Morgunblaðið - 14.10.2007, Side 14
H
vað eruð þið að
hugsa?“ spyr
Hreinn, 13 ára,
ákveðið og skellir
íþróttatöskunni á
gólfið á heimili
sínu í Grafarvog-
inum. Hann er að
koma af fótbolta-
æfingu og er greinilega mikið niðri
fyrir.
„Hvað áttu við, elskan mín?“ spyr
mamma og hrærir í sósunni. „Gekk
ekki vel á æfingunni?“
„Jú, það gekk vel á æfingunni. Ég
er ekki að tala um það.“
Hreinn ætlast greinilega til þess
að spurningunni sé svarað.
„Við erum að hugsa um matinn,“
segir pabbi í hálfkæringi og heldur
áfram að saxa niður sveppi eins og
ekkert hafi í skorist.
Alltaf jafnsniðugur, karlinn.
„Ég sá alveg geðveika mynd í
skólanum í dag,“ heldur Hreinn
áfram og lætur ekki slá sig út af lag-
inu.
„Hvaða mynd var það, vinur?“
„Það var mynd um loftslagsbreyt-
ingar af mannavöldum. Gaurinn
sem vildi verða forseti Bandaríkj-
anna gerði hana.“
„Al Gore,“ segir pabbi.
„Já, hann.“
„Ég hef heyrt um þessa mynd.
Hann fékk Óskarsverðlaunin eða
eitthvað álíka fyrir hana,“ segir
pabbi.
„Að hugsa sér ef Al Gore væri
forseti Bandaríkjanna en ekki
George Bush,“ segir mamma og
lætur hugann reika. Ekki gefin fyrir
stríðsbrölt, frúin.
„Mér er alveg sama um það,“ seg-
ir Hreinn óþolinmóður. „Ekki skipta
um umræðuefni.“
Bara með jörðina í láni
„Hvað er svona merkilegt við
þessa mynd, Hreinn minn?“ spyr
pabbi og reynir loks að sýna málinu
áhuga.
„Sko, málið er það að þið eruð
bara með jörðina í láni og eigið að
skila henni í heilu lagi til okkar,
barnanna ykkar,“ útskýrir Hreinn.
„Og munum gera það,“ segir
mamma.
„Nei, það er ein-
mitt málið. Þið
eruð að
skemma jörð-
ina,“ segir
Hreinn í ásök-
unartón og
bendir á for-
eldra sína.
„Nú,“ segir
pabbi og hlær.
„Við mamma þín, prívat og persónu-
lega.“
„Já,“ fullyrðir Hreinn. „Þið gerið
ekki neitt í málinu, bíðið bara eftir
því að einhver geri það fyrir ykkur.
Á meðan hlýnar jafnt og þétt af
mannavöldum með skelfilegum af-
leiðingum fyrir jörðina og íbúa
hennar.“
„Það er naumast. Það væri ósk-
andi að þú sýndir stærðfræðinni
jafn mikinn áhuga og þessari mynd,
Hreinn minn,“ segir mamma.
„Mamma, ef við grípum ekki
strax í taumana verður stærðfræði
minnsta vandamálið.“
„Hvað eigum við þá að gera?“
spyr mamma og sýnir loksins lit.
„Það er ógeðslega
margt sem þið getið
gert til að draga úr
gróðurhúsaáhrif-
unum. Kennarinn
segir að þið getið
farið á námskeið og
lært að leggja ykkar
af mörkum. Margt
smátt gerir eitt stórt,
eða eitthvað svoleið-
is. Ef allir hugsa eins
og þið gerist ekki
F+ !
G
8
;8 (2H$
8
;18
-
2
<*!
-
8 (2H$
='8
-
2
1$
8 !
I " (
18
-
2
8 (2H$
?
-
8
;18
-
2
.
!
(H 8
8 (2H$ 1$ (
G
8
; J
K
" (
18
-
2
7 8 (2H$ 8
/8 (2H$
2
… hin óvissan, sem er
meiri, snýst um hversu
hratt okkur tekst að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda.
urstöður IPCC. Sú staða kemur kannski aldrei
upp að alveg allir sannfærist og ég held t.d. að
Flat Earth Society sé ennþá starfandi.“
Það skal upplýst að Halldór hefur rétt fyrir
sér. Flat Earth Society hefur starfað frá árinu
1547 og á heimasíðu þeirra, www.alaska.net/
~clund/e_djublonskopf/Flatearthsociety.htm,
eru færð vísindaleg rök fyrir því að jörðin sé flöt.
Váin ekki umflúin
Í umræðunni hér heima eru mótrök einstaka
erlendra vísindamann gjarnan dregin fram í
dagsljósið. Einn þeirra er danski stjórnmála-
fræðingurinn Bjørn Lomborg, kennari við Við-
skiptaháskóla Kaupmannahafnar. Hann gagn-
rýnir harkalega viðbrögð og aðgerðir
alþjóðasamfélagsins vegna loftslagsbreyting-
anna, sem hann segir kostnaðarsamar og skila
litlum árangri. Hins vegar segir hann hlýnun
loftslags raunverulega og af manna völdum
þótt hann dragi úr því hversu alvarlegt ástandið
sé.
Svo virðist sem að fyrir hverja grein og bók
sem Lomborg skrifi rísi fjöldinn allur af vís-
indamönnum upp til andmæla. Eins hefur
danska vísindasiðanefndin (Udvalgene vedrø-
rende videnskabelig uredelighed) vítt hann fyrir
skrif sín. Sérstaklega virðist umræðan gegn
skrifum Lomborg vera hávær í Danmörku og
sem dæmi heldur líffræðingurinn Kåre Fog úti
sérstakri heimasíðu þar sem villum í bókum og
skrifum Lomborgs er haldið til haga. Slóðin á
þá síðu er www.lomborg-errors.dk.
Í öllum grundvallaratriðum er heimsbyggðin
því komin að niðurstöðu um að fyrir dyrum sé
vá, sem ekki verði umflúin og nauðsyn sé að
hamla gegn. Eða eins og framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon orðaði það
á fundi þjóðarleiðtoga í New York í september:
„Í dag er tími efans liðinn.“
urfræðings þar sem fjörugar umræður hafa far-
ið fram í sumar. „Adolf Hitler sagði: „Berðu á
borð fyrir fjöldann stórkostlega lygi og hún verð-
ur að sannleika.“ Ég held að þessi orð hans
eigi við um hnatthlýnunina af mannavöldum,“
segir annar. Og sá þriðji: „Ég hef fylgst vel með
þessari umræðu og væri ég dómari fyrir rétti
myndi ég sýkna manninn af mengunarákæru
vegna skorts á sönnunargögnum.“
„Staðreyndirnar“ í málinu eru samkvæmt
þessu ekki óumdeildar, a.m.k. þar sem leik-
menn eru annars vegar. Í partíum deila Jón og
Gunna ákaft um hvort loftslagsbreytingar af
manna völdum séu raunverulegar eður ei, ekki
síst eftir að heimildamyndin „The Great Global
Warming Swindle“ var sýnd í Ríkissjónvarpinu í
sumar en í henni færa erlendir vísindamenn rök
fyrir því að tilgátan um hlýnun loftslags af
mannavöldum sé samsæri vísindaheimsins og
umhverfisverndarsinna.
Eftir að hafa skoðað málið er niðurstaða
þeirra sem þetta skrifa sú að ef slíkt samsæri
er raunin er það stærra en orð fá lýst. Að IPCC
standa hundruð vísindamanna víðs vegar úr
heiminum og niðurstöður þeirra þurfa að hljóta
samþykki allra aðildarríkja SÞ. Alls staðar þar
sem barið var að dyrum hjá íslenskum vís-
indamönnum vegna þessara greinarskrifa voru
menn sammála um það grundvallaratriði að
ekki leiki vafi á að loftslag fari hlýnandi og að
menn orsaki a.m.k. hluta þeirrar hlýnunar.
Menn deila hugsanlega um afleiðingarnar og
viðbrögð en ekki um vandamálið. Halldór Þor-
geirsson gengur svo langt að segja að efaum-
ræðan sé í sjálfu sér búin. „M.a.s. dregur vís-
indaráðgjafi Hvíta hússins þetta ekki lengur í
efa og Bandaríkjastjórn hefur fallist á nið-
Út í loftið
Hvað eruð þið að hugsa ?
Tími efans…
14 SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ