Morgunblaðið - 14.10.2007, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 63
Afi var af gamla
skólanum. Gott ef hann
var ekki skólastjóri
þar. Þetta þykist ég
vita um afa enda þótt næstum þrjátíu
ár okkar sem barnabarns og afa hafi
kannski ekki opinberað fyrir mér sér-
staklega mikið um persónu hans
sjálfs. Það held ég reyndar að sé al-
gengt um afa og barnabörn. Fyrir
barnabarninu mér var hann einfald-
lega afi, með öllu því góða sem því
tengist. Ég þekkti því afa eins vel og
flestir aðrir en ég veit ekki hversu
mikið ég kynntist að sama skapi
Kristni R. Sigurjónssyni.
Að einu leyti þó er ég alveg viss um
að ekki varð neitt greint milli Kristins
R. Sigurjónssonar og afa míns. Það
var auðvitað þegar kom að þessu
embætti skólastjóra gamla skólans.
Afi Kristinn þurfti enga starfslýsingu
til að sinna til hlítar öllum embættis-
færslum þar. Hún var honum í blóð
borin.
Hann var mikill verkmaður, mun
hafa verið hamhleypa í húsasmíðinni.
Afi byggði meðal annars kirkjuna
sem hann verður jarðaður frá. Maður
sem reist hefur guðshús á jörðu hlýt-
ur að eiga víst þak yfir höfuðið efra,
þó ekki kæmi meira til. Hann stund-
aði þjóðlegar og karlmannlegar
íþróttir, glímu og frjálsíþróttir, og atti
okkur Steinari frænda ákaft en þó
ávallt drengilega saman í hlaupum og
stökkum í Baldurshaganum á barns-
aldri. Hann gekk teinréttur, með
brjóstið út og axlirnar aftur, á meðan
hann gat á annað borð gengið einn og
óstuddur, sem var lengst af. Honum
leið best í pólóbol, íþróttagalla og
íþróttaskóm. Mér fannst hann bera
slíkan klæðnað betur en flestir,
kannski einfaldlega útaf því að sjald-
an sá ég hann öðruvísi. Afi keyrði bíl
þar til örfáum mánuðum áður en hann
dó og hætti ekki að keyra ótilneydd-
ur. Lengst af átti hann Volvo. Það fór
aldrei milli mála ef afi var á hlaðinu
því bílinn þandi hann til hins ýtrasta,
ekki síður en sjálfan sig. Og aldrei fór
hann silkisokkum um kúplingar.
Afi vaknaði alltaf eldsnemma, alveg
Kristinn R.
Sigurjónsson
✝ Kristinn RagnarSigurjónsson
fæddist í Reykjavík
4. ágúst 1920. Hann
lést á heimili sínu,
Ásbraut 7 í Kópa-
vogi, 5. október síð-
astliðinn.
Útför Kristins var
gerð frá Langholts-
kirkju 11. október sl.
í rauðabítið, og náði
alltaf pent að láta
mann vita af þeim sið.
Hann gerði armbeygj-
ur og aðrar líkamsæf-
ingar á morgnana
lengur en margir eftir-
launaþegar valda pútt-
kylfunni. Ef minnið
bregst mér ekki því
meir rámar mig í virðu-
legar Mullersæfingar
líka. Afi svolgraði ný-
mjólk úr stórum glös-
um, stakk þau út í ein-
um teig, þöndum hálsi.
Að mér vitandi kom hann aldrei ná-
lægt matseld á heimili þeirra ömmu.
Hann fékk sér kríu í eftirmiðdaginn í
Stólnum, með stóru S-i. Svaf laust og
aldrei lengi. Hann tók lýsi og hélt því
miskunnarlaust að okkur barnabörn-
unum.
Í eina skiptið sem við afi fórum
saman út í hádegismat kom ekkert
annað til greina en Múlakaffi. Og einu
sinni þegar afi átti að fá ferskt sér-
verslunarkaffi, möndlubragðbætt og
nýmalað, í matarboði hjá mömmu og
pabba komu vöflur á hann. Hann
benti mér svo lítið bar á að finna sig í
forstofunni og hvíslaði þar að mér
hvort ég myndi nokkuð ná í kaffið
Hans út í bíl. Í hanskahólfinu var
dolla af Nescafé. Neyðarbirgðir sem
báru fyrirhyggju gamla mannsins
fagurt vitni.
Nú hefur bjalla gamla skólans loks-
ins glumið afa mínum. Ég kveð hann
stoltur og þakklátur. Og lofa að taka
lýsið mitt.
Finnur Þór Vilhjálmsson.
Ég sá Kidda fyrst þegar ég var
fimm ára og hann sautján, á líkum
aldri og systkin mín. Hann var fóst-
ursonur Guðbjargar og Böðvars á
Hrútsstöðum. Aðeins var nokkurra
mínútna gangur milli bæjanna og oft
talsverður gleðskapur meðal unga
fólksins. Þetta var myndarpiltur.
Ragna systir kallaði hann kroppinn
þegar hún var að bera saman álitlega
stráka í sveitinni.
Brátt varð ljóst að Kiddi var vel
fallinn til íþrótta. Hann sópaði til sín
verðlaunum hjá UMF Ólafi Pá í Lax-
árdal og Héraðssambandi Dala-
manna. Hann var líka afbragðs verk-
maður. Eitt sinn sigraði hann í
kappslætti og það varð mér lærdóms-
ríkt því að tveir bræður mínir höfðu
orðið á undan honum en ekki vandað
sig nóg við sláttinn. Það kenndi mér
að vandvirkni er líka nauðsyn.
Síðar fóru að berast fregnir að
sunnan af gengi Kidda í glímu og öðr-
um íþróttum. Og eitt sinn birtist hann
sem bjargvættur. Ólafur Pá og UMF
Æskan í Miðdölum kepptu í boð-
hlaupi á Nesodda. Fyrirfram leit ekki
vel út fyrir okkar mönnum, en
skömmu áður en hlaupið skyldi hefj-
ast kemur Kiddi með bíl sunnan úr
Reykjavík. Hann byrjaði á að draga
hlaupaskó, stuttbuxur og boli upp úr
íþróttatösku og láta okkar menn
klæðast. Þeir höfðu ætlað að hlaupa á
sokkaleistunum og þunnum síðbux-
um. Síðan tók hann að sér lokasprett-
inn. Miðdælingar voru orðnir langt á
undan eftir þrjá fyrstu sprettina, en
Kidda tókst að vinna allt upp á síðustu
metrunum.
Jafnan var fagnaðarfundur þegar
gömlu nágrannarnir hittust hér
syðra. Það skeði ekki síst eftir að
Kiddi varð formaður Breiðfirðinga-
félagsins en því sinnti hann af sömu
atorku og öðru sem hann tók sér fyrir
hendur. Hann kom líka mjög oft í
jarðarfarir og stórafmæli hjá systk-
inum mínum og venslafólki. Stundum
lá mér við að efast um að við ættum
þessa ræktarsemi skilið.
Nú er þetta unga fólk sem ég horfði
á í bernsku allt horfið og það kemur í
minn hlut að bera kveðju frá gömlum
heimkynnum.
Árni Björnsson.
Þú gast alltaf allt
reddað öllu, alveg
sama hvað það var. Ég
hélt alltaf að þú gætir
allt eins og þú værir
súperkona eða Guð og
alltaf tilbúin að hjálpa
öðrum eins og krökkum sem minna
mættu sín. Og stoltið var svo mikið að
þegar heilsan var að hrekkja þig þá
lentum við í bæjarhúsnæði. Og prjón-
aðir lopapeysur fyrir lifibrauði. Svo
þegar heilsan lagaðist varstu fljót að
finna annað húsnæði, því þú vildir allt
það besta fyrir okkur, vildir enga ölm-
usu. Vannst oft á tíðum á 2 til 3 stöð-
um, sendir okkur í sveit á sumrin til
að þú gætir unnið meira og safnað
fyrir vetrinum til að fæða okkur og
klæða. Svo við myndum líka læra um
dýrin og náttúruna. Fékkst gott fólk
til að annast okkur. Þú varst alltaf
þarna fyrir okkur. Þegar ég slasaðist
eða lenti inn á sjúkrahúsi einu sinni
Erla Sigurgeirsdóttir
✝ Erla Sigurgeirs-dóttir fæddist
31. ágúst 1939. Hún
lést 1. september
síðastliðinn.
Erla var jarð-
sungin frá Fossvogs-
kirkju 21. sept. sl.
sem oftar þá stóðst þú
þétt við bak mitt.
Ég vil bara segja
takk fyrir allt saman,
elsku mamma mín. Ég
veit að þér líður vel
núna. Ég bið að heilsa
Sólrúnu systur og Sig-
urgeir afa.
Elskulega mamma mín
mjúk er alltaf
höndin þín
Tárin þerrar
sérhvert sinn
sem þú strýkur
vanga minn
Þegar stór ég orðinn er
allt það launa
skal ég þér.
Þinn sonur,
Eiríkur.
Þar sem englarnir syngja sefur þú.
sefur í djúpinu væra.
Við sem lifum lifum í trú.
að ljósið bjarta skæra.
veki þig með sól að morgni.
veki þig með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Kær vinkona, Erla Sigurgeirsdótt-
ir, hefur kvatt þetta líf eftir stutt en
erfið veikindi. Minningarnar streyma
nú fram. Við kynntumst fyrir 18 árum
á Kanarí og höfum haldið góðan vin-
skap síðan. Höfum ferðast saman til
útlanda, og í útilegur hér á Fróni. Þið
Siggi komuð oft til okkar í sumarbú-
staðinn og var alltaf glatt á hjalla. Þú
hafðir yndi af tónlist og söngst mikið
og spilaðir á gítar. Þú hafðir bjart og
gott viðmót, og hlýju. Sást alltaf það
jákvæða í öllu sem hefur hjálpað þér
því líf þitt var nú ekki alltaf dans á
rósum framan af. Þú hafðir gaman af
að ferðast og áttuð þið Siggi margar
góðar ferðir saman. Samverustund-
irnar í Engihjallanum, er við töluðum
um lífið og tilveruna yfir kaffibolla og
horfðum á útsýnið úr eldhúsgluggan-
um yfir alla borgina, og fjallahring-
inn. Elsku Erla mín. Ég þakka þér
góð kynni, góðar samverustundir.
Guð geymi hana og umvefji í ljósi og
kærleika.
Hér átt þú blómsveig.
bundinn af elsku.
hlýrri þökk og blikandi tárum.
Hann fölnar ei.
en fagur geymist.
í hjörtum allra ástvina þinna.
( H.L.)
Guð gefi Sigga og börnum Erlu og
fjölskyldum þeirra styrk til að takast
á við sorgina og söknuðinn.
Þín vinkona,
María G.
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 6988 / 553 6699
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947 / 565 6511
Englasteinar
Helluhrauni 10
Sími 565 2566 - www.englasteinar.is
Fallegir legsteinar
á góðu verði
✝
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR INGÓLFSSON,
Laugarásvegi 58,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum sunnudaginn
7. október.
Útförin fer fram frá Áskirkju mánudaginn
15. október kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krýsuvíkursamtökin,
banki 545-26-991 og kt. 560991-1189.
Sigríður Einarsdóttir,
Guðmundur Guðmundsson, Anna Margrét Jónsdóttir,
Rósa Guðmundsdóttir,
María Guðmundsdóttir,
Jón Einar og Margrét Rós Guðmundsbörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar og amma,
KRISTJANA HARÐARDÓTTIR,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnu-
daginn 7. október.
Jarðaförin verður gerð frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 15. október kl. 13.00.
Friðrik Ottó Ragnarsson,
Ágúst Birgir Friðriksson,
Hörður Ottó Friðriksson,
Laufey Friðriksdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HRÖNN A. RASMUSSEN
fv. varðstjóri hjá Landssíma Íslands,
hjúkrunarheimilinu Sóltúni,
áður til heimilis á
Vesturgötu 7, Reykjavík,
sem lést fimmtudaginn 4. október, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík mánudaginn 15. október kl. 15.00.
Óskar F. Sverrisson, Sigurveig J. Einarsdóttir,
Gunnar A. Sverrisson, Hrafnhildur Garðarsdóttir,
Garðar Sverrisson, Gerður Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KRISTÍN FRIÐRIKKA HJÖRVAR,
Ásholti 40,
Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 7. október, verður
jarðsungin frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn
17. október kl. 13.00.
Pálína Guðrún Karlsdóttir, Sigurður Daníelsson,
Ingibjörg Hjörvar, Jón Kristján Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæri,
HAUKUR ÞORVALDSSON
matreiðslumaður,
Veghúsum 31,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 2. október á líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi.
Jarðarförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn
16. október kl. 13.00.
Björg Jóhannsdóttir,
Björgvin Margeir Hauksson,
Agnes Björk Hauksdóttir,
Hermann Haukur Hauksson, Auður Jónsdóttir,
Þorvaldur Hauksson,
Jóhanna Clara Jónsdóttir,
Jón Knútur Jónsson, Eva Hillerz
og barnabörnin.