Morgunblaðið - 14.10.2007, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 61
HUGVEKJA
A
lexander
Duff var
á leið til
Indlands
með
skipinu „Lady Hol-
land“. Föt hans, verð-
mætar eignir og bóka-
safn hans í átta
hundruð eintökum var
um borð. Þegar skipið
átti eftir örfáar mílur
til Indlands strandaði
það. Farþegar björg-
uðust allir en farang-
urinn hvarf í djúp
hafsins.
Duff stóð á ströndinni og
skyggndist út á hafið með þá veiku
von í brjósti að eitthvað af eigum
hans kynni að reka að landi. Þá
kom fólkið auga á eitthvað, ein-
hvern örlítinn depil, sem flaut á
öldunum. Allir biðu með óþreyju
og fylgdust með er hann færðist
nær. Hvað skyldi þetta vera? Trú-
boðinn óð út í, náði taki á þessum
örsmáa fljótandi hlut, og sneri aft-
ur til lands. Hvað var nú þetta?
Ekki var um að villast. Þetta var
Biblían hans. Af öllum bókum hans
og eigum bjargaðist aðeins þessi
eina bók. Alexander Duff end-
urheimti Biblíuna sína og tók hana
sem tákn frá Guði, tók hana sem
sönnun þess að hún væri hið eina
af öllum eigum hans sem hefði
raunverulegt gildi.
Í þessari fullvissu hóf hann ævi-
starf sitt sem trúboði í Indlandi.
Næsta dag byrjaði hann með því
að lesa úr Biblíunni með fyrsta
námsflokk sinn, fimm drengi sem
söfnuðust saman undir tré. Viku
seinna voru áheyrendur orðnir
þrjú hundruð. Nokkrum árum síð-
ar stóð stórt og fallegt tré á þess-
um stað. Og eitt þúsund fylgj-
endur fagnaðarerindisins hófu upp
raddir sínar í söng og bæn til Jesú
Krists.
Frásögn þessa má lesa í blaðinu
„Afturelding“ frá 1948. Hún er
þýdd úr „The Sunday School
Digest“.
En hver var hann þessi mikli
trúboði? Í alfræðiritinu Britannicu
má lesa, að hann hafi verið skoskur
trúboði á Indlandi sem stofnaði
þar skóla til að kynna evrópska
menningu og bókmenntir meðal
landsmanna. Hann fæddist 26.
apríl 1806 í Moulin Perthshire í
Skotlandi, nam við St. Andrews-
háskólann og varð fyrir miklum
áhrifum frá Thomas Chalmer og
hlaut vígslu árið 1829. Sama ár
sendu aðalstöðvar erlenda trú-
boðsfélagsins hann til Indlands.
Var hann fyrsti kristniboði þeirra
þar í landi.
Á leiðinni varð hann tvisvar
sinnum skipreika og missti allar
eigur sínar. Þar sem hann finnur
Biblíuna sína á reki hefst hinn
merkilegi ferill hans sem kristni-
boði á Indlandi. Til Kalkútta
komst hann loks árið 1830. Fram
að því höfðu kristniboðar á Ind-
landi aðeins getað unnið meðal
lægri stétta og utangarðsfólks.
Þeir komust ekki í snertingu við
trú hindúa eða múslima. Stétta-
skipting er mjög sterk í Indlandi
og fólk af lægri stéttum á sér varla
viðreisnar von þrátt fyrir góða
menntun og hæfileika. Duff stefndi
því að trúboði á menningarlegum
nótum. Hann opnaði fyrst skóla þar
sem Biblían gegndi aðalhlutverki.
Smám saman þróaðist hann upp til
háskólastigs og var samþykktur
sem slíkur 1835.
Duff tók þátt í að stofna dagblað
í Kalkútta og var ritstjóri þess í
nokkur ár. Allt fram til 1863 vann
hann kappsamlega að trúboði og
menningu meðal Indverja í Kal-
kútta. En þá varð hann að fara
heim alfarinn heilsunnar vegna.
Hann vann áfram til dauðadags að
eflingu kristniboðs um allan heim
við háskólann í Edinborg sem hann
arfleiddi að öllum eigum sínum.
Skyldu þær renna til stofnunar
sjóðs til styrktar erlendu trúboði.
Alexander Duff lést 12. febrúar
1878. Hann var talinn frægasti
kristniboði í Indlandi á 19. öld.
Ekki verður hjá því komist að
hugsa til mannvinarins mikla, Móð-
ur Teresu, sem setti svip sinn á
hjálp við nauðstadda einmitt í Kal-
kútta á 20. öld. Fátækt og mannleg
neyð er yfirþyrmandi í Indlandi,
þessu milljónalandi.
Þá er ekki úr vegi að nefna nafn
Liz Nunn. Í bók sem nefnist „Líf
Jesú fram til ársins 2000“ má lesa,
að eftir að hafa unnið með ungu
fólki í Bretlandi fór hún til Ind-
lands og mætti þar í borgunum
þúsundum heimilislausra barna
sem nutu engrar menntunar. Þau
áttu ekki annarra úrkosta völ sem
fullorðin en betla eða vera úti-
gangsfólk. Hún stofnaði þar vina-
félag „Lótusbarna“. Eins og Lót-
usjurtin á rætur sínar í leðju
árbakkanna, þannig eiga börnin
rætur sínar og aðsetur í sóðalegum
strætum borganna. Liz trúir því að
börnin geti þroskast og borið góðan
ávöxt, verði þeim hjálpað til þess.
Það myndi veita þeim von og vöxt.
Í sambandi við barnahjálp í Ind-
landi er vert að minnast Íslend-
ingsins Þóru Einarsdóttur sem var
óþreytandi í að veita hjálp á þeim
vettvangi á seinni hluta síðustu ald-
ar, og sparaði hvorki krafta né fjár-
muni til þess.
Hjálparstarf íslensku þjóðkirkj-
unnar rekur í dag starf meðal
skólabarna í Indlandi og stuðlar að
því að leysa úr ánauð ung börn sem
foreldrar neyðast til vegna fátækt-
ar að selja til þrælkunar.
Kærleiksverkin við náungann
eiga enn rætur sínar í Biblíunni,
orði Guðs sem boðar fagnaðar-
erindi til allra manna um víða ver-
öld.
Sjórekna
Biblían
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Það er margt áhugavert að finna á vef ellimála-
nefndar þjóðkirkjunnar, www.gamlinoi.is, og
m.a. eftirfarandi frásögn. Sigurður Ægisson
birtir hana sem pistil dagsins í tilefni þess að
Íslendingar munu eignast nýja biblíuþýðingu
næstkomandi föstudag, 19. október.
Skipalón Sóleyjarrimi
Glæsilegar
fullbúnar íbúðir
Hafnarfjörður, Hvaleyrarholt
Skipalón 16-26, 2ja til 4ra herbergja. Fyrir 50 ára og eldri.
Skipalón 25-27, 3ja, 4ra og 5 herbergja í almennri sölu.
Reykjavík, Grafarvogur
Sóleyjarrimi 19-21, 3ja og 4ra herbergja. Fyrir 50 ára og eldri.
Sóleyjarrimi 23, 4ra herbergja íbúðir í almennri sölu.
www.motas.is
Sími 533 4040 | www.kjoreign.isSími 565 5522 | www.fasteignastofan.is
Allar nánari upplýsingar um
eignirnar á www.motas.is
> Traustur byggingaraðili
> Yfir 20 ára reynsla
> Gerðu samanburð
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
O
T
39
32
5
09
/0
7
Mótás, Stangarhyl 5, sími 567 0765
Vorum að fá í einkasölu mjög fallegt einbýlishús á tveimur hæðum í Laugarásnum. Arkitekt er
Gunnar Hansson. Húsið stendur á 840 fm lóð til suðurs. Húsið er mjög vel skipulagt en
það skiptist m.a. í stóra stofu með mikilli lofthæð, borðstofu, sjónvarpshol, tvö baðherbergi,
snyrtingu og 4-5 herbergi. Arinn í stofu. Nánari upplýsingar veitir Magnea Sverrisdóttir
fasteignasali í síma 861 8511.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Laugarásvegur – eftirsótt staðsetning