginn ferðalanganna hafði
áður stigið fæti á kínverska grund
kom auðvitað margt forvitnilega fyr-
ir sjónir, ekki síst þar sem fyrstu
þrjár næturnar var gist á heimilum.
Hver og einn kórfélagi fékk gistingu
hjá fjölskyldum nemenda Daxing-
framhaldsskólans, sópranar og altar
hjá stelpum, tenórar og bassar hjá
strákum. Mikil spenna ríkti í hópn-
um fyrir heimagistingunni, en þegar
við vorum sótt fyrsta kvöldið var al-
veg ljóst að eftirvænting gestgjaf-
anna var ekki minni.
Daginn eftir var lítið annað rætt
en það sem komið hafði fyrir sjónir á
kínversku heimilunum. Morgunmat-
urinn var vafalítið eitt vinsælasta
umræðuefnið, enda ýmislegt á boð-
stólum sem fæstum Íslendingum
myndi detta í hug að láta sér til
munns, allra síst svo snemma dags.
Má þar nefna allt frá hráum eggjum
til kjúklingaborgara frá Kentucky
Fried. Einni brá heldur betur í brún
þegar henni var boðið upp á „mon-
key sandwich“. Best að brosa á móti,
kinka kolli. Augnabliki seinna kom
leiðrétting, nei, þetta var „donkey
sandwich“. Líklega best að brosa að-
eins meira.
Þessar gestrisnu fjölskyldur opn-
uðu heimili sín með bros á vör og vin-
gjarnlegu handapati, en tungumála-
kunnátta flestra var af skornum
skammti. Leikræn tjáning til að
komast í sturtu var hluti af upplif-
uninni, og að dvölinni lokinni vorum
við leyst út með gjöfum. Gjafir þess-
ar voru mismargar og misáberandi,
miserfiðar að bera, en mest fór þó
líklega fyrir ólympíulukkudýrinu
Beibei og tveggja metra tréblæ-
vængjunum.
Heimagistingin var okkur ómet-
anleg lífsreynsla, enda standa slík
tækifæri ekki til boða á hverjum
degi. Heimsókn okkar hefur vísast
þótt góð saga, því nokkur skyld-
menni litu inn til að skoða gripina.
Þá mun kveðjustundin ekki gleym-
ast í bráð, flestar stelpurnar grétu
og sumar fjölskyldur stóðu með
kökk í hálsinum. „Þú ert systirin
sem ég átti aldrei,“ sagði ein við hina
íslensku „systur sína“, áður en kór-
inn kvaddi Daxing nr. 1-framhalds-
skólann og hélt áfram för sinni.
Mjög fín málmaskja
Þegar dvölinni í Peking lauk tók
við allt annað andrúmsloft og nýtt
hlutverk, Hamrahlíðarkórinn var
sendiboði Íslands í Xianyang. Xia-
nyang er smáborg á kínverskan
mælikvarða, þar býr aðeins ein millj-
ón manna. Ef til vill á smæðin þátt í
því að okkur kórfélögum leið á
stundum eins og við værum þjóð-
höfðingjar, slíkar voru móttökurnar.
Í Xianyang urðum við einnig hvað
mest vör við þá miklu stéttaskipt-
ingu sem ríkir í Kína.
Sjálfstæðum Íslendingum kom
viðhorf margra Kínverja til ýmissa
mikilmenna spánskt fyrir sjónir.
Heimsókn okkar í fjöltækniskólann í
Xianyang var gott dæmi. Kona
nokkur lóðsaði kórinn um skóla-
svæðið og stoppaði hjá uppstækk-
aðri mynd af fyrrverandi leiðtoga
Kommúnistaflokksins, Deng Xia-
oping, og ungum manni, fyrrverandi
nemanda skólans, með litla málm-
öskju í höndunum. Deng Xiaoping
hafði heimsótt vinnustað unga
mannsins, séð málmöskjuna og sagt:
„Þetta er mjög fín málmaskja.“
Þessi nemandi og þetta atvik væri
skólanum til mikils sóma og því væri
myndin höfð hér til sýnis.
Fyrsta daginn hélt aðstoðarborg-
arstjórinn kórnum móttöku með
Á múrnum Þrátt fyrir lítinn tíma var ótrúleg upplifun að ganga á Kínamúrnum. Nína, Marteinn, Magnús, Hákon og Hildur brostu breitt.
Ljósmyndir/Þorleifur Örn Gunnarsson
Heræfing? Nemendur Daxing skólans eiga ekki í neinum vandræðum með
að raða sér upp fyrir daglega morgunleikfimi sína. Mikil áhersla er lögð á
heilsurækt í Kína og á leikvöllum eru oft æfingatæki í staðinn fyrir rólur
og rennibrautir.
Heimsókn okkar hefur vís-
ast þótt góð saga, því
nokkur skyldmenni litu inn
til að skoða gripina.
Framandi matargerð Réttir í tugatali, sumir kunnuglegir, aðrir allt að því ógnvekjandi. Helgi, Halla, Gígja, Halli
og Marteinn áttu hér enn eftir að fá súpuna, sem átti jafnan fátt skylt við súpur á Íslandi.
Ævintýraferð Hamra
Hamrahlíðarkórinn
lagði 18. september í
tveggja vikna söngferð
til Kína. Halldóra Þórs-
dóttir segir frá menn-
ingunni, matnum og
mikilmennunum.
Peking Kínversk ungmenni vita að
pís-merkið myndast afar vel. Ragn-
heiður og Yrsa blanda hér saman
íslenskum og kínverskum menning-
aráhrifum.