Morgunblaðið - 14.10.2007, Blaðsíða 74
Þegar maður
sturtar niður í Ástralíu
þá snýst vatnið í öfuga
átt … 81
»
reykjavíkreykjavík
„NEI, við
steingleymdum
því allir. Við
uppgötvuðum
bara allt í einu að við værum orðnir
tíu ára,“ segir Andreoni þegar hann
er spurður hvort meðlimir !!! hafi
haldið upp á tíu ára afmæli sveit-
arinnar fyrr á þessu ári. „En okkur
finnst hins vegar ótrúlegt að það sé
svona langt síðan við byrjuðum að
spila saman. Okkur finnst þetta
ekki vera svona langur tími.“
Eins og gefur að skilja hefur
nafn !!! vakið mikla athygli, enda
eitt af sérstakari nöfnunum í
tónlistarbransanum. Aðspurður
segir Andreoni að nafnið sé tekið úr
gamanmyndinni The Gods Must Be
Crazy frá árinu 1980. „Í myndinni
má sjá frumbyggja sem gera mjög
sérstök hljóð með munninum og
þessi hljóð voru einfaldlega textuð
„!!!“. Okkur fannst þetta sniðugt
nafn á sveitina,“ segir hann og bæt-
ir við að vissulega geti verið erfitt
að vera í hljómsveit með þessu
nafni. „Því fylgja vissulega
ákveðnar neikvæðar hliðar. En við
erum orðnir nokkuð vanir nafninu
eftir öll þessi ár.“
Að sögn Andreoni er erfitt að
skilgreina tónlist !!!, enda sé hún
blanda af hinum ýmsu stefnum.
„En þegar ég er með fjölskyldu
minni og vinum segi ég bara að við
gerum danstónlist. Það var það sem
okkur langaði að gera í upphafi.“
Þannig að þið leggið áherslu á að
fólk dansi við tónlistina ykkar?
„Já, en fólk dansar við allskonar
tónlist, bæði rokk, afríska tónlist,
popp, R&B og fleira. En við köllum
þetta danstónlist, enda leggjum við
áherslu á það þegar við semjum
tónlistina að hún sé líkleg til þess
að fá fólk til þess að hreyfa sig.“
!!! er oft nefnd í sömu andrá og
Íslandsvinirnir í The Rapture, enda
tónlist sveitanna að mörgu leyti
keimlík. „Þeir gera líka tónlist sem
miðar að því að fá fólk til þess að
hreyfa sig. Auk þess voru þeir að
hefja störf í Kaliforníu um svipað
leyti og við vorum að byrja,“ segir
Andreoni, og viðurkennir að hann
sé mikill aðdáandi sveitarinnar.
Mikill fjöldi
Á síðasta ári hitaði !!! upp fyrir
Red Hot Chili Peppers á tónleika-
ferð sveitarinnar um Bretland og
segir Andreoni að tónleikarnir hafi
breytt ferli !!! til hins betra.
„Við höfðum verið með tónleika í
Los Angeles sex mánuðum áður.
Gítarleikari þeirra, John Frusci-
ante, var á meðal áhorfenda og
hann kom og spjallaði við okkur eft-
ir tónleika og keypti af okkur
geisladiska. Tveimur vikum síðar
hafði hann samband við okkur og
bað okkur að spila með þeim í Bret-
landi,“ segir hann.
„Okkur langaði mikið til að sjá
hvernig okkur gengi að spila fyrir
framan svo gríðarlegan fjölda
áhorfenda sem ekki þekkti tónlist-
ina okkar. Red Hot Chili Peppers
er náttúrlega ein stærsta hljómsveit
í heimi og það er mikill heiður að fá
að spila fyrir þá, en um leið mikil
áskorun því það voru auðvitað allir
að bíða eftir þeim. Okkur tókst
samt að ná athygli fólks, og við er-
um mjög ánægðir með það.“
Um var að ræða rúmlega 15 tón-
leika á aðeins þremur vikum og að
sögn Andreoni voru áhorfendur frá
25.000 til 50.000 í hvert skipti. „En
það sem stendur upp úr er að í dag
hittum við oft fólk sem segist hafa
séð okkur hita upp fyrir þá, og það
sem skiptir mestu máli er að þótt
flestir segist ekkert hafa þekkt okk-
ur áður en þeir hafi samt sem áður
orðið mjög hrifnir af tónlistinni.“
Í heitan hver
Undanfarna mánuði hefur !!! ver-
ið á tónleikaferðalagi um heiminn
til að fylgja eftir Myth Takes, og
hafa þeir félagar farið víða.
„Við höfum farið um nánast allt
norðurhvel jarðar, og til Ástralíu.
Þegar við verðum búnir að spila á
Íslandi höfum við lokið við þann
hluta heimsins, við spiluðum meira
að segja í Moskvu sem er borg sem
mér datt aldrei í hug að ég ætti eft-
ir að koma til – hvað þá spila í. Ís-
land er annar staður sem manni
dettur ekki í hug að maður eigi eft-
ir að koma til,“ segir Andreoni sem
hlakkar sérstaklega mikið til að
koma til Íslands. „Ég ólst nefnilega
upp á níunda áratugnum og hlust-
aði mjög mikið á Sykurmolana, sem
höfðu mikil áhrif á mig og mína
tónlist. Þannig að mig hefur alltaf
langað að koma til Íslands, og
reyndar langar alla í sveitinni mikið
til þess.“
En hverju mega Íslendingar bú-
ast við á tónleikunum á Airwaves?
„Miklu stuði,“ svarar Andreoni.
„Við erum nefnilega ansi heitir
þessa dagana, það er að segja hvað
tónlistina varðar. Þannig að þetta
verða heitir tónleikar,“ segir hann
og hlær.
Andreoni segir að Iceland Air-
waves sé sífellt að verða stærra
nafn í tónlistarbransanum og því sé
það mikið gleðiefni fyrir þá félaga
að spila á hátíðinni, enda hafi það
staðið til í langan tíma. Þá finnst
honum dagskráin í ár sérstaklega
glæsileg.
„Ég hef til dæmis ekki séð
Grizzly Bear, vonandi næ ég að sjá
þá. En svo fáum við einn frídag sem
er frábært, mig langar nefnilega að
fara og baða mig í heitum hver.“
HLJÓMSVEITIN MEÐ
SKRÝTNA NAFNIÐ
BANDARÍSKA HLJÓMSVEITIN !!!, SEM Í DAGLEGU TALI ER NEFND
CHK CHK CHK, KEMUR FRAM Á ICELAND AIRWAVES Á LAUGARDAG-
INN KEMUR. FYRR Á ÞESSU ÁRI SENDI SVEITIN FRÁ SÉR PLÖTUNA
MYTH TAKES SEM AF MÖRGUM ER TALIN EIN ATHYGLISVERÐASTA
PLATA ÁRSINS. JÓHANN BJARNI KOLBEINSSON SPJALLAÐI VIÐ
MARIO ANDREONI, GÍTARLEIKARA SVEITARINNAR.
!!! spilar á NASA laugardags-
kvöldið 20. október.
www.chkchkchk.net
www.myspace.com/chkchkchk
www.icelandairwaves.com
3
Iceland Airwaves
dagar