Morgunblaðið - 14.10.2007, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Ian Buruma
Þ
að er orðið viðtekið í röð-
um tiltekinna gáfu-
manna að líta á trúleysi
sem merki um æðri
menntun, þróaðri sið-
menningu, upplýsingu. Nýlegar
metsölubækur gefa til kynna að það
að vera trúaður sé í raun merki um
að vera aftarlega á merinni, beri því
vitni að menn séu frumstæðir og
fastir í myrkum miðöldum og eigi
eftir að tileinka sér vísindalega skyn-
semi. Okkur er sagt að kenna megi
trú um ofbeldi, kúgun, fátækt og
margt annað illt.
Það er ekki erfitt að finna dæmi til
að styðja slíkar fullyrðingar. En get-
ur trúin einnig verið afl til góðs? Sem
meira er; eru tilfelli þar sem trúin
kemur til bjargar þeim, sem ekki eru
trúaðir?
Munkarnir fá meira að segja
einræðisherrann til að hika
Þar sem ég hef hvorki notið góðs
af né goldið fyrir að tilheyra tiltek-
inni trú kann það að virðast vera
hræsni af mér að verja þá, sem það á
við um. En að fylgjast í sjónvarpi
með búrmískum munkum bjóða ör-
yggissveitum einhverrar mestu kúg-
unarstjórnar heims birginn gerir
erfitt að sjá ekki einhvern kost í
trúnni. Búrmabúar eru ákaflega trú-
uð þjóð og flestir karlmenn gerast
búddamunkar í einhvern tíma. Meira
að segja reginfanturinn á einræðis-
herrastólnum hlýtur að hika áður en
hann ræðst með ofbeldi og morðum á
menn klædda í rauðar og appelsínu-
gular skikkjur eins og hæfir trú
þeirra.
Námsmenn, leikarar og aðrir slóg-
ust brátt í hóp búrmísku munkanna,
ásamt öðrum, sem vildu losna við
herforingjastjórnina. En munkarnir
og nunnurnar tóku fyrsta skrefið:
þau þorðu að mótmæla þegar aðrir
höfðu að mestu gefist upp. Og þau
gerðu það með siðferðislegu valdi
sinnar Búddatrúar.
Þeir, sem eru rómantískir í hugs-
un, kynnu að segja að ólíkt öðrum
trúarbrögðum sé búddismi frekar
heimspeki en trú. Búddismi hefur
hins vegar verið trú í Asíu í margar
aldir og eins og hefur eins og öll önn-
ur trúarbrögð verið notaður til að
réttlæta ofbeldisverk. Í þeim efnum
nægir að líta til Sri Lanka þar sem
Búddismi er tengdur þjóðarbrota-
rembu í hinu hægfara borgarastríði
milli búddískra sinhala og hindúskra
tamíla.
Rétt eins og búddatrúarmenn
hafa hætt lífi sínu til að taka afstöðu
með lýðræði í Búrma hafa kristnir
menn látið að sér kveða í öðrum
löndum. Stjórn Marcosar var dauða-
dæmd um miðjan níunda áratuginn
um leið og katólska kirkjan snerist
gegn henni. Mörg þúsund venjulegir
borgarar fóru gegn skriðdrekunum
þegar Marcos hótaði að mala and-
spyrnu fólksins mélinu smærra, en
nærvera presta og nunna veitti upp-
reisninni siðferðilegan kraft.
Margir pólitískir andófsmenn í
Suður-Kóreu fengu innblástur frá
kristinni trú og það sama má segja
um Kína. Og enginn getur neitað því
að trúarlegt vald Jóhannesar Páls
páfa II. var hvati að uppreisn Pól-
verja gegn einræði kommúnista á ní-
unda áratugnum.
Hinir sanntrúuðu munu án vafa
sjá hönd guðs að verki í þessum at-
burðum. Cory Aquino, helsti and-
stæðingur Ferdinands Marcosar,
hrósaði sér meira að segja af því að
vera með beina línu til drottins. Ég
hlýt hins vegar sem trúleysingi að
umgangast slíkar fullyrðingar af tor-
tryggni. Siðferðislegur styrkur trú-
arinnar þarfnast hins vegar ekki yf-
irskilvitlegra skýringa. Styrkur
hennar er trúin sjálf – trú á siðferði-
lega skipan, sem virðir að vettugi
veraldlega eða jafnvel trúarlega ein-
ræðisherra.
Trúin drifkraftur í andspyrnu
Virkir andspyrnumenn við nasista
í heimsstyrjöldinni síðari voru oft
trúræknir kristnir menn. Sumir
þeirra skutu skjólshúsi yfir gyðinga
– þrátt fyrir eigin fordóma – einfald-
lega vegna þess að þeir töldu það
vera siðferðilega skyldu sína. Trú
þarf heldur ekki að beinast að yf-
irnáttúrulegri veru. Konur og karl-
ar, sem fundu styrk í trú á
kommúnismann, börðust af jafn
miklu harðfylgi gegn nasismanum.
Þrátt fyrir hryllilegt ofbeldi öfga-
manna úr röðum íslamista má ekki
gleyma því að moskan getur einnig
verið löggildur vettvangur and-
spyrnu gegn einræðisríkjum, sem að
mestu eru veraldleg, í Mið-Austur-
löndum í dag. Í heimi pólitískrar
kúgunar og siðferðilegrar spillingar
veita trúarleg gildi kost á annars
konar siðferðisskipan. Þessi kostur
er ekki endilega lýðræðislegri, en
hann getur verið það.
Engu að síður fylgir sú hætta öll-
um kreddum, hvort sem þær eru
trúarlegar eða veraldlegar, að þær
leiði til kúgunar af einhverju tagi.
Uppreisnin gegn yfirráðum Sovét-
manna í Afganistan var undir for-
ustu heilagra stríðsmanna, sem síð-
an knúðu fram sína eigin óstjórn.
Þá getur forusta leiðtoga, sem
byggir vald sitt á þokka, verið vand-
kvæðum bundin, meira að segja þeg-
ar hún tekur á sig mynd hins góða.
Guðsmóðurleg staða Cory Aquino á
Filippseyjum blés mönnum í brjóst
þegar hún var að komast til valda, en
gerði lítið til að treysta í sessi stofn-
anir veraldlegs lýðræðis. Þegar bar-
áttan gegn kommúnisma hafði unn-
ist í Póllandi kom brátt fram
sundrung í Samstöðu milli verald-
legra demókrata og trúaðra félaga,
sem leituðu leiðsagnar hjá kirkjunni.
Kirkjan hefur sérstaklega mikil-
vægu hlutverki að gegna við aðstæð-
ur þar sem frjálslyndir menn, sem
kalla má veraldlega, eru vanmegna,
eins og raunin var þegar nasistar,
kommúnistar eða herforingjastjórn-
ir hafa sölsað undir sig völdin. Hinna
frjálslyndu er helst þörf þegar gera
þarf málamiðlanir, en þeir nýtast
ekki næstum því eins vel þegar þeir
standa andspænis grímulausu of-
beldi. Það er þá sem hugsjónamenn
og hinir sanntrúuðu taka áhættu,
sem flest okkar mundu telja fífl-
dirfsku, knúðir áfram af trú sinni.
Þegar á heildina er litið er ekki gott
að slíkar hetjur stjórni, en það er
gott að hafa hetjurnar til taks þegar
þeirra er þörf.
Uppreisn hinna réttlátu
Reuters
Andóf Munkar sitja á hækjum sér og mótmæla eftir að óeirðalögregla í Rangoon í Búrma hefti för þeirra. Munk-
arnir í Búrma hafa boðið hernum, sem setið hefur óslitið við völd í 45 ár, byrginn.
Í HNOTSKURN
»Karl Barth var einn leiðtogakristilegrar andspyrnu gegn
nasistum og yfirtöku þeirra á
kirkjum mótmælenda. Hann var
neyddur í útlegð og margir trú-
bræður hans gengu nasistum á
hönd.
»Strangtrúaðir talibanar tókuvöldin í Afganistan og bundu
enda á þrotlaus átök, en komu
síðan á ógnarstjórn.
»Munkarnir í Búrma hafa leittandófið þar í landi. Þeir hófu
mótmælin og síðan fylgdu fleiri í
kjölfarið.
»Munkarnir eru andvígir her-foringjastjórninni, sem hald-
ið hefur landinu í greipum ógnar
í áratugi. Þeir sækjast ekki eftir
völdum, en herforingjarnir hafa
gert ýmislegt til að kaupa velvild
þeirra.
TRÚARBRÖGл
Trúin er oft drifkraftur andspyrnu gegn kúgun og harðstjórn Munkarnir og nunnurnar tóku fyrsta
skrefið í Búrma Ef til vill er ekki gott að hetjurnar stjórni en það er gott að hafa þær til taks
Höfundur er prófessor í lýðræði,
mannréttindum og blaðamennsku við
Bard College. Nýjasta bók hans heitir
Murder in Amsterdam: The Death of
Theo Van Gogh and the Limits of
Tolerance. ©Project Syndicate.
Eftir Valgerði Þ. Jónsdóttur
vjon@mbl.is
M
argur landinn setur
upp snúð í bakaríum
landsins þessa dag-
ana vegna þess að
afgreiðslufólkið mis-
skilur hann eða skilur hann bara alls
ekki. Ástæðan er sú að í uppsveifl-
unni undanfarið fást Íslendingar ekki
svo glatt til að gegna helstu láglauna-
störfunum og því hafa útlendingar,
sem hvorki skilja né tala íslensku, í
auknum mæli verið ráðnir til starfa í
bakaríum, stórmörkuðum og þjón-
ustufyrirtækjum.
Með því að láta af pirringnum,
brosa þess í stað og pata kannski svo-
lítið með höndunum mætti ætla að
auðvelt væri að kippa málum í lag og
ganga fremur út með snúð en snúð-
ugur – eða sæll og glaður með hvers
kyns brauð og bakkelsi.
Umdeild ákvörðun
Í Sainsbury’s-verslunarkeðjunum
á Bretlandi hefur líka verið töluvert
um handapat upp á síðkastið og í ein-
staka tilvikum hafa viðskiptavinir
gengið snúðugir út. Þannig er í pott-
inn búið að frá því um mánaðamótin
hafa þeir íslömsku starfsmenn, sem
hafna áfengi af trúarlegum ástæðum,
haft leyfi vinnuveitenda sinna fyrir að
neita að afgreiða alla áfenga drykki.
Frumkvæði og forgöngu um málið
hafði fyrirtækið sjálft. Íslömskum
starfsmönnum var sagt að þegar
áfengi kæmi inn á þeirra borð skyldu
þeir einfaldlega rétta upp hendur og
gefa kollegum sínum þannig til kynna
að leysa þá tímabundið undan af-
greiðslunni. Þeim sem unnu við að
raða víni, bjór og öðru áfengi upp í
hillur hafa verið boðin önnur störf í
fyrirtækinu, enda segjast talsmenn
þess kappkosta að koma til móts við
trú allra starfsmanna sinna.
Eins og við var að búast reyndist
ákvörðunin umdeild. Spurningar álík-
ar þeirri hvort Múhameð ætti að fara
til fjallsins eða fjallið til Múhameðs
vöknuðu og sitt sýndist hverjum. Þó
þótti skjóta skökku við þegar nokkrir
múslímar úr röðum menntamanna
fordæmdu ákvörðunina opinberlega
og lýstu því yfir að múslímar, sem
neituðu að selja áfengi brygðust
skyldum sínum við vinnuveitendur
sína.
Öfugsnúið umburðarlyndi?
Íslamstrú kveður á um að múslím-
ar megi ekki að neyta áfengis, en
skiptar skoðanir eru hvort þeim sé
heimilt að versla með áfengi. Sumir
múslímar í Sainsbury’s kæra sig koll-
ótta og halda störfum sínum áfram
eins og ekkert hafi í skorist. Aðrir
nýta sér undanþáguna til hins ýtr-
asta. The Sunday Times segir að við-
skiptavinir kippi sér alla jafna ekki
upp við vesenið sem af þessu getur
hlotist, öfugt við nokkra málsmetandi
múslíma, sem hafi allt á hornum sér.
Til að mynda Ghayasuddin Siddiqui,
forstjóri Múslímastofnunarinnar og
leiðtogi þings múslíma, sem segir til-
tækið birtingarmynd öfganna. „Mað-
ur ætlast til fagmannlegrar hegðunar
hjá fólki í þessum starfsstéttum,“
sagði hann og ennfremur að það lýsti
skorti á þroska að nýta sér heimild-
ina. Hann hrósar þó Sainsbury’s fyrir
viðleitni til að virða óskir starfs-
manna sinna, en segir sökina liggja
hjá þeim sem notfæri sér góð-
mennsku vinnuveitenda sinna. Einu
gildi þótt það sé í föstumánuðinum
ramadan.
Ibrahim Mogra, formaður nefndar
um samskipti trúarbragða í múslím-
aráðinu í Bretlandi tekur nokkurn
veginn í sama streng og Siddiqui:
„Íslamskir starfsmenn ættu að hugsa
meira um það svigrúm, sem þeir hafa
innan íslamskra laga til að verða betri
starfskraftar í stað þess að ýta undir
að litið verði á þá sem fólk sem erfitt
er að umgangast og koma til móts við.
Talsmaður Sainsbury’s upplýsti að
allir umsækjendur um störf væru
spurðir mikilvægra spurninga um
hvort þeir hefðu eitthvað á móti því
að fást við ákveðnar vörur. Ef um
slíkt væri að ræða reyndi fyrirtækið
eftir föngum að koma til móts við
væntanlega starfsmenn sína.
Múhameð
og fjallið
Reuters
Undanþága Múslímar í Bretlandi eru ekki á eitt sáttir um undanþáguheim-
ild, sem Sainsbury’s veiti íslömskum starfsmönnum sínum.
Í Sainsbury’s mega íslamskir starfs-
menn neita að afgreiða áfenga drykki
SAMFÉLAGIл